Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981 13 Hvað segja þeir um loðnuveiðibannið? „Afkoman fer eftir þyf hvað gert verður um áramót“ segir Guðmundur Iilugason á Krossanesi „Ég hef lítið hugleitt hvaða áhrif þetta hefur á okkur, þar sem ég er nú að fara í mína fyrstu ferð í haust á loðnuna, en okkar af- koma fer eftir því hvert fram- haldið verður um áramót," sagði Guðmundur Illugason skipstjóri á Krossanesi SU. „Hrognaloðna aldrei gefið neitt af séru segir Gunnar Jónsson á Isleifi „ÞAÐ HEFÐI kannski átt að taka í taumana strax. Nú er fjöldi báta búinn með sinn kvóta og aðrir að Ijúka við hann. Tal um að Bíða eftir hrognaloðnunni, er út í hött, þar sem hún hefur aldrei neitt gef- ið af sér nema eitt ár,“ sagði Gunnar Jónsson skipstjóri á ísleifi VE. Annars er það svo að' mér finnst vera meiri loðna á miðun- um en sagt er. Hins vegar hefur verið erfitt að ná loðnunni að undanförnu, þar sem hún hefur staðið djúpt og veður almennt verið slærnt," sagði Gunnar. „Vildi ekki axla þá ábyrgð sem upp kæmi ef stofn- inn hryndi alveg“ segir Jón Reynir Magnússon „Ja, maður veit vart hvað maður á að segja. Hins vegar finnst mér of mikil áhætta að halda veiðunum áfram, eftir þeim upplýsingum, sem við höfum um ástand stofns- ins í dag. Út frá því hef ég lýst mig sam- þykkan að stöðva veiðarnar og er sammála þessari ákvörðun, og ég vil taka það fram, að ég vildi ekki axla þá ábyrgð sem upp kæmi, ef stofninn hryndi alveg,“ sagði Jón Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri Síldar- verksmiðja ríkisins þegar rætt var við hann. „Skipunum er mismunað“ segir Ingvi Rafn skipstjóri á Seley „ÞAÐ er Ijóst að skipunum er mis- munað og miðað við þær forsend- ur, sem út eru gefnar nú, get ég ekki séð að neitt verði veitt eftir áramót. Þá er lokunjn á svæðinu milli 66. og 67. gráðu N. hreint fáránleg, þar sem loðnan er með sporð og ugga og kann því að synda, og nú eru bátarnir að fá stóra og góða loðnu úti af Héraðs- f1óa,“ sagði Ingvi Rafn skipstjóri á Seley frá Eskifirði. „Við þurfum nú að fá að vita hvað gera á eftir áramót, t.d. er- um við aðeins búnir að vera einn mánuð á veiðunum, og því aðeins búnir með hluta af okkar kvóta. Hins vegar eru margir bátar nú alveg búnir með kvótann eða þá í síðustu veiðiferð. Því er það mjög eðlilegt að við séum mjög sárir, að fá ekki að veiða það sem okkur var úthlutað í sumar. Þá vorum við farnir að trúa því, að ráðherra hefði reiknað með sömu skekkjunni og kom fram í fyrstu skýrslunni frá Bjarna Sæmundssyni, en þar skeikaði um 300%, ef hann hefði gert það, væri óþarfi að stöðva veiðar nú,“ sagði Ingvi Rafn að lokum. „Vandamál sem ekki er gaman ad eiga vid“ segir Ágúst Guð- mundsson á Kap 2. „VIÐ ERIJM á landleið með full- fermi, en þetta er okkar fyrsta veiðiferð á þessu hausti, þar sem báturinn hefur verið i vélarskipt- um frá því í sumar. Því er það, að það er ekki mjög bjart yfir mínum mönnum og reyndar væri það hroðalegt ef veiðarnar hefðu verið stöðvaðar samstundis,“ sagði Ag- úst Guðmundsson skipstjóri á Kap 2. frá Vestmannaeyjum. „Ég viðurkenni að hér er um að ræða vandamál, sem ekki er gaman að eiga við, en hins vegar þarf maður að vita hvað gera á um áramót, því ef ekki verða leyfðar frekari loðnuveiðar, þá er nauðsynlegt að fá að stunda þorskveiðar í net, eins og þessi skip hafa reyndar gert síðari hluta vertíðar undanfarin ár. Að lokum vil ég aðeins taka fram, að mér finnst sjávarútvegsráð- herra hafa tekið nokkuö skyn- samlega á þessu máli,“ sagði Ag- úst. Frá skákmóti Flugleiða. Skákmót Flugleiða: Búnaðarbankinn bar sigur úr býtum SVEIT Búnaðarbankans bar sigur úr býtum á Fluglciðaskákmótinu, sem fram fór fyrir skömmu á Hótel Esju. Sveitin háði mikið einvígi við Ríkis- spítalana og munaði aðeins hálfum vinningi á þessum tveimur efstu sveitum. Búnaðarbankinn hlaut 62 vinninga, en sveit Ríkisspítalanna 61 Vi. Mótið fór í alla staði vel fram, en alls tóku 24 sveitir, skipaðar þremur mönnum og tveimur vara- mönnum, þátt í mótinu. Dómari var Jóhann Þórir Jónsson, en mót- stjórar