Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 23 tíma, átti Sjálfstæðisflokkurinn þar góðan fulltrúa. Hann hafði ekki tækifæri til skólagöngu frek- ar en samtímamenn hans, skóla- ganga hans var vinnan og lífsins skóli við amstur daganna. Þeim Halldóri og Halldóru varð 9 barna auðið, eitt dó ársgamalt, þau sem upp komust eru: Ingólfur f. 1929. Sigríður f. 1930. Dagný f. 1932. Erna f. 1936. Guðríður Unn- ur f. 1938. Kjartan f. 1939. Helga Fanney f. 1941, Birna f. 1943. Þetta er allt dugnaðarfólk sem hefur fengið gott veganesti frá foreldrum sínum. Á þeim árum sem börnin voru ung, voru litlar tryggingabætur fyrir bamafjöl- skyldur, enda mun oft hafa verið þröngt í búi hjá þeim hjónum eins og fleirum á þeim kreppuárum. Á búskaparárum sínum þurftu þau tvisvar að byggja upp bæjarhúsin vegna ágangs sands og vatns. Er Halldór hafði búið um 30 ára skeið á Syðri-Steinsmýri missti hann sjónina og var honum það mikill missir eins og öllum sem fyrir því verða. Sonur hans Ingólf- ur var þá fyrirvinna heimilisins um sinn, en eldri börnin voru þá flest farin að heiman. Árið 1959 tók öll fjölskyldan sig upp og flutti til Reykjavíkur. I Reykjavík komst Halldór strax í kynni við Blindraheimilið í Hamrahlíð og starfaði þar meðan kraftar leyfðu. Var hann mjög þakklátur þvi góða fólki sem hann kynntist þar. Eftir að Halldór varð að hætta vinnu á Blindraheimilinu er heilsu hans hrakaði, varð hann góður liðsmað- ur i nokkur ár, þótt blindur væri, við öflun fjár fyrir Blindraheimil- ið í Hamrahlíð með sölu happ- drættismiða hér á götum Reykja- víkur. Halldóra andaðist hér í Reykja- vík 1. apríl 1980. Eftir að Halldór missti alveg heilsuna hefur hann ekki þurft að dvelja mikið á sjúkrahúsum. Hann hefur ætíð átt heima hjá Ingólfi syni sínum, var hann mjög þakklátur honum og öllum börn- um sínum sem hann sagði að hefðu borið hann á höndum sér öll síðustu árin, munu þau geyma góðar minningar um þakklátan föður sem þau hafa leitt um í myrkri um 20 ára skeið. Ég heimsótti Halldór á 86 ára afmælisdegi hans 30. janúar sl. þar sem hann lá á Landspítalan- um, hann andaðist þar 12. febrúar. Hann sagðist vera þreyttur en brosti er ég minntist á æskustöðv- ar hans, lítið annað gat hann sagt, en við vitum að eitt sinn skal hver deyja. Eftir ósk hans verður hann lagður til hinstu hvílu við hlið mæðra sinna og feðra að Prest- bakka á Síðu í þeirri fögru sveit er hann unni. Ég vil með þessum fátæklegu línum reyna að halda uppi minningu góðs vinar og velgerðarmanns, og þakka honum fyrir samfylgdina, hefi aðeins stiklað á fáum atriðum úr langri ævi þessa aldamótamanns. Hann var einn úr hópi þeirra sem unnu hörðum höndum með skóflu og haka, orfi og ljá áður en hin vinnandi hönd fór að kynnast véltækninni til að létta störfin. Ég votta börnum hans, tengda- börnum og öðrum ættingjum inni- lega samúð. Jarðsett verður að Prestbakka á Síðu á morgun, laugardag 28. þ.m. ólafur J. Sveinsson Minning: Anna Sigríður Einarsdóttir Fædd 1. júni 1909 Dáin 14. febrúar 1981 Þó okkur sé öllum takmarkaður tími hér á jörð, og það liggi fyrir okkur öllum að deyja þá erum við yfirleitt alltaf jafn óviðbúin þegar kallið kemur og ættingjar og vinir eru teknir burt frá okkur. Söknuð- urinn er mikill, en þó vitum við að þeir sem fara á undan okkur sem heyjum lifsbaráttuna áfram hér á jörð eru lausir við allt það strit en lifa í andanum