Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1981 Moonistar í sviðsljósinu í Bretlandi Mlkil umræða hef- ur að undanförnu átt sér stað í Bretlandi um Sameiningar- kirkjuna eða hina svokölluðu Moonista. Eru það áhangendur Kóreumannsins Sung Myung Moons. Var sýndur um þá sjónvarpsþáttur hér á landi fyrir nokkru. : THE DAILY MAIL CAMPAIGN CONTINUES THE CHURCH THAT BREAKS UP FAMILIES Merki herferðar Daily Mail. Susan Swatland með íoreldrum sinum eftir heimkomuna. Töpuðu meiðyrðamáli og þingmenn óska eftir að þeir verði sviptir skattfrelsi Breska dagbiaðið Daily Mail hefur hafið herferð á hendur kirkjunni undir heitinu „Kirkjan sem sundrar fjölskyldum“. Hef- ur blaðið birt ýmsar greinar og viðtöl um málið og m.a. haldið því fram að meðlimir kirkjunnar séu heilaþvegnir og þeim bannað að hafa samband við fjölskyldur sínar. Moonistarnir brugðust illa við og kærðu blaðið fyrir meiðyrði og fór málið fyrir dómstóla. Þetta varð lengsta og kostnað- armesta meiðyrðamál í sögu breskra dómsmála og endaði með því að kviðdómendur töldu einróma að ásakanir Daily Mail væru réttlætanlegar. Þeir óskuðu eftir því að endurskoðuð yrðu °þau réttindi Moonista i Bretlandi sem veita þeim skatt- frelsi. Eru það réttindi sem veitt eru góðgerðarstofnunum, en kviðdómendur kváðust líta svo á að hreyfingin væri pólitísk. Þingmenn neðri málstofunnar bresku ákváðu einnig að láta málið til sín taka og yfir 100 þeirra samþykktu frumvarp þar sem fárið var fram á að Moonist- ar yrðu sviptir skattfrelsi og strikaðir út af skrá góðgerðar- stofnana. En nefnd sú sem sér um málefni góðgerðarstofnana neit- aði að verða við þessum beiðnum kviðdómendanna og þingmann- anna á þeim forsendum að hreyfing sem tignaði og tilbæði Guð hlyti að vera góðgerðar- stofnun en ekki pólitísk hreyf- ing. En þingmennirnir voru ekki ánægðir með þessi svör nefndar- innar. Þingmaðurinn David Mellor, sem lagði frumvarpið fram, ritaði formanni nefndar- innar, Terence Fitzgerald, og krafðist þess að öll starfsemi Moonista í Bretlandi yrði rann- sökuð nákvæmlega. Hann benti á að árið 1975 hefði þingnefnd neðri málstofunnar gagnrýnt að hreyfingar eins og Moonistar hefðu réttindi góðgerðarstofn- ana, á þeim forsendum að þær virtust hafa skaðieg áhrif á áhangendur sína. En Mellor lét sér ekki nægja að rita bréfið heldur gekk hann ásamt nokkrum öðrum full- trúum þingmanna á fund Fitz- geralds og endaði sá fundur með því að Fitzgerald lofaði því að ræða málið við aðra nefndar- menn og hafa náið samband við þingmenn um framvindu þess. Gaf foreldrum kjark Sigur Daily Mail í meiðyrða- málinu virðist hafa haft mikil áhrif í Bretlandi. Nokkur viðtöl hafa birst við foreldra unglinga sem gengið hafa tij liðs við hreyfinguna og eru þeir allir á einu máli um að sigurinn hafi veitt þeim kjark til að biðja börn sín um að yfirgefa Moonista. „Áður vorum við hjálparvana. En nú vitum við að blöðin, stjórnmálamenn, kirkjan og þús- undir almennra borgara eru okkur hliðhollir," segir einn sem á dóttur í Sameiningarkirkjunni. „Ég ætla að tala við dóttur mína um það sem skrifað hefur verið og sýna henni viðtölin og grein- arnar um þá sem hafa yfirgefið hreyfinguna. Ég vona að það geti sannfært hana um að hún sé hjá vondu fólki," segir hann. Ein móðirin segist hafa mikl- ar áhyggjur af dóttur sinni sem hafi gengið til liðs við Moonista. „Það þýðir ekkert að tala við hana. Við foreldrar hennar höf- um ætíð á röngu að standa en Moonistarnir hafa rétt fyrir sér. Hún tekur peninga út af banka- reikningi sínum oggefur í hreyf- inguna og nú er hún farin að tala um að gefa Moonistum hús sem við gáfum henni. Við vonum að við getum komið í veg fyrir það einhvern veginn." Fyrrum Moonisti lét frá sér fara eftirfarandi sögu: „Á einni viku seldum ég og 5 aðrar stúlkur úr hreyfingunni litla gerviapa sem festa átti á kragahorn. Við seldum fyrir tæp 3.000 pund. Aparnir voru búnir til í Kóreu og kostuðu um 20 pens hver en við seldum þá á rúmt pund. Það eru um 12 svona söluhópar í London og þeir selja t.d. póstkort og sælgæti, eitthvað sem hægt er að græða mikið á. Ég var ekki mjög dugleg við sölumennskuna en sumir, sér- staklega þeir sem voru nýliðar, voru mjög duglegir. Ef maður seldi blóm var hægt að ná í um 600 pund á dag en metið var 900 pund. Það er um ár síðan ég yfirgaf Moonistana en ennþá get ég ekki gieymt sumum söngvunum og kórunum og heyri þá alltaf innra með mér. Mér finnst það skelfi- legt. Ég er alltaf hrædd um að einhvern daginn muni þeir koma og lokka mig til sín á ný.“ Lítið er vitað um viðbrögð Moonistana við úrskurði kvið- dómendanna. Einn þeirra, David Fraser Harris, var fenginn til að ræða við blaðamenn. Hann sagði að Moonistum hefði verið leyft að lesa um málið í blöðunum. Málskostnaðurinn, sem Moonist- arnir þurfa að greiða, er 750.000 pund. Hann sagði að það væri hreyfingunni ekki ofviða og með- limirnir myndu nú leggja meira á sig til að öðlast hylli almenn- ings. „Okkur getur einungis orðið ágengt ef við erum ofsótt," sagði hann. „Rændu“ dóttur sinni úr höndum Moonista Ein af þeim greinum sem skrifaðar hafa verið í Daily Mail og fleiri bresk blöð, segir frá enskum hjónum sem létu „ræna“ dóttur sinni úr höndum Moon- ista í Kaliforníu í Bandaríkjun- um. Dóttirin, Susan Swatland, sem er 21 árs, var í sumarfríi í Kaliforníu er hún kynntist Moonistum og gekk í þeirra raðir. Foreldrar hennar fengu að heimsækja hana eitt sinn en fengu aldrei að tala við hana nema annar Moonisti væri viðstaddur. „Susan var eins og vélmenni. Hún var alls ekki lík dóttur okkar. Hún virtist vera dáleidd. Ég vissi þá að ég varð að gera eitthvað," segir faðir hennar, Michael Swatland. Foreldrar Susan fengu nokkra menn sem helga sig líf sitt því að bjarga mönnum frá Moonistum til að „ræna“ Susan. Margir þessara manna eru fyrrum Moonistar. Þeim tókst að koma Susan inn í bíl fyrir utan höfuðstöðvar Moonista í San Fransisco og aka henni til felustaðar í öðru fylki. Sama dag var annarri stúlku „rænt“ á svipuðum slóðum. En lögreglan í San Fransisco leit á þessi mál sem venjuleg mannrán og gerði árás á staðinn þar sem stúlkan var falin og á meðan slapp hún. Talið er að hún hafi farið aftur til Moonista. Ekki tókst lögreglunni að hafa upp á felustað Susan en fjórir menn voru handteknir, grunaðir um að hafa verið viðriðnir „rán- ið“. „Lögreglan sagði að við yrðum lögsótt en hún veit það eins vel og við að það mun enginn vilja taka málið upp fyrir dómstól- um,“ segir faðir Susan. Eftir að hafa verið í felum í nokkra daga undirritaði Susan yfirlýsingu um að hún vildi fara úr landi af frjálsum vilja. Hún er nú komin heim til sín á sveitabæ nálægt Kent í Bret- landi. „Það er dásamlegt að vera komin heirn," sagði hún við heimkomuna. „Nú er enginn lengur inni í höfðinu á mér og segir mér hvað ég á að gera.“ Um fyrstu kynni sín af Moon- istum segir Susan: „Ég hitti vingjarnlegan mann á ströndinni og hann gaf mér upp heimilisfang í San Fran- sisco. Hann sagði að þar yrði ég velkomin en sagði ekki að hann væri Moonisti. Ég fór til San Fransisco vegna þess hve vin- gjarnlegur maðurinn var og einnig vegna þess að hann sagði mér að ég fengi að borða þar. Fólkið sem þar var fyrir spurði mig hvort mig langaði ekki til að sjá bandarískan sveitabæ og vegna þess að sjálf er ég úr sveit, tók ég því boði. Þar hlustaði ég á fyrirlestra í 21 dag. Þeir sögðu mér að ef ég svæfi myndi það hjálpa Satan að komast að svo ég svaf ekki mikið. Þeir sögðu mér að ég þyrfti ekki að sofa. Ég saknaði oft foreldra minna og bræðranna tveggja. En ef þú ert Moonisti reynirðu að forðast að hugsa um sjálfan þig. Það er kallað sjálfselska að hugsa um eitthvað annað en að bjarga heiminum." Susan segist hafa orðið mjög reið er henni var rænt. „Ég reyndi tvisvar að flýja úr felu- staðnum," segir hún. Á þessum felustað var Susan í höndum fyrrum Moonista sem höfðu hana í endurmeðferð, eins og þeir kalla það. „Þeir sem sáu um þessa með- ferð voru góðir við mig. Fyrst hélt ég að þeir væru útsendarar Satans vegna þess að þannig var mér kennt að hugsa. í Samein- ingarkirkjunni hugsa allir eins og enginn getur gagnrýnt. En svo fór ég að skilja að það sem þeir sögðu við mig var satt, ég fór að skilja um hvað málið snerist. Nú langar mig einungis til að hjálpa fólki sem lent hefur í höndum Moonista, hjálpa því að komast frá þeim og inn í lífið á ný. Þó er ég tæplega tilbúin að taka þátt í því að „ræna“ fólki frá þeim.“ — rmn Heimildir: Daily Mail, The New Standard og Daily Telegraph. Rússar fylgjast með flotaæfingu Tokyo. 13. maí. AP. Hagnaður Alusuisse jókst um 20% 1980 BANDARtSK og japon.sk herskip hófu í dag 12 daga flotaæfingar á Japanshafi og sovézk freigáta af Petya-gerð fylgdist vandlega með þeim úr nokkur hundruð metra fjarlægð. Fjórir bandarískir tundurspillar úr Sjöunda flotanum og sjö jap- anskir tundurspillar taka þátt í flotaæfingunum, sem eru venju- bundnar æfingar í aðgerðum gegn kafbátum. Bandarískir og japanskir kafbátar og flugvélar taka einnig þátt í æfingunum. I Moskvu sagði fréttastofan Tass að hafið umhverfis Japan væri orðið hættulegt kaupskipum og fiskiskip- um vegna flotaæfinganna. ASIMINN KR: 22480 jnerpunblahib IIAGNAÐUR svissneska stórfyr- irtækisins Alusuissc jókst um nærri 20% i fyrra frá árinu á undan og nam um 135,2 miiljón- um svissneskra franka. eða nærri 150 milljónum íslenzkra króna. Sala fyrirtækisins jókst um 19,4% milli ára og nam á siðasta ári tæplega 7 milljörðum svissn- eskra franka, eða sem næst 23 milljörðum islenzkra króna. Formaður stjórnarfyrirtækisins hefur hins vegar lýst því yfir, að ekki sé útlit fyrir jafnhagstæða útkomu fyrirtækisins á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.