Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Ómar og Jón höfðu ástæðu til að líta afturúr bílnum, þeir skildu alla keppendur eftir fyrir aftan sig, þó ekki fyrr en eftir spennandi keppni. Ómar og Jón knúðu fram sigur eftir hörkukeppni við Hafstein og Kára - Aðeins f jórir af tólf luku keppni í Ljóma-ralli 1981 : ALÞJÓÐLEGA rallinu lauk síðdegis sl. sunnudag, af 12 keppnisbilum sem hófu rallið luku aðeins 4 rallinu. Sigurvegarar urðu bræðurnir ómar og Jón Ragnarssynir á Renault 5 Alpine. Er þetta fjórða rallið sem þeir sigra á árinu, hafa þeir náð þvi að sigra allar keppnir sem haldnar hafa verið hingað til á árinu. Með þessum sigri i Ljómarallinu tryggja þeir sér íslandsmeistaratitilinn i rallakstri. Að loknu Ljómarallinu verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til með framkvæmd þess. Rallið var 1700 km langt og tók þrjá daga að ljúka því, sérleiðir voru 23 km alls. Fyrsta keppnis- daginn sem var föstudagur kom í ljós að einvígi yrði milli Ómars og Jóns Ragnarssona og Hafsteins Haukssonar og Kára Gunnarsson- ar. Að loknum föstudegi höfðu Ómar og Jón nauma forystu, en á laugardegi átti margt eftir að gerast og verður greint frá því helsta hér á eftir. Eftir ræsingu á laugardags- morgun var ekin sérleið við Gunn- arsholt. Þar datt úr Escort Gunn- laugs Bjarnasonar og bróður hans, Ragnars. Jafnvægisstöng brotn- aði, kom það þeim á óvart, því hún átti að vera með því besta sem í bílnum var. Margt annað hafði áður hent þá bræður, á Kili valt bíllinn á mikilli ferð. En með fádæma hörku sneru þeir bílnum á réttan kjöl, með handafli, óku síðan eins og ekkert hefði í skorist. Ragnar greindi Mbl. frá því að á Kili hefði gamansamt atvik hent þá! Vatnsflaumur gekk yfir rúðuna og setti Ragnar þurrk- urnar í gang, en samt sem áður sást ekkert út. Gunnlaugur hróp- aði kveiktu á þurrkunum og Ragn- ar kvaðst vera búinn að því, rifust þeir síðan, en í ljós kom að vatnið var innan á framrúðunni. Kom það gegnum stærðar gat á gólfi bílsins. Eftir að Gunnlaugur og Ragnar duttu út voru aðeins fjórir bílar eftir. Landmannaleið var ekin og bauð upp á mikinn hraða og skemmtilegan akstur. Hafsteinn og Kári söxuðu á forskot Ómars og Jóns, en á Fjallabaksleið austur náði Ómar að aka betur. Á sérleið við Meðalland var ekið án teljandi erfiðleika og að Fjallabaksleið aftur, nú í vestur. Hafsteinn og Kári óku greitt og að því er virtist létu þeir vaða í allar ár á fullri ferð. Samt sem áður tókst Ómari og Jóni að ná betri tíma. John Haugland og Jan Bohlin létu lítið að sér kveða, áttu þeir í hinum mestu vandræðum, er þeir óku yfir ár. Þeir sáu ekki í gegnum framrúðuna fyrir vatni, sem var innan á rúðunni. Þurfti Bohlin að þurrka í sífellu til að Haugland sæi eitthvað út, tími þeirra var því slakur. Birgir og Hreinn Vagnssynir á Cortina lentu í óteljandi vandræð- um á rallinu, á Fjallabaksleið kom gat á bensíntankinn, vatnskassinn sogaðist að viftuspaðanum, raf- magnið rétt náði að knýja þurrk- urnar, sem nauðsynlega þurfti við, og síðast en ekki síst brotnaði bensínbarki. Urðu þeir. að festa barkann með vír og aka með vélina á 6000 snúningum. Varð Birgir að svissa af og á, í stað þess að nota bensíngjöfina, tókst þeim þannig að skrölta í mark sérleið- arinnar. Sögðu þeir að án hjálpar frá viðgerðarmönnum annarra bíla í rallinu, hefði þeim aldrei tekist að komast í gegn. Það sem eftir var dagsins var ekið um Landmannaleið, Gunnarsholt, ís- ólfsskálaveg og hluta Reykjanes- leiðar. Síðasta leiðin var um Hvassahraun, þar gerðist það helst að Birgir og Hreinn óku eins og andskotinn væri á eftir þeim, því einhver sagði þeim að þeir væru fallnir út. Þurftu þeir því ekki að spara bílinn eins og áður. En í ljós kom að um mistök keppnisstjórnar var að ræða. Á Fjallabaksleið fóru þeir yfir há- markstíma, sem aka mátti leiðina á að sögn keppnisstjórnar. Þeir kærðu og varð niðurstaðan sú að hámarkstími hafði verið of lítill, enda náði enginn bílanna þeim tíma. Voru því keppnisbílarnir fjórir sem áður. Eftir að í mark kom seint á laugardagskvöld, fóru viðgerð- armenn með bílana á verkstæði sín. Fór Mbl. á milli þeirra, þar sem menn unnu í bílunum fram undir morgun, til þess að þeir yrðu í toppstandi við ræsingu á sunnu- dagsmorgun. Mest þurfti að gera við Cortinu Birgis og Hreins, laga þurfti það sem á undan hefur verið talið, ásamt ýmsu öðru sem týndist til. Án viðgerðarmanna geta rallakstursmenn ekki verið og eiga þeir svo sannarlega þakkir skildar, svefnlausar nætur og ofþreyta hrjáir þá oft í marga daga á meðan á keppni stendur. Á sunnudag var rigning og leiðindaveður, sérleiðirnar voru mikið til undirlagðar vatni, en áfram var öslast. Áður hafði Hafsteinn Hauksson látið í það skína, að hann ætlaði sér fyrsta sætið. Spenna var því mikil í höfuðstöðvum rallsins í Austur- bæjarskóla, þar fór allur útreikn- ingur fram undir stjórn Birgis Bragasonar, stjórnanda rallsins. Strax í upphafi tókst Hafsteini og Kára að ná betri tíma en þeim Ómari og Jóni, ekið var um Kaldadal og upp í Borgarfjörð. Síðan var ekið hjá Bæ í Borgar- firði og allan Flókadal niður að Uxahryggjum. Uxahryggjaleið var síðasta sérleið í þessu ralli. Sýnt var að Hafsteinn og Kári áttu ekki möguleika gegn Ómari og Jóni. Reyndar fóru þeir frammúr á Escort sínum, en sigur Ómars og Jóns var aldrei í • hættu, náðu Lokastaðan Ómar Ragnarss./Jón Ragnarsson, Renault Alpine 1.10.47 Hafsteinn Haukss./Kárí Gunnarss., Ford Escort 2000 1.14.44 John Haugland/Jan Olaf Bohlin. Skoda 130 RS 2.10.15 Birgir Vagnsson/Hreinn Vagnsson, Ford Cortina 4.34.43 Hafsteinn Hauksson og Kári Gunnarsson á Escort 2000. Þeir hrepptu annað sætið, hér sjást þeir ösla yfir blauta leiðina við Bolabás. ómar hló dátt, þegar Jón þurfti að opna tvær flöskur af kampavini. þar sem Ómar er bindindismaður góður. Hafsteinn og Kári hálfri mínútu betri tíma en bræðurnir, eftir djarfan og stórskemmtilegan akstur. Kjósarskarðsleið til Reykjavík- ur var síðasta ferjuleiðin, áður en ekið var í mark, stöðvuðu öku- menn í Víðishúsinu í Kópavogi. Þar var rætt um rallið og flugu margar sögur þar fram og aftur. John Haugland kvað erlenda öku- menn ekki eiga möguleika í Is- lendinga nema að hafa æft tvær til þrjár vikur fyrir keppni. Sjálf- ur ætlar hann að koma til landsins á næsta ári og æfa sig í hálfan mánuð fyrir næsta stórrall. I mark komu bílarnir um sex- leytið á sunnudagskvöld, þar tók Maríanna Friðjónsdóttir meðlim- ur keppnisstjórnar á móti þeim. Ræddi hún við keppendur og kom m.a. fram hjá Ómari Ragnarssyni að hann teldi Islendinga eiga að hafa þessa keppni erfiða, til þess að geta sýnt erlendum ökumönn- Texti og myndir: Gunnlaugur Rögnvaldsson um í tvo heimana. Hlógu allir viðstaddir dátt að þessum um- mælum, ekki kvað síst John Haug- land og Jan Bohlin. Skáluðu síðan sigurvegararnir, þ.e. Jón skálaði við sjálfan sig, því Ómar er bindindismaður góður. Fengu margir að smakka á veigunum því Jón torgaði þeim ekki einn. (Sjá myndir.) Hafsteinn Hauksson kvað Ómar aldrei hafa ekið betur en í þessu ralli. Sagði hann að þeir Kári hefðu ætlað sér sigur fram á síðustu stundu, en að rallinu loknu, væru þeir ánægðir með annað sætið, því Ómar og Jón ættu sigur fyllilega skilið. Á sunnudagskvöld var ball í tengsl- um við rallið og fór fram verð- launaafhending. Einnig voru af- hentar veifur til viðgerðarmanna rallbílanna, sem staðið höfðu sig frábærlega, sérlega þó Brandur, Óskar og Gunnar sem komið höfðu Cortinunni margumtöluðu í gegn. Hreinn, annar ökumanna í henni, kom því á framfæri að án þeirra hefðu þeir hvergi farið, einnig þakkaði hann viðgerðarmönnum annarra bíla, sem aðstoðuðu þá ómetanlega. Fram eftir kvöidi var síðan rallað í Sigtúni og var fjölmenni mikið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.