Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 ■Hv • be>?ar Beckenbauer lék kveðjuleik sinn með Cosmos i New York lék Péle aftur með liði Cosmos. 72.000 áhorfendur mættu til að sjá kappana leika saman. bað hefur væntanlega gefið dágóðan ágóða i kassann hjá Cosmos. Haukar — Fram leika í dag Franz Beckenbauer Tilboðinu var ekki hægt að hafna HÉR Á eftir fer önnur greinin um knatt- spyrnukeisarann Franz Beckenbauer. Sú fyrsta var í síðasta þriðjudagsblaði og sú þriðja og síðasta verður næstkomandi þriðjudag í íþróttablaði Morgunblaðsins. Sundmót Ægis SUNDMÓT .íjfÍK verftur haldið I Sundhðll Reykjavikur duKuna 9.—10. fehrúar ncstkumandi. Keppt verður i eftirtðldum srein- um: Minudatfinn 9. febrúar: 1.1500 m akriðttund karla. 2.1500 m akriðaund kvenna ÞriðjudaKÍnn 10. febrúar: 3.100 m fjórsund karla. 4. 400 m fjórsund kvenna. 5. 200 m brinKúsund karia. 6. 200 m brinKUsund kvenna. 7. 200 m skriðsund karla. 8.100 m skriðsund kvenna. 9. 200 m baksund karla. 10. 200 m baksund kvenna. 11. 200 m fluKsund karla. 12.100 m (luKsund kvenna. 13. 4x100 m akriðsund karla. 14.4x100 m fjórsund kvenna. Breiðablik AÐALFUNDUR Styrktarfé- lajfs Breiðabliks verður haldinn 7. febr. kl. 12.00 i félaKsheimili KópavoKs. Badmintonmót OPIÐ tviliðaleiksmót i bad- minton fer fram á veKum KR 14. febrúar ok hefst mótið kl. 14.00. Allir bestu badmintonspilarar landsins taka þátt i mótinu. bátttöku- tilkynninKar þurfa að ber- ast til óskars Guðmundsson- ar KR fyrir 12. febrúar. Bessamót í handknattleik SUNNUDAGINN 22. febrú- ar fer fram Bessamót í handknattleik í Hafnarfirði. (Mót fyrir framhaldsskóla). Leiktimi er 2*15 minútur. Utsláttarkeppni. Allir leik- irnir fara fram í iþróttahús- inu í Hafnarfirði. bátttöku- tilkynninnar þurfa að ber- ast skrifstofu FlensborK- arskólans sem fyrst. bátt- tökuKjald er krónur 200. Skíðamót KA UM HELGINA fer fram skíðamót á Akureyri á vck- um KA. Keppt verður í stórsvÍKÍ. í daK. lauKardaK. er keppt i ynKri flokkum en á morKun i eldri flokkum. Keppni hefst báða daKana kl. 11.30. Leiknir AÐALFUNDUR íþróttafé- iaKsins Leiknis verður 14. febrúar að Seljabraut 54 ok hefst kl. 19.00. í DAG kl. 14.00 leika í íþrótta- húsinu i Hafnarfirði Ilaukar <>k Fram siðasta leik sinn i 1. deild Islandsmótsins að þessu sinni. Leikur þessi er mjöK þýðinKar- mikill fyrir bæði liðin. Bæði liðin eru i fallharáttu <>k þurfa Hauk- ar að si^ra i leiknum til þess að KulltryKKja sík. Ok reyndar næK- ir þeim jafntefli til að sleppa. En sÍKri Fram i leiknum er sá möKuleiki fyrir hendi að þrjú lið verði jöfn að stÍKum. bað er að seKja ef KR sÍKrar Fylki á sunnudaKskvöldið. Mikil spenna á botninum <>k allt Kctur Kerst. beKar samninKur Beckenbau- ers rann út hjá liði hans Bayern Munchen voru mörK lið í Evrópu á eftir honum. Landar hans Kátu ekki huKsað sér annað en að „keisarinn* væri í fararbroddi landsliðsins sem átti að verja heimsmeistaratitilinn i knatt- spyrnu í ArKentínu árið 1978. En Beckenbauer kom öllum á óvart. hann Kerði ekki samninK við lið i Evrópu. hann hélt til Bandarikj- anna. bar með álitu flestir að ferli hans sem knattspyrnu- maður væri lokið. En hvers veKna fór „keisarinnn til Bandarikj- anna? Hann hefur sjálfur gefið þá skýringu í blaðaviðtölum að fyrst og fremst hafi það verið vegna þriggja höfuðástæðna. Cosmos gerði honum tilboð sem var svo hátt að því hefði enginn knatt- spyrnumaður hafnað. Tekjur hans í Evrópu fóru að miklum hluta í skatta, og hann átti í erfiðleikum í hjónabandi sínu og var á leiðinni að skilja við konu sína. Forráðamenn Cosmos vissu hvað þeir voru að gera þegar þeir fjárfestu í Beckenbauer. Hann var jú einn af fáum sem hafði náð því að verða lifandi goðsögn í knatt- spyrnu. Hann var gífurlega vel þekktur og aðsókn að leikjum liðsins jókst mikið. Beckenbauer lék í þrjú ár með Cosmos. Hann hefði getað leikið á einum fæti með liðinu og samt verið stjarna, skrifaði eitt dagblaðið. Hann þurfti ekki að vera með mikla yfirferð í leikjum sínum. Hann lék með höfðinu og stjórnaði leik liðsins að öllu leyti. Einn mót- herja hans sagði: „Mér var sagt að taka Beckenbauer úr umferð. Víkja ekki frá honum. Ég gerði það. En mér fannst hann aldrei vera með boltann. Um leið og sending kom til hans og ég fór af stað losaði hann sig við boltann. Að sögn Beckenbauers tók hann lífinu með ró í Bandaríkjunum. „Þar lærði ég ýmislegt nýtt og meðal annars að taka lífinu með stakri ró og yfirvegun." Þegar samningur hans við Cosmos rann út voru þeir tilbúnir að skrifa undir nýjan samning við Becken- bauer og buðu stórar upphæðir. Hvers vegna fór hann þá aftur til Evrópu og að leika knattspyrnu í heimalandi sínu, orðinn 35 ára gamall? Beckenbauer hefur skýrt frá viðhorfi sínu í blaðaviðtölum og verið mjög opinskár. Og frá því verður nánar greint í þriðju grein- inni um þennan þekkta knatt- spyrnumann í íþróttablaði Morg- unblaðsins næstkomandi þriðju- dag. ÞR. Körfuknattleikur um helgina Laugardagur 7. febrúar Hagaskóli kl. 14.00 Hagaskóli kl. 16.00 Hagaskóli kl. 17.30 Sunnudagur 8. febrúar Hagaskóli kl. 20.00 íþr.hús'Hafnarf. kl. 13.00 Keflavík kl. 14:00 briðjudagur 10. febrúar Hagaskóli kl. 20.00 Hagaskóli kl.21.301 Ú. deild Ármann — KR II. deild Léttir — Bræður II. deild Esja - ÍV Ú. deild Valur - ÍS II. deild Haukar — ÍV I. deild ÍBK - UMFG Ú. deild KR - ÍR deild kvenna ÍR — ÍS • Beckenbauer voru færðar góðar gjafir þegar hann lék sinn siðasta leik með Cosmos. Hér afhendir Nesuhi Ertegun forseti Cosmos honum fagran silfurdisk fagurlega áritaðan. Æfið skíðaíföniíu án þess að nota stafina. Notfærið ykkur rennslið í hverju skrefi. Gangið létt og liðuift og látið handieggina sveiflast fram or aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.