Hálfdán Hermannsson og Andri Hrólfsson. Fyrir sigur sinn fengu meðlimir sveitar Búnaðar- bankans ferð til Akureyrar og gistingu. Meðlimir sveitar Ríkis- spítalanna fengu flugferð innan- lands og sveit Útvegsbankans, sem hafnaði í þriðja sæti með 53 vinn- inga, fengu mat af kalda borðinu á Hótel Loftleiðum. Þeir sem náðu beztum árangri á einstökum borðum fengu flugferð til Kaupmannahafnar. Þeir voru; á 1. borði, Helgi Ólafsson, Þjóð- viljanum, Dan Hansson, Ríkisspít- ölunum á 2. borði og Guðmundur Halldórsson, Búnaðarbankanum á 3. borði. Sú sveit sem þó mesta athygli vakti var sveit Alþingis. Ekki gekk þeim þó sem skyldi, höfnuðu í 19. sæti, en þingmenn sýndu mikinn baráttuvilja og keppnishörku. Guðmundur G. Þórarinsson telfdi á 1. borði, Vilmundur Gylfason á 2. borði, Halldór Blöndal á 3. borði, en varamenn voru Garðar Sigurðsson og Friðjón Sigurðsson. 18 bækur eftir Jack London BÓKAFORLAG ísafoldar sendir frá sér fyrir jólin átján bækur eftir Jack Ivondon. Þær hafa allar komið út áð- ur hjá forlaginu og eru í flokki mest lesnu bóka heimsins. Bækur þessar eru: Óbyggðirnar kalla, Spennitreyjan, Uppreisnin á Elsinóru, Snædrottningin 1 og 2, Bakkus konungur, Hetjan í Klond- ike, Gullæðið, í Suðurhöfum, Ævintýri, Sonur sólarinnar, Undrið mikla, í langferð með Neistanum, Fólk undirdjúpanna, Launmorð, Úlfhundurinn, Hnefa- leikarinn og Þrjú hjörtu. í bókakynningu segir: „Jack London var mikill ævintýramað- ur, og sögur hans bera þess glöggt vitni. Þær hafa verið þýddar á flest tungumál veraldar og eru enn jafn ferskar og á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Þær eru í flokki þeirra fágætu bóka sem höfða jafnt til ungra sem ald- inna.“ I Skúli Hansen, yfirmatreiðslumaður á Arnarhóli, gefur jólauppskriftir fyrir 6. I IHEILSTEJKTAR NAUTALUNDIR M/SMJÖRSTEIKTUM KJÖRSVEPPUM OG REARNAISE SÓSU._____________ l'/i kg nautalundir hreinsaöar og brúnadar vel. Þar nœst eru nautalundirnar steiktar í heitum ofni (ca. 350°C) í 5 mín. Sveppirnir eru skolaðir upp úr létt söltuðu vatni, skornir til helminga, þerraðir og steiktir upp úr íslensku smjöri. BEARNAISE SÓSA 6 eggjarauður/500 g mjúkt smjör (ósaltað) 2 msk. Bearnaise essens/Pipar/Estragon krydd/Sojasósa. Þeytið eggjarauðurnar ásamt salti og pipar í skál yfir vatnsbaði. Athugið að halda vatninu í pottinum við suðumark. (Ekki sjóða). Þeytið eggjahræruna þar til hún verður þykk. Takið þá pottinn af hitanum og bætið í ’/j af smjörinu sem þarf að vera mjúkt. Þeytið aftur. Endurtakið þar til allt smjörið er komið saman við. Bearnaise essens, estragon og sojasósan sett út í að síðustu. Þeytið sósuna í 3 mín. yfir hitanum, notið sósuna strax . Borið fram með frönskum kartöflum, kjörsveppum og rósinkáli. 2SYKURHJÚPAÐUR HAMBORGARA- HR YGGUR M/RA UÐ VÍNSSÓSU OG HRÁSALATI. l'/i kg hamborgarahryggur soðinn í potti í 1 klst. Látið vatnið fljóta vel yfir hrygginn. Sjóðið einnig með: saxaðan lauk, gulrætur 8 stk. af heilum pipar. SYKURHJÚPURINN Á HRYGGINN 200 g tómatsósa/75 g súrt sinnep/1 dós sýrður rjómi/2 dl rauðvín/1 dl Coca cola. Allt er þetta hrært vel saman. Brúnið 150 g af sykri í smjöri á pönnu. Þegar sykurinn freyðir er rauðvínsblandan sett út í. Hryggurinn settur í ofnskúffu og pennslað- ur að ofan með sykurblöndunni, 2-3 sinnum. Hafið eingöngu yfirhita á ofninum. Þannig brúnast sykurhjúpurinn fallega. RAUDVÍNSSÓSAN Soðið af hryggnum sett í pott. Bragðbœtt með kjötkrafti, 3ja kryddinu og pipar. Sósan bökuð upp með smjörbollu: 100 g mjúkt smjör og 100 g hveiti hrœrt saman. Sett smám saman út í soðið. Bætið við hindberjasultu, rauðvíni, rjóma og afganginum af sykurhjúpnum. HRÁSALAT '/■: stk. hvítkálshöfuð/4 stk. gulrætur/2 stk. tómatar/1 stk. agúrka/V: dós ananas. Saxað fínt. Salatsósa: 100 g majonnes/Ananassafinn Súrt sinnep/1 tsk. karry/Nokkra dropa Tabasco sósa/H.P. sósa/Season All krydd Lemon pipar. Hrærið sósuna vel saman og blandið út í grænmetið. Borið fram kalt. Á jólunum hvarflar ekki aö mér aö nota annaö en smjör viö matseldina I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.