Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Bergur Axelsson og Kristján Ragnarsson ásamt vinkonum sínum, Hrönn Y'aldimarsdóttur og Hrönn Ásbjörnsdóttur, en þau voru öll í bflnum þegar ekið var á minkinn, sem liggur á vélarhlífinni. l.jósm. Mbl. KAX. Óku á minka við Markarfljótsbrú „VIÐ VORIJM stödd skammt aust- an við brúna á Markarfljóti þegar minkurinn skaust yfir veginn og skipti það engum togum að hann lenti undir bílnum,“ sögðu þeir Bergur Axelsson og Kristján Ragn- arsson, þegar Morgunblaðið ræddi við þá, en þegar þeir voru á leið austan frá Djúpavogi til Reykjavíkur í fyrrakvöld óku þeir á minkinn. Þeir sögðu að minkurinn hefði verið með stóran silung í kjaftin- um þegar hann lenti undir bílnum. „Við stönzuðum þegar og það tók okkur nokkra stund að finna minkinn þar sem hann lá á vegin- um. Nú ætlum við að fara með skottið til réttra yfirvalda og fá það sem okkur ber fyrir drápið, en ekki dugar hann víst í pels.“ Endurbættar mjólkurumbúðir Á MORGUN þriðjudag koma í versl- anir endurbættar I lítra mjólkur- umbúðir frá Mjólkurstöðinni í Reykjavík. Kr vonast til að neytend- um reynist auðvelt að opna og loka þessum nýju umbúðum, sem eru með áprentuðum leiðbeiningum. Þar sem breytingar á vélum taka nokkurn tíma, munu líða 2—3 vikur þar til allar 1 lítra um- búðir, þ.e. um nýmjólk, undan- rennu, léttmjólk og súrmjólk verða af hinni nýju gerð. (Fréllalilkynnini') „1941“í Stjörnubíói STJÖKNIJBÍO er að hefja sýningar á amerískri kvikmynd, „1941“. I kynningu kvikmyndahússins seg- ir m.a. um efni myndarinnar: „Kftir árás Japana á Pearl Har- bour þóttust íbúar Kaliforníu þess vissir að fylki þeirra yrði næsta skotmarkið. Ofsahræðsla greip um sig og hermenn jafnt sem almennir borgarar bjuggu sig undir hið versta." I aðalhlutverkum eru Dan Ayk- royd, Ned Beatty, John Belushi, Uirraine Gary, Murray Hamilton, Christopher Lee og Tim Matheson. Handrit er samið af Robert Zemeck- is, Bob Gale og John Milius eftir samnefndri sögu þeirra. Tónlistin er eftir John Williams. Kvikmyndun annaðist William A. Fraker, ASC. Framleiðandi er Buzz Feitshans og leikstjóri Steven Spielberg. Hjúkrunarfræðingar kynntu borginni kröfur sínar í gær KJARARÁI) Hjúkrunarfræðingafé- lags Islands kynnti kröfur sínar vegna hjúkrunarfræðinga á Borg- arspítalanum fyrir Launamálanefnd borgarinnar á fundi með sáttasemj- ara í gær. Nýr fundur hefur verið boðaður á fimmtudag. Eins og kunn- ugt er, felldu hjúkrunarfræðingar við Borgarspítalann aðalkjarasamn- ing við borgina á dögunum, og ef ekki gengur fljótlega saman í við-- ræðum við borgina nú, hafa þeir lýst því yfir, að þeir muni boða til verk- falls. I gær var gengið frá samkomu- lagi milli vinnuveitenda og starfs- fólks vistheimilisins Sólheima í Grímsnesi. Skrifað var undir bráðabirgðasamkomulag í gær og gildir það til 15. maí, en áfram verður unnið að ýmsum þáttum þessa máls. Ivan Rebroff til landsins IVAN Rebroff, söngvarinn kunni, sem kom hingað til lands fyrir fá- einum misserum, er nú væntan- legur hingað á ný í næsta mánuði. Það er Þorsteinn Viggósson, veit- ingamaður í Bonaparte í Kaup- mannahöfn, sem skipuleggur ferð Rebroffs hingað. Mun söngvarinn koma fram á hljómleikum í Há- skólabíói dagana 5. og 6. febrúar næstkomandi. MORGUNBLAÐIÐ hafði samband við þá tvo frambjóðendur í prófkjöri Framsóknar- flokksins í Reykjavík, sem skiptu um sæti eftir að fundið hafði verið út, að 50 atkvæði vantaði svo tölur stemmdu. Ekki tókst að ná tali af Kristjáni Benediktssyni, borgar- fulltrúa Framsóknarflokksins. Gerður Steinþórsdóttir: „Er hlynnt áframhald- andi vinstra samstarfi“ „ÞETTA kom mjög óvænt, þar sem búið var að gefa út aðrar töl- ur, og ég er ekki búin að átta mig á þessu ennþá, en ég lýsi yfir ánægju minni yfir að hafa náð öðru sæti,“ sagði Gerður Steinþórsdóttir kenn- ari í samtali við Mbl. í gær, er hún var innt eftir viðbrögðum hennar við úrslitum prófkjörs Framsókn- arflokksins sem haldið var um helgina, en eftir að upp komst um skekkju í talningu fór Gerður úr þriðja í annað sæti í prófkjörinu. „Það sem ég vil segja um þetta prófkjör er að það átti að vera bundið við flokksmenn, en reglur eru þannig að menn gátu gengið í flokkinn áður en kjörstað var lokað. Það kom líka í ljós að það var ákaflega mikið smalað fyrir þetta prófkjör og skilst mér, að 5 til 600 manns hafi gengið í flokk- inn. Ég hafði vonast eftir að fleiri fastir flokksmenn tækju þátt í prófkjörinu. Svo var líka annað við þetta Jósteinn Kristjánsson: prófkjör að ekkert okkar fram- bjóðenda náði 50 prósentum at- kvæðamg höfum því ekki hlotið bindandi kosningu. Auk þess eru fjórir af sex í efstu sætunum nýtt fólk, sem ekkert hefur unn- ið að borgarmálum. Annað sætið er það sæti sem ég hlaut í síðasta prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykja- vík og var ég eina konan í sex efstu sætunum þá. Þetta hefur breyst núna, því þrjár konur eru i efstu sex sætunum, og tel ég það vera vegna ótta manna við sérframboð kvenna og vilja því menn leggja sitt af mörkum til að sýna nokkurt jafnrétti. Ef ég kemst inn í borgarstjórn mun ég beina kröftum mínum að öllum málaflokkum borgarinnar í meiri mæli en áður, en ég hef verið varafulltrúi Framsóknar- flokksins í borgarstjórn og starf- að í tveimur nefndum." Ert þú hlynnt áframhaldandi vinstra samstarfi í borgar- stjórn? „Já, ég er hlynnt því,“ sagði Gerður Steinþórsdóttir að lok- um. „Styd hið frjálsa framtak“ „ÞETTA voru mannleg mistök sem alltaf geta komið fyrir og ég ber fyllsta traust til kjörnefndar. Eg er ánægður með þriðja sætið,“ sagði Jósteinn Kristjánsson, fram- kva'mdastjóri, sem lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokks- ins í Reykjavík um helgina, er Mbl. spurði hann um viðbrögð hans við þeirri skekkju sem átti sér stað við talningu atkvæða í prófkjörinu, sem varð þess vald- andi að Jósteinn, sem áður var í öðru sæti, lenti í þriðja. „Mín helstu baráttumál í næstu borgarstjórnarkosningum verða að leggja mestu áhersluna á sparnað fyrir Reykjavíkur- borg. Það má spara að mínu mati allverulega með breyttu vinnuskipulagi. Það mætti sam- eina borgarfyrirtækin sum hver og hafa stjórnun þeirra á einum stað. Ég sé heldur ekkert því til fyrirstöðu að borgin eftirláti rík- inu rekstur Borgarspítalans og ég held það sé vilji hjá stjórnar- nefnd ríkisspítalanna að reka alla spítalana á Stór-Reykjavík- ursvæðinu undir sama hatti. Ég tel að ungt fólk sem vill byKKja hér í Reykjavík eigi að fá lóðir og að það sé nauðsynlegt að fólkið fái þær svo við missum það ekki út úr borginni, eins og mörg atvinnufyrirtæki, sem við höfum misst. Ég er á móti bygg- ingu leiguíbúða. Það er ekki rétt þróun, heldur á að auka við byggingar verkamannabústaða. Ég hræðist þessa þróun sem átt hefur sér stað með dagvist- unarmálin í borginni. Ég geri mér ljóst að auðvitað þarf dag- vistunarheimili fyrir einstæða foreldra og annað fólk sem raunverulega þarf á því að halda. En með sama áframhaldi eins og verið hefur þá er hætt við að öllum fari að þykja sjálfsagt að ala börn sín upp á stofnunum. Staldra þarf við og íhuga þessa þróun allverulega. Þá verðum við að gera okkur grein fyrir því að föst útgjöld borgarinnar eru komin upp í 80% af tekjum hennar og það minnkar alltaf það hlutfall sem við höfum í framkvæmdir. Ég styð hið frjálsa framtak og held það mætti kanna það til dæmis með Strætisvagna Reykjavíkur hvort ekki mætti bjóða eitthvað af leiðunum út.“ En hver er afstaða þín til áframhaldandi vinstra sam- starfs í borgarstjórn? „Það verður bara að koma í ljós. Ég tel það ekkert óeðlilegt að vinna að áframhaldandi vinstra samstarfi. Framsóknar- flokkurinn verður að vera opinn fyrir öllum aðilum. Samstarfið hefur að mínu mati tekist vel hingað til þó ýmislegt mætti fara betur. Við verðum að vera jákvæðir fyrir hvaða samstarfi sem er, ef við náum góðum samningi. Ég vil ekki útiloka neitt," saði Jósteinn Kristjáns- son að lokum. Eykur enn á misréttið milli atvinnuveganna - segir Gudmundur Arnaldsson, hagfrædingur VÍ, um hugmyndir ríkis- stjórnarinnar, að lækka launaskatt á fiskvinnslunni og iðnaði MEÐAL hugmynda ríkisstjórnarinnar í sambandi við lausn cfnahagsvandans, sem við er að glