Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 1
4I8SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 186. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. AGUST 1981 Prentsmiðja Morgunblaösins. Lögðu un(iir sig sendiráð Irans í Stokkhólmi Stukkhólmi. 24. áifúst. AP. SÆNSKT lögreglulið, sérstaklega þjálfað til að kljást við uppþotsmenn, ruddi sér braut inn í bústað íranska sendiherrans í Stokkhólmi um hádegisbilið í dag og tók fasta 34 stúdenta frá íran, sem haft höfðu húsið á valdi sínu í fjóra tíma. Sendiherrann og fjölskylda hans, sem verið höfðu í gísl- ingu, sluppu ómeidd og engan stúdentanna sakaði. Náms- mennirnir voru óvopnaðir. Þeir tóku sendiráðsbústaðinn á sitt vald til að vekja athygli á „fjöldamorðunum" í íran. Kröfðust námsmennirnir þess að fá aðgang að sænskum fjölmiðlum til að geta for- dæmt ógnarstjórn Khomein- Do Amaral Eanes is. Sænska stjórnin neitaði að verða við kröfum þeirra. Stjórnin í Teheran krafðist þess, jafnskjótt og hún frétti af atburðunum í Stokkhólmi, að ráðist yrði til atlögu við námsmennina og þeir fang- elsaðir en gíslunum bjargað. (Símamynd Pros.sens Bild. Stokkhólmi) Sænska lögreglan rekur írönsku stúdentana, sem tóku bústað íranska sendiherrans í Stokkhólmi á sitt vald í gær, á undan sér i gegnum garð sendiherrans áleiðis að lögreglubilum. Lokafundur hafréttarráð- stefnunnar á næsta ári Genf. 24. áKÚst. AP. SAMKOMULAG náðist unt það á hafréttarráðstefnunni í Do Amaral tekur sæti í stjórn Balsemaos UsKabun. 24. áKÚKt. AP. EANES Portúgalsforseti ræddi í dag við flokksleiðtoga í portúgalska þinginu um væntanlcga ríkisstjórn undir forsæti Franciscos Balsema- os. sem baðst lausnar fyrir stjórn sína fyrir tveimur vikum. Búizt er við því að Eanes feli Balsemao formlega í kvöld eða morg- un að mynda nýja stjórn. Sú stjórn verður væntanlega allmiklu styrkari en fyrri stjórn hans, þar sem Freitas do Amaral, leiðtogi kristilegra demó- krata, ákvað að gefa kost á sér í stjórnina, en hann hefur ekki setið í ríkisstjórn síðan Sa Carneiro forsæt- isráðherra fórst í flugslysi í janúar sl. Do Amaral hefur sagt að hann hafi heitið Sa Carneiro því að setjast ekki í rikisstjórn á ný á meðan Eanes væri forseti en litlir kærleikar voru með þeim tveimur síðarnefndu. Do Amaral sagðist hins vegar líta svo á, að full þörf væri á því að styrkja þriggja flokka stjórn Balsemaos, m.a. vegna þess að Eanes hefði gefið í skyn, að hann kynni að boða til nýrra þingkosninga, tækist ekki að koma saman starfhæfri stjórn. Sagðist hann ekki hafa treyst sér til að víkjast undan ábyrgð, þegar Bals- emao hefði skorað á sig að taka sæti í stjórninni. Þriggja flokka bandalag Balsema- os hefur 134 þingsæti í portúgalska þinginu af 250. Genf í dag að halda nýjan fund í New York í vor um samningsuppkast það, sem nú liggur fyrir, og var ákveð- ið að öllum efnislegum samn- ingum um málið skyldi lokið fyrir 30. apríl nk. Einnig var ákveðið að undirbúa sérstaka undirritunarathöfn í Caracas í Venezuela, þar sem ráðstefn- an hófst árið 1974, í septem- ber 1982. Ákveðið var að breyta heiti samningsuppkastsins, sem legið hefur fyrir, og kalla það nú „opinber ráðstefnudrög", en orðinu „formleg" var sleppt að kröfu Bandaríkjamanna. Samkomulag náðist einnig um að haldið skyldi áfram samráðsviðræðum um efni draganna og Bandaríkja- mönnum þar með gefið færi á að reyna að vinna fleiri þjóðir til fylgis við þær breytingar, sem þeir vilja gera á þeim kafla draganna, sem fjallar um vinnslu og nýtingu málma af hafsbotni á djúpsævi. Samkomulagið ber hins veg- ar einnig með sér að komið var til móts við kröfur ýmissa þróunarlanda um að gengið verði frá hafréttarsamningn- um hið fyrsta. Pólland: Samstaða óbeint sökuð um njósnir Varsjá. 21. áKÚst. AP. STJÓRNIN í Póllandi herðir nú á áróðri sinum gegn Samstöðu. samtökum hinna frjáisu verka- lýðsfélaga i Póllandi. í opinber- um málgögnum stjórnarinnar i dag er ráðist á leiðtoga Samstöðu Flugslysið á Taiwan: „Aökoman stríði væri nýlokið eins og' 66 Taipei. 21. áKÚst. AP. LÍK ALLRA fórnarlambanna í flugslysinu mikla á Taiwan höfðu í kvöld fundizt að undan- skildu líki þriggja mánaða gamals barns. sem talið er að hafi komið til jarðar í þéttum skógi um miðbik þess 7 kiló- metra svæðis, sem brak fiugvél- arinnar dreifðist um. Um 500 ættingjar þeirra sem forust komu saman við líkhúsið í Taipei, þar sem 42 illa sködduð- um líkum hafði verið komið fyrir utan dyra til þess að ættingjar gætu reynt að bera á þau kennsl. Tekizt hefur að bera kennsl á 67 þeirra, sem með vélinni voru. Ættingjar hinna látnu for- dæmdu flugfélagið, sem átti vél- ina er fórst, og jusu skammar- yrðum yfir nærstadda starfs- menn félagsins. Fólkið krafðist þess einnig, að þeir sem báru ábyrgð á því að vélin var send í hina örlagaríku ferð tveim dögum eftir að henni hafði verið snúið við úr öðru flugi vegna bilana, verði látnir sæta ábyrgð og þungri refsingu. Ekkert hefur enn komið fram um orsakir slyssins, en um- fangsmikil rannsókn fer nú fram. Talsmenn flugfélagsins hafa ekki útilokað að um skemmdarverk kunni að hafa verið að ræða. „Svarti kassinn" í vélinni hefur ekki fundizt. Sjónarvottar að slysinu sl. laugardag segja að vélin hafi brotnað í tvennt örstuttu eftir að heyrzt höfðu tvær sprengingar. Einn sjónarvotta sagðist hafa séð fjölda fólks steypast til jarðar úr flaki vélarinnar. Ann- ar sjónarvottur, 18 ára gömul stúlka, sem var að vinna í garði föður síns, sagðist hafa séð mann falla ofan úr háloftunum, lenda á þaki garðhússins og fara í gegnum það. Lík konu kom til jarðar í garðinum. „Aðkoman að slysstaðnum var hryllileg, það var eins og stríði væri nýlokið," sagði einn þeirra, sem fyrstur kom á vettvang. og þeir óbeint sakaðir um njósnir fyrir erlenda aðila. Þá eru vest- rænir diplómatar gagnrýndir fyrir að hafa mikið samband við leiðtoga Samstöðu. Verkamenn í Kadowice halda enn fram kröfunni um að for- stjóra stærstu stálverksmiðju í borginni verði vikið frá, en yfir- völd hafa neitað að verða við henni. Þá ítrekuðu leiðtogar Sam- stöðu í dag kröfu sína um að fá aðgang að hinum opinberu fjöl- miðlum í Póllandi. Einnig voru lögð fram formleg mótmæli við fyrirætlun stjórnvalda um að fjór- falda verð á brauði á næstunni. í fréttabréfi Novosti á íslandi í dag er vitnað til yfirlýsingar sem gefin var út að afloknum viðræð- um Brezhnevs forseta Sovétríkj- anna og leiðtoga annarra Austur- Evrópuríkja að undanförnu á Krímskaga. Þar segir m.a. að „kreppuástandið í Póllandi" sé eitt átakanlegasta dæmið um hina margháttuðu erfiðleika, sem sósí- alísk ríki hafi átt við að etja. Einnig segir, að þróun sósíalism- ans hafi m.a. sannað hve mikil- vægt sé fyrir kommúnistaflokka að láta ekki „freistast til að verða skuldug auðvaldsríkjunum" og „veita andsósíalískum öflum við- nám í tíma“. Mun hér átt við aðstæður í Póllandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.