Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 47 • Pétur Guðmundsson körfuknattleiksmaður úr Val og fyrrum atvinnumaður í Argentínu, hefur staðið sig mjög vel með hinu nýja liði sínu Portland Trailblaizers, en liðið hefur enn ekki tapað leik í NBA-deildinni bandarísku. í Morgunblaðinu á þriðjudaginn verður ítarleg grein og viðtal við kappann, þennan fyrsta íslending sem keppir sem atvinnumaður í bandarískum körfuknattleik. A meðfylgjandi mynd gnæfir Pétur yfir nýja BMW-inn sinn, en hann virðist vera tískubíll atvinnumanna í íþróttum. „Undrast vinnubrögð Mbl." - segir Viggó Sigurðsson Á mínum 15 til 20 ára handboltaferli hef ég auðvitað oft verið gagnrýndur. Að mínu viti bæði með réttu og röngu. Ég hef látið það framhjá mér fara. En þegar lesin var fyrir mig grein í Mbl. í gær, föstudaginn 27. nóv. rak mig í rogastans. Þetta kalla ég ekki gagnrýni. I»að var fýla af þessari grein og ég ætla mér að svara fyrir mig. Ég undrast mjög vinnubrögð blaðamanns Morgunblaðsins. Hann var sjálfur á blaðamannafundi eftir leikinn ásamt blaðamönnum í Leverkusen sem séð hafa alla leiki liðsins hér í vetur, undruðust mjög yfir því að ég skyldi vera látinn sitja á bekknum mest allan tímann í leiknum móti Ditsenbach, og spurðu því þjálfarann hvers vegna. Var víst fátt um svör. Blaðamaður Mbl. kom til mín eftir leikinn og spurði mig hvers vegna ég hefði ekki spilað meira. Ég sagði sem var að ég væri mjög undrandi og ég hafi til þessa skor- að þrjátíu til fjörutíu mörk í Bundesligunni. En Mbl. fannst það stórgott af öðrum leikmanni ís- lenskum, Bjarna Guðmundssyni, að hann væri búinn að skora 19, og var með sérstaka frétt þar um. Það skyldi þó ekki vera að barátta Vals og Víkings nái út fyrir land- steinana? Síðasta ár skoraði ég 96 mörk fyrir Leverkusen í Bundes- ligunni. En engum öðrum leik- manni íslenskum, að Axel Axels- syni undanskildum, hefur tekist að skora svo mikið hér í hinni hörðu Bundesligu. Og hafa þó margir Islendingar spreytt sig. Ég fékk tilboð frá fimm liðum í Bundesligunni eftir síðasta keppn- istímabil, og hef þegar fengið tvö það sem af er þessu keppnistíma- bili. Ég er undrandi á fyrirsögn Mbl. og hún segir meira en mörg orð. Eitt blað hér í Leverkusen sagði í umsögn sinni hér um leik- inn „að það væri áhætta að láta mig ekki leika“. Þess má svo geta að allir leik- menn liðsins hafa óskað eftir því í tvígang að þjálfarinn hætti vegna þess að hann sé óhæfur. Og nú síðast eftir leikinn við Ditsenbach. Ég hélt satt að segja að það að hinn snjalli leikmaður Sigurður Gunnarsson hafi ekki komist í lið- ið hjá Leverkusen væri nóg til þess að Mbl. væri ekki með svona skítkast. Ég veit að þessi blaða- maður Mbl. í Þýskalandi er Þjóð- verji, og ég veit að það fer mjög í taugarnar á mörgum Þjóðverjum og ef til vill einhverjum íslending- um að blöðin hér telji ísbjörninn, eins og ég er víst kallaður hér, vera hesta leikmann liðsins. Og ég verð að segja að það er skrýtið hve velgengnin á sér marga öfundarmenn. Viggó Sigurðsson Selfosshlaup Úrvalsdeildin í körfu: SELFOSSHLAUPIÐ, sem er götu- hlaup í umsjá Héraðssambandsins Skarphéðins, verður háð á Selfossi og í nágrenni á morgun, sunnudag. Hlaupið hefst klukkan 14 við íþróttavöllinn á Selfossi og lýkur á sama stað eftir að hlaupararnir hafa lagt að baki tíu kfiómetra hring í sveitunum suður af Selfossi. Hlaupið er liður I víðavangshlaupakeðju FRÍ. Fram mætir IR EINN leikur fer fram í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik um helgina. Fram leikur gegn ÍR í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst sá leikur klukk- an 14.00. Allt útlit er fyrir að barátt- an í úrvalsdeildinni í vetur standi á milli Fram og UMFN. Þó er vel Arsþing FRÍ hugsanlegt að lið Vals og KR blandi sér í þá baráttu. Staðan í 1. deild eftir síðustu leiki er nú þessi: Valur — Njarðvík 80-82 ÍR — Valur 73-91 Njarðvík — Fram 71-92 ÍS — Njarðvík 82-97 Njarðvík 8 7 1 648:594 14 Fram 7 6 1 597:533 12 Valur KR ÍR ÍS 7 4 3 553:534 8 6 2 4 430:459 4 7 2 5 513:553 4 7 0 7 524:592 0 ÁRSÞING Frjálsíþróttasambands íslands verður haldið í dag í gagn- fræðaskólanum á Selfossi, en þetta er í fyrsta skipti að þingið er háð á sambandssvæði Héraðssambands- ins Skarphéðins, en mikill uppgang- ur var í frjálsíþróttum á sam- bandssvæðinu á þessu ári. Búist er við að Örn Eiðsson verði endurkjör inn formaður FRÍ fyrir næsta starfs- ár, en að einhverjar breytingar verði þó á stjórn sambandsins. STIGAHÆSTU MENN: Danny Shouse, Njarðv. 241 Val Brazy, Fram 199 Bob Stanley, ÍR 191 Dennis McGuire, ÍS 189 John Ramsey, Val 159 Þrír leikir gegn Noregi fSLAND og Noregur leika þrjá landsleiki í handknattleik næstu dagana. Fyrsti leikurinn er í dag og mæta Norðmennirnir þá íslenska liðinu sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri. Leikið verður á Selfossi og hefst viðureignin klukkan 14.00. Á morgun mætir A-landsliðið þeim norsku í Höllinni klukkan 20.00 og þriðji leikurinn er á mánudagskvöld- ið klukkan 20.00. Hann fer einnig fram í Laugardalshöllinni. Búast má við hörkuleikjum og vonandi ís- lenskum sigrum, en það hefur verið reglan síðustu árin. Viðarteg.: Eik, mahogny og fura. Yfir 20 gerðir. Eldhúshúsgögn úr birki Litir: Brúnbæsað og ólitað. Btdsfeo Símar: 86080 og 86244 ar Húsgögn Armúli 8 Húsgagnasýning kl. 2—5 sunnudag Forstofukommóður með speglum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.