Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 Kristinn Jörundsson dreif að venju lið ÍR-inga áfram. ==> ÍR NÆLDI í þriðja sætið i úrvalsdeildarkeppninni i körfu- knattleik, er liðið mætti ÍS i síðasta leik úrvalsdeildarinnar á þessu keppnistimabili. Framan af vetri benti sannarlega fátt til þess að ÍR myndi ná sæti þessu, en eftir áramótin hefur liðið sýnt allt annan og betri svip. ekki sist eftir að bræðurnir Hjörtur og Kristján Oddssynir tóku sér sæti i byrjunarliði IR ásamt Jörunds- sonunum Kristni og Jóni, auk Andy Fleming. Þessi uppstilling hefur hirt 14 stig af siðustu 18 mögulegum. aðeins töp gegn ÍS og Njarðvik i siðustu niu ieikjun- um. ÍR-ingar gætu hæglega blandað sér enn frekar i toppbar- áttuna á næsta keppnistimabili ef vel er á spilunum haldið. Lokatöl- urnar í gær urðu 82—58, en staðan i hálfleik 45—36, einnig fyrir ÍR. IR burstaöi IS og hreppti þriðja sætið — Notaðu tvær sléttfullar matskeiðar af kaffl fyrir hvern stóran bolla. Þvoðu kaffíkönnuna úr heitu vatni áður en kaffið er lagað og einnig eftir lögunina og þurrkaðu hana. — (Þvoðu og þurrkaðu kaffipokann á sama hátt). Láttu renna úr krananum andartak áður en þú tekur kaffívatnið ferskt og rennandi. Best er að laga það magn af kaffí sem kannan er gerð fyrir og helst ekki minna en 3/4 af því magni. — Oft kemur það sér þess vegna vel að eiga tvær stærðir af könnum. Áríðandi er að kaffi sjóði aldrei. — Þegar suðan er komin upp á vatninu, er gott að taka ketilinn af áður en hellt er á könnuna. — Mörgum finnst best að hella í bollana sem fyrst eftir að kaffið hef- ur verið lagað, — en í lagi er að halda kaffinu heitu í nokkurn tíma, en helst aldrei lengur en í klukkutíma. — Munið að kaffíð má aldrei sjóða. — ___ Œjas? Vissara er að bjóða ekki upp á kaffi sem hefur náð að kólna og hitað hefur verið upp að nýju, því að þá missir kaffið talsvert af sínu góða bragði og ilmi. Ráðlegt er að kaupa ekki meira kaffi en það sem notast á einni viku, nema að kaffið sé i lofttæmdum um- búðum, þá er í lagi að kaupa 6 mánaða birgðir. — ■rifrn i IB iir i Þegar kaffipakki hefur verið opnaður, reynið þá að verja kaffið fyrir súrefni andrúmsloftsins, t.d. með því að geyma kaffið í dós með þéttu loki. ÍS-menn voru án efa lúnir eftir hinn erfiða bikarleik í Njarðvík kvöldið áður. Liðið náði sér í raun aldrei á strik, ekki síst vegna þess að baráttuglatt lið ÍR gaf enga möguleika á slíku. ÍR náði strax forystu og í fyrri hálfleik munaði yfirleitt 4—8 stigum. Einu sinni minnkaði ÍS muninn í eitt stig, en ÍR hristi þá af sér. í síðari hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt og undir lokin bókstaflega hrúguðu varamenn IR stigunum niður á IS-menn. Uppskera IR varð 24-stiga sigur. ÍR hreppti því 22 stig. Valsmenn urðu í öðru sæti með 28 stig, en UMFN sigraði eins og áður hefur komið fram með 34 stig. Gísli Gíslason bar mjög af í liði IS, en Árni Guðmundsson átti sprett og sprett. Aðrir voru langt frá sínu besta, ekki síst Mark Coleman. Leikgleðin og krafturinn var í fyrirrúmi hjá IR. Byrjunar- liðið sem áður er talið lék allt vel og undir lokin tóku aðrir við, Óskar Baldursson, Björn Leosson o.fl. Stig ÍS: Gísli Gíslason 16, Árni Guðmundsson og Mark Coleman 12 hvor, Bjarni Gunnar Sveinsson 9, Ingi Stefánsson 5, Jón Óskars- son og Jón Oddsson 2 stig hvor. Stig ÍR: Andy Fleming 21, Kristinn Jörundsson 16, Jón Jör- undsson 12, Kristján Oddsson 10, Hjörtur Oddsson 8, Sigmar Karlsson 6, Björn Leosson 4, Óskar Baldursson 3 og Benedikt Ingþórsson 2 stig. —gg. Hörkuleikur í Keflavík ÞAÐ verða UMFN og Valur sem mætast i úrslitum bikarkeppni KKÍ. í fyrrakvöld sigraði UMFN lið ÍS 95—89 í hörkuleik og i gærkvöldi mættust lið ÍBK og Vals í Keflavík. Var um stórkost- legan leik að ræða, þar sem Valur vann 92—84. Var sá sigur aldrei oruggur og Valsmenn gátu ekki fagnað öruggum sigri fyrr en flautan gall og leiknum var iokið. I hálfleik var staðan 36 — 34 fyrir Val. Það er skemmst frá að segja, að allan fyrri hálfleik munaði litlu sem engu, allt var í járnum, IBK hafði meira að segja tveggja stiga forystu um hríð. Upp úr miðjum síðari hálfleik náði Valur 11 stiga forystu, en heimamenn, ákaft hvattir af rúmlega 300 áhorfend- um, söxuðu hægt og bítandi á forskotið. Þegar upp var staðið skildu þó 8 stig. Terry Read (28 stig) og Jón Kr. Gíslason (21 stig) áttu stórleik fyrir ÍBK og Stefán Bjarkarson var sterkur í síðari hálfleik. Brad Miley bar nokkuð af hjá IBK, hann skoraði líka mest, 28 stig. Ríkharður og Pétur skor- uðu 16 stig hvor. — sv / — gg. Jafntefli ÍA HREPPTI eitt stig í 1. deildar keppninni i handknattleik kvenna i Laugardalshöllinni, er liðið mætti Vikingum. Lokatölur urðu 17—17, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 12—10 fyrir Vildng. Það skaðar svo ekki að geta þess að allt kaffi i neytendaumbúðum frá Kaffibrennslu O. Johnson & Kaaber er pakkað í loftþéttar og lofttœmdar umbúðir, þannig að skaðvaldurinn, súrefni andrúmsloftsins, nær ekki að hafa áhrif á bragð og ilm. Kaffi úr lofttæmdum (hörðum) umbúðum er alltaf eins og malað ofan í könnuna. KAFRBRENNSLA O. JOHNSON & KAABER H.E ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? hl AKiLYSIR l M ALLT LAND ÞKíiAR Þl AKiLYSIR I MORííl NBLAÐINl íslandsmót 15-18 ára ' ÍSLANDSMEISTARAMÓT í frjálsiþróttum innanhúss fyrir ' aldursflokkana 15 til 18 ára (f. a 1963 til 1966), fer fram i Reykja- ^ vik dagana 14. og 15. marz k næstkomandi. Hér er um óhjá- <-i kvæmilega seinkun að ræða, en mótið átti að fara fram 28. e' febrúar. a Keppnisgreinar verða skv. k reglugerð um mótið, og keppnin a fer fram sem hér segir: "f Laugardag kl. 11 verður keppt í ' hástökki í öllum flokkum og stangarstökki drengja. Sama dag kl. 14 hefst keppni í Baldurshaga og verður þar keppt í 50 m hlaupi, 50 m grindahlaupi og langstökki allra flokka. Keppninni verður svo fram haldið í ÍR-húsinu við Tún- götu kl. 11 á sunnudag og þar keppt í atrennulausum stökkum allra flokka, en keppni í kúluvarpi pilta fer fram síðar. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjöldum þurfa að berast til Guðmundar Þórarinssonar í síðasta lagi að kvöldi mánudags 9. marz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.