hjá Drottni. Anna var fædd 1. júní 1909 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru þau Einar Einarsson blikksmíða- meistari frá Mið-Grund V-Eyja- fjöllum og Margrét Jónsdóttir frá Berjanesi í sömu sveit. Anna var elst af fimm systrum sem allar lifa. Af þeim ber fyrst að nefna alsystur Önnu, Jóninu Geirdísi. Hún var gift Lofti Er- lendssyni slökkviliðsvarðstjóra, en hann lést 1974. Anna missti móður sína 12 ára gömul og gekk faðir hennar þá að eiga systur fyrri konu sinnar Sigríði. Með henni átti hann þrjár dætur, hálfsystur Önnu, þær Margréti sem gift er Oddi Geirs- syni pípulagningamanni, Guð- björgu sem gift var Magnúsi Hjörleifssyni logsuðumanni en hann lést 1962, og Hrefnu sem gift er Ólafi Karlssyni málarameist- ara. Anna ólst upp í foreldrahúsum. Um fermingaraldur byrjaði hún að vinna í húshjálp, þar til hún gifti sig 1. júni 1934, Ármanni Guðfreðssyni trésmíðameistara. Á öðru hjúskaparári sínu veiktist Ármann og þurfti til dvalar á sjukrahúsinu að Vífilstöðum. Leystu þau upp heimili sitt en það varð þeim báðum raun. Anna vann nú nokkurn tíma í Iðnó en fluttist síðan að Vífilstöðum til manns síns 1943. Hún gerðist starfs- stúlka í eldhúsi spítalans en Ár- mann vann á trésmíðaverkstæð- inu á staðnum. Sem lítill drengur á ég margar góðar minningar af heimsóknum mínum til Onnu frænku á Vífó en svo vorum við systkinin vön að kalla hana. Heimili þeirra var ekki stórt þar suðurfrá en greini- lega mátti sjá og finna að hún bjó manni sínum gott heimili og gestum góðar móttökur. Þau hjónin bjuggu á Vífil- stöðum þangað til þau fluttu inn á Kleppsveg 120 í Reykjavík 1968. Ármann gerðist þá húsvörður í blokkinni og var Anna með honum í því starfi. Hann lést 1975, þá 82 ára að aldri. Þeim auðnaðist aldrei að eignast barn saman og því var fráfall hans mikið áfall fyrir hana. Ármann átti þó einn son úr fyrra hjónabandi, Svavar Ár- mannsson, sem starfaði sem hót- elstjóri í Bjarkarlundi en hann lést í janúar 1980. Hann var ætíð tryggur Ónnu og hafði reglulega samband við hana og því var það henni mikill söknuður er hann lést, og tók það henni mjög nærri. Sama ár hrakaði henni mjög mikið, auk þess sem einveran var henni mjög þung. Það vill verða svo að þeir sem eru í blóma lífsins gleymi oft þeim sem orðnir eru einir og sökum aldurs eru hættir að geta runnið eftir skeiðvelli lífsins. Anna bar sig þó ávallt vel og heyrði ég hana aldrei minnast á neinn krankleika sem hrjáði hana. Hún var sérstök að því leyti. Anna frænka var mér ávallt tilhlökkunarefni er ég var yngri að árum. Kom hún þá yfirleitt í heimsókn um helgar og hafði þá ætíð eitthvað í pokahorninu sem hún rétti að mér og gladdi unga sál. Hún var traustur vinur fjöl- skyldunnar og var ávallt tilbúin að taka þátt í leikjum okkar barnanna. Hélst sú æskunnar gleði og fjör svo lengi sem hún lifði hér á meðal okkar. Eiga þeir víst ábyggilega eftir að minnast hennar, frændur hennar litlu á ísafirði, er hún var að stytta þeim stundir síðastliðið sumar. Um leið og ég kveð kæra frænku mína votta ég öllum ættingjum hennar og vinum samúð mína og bið góðan guð að blessa minningu hennar og ykkur öll. Einar Ingvi Magnússon Baldvin Einarsson forstjóri Okkur er öllum harmur í hug, mér og fjölskyldu minni, þegar við kveðjum góðvin okkar Baldvin Einarsson hinsta sinni. Frá því að ég fyrst man eftir mér hef ég notið nálægðar hans og konu hans, Kristínar móðursystur minnar. Samband sem hefur verið óvenju sterkt og traust í gegn um árin. í farangri okkar geymum við minn- ingar. sem hvorki gleymast né grandast. Minningar sem skipta okkur öll svo miklu máli. Baldvin var einn af þessum mönnum sem bjó yfir sérstökum krafti og lífsþrótti, sem fylla okkur aðdáun og tiltrú á lífið og tilveruna. Kraftur og fjör var það - Kveðja sem hann miðlaði okkur sem í kring um hann voru. Skoðanir hans voru ákveðnar og stjórnsemi var honum í blóð borin, en hlýja og umhyggja var í öllum hans gjörðum. Ekkert var honum óvið- komandi og alltaf var eitthvað að gerast þar sem hann var. Um- hverfið allt var honum eins og myndhöggvaranum leir, efniviður til mótunar og uppbyggingar, hvort sem voru menn, dýr eða gróður. Hann sat aldrei auðum höndum meðan starfsþrek entist. Allan framgang okkar lét hann sig varða og var alltaf reiðubúinn að láta til sín taka þegar þörf var á. Minnisstæð verða mér árin sem við stunduðum saman hesta- mennsku, um hverja helgi í nokk- ur ár. Natni hans við skepnurnar og þolinmæðin sem hann sýndi mér, óreyndum unglingi, lýsa drengskap og vináttu. Þetta voru dagar sem ég minnist með ævar- andi þakklæti og gleði. Öll um- gengni hans við náttúru þessa lands var í sama dúr. Hann kenndi mér að skaða ekki gróður þar sem við vorum á ferð og skógurinn sem hann kom til, austur á Þingvöllum við sumarbústað sinn, verður betri minnisvarði en þeir sem eru úr stáli og steini. Virðingin fyrir lífinu og gróðrinum verður fyrir okkur öllum, sem kynntumst hon- um, ávísun upp á framtíðina. _ÉK (ann á þinum dánardfxi. hve djúpt er stadfrst ltís vors ráA. Ég sá á allrar sorgar vegi er sólskin til með von og náð. Og út yfir þitt ævikvðld skal andinn li(a á nýrri ðld.“ Með þessum Ijóðlínum Einars Benediktssonar vil ég kveðja mann sem auðgaði okkur öll með lífi sínu. Pétur Björnsson Guðný Guðnadóttir - Minningarorð Fædd 29. janúar 1891. Dáin 26. janúar 1981. Mér finnst ég verða að minnast Guðnýjar Guðnadóttur, tengda- móður minnar með nokkrum kveðjuorðum, þó að þau kunni að reynast fátækleg, svo kær var hún mér og raunar öllum, sem höfðu af henni kynni, og svo markvert og dýrmætt var hennar langa ævi- starf. Guðný fæddist 29. janúar árið 1891 að Þrastastaðagerði á Höfða- strönd. Föðursystir hennar, Gijð- björg Jónsdóttir og maður hennar, Þórarinn í Enni í sömu sveit, tóku hana í fóstur þegar á fyrsta ári, og hjá þeim ólst hún upp fram á fullorðinsár. Hjá þeim mun hún hafa hlotið gott uppeldi og atlæti, sem reyndist henni gott vegar- nesti ásamt dugnaði og mannkost- um, sem hún hafði fengið í vöggugjöf. Árið 1911 giftist hún sveitunga sínum, Rögnvaldi Sigurðssyni frá Hólakoti. Þau byrjuðu búskap í Enni en bjuggu síðan skamma hríð á Ljótsstöðum. Þaðan fluttu þau í Málmey og bjuggu þar í þrjú ár. I Málmey var löngum talin lífleg huldufólksbyggð og oft minntist Guðný þess hversu vel sér hefði fallið sambýlið við þær verur. Þeim hjónum fór nú að þykja óþægilegt að eiga sér ekki öruggt jarðnæði og réðust í að festa kaup á Litlu-Brekku á Höfðaströnd. Þar bjuggu þau í 19 ár og komu sér upp sómasamlegu húsnæði. En árið 1935 andaðist Rögnvald- ur og var þá aðeins 46 ára að aldri. Þá höfðu þau hjónin eignast 12 börn og voru fimm þeirra innan fermingar. Börn þeirra voru þessi: Þóranna, bjó á Hjalteyri og er nú látin fyrir fáum árum, Sigurður vélstjóri á Húsavík, Matthías, sem drukknaði af Heklu á stríðsárun- um, Rósa, búsett á Akureyri, Páll, sem dó sextán ára, Rögnvaldur vélstjóri, Reykjavík, Jón, mat- sveinn á Siglufirði, Sigrún, búsett á Húsavík, Steinunn, dó á fyrsta ári, Steinunn, búsett á Siglufirði, Kristján, skipstjóri á Siglufirði, og Ari, vélamaður á Akureyri. Eins og nærri má geta þurfti þetta barnmarga heimili mikils við, og það sem búið gaf af sér nægði ekki til framfæris fjöl- skyldunni. Rögnvaldur varð því að stunda sjóinn hverja vertíð og var þá oftast á Siglufirði og að heiman langtímum saman. Þá kom það í hlut húsmóðurinnar að annast heimilið ein, þar til börnin fóru að koma til hjálpar. Þá kom sér vel að Guðný var gædd óvenjulegum kjarki, þreki og fórnarlund. Hún var meira en meðalkona á vöxt, myndarleg og hetjuleg í útliti og framkomu, harðskörp til allra starfa og veigr- aði sér ekki við að vinna hin erfiðustu karlmannsverk ásamt innanhússtörfum húsmóðurinnar. Til þeirra starfa var ekki kastað höndum. Guðný var mikil hag- leikskona og mikilvirk. Hún lét sig ekki muna um að sauma og prjóna allan fatnað á þessa stóru fjöl- skyldu, og voru þau handtök ekki lítil búbót. Nærri má geta hversu mikið og þungt áfall það var Guðnýju að missa mann sinn á besta aldri frá barnahópnum. En hún reyndist hetja í þeirri raun sem öllum öðrum, og þó að syrti að heyrðist aldrei æðruorð af hennar vörum. Þau hjónin höfðu byggt yfir sig árið 1930, og við þann kostnað, sem af því leiddi, höfðu hlaðist upp miklar skuldir. Eftir að Guð- ný hafði búið ein eitt ár, sá hún enga möguleika á að standa straum af skuldunum, enda reynd- ust innheimtumenn aðgangsharð- ir. Hún neyddist þá til að selja jörðina, bústofninn og innan- stokksmuni að mestu. Þóranna og tveir bræðranna voru þá búsett á Hjalteyri. Þangað flutti Guðný og bjó þar í þrjú ár. Ekki var mikið um vinnu fyrir kvenfólk þarna á þessum árum. Guðný flutti þá til Siglufjarðar og bjó þar til æviloka. Hún starfaði við fiskvinnslu þar til hún náði 78 ára aldri. Þá settist hún um kyrrt, en vann heima hjá sér að saumaskap og margbreytilegri handavinnu. Hún tók þátt í verkalýðsbarátt- unni og fylgdist vel með öllu sem þar gerðist. Hún var bókhneigð og ljóðelsk, minnug og skír í hugsun, og viðræðugóð með afbrigðum. Steinunn dóttir hennar og tengdasonur hennar, Helgi Sveinsson kennari, fylgdust vel með henni og reyndust henni hið besta. Guðný afþakkaði þó að dveljast á heimili þeirra, en vildi búa sjálfstætt í eigin íbúð eins lengi og heilsan leyfði. Tvö síðustu árin var hún sjúkl- ingur á Sjúkrahúsi Siglufjarðar, að mestu rúmliggjandi. Vinir hennar og aðstandendur telja sig í stórri þakkarskuld við Ásu Guð- jónsdóttur, yfirlækni og annað starfsfólk sjúkrahússins, fyrir frábæra umönnun, sem gamla konan naut þar sína síðustu daga. Hún andaðist 26. janúar síðastlið- inn og skorti þá þrjá daga í nírætt. Með fráfalli hennar var lokið löngu, örðugu og farsælu 'ævi- starfi, sem margir nutu góðs af. Lífsbaráttan var ströng á þeim árum, sem hún var að koma börnum sínum til manns, og telja má til afreka hversu vel henni fórst það úr hendi. Hún uppskar ekki mikil veraldleg verðmæti fyrir hið mikla starf sem hún vann á langri ævi, en þeim mun ríkulegra þakklæti allra sem höfðu af henni teljandi kynni. Blessuð sé minning hennar. Hans Pedersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.