Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 27 Hannes Lárus- son í Rauða hús- inu á Akureyri LAUGARDAGINN 21. nóv. opnaði Hannes Lárusson sýningu í Rauða húsinu á Akureyri. A henni eru sex verk í mis- munandi einingum sem þó eru lauslega samtengd í kringum grundvallarhugmynd — hug- myndina um alla hluti í heimi. Verkin eru gerð á ýmsa vegu; málverk, skúlptúr, ljósmyndir eða ljóð. Sýningunni lýkur sunnudaginn 29. nóv. og er opin dag hvern frá kl. 16.00 til 20.00. Sigfús Halldórsson Bókasafn Kópavogs: Eitt af verkum Hannesar Lárussonar. Um skáldkonuna Látra- Björgu hjá Grenvíkingum Á AÐALFUNDI Átthagafélags Grenvíkinga, sem haldinn verður laugardaginn 28. nóv. kl. 3 í Hreyf- ilshúsinu, flytur dr. Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri. erindi um l. áira-Bjiirgu, skáldkonuna á Látr um á Látraströnd. Atthagafélag Grenvíkinga var stofnað fyrir tveimur árum og hefur starfsemi þess verið lífleg, m. a. hafa ýmsir góðkunnir fyrir- lesarar flutt fyrirlestra um ýmis sagnfræðileg efni. Látra-Björg var uppi á 18. öld, var förukona og er skáldskapur hennar talinn mjög góður en hún bjó við mjög kröpp ævikjör. Vísur hennar lifa enn á vörum þjóðar- innar. Má þar nefna: (■rundar dóma, hvergi hann hallar réttu máli. Stundar sóma, aldrei ann örgu pretta táli. Dr. Guðrún er m.a. kunn fyrir bók sína, Skáldkonur fyrri alda, sem byggð er á víðtækum rann- sóknum hennar um þau efni. Pessa helgi í Blómaval: AÓventukransar aóventu-og jólaskreytingar W3BM Sýning á mynd- um Sigfúsar Halldórssonar í ANDDYKI Bókasafns Kópavogs stendur nú yfir sýning á myndum Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og myndlistarmanns. Á sýningunni eru 44 myndir, flestar gerðar með vatns- litum, en einnig olíu og pastel. Þarna er að finna nýjar og gamlar myndir eftir Sigfús, mynd- ir af gömlum húsum í Vestmanna- eyjum og í Kópavogi. Einnig eru á sýningunni landslagsmyndir úr Heiðmörk og Þingvöllum og myndir af Guðmundi G. Hagalín og Vilhjálmi frá Skáholti eru einnig á þessari sölusýningu lista- mannsins. Sýningin stendur til 5. des. og er opin á sama tíma og bókasafnið eða á virkum dögum frá 11.00 til 21.00 og á laugardögum frá 14.00 til 17.00. Efna til umræðna um efni Utlagans SÉRSTAKAR pallborðsumræður verða í dag í Austurbæjarbíói að lok- inni sýningu á kvikmyndinni Útlag- anum, sem gerð er eftir Gísla sögu Súrssonar. Sýning myndarinnar hefst kl. 13:30 og að tilhlutan sagn- fræðistúdenta við Háskóla íslands verður efnt til þessara umræðna. Þátttakendur í umræðunum eru Vésteinn Óiason, Gunnar Karls- son, Jón Viðar Jónsson, Margrét Hermannsdóttir, Ólafur Jónsson, Jón Þórisson og Agúst Guð- mundsson. Verður í umræðum þessum fjallað um þá mynd sem brugðið er upp í Utlaganum af gömlum tíma. Failegt úrval af jólastjömum, rauðum og hvftum. Nú er aðventan hafin. Margir haida þeim góða sið að skreyta híbýli sín af því tilefni. Komið við í Blómavali við Sigtún. Skoðið hið stórkostlega úrval okkar af aðventukrönsum og aðventuskreyting- um, stórum sem smáum. Eigum jafnffamt fyrirliggjandi alit efni til aðventu- og jólaskreytinga. Allskonar jóiaskraut jóiaskreytingar og efni til slíks. Opið alla daga til kl. 21.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.