Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 3 Félag Sambands fískframleiðenda: Tölur Þjóðhagsstofn- nnar um afkomu í fisk- iðnaði eru marklausar MORGUNBLAÐINU hefur bor izt eftirfarandi endurrit úr gerAabók Félags Sambands fisk- framleiðenda frá 5. febrúar sl., en endurritið var ennfremur sent forsœtisráðherra, sjávar- útvegsráðherra, þjóðhagsstofn- un og fjölmiðlum. Mánudaginn 2. febrúar afhenti Þjóðhagsstofnun ríkisstjórn og aðilum sem fara með verðlagsmál í sjávarútvegi, vinnublað um af- komu fiskvinnslugreina. Eins og nafnið vinnublað ber með sér var þarna um upplýs- Seyðisfjörður: Friðjón gerir tillögu um Sigurð Helgason DÓMSMÁLARÁÐHERRA, Friðjón Þórðarson. hefur gert um það tillögu til forseta tslands, að Sig- urði Helgasyni, hrl„ verði veitt embætti bæjarfógeta á Seyðisfirði og sýslumanns N-Múlasýslu. Sigurður Helgason Sigurður Helgason er fæddur 27. ágúst 1931, sonur Guðrúnar Lárus- dóttur og Helga Ingvarssonar, lækn- is á Vífilstöðum. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1951 og viðskiptafræðingur varð hann frá Háskóla íslands 54 og lögfræðingur 1957. Níu árum síðar stundaði hann framhaldsnám í lög- fræði við Harwardháskóla. Sigurður Helgason var erindreki Sjálfstæðisflokksins og síðan fram- kvæmdastjóri Verzlunarsambands- ins hf. til 1967. Þá stofnaði hann lögfræðiskrifstofu í Kópavogi, en hefur tvö síðustu árin rekið lög- fræðiskrifstofu í Reykjávík. Sigurður Helgason var bæjar- fulltrúi í Kópavogi í 13 ár; frá 1962 — 1975 og forseti bæjarstjórnar síðustu tvö árin. Hann sat í mörgum nefndum og ráðum á vegum Kópa- vogsbæjar, m.a. bæjarráði. I stjórn Sparisjóðs Kópavogs hefur hann verið frá 1963 og stjórnarformaður frá 1970. Kona Sigurðar er Gyða Stefáns- dóttir og eiga þau 6 börn. ingar að ræða, sem þeir menn sem nána þekkingu hafa af verð- lagsmálum sjávarútvegsins, gátu unnið ákveðnar niðurstöður úr. En til annarra átti þetta blað ekkert erindi, nema þá til þess að gefa villandi upplýsingar, ef það getur kallast erindi. Engu að síður voru fjölmiðlar búnir að fá þetta vinnublað í hendur strax daginn eftir og byrjaðir að birta tölur um af- komu í fiskiðnaði á grundvelli þess. Er skemmst frá að segja að þær tölur eru altar marklausar. Þær gefa enga raunhæfa mynd á afkomu fiskvinnslunnar, hvorki yfir lengri eða skemmri tíma, hvorki fyrr né síðar. Stjórn Félags sambands fisk- framleiðenda harmar að þannig skyldi farið að, þar sem afleið- ingarnar geta ekki orðið aðrar en þær að draga úr trausti á Þjóð- hagsstofnun, sem þó hefur varla til saka unnið og gefa almenningi á Islandi og erlendum viðskipta- vinum rangar hugmyndir. Er þess að vænta að þessi mistök verði víti til varnaðar. Buster Keaton Kvikmyndahátíð: „Heimsfrumsýning44 á gömlum myndum Buster Keatons Á SUNNUDAG hefjast sýn- ingar í Regnboganum á Kvik- myndahátíð á myndum Buster Keatons, gamanleikarans óvið- jafnanlega. Raymond Rohauer mun íylgja myndunum úr hlaði. Rohauer er enn að grafa upp myndir eftir Keaton, sem álitn- Rikisfóstrur segja upp störfum sínum Lungnabólga í kjöl- far Rússaflensunnar „RÚSSAFLENSAN hefur verið mjög erfið og fólk hefur verið lengi að jafna sig, en sérstaklega hefur verið mikið um lungna- bólgu hjá börnum og ungu fólki i kjölfar flensunnar," sagði Skúli G. Johnsen borgarlæknir i sam- tali við Mbl. í gær. „Rússaflensa var hér síðast á ferð sem stór faraldur árið 1957, en nú hefur fólki í ríkum mæli slegið niður aftur eftir að það var orðið hitalaust og farið á stjá. Það er því ástæða til þess að brýna fyrir fólki að fara vel með sig og sérstaklega að gæta að heilsu barna. Ef kvef og hiti haldast óeðlilega lengi, þá er ástæða til Framtals- frestur til 18. febrúar ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram- lengja framtalsfrest einstaklinga vegna skattálagningar til 18. febrúar nk., að sögn Ævars fs- berg. vararikisskattstjóra. „Ástæða þess, að aukinn frestur er veittur, er sú, að fyrir Alþingi liggur frumvarp um skattamál, sem væntanlega verður afgreitt í næstu, viku. I frumvarpinu eru ákvæði um vaxtamál, sem skipta einstaklinga miklu máli, auk atriða varðandi einstaka iðnaðar- mannahópa, sagði Ævar ennfrem- þess að kalla á lækni," sagði Skúli borgarlæknir. FÓSTRUR starfandi hjá ríkinu hafa sagt upp störfum sinum frá 1. febrúar sl. og koma uppsagnir þessar því til framkvæmda hinn 1. mai nk. Jóhanna Hákonardótt- ir trúnaðarmaður rikisfóstra hjá Starfsmannafélagi rikisstofnana, sagði í samtali við Mbl., að aðgerðir þessar væru í samra>mi við aðgerðir fóstra víða um land, sem hafa einnig boðað uppsagnir. — Sérkjarasamningum við ríkisfóstrur er ekki lokið þrátt fyrir að sérkjarasamningar við alla aðra ríkisstarfsmenn hafi verið undirritaðir í nóvember sl., sagði Jóhanna, en það hafa engir fundir verið haldnir að undan- förnu og geri ég ráð fyrir að ríkið bíði úrslita mála hjá fóstrum sem starfa hjá Reykjavíkurborg, en þessir hópar hafa yfirleitt fylgst að. Okkur var boðið það sama og fóstrur hjá borginni fengu, en því höfnuðum við. Byrjunarlaun okkar eru nú skv. 10. flokki, sem eru 4.496 krónur, en við höfum gert kröfur um að fóstrur flytjist almennt upp í 13. flokk. ar voru glataðar eða eyðilagðar. Á sunnudaginn mun hann kynna tvær stuttar myndir, 20 mínútur' hvor, sem nýbúið er að gera upp og sem ekki hafa verið sýndar síðan á framleiðsluári og hér er því um nokkurs konar heimsfrumsýningu á þeim að ræða, segir í frétt frá Kvik- myndahátíð. Myndirnar eru Fangi nr. 13 (Convict 13) frá árinu 1921 og Ástarhreiðrið (Love Nest) frá 1923. Fangi nr. 13 var til í mjög ófullkominni kópíu, en úr Ást- arhreiðrinu var aðeins. til ein ljósmynd, sem sýnir Keaton standandi í reiðanum á segl- skipi. En nú er hægt að sjá þessar myndir á ný. Fangi nr. 13 er eitt besta dæmið um gálgahúmor Keatons. Þar stendur til að hengja hann fyrir framan áhorfendur sem borða að sjálfsögðu poppkorn, en síð- an gerist margt óvænt. Ástar- hreiðrið er eins konar uppkast að löngu myndinni Sæfaranum (The Navigator), sem einnig verður sýnd á kvikmyndahátíð- inni. Grandaði f ljúgandi furðu- hlutur varnarliðsþotu? „ÞETTA gerðist á ísiandi... Við heyrðum flugmanninn staðfesta í talstöðinni, að þarna væri fljúgandi furðu- hlutur, en siðan rofnaði sam- bandið. Það næsta sem við sáum var að þotan steyptist í sjóinn. Þetta var á grunnsævi og okkur tókst að ná þotunni upp og líkum beggja flug- rnannanna." Þcssa frásögn er að finna i bók; Hættuástand: umsátur fljúgandi furðuhluta, eftir Leor.ard H. Stringfield. í formála bókarinnar, seíll Donald E. Keyhoe, majór, skrif- ar, segir hann m.a., að höfundur bókarinnar hafi starfað mjög mikið að rannsóknum á fljúg- andi furðuhlutum og meðal annars um tíma á vegum bandariska flughersins. I bók- inni segir Stringfield að á fyrri helmingi sjötta áratugarins hafi návígi bandárískra herþota og fljúgandi furðuhluta verið það tíð, að yfirmenn flughersins hafi haft verulegar áhyggjur af þeim mannskaða Og flugvéla- missi, sem þau ollu. Hefur hann m.a. eftir ónafngreindum majór í flughernum, að flugherinn missi að meðaltali eina flugvél á dag af völdum fljúgandi furðuhluta. I bókinni segir Stringfield, að árið 1955 hafi hann hitt majór í bandaríska flughernum, sem hafi sagt honum, að hann hefði verulegar áhyggjur af því, „sem er að gerast með flugvélarnar okkar". Majór þessi, sem þá hafi verið fyrir skömmu kominn heim frá skyldustörfum handan hafsins, hafi síðan sagt honum eftirfarandi sögu: „Þetta gerðist á íslandi, þegar ég var þar með ■ flughernum. Það byrjaði með því, að á radarnum komu fram tveir fljúgandi furðuhlutir, sem nálguðust stöð okkar með mikl- um hraða. Við höfðum þotu á eftirlitsflugi á svæðinu og hún var send í veg fyrir furðuhlut- ina. Við heyrðum flugmanninn staðfesta í talstöðinni, að þarna væri fljógandi furðuhlutur, en síðan rofnaði sambanaió. Þllö LEONARD H STRINGhELD Situation Red: THEUFOSIEGE Foreword byMajor | Donald E Keyboe næsta sem við sáum var að þotan steyptist í sjóinn. Þetta var á grunnsævi og okkur tókst að ná þotunni upp og líkum beggja fiugmánn2.n.na.“ Síðan segir sögumaður: gátum enga skýringu gefið á þessu slysi og það voru ýmsir aðrir atburðir, sem við gátum ekki útskýrt. En punkturinn var settur aftan við þetta ákveðna mál, þegar ættingjunum var tilkynnt, að flugmennirnir hefðu farizt í venjulegu eftir- litsflugi." Stringfield bætir svo við, að á þessum árum hafi gerzt fleiri atburðir sem þessi við ísiand og segir frá nokkruRi þeirra í bókinni. Mbl. hafði í gær samband við varnarliðið vegna þessarar frásagnar. Þar fengust þau svör, að fyrirspurn blaðsins yrði komið áfram til Pentagon, bandaríska varnarmálaráðu- neytisins, sem afgreiddi mál af þessu tagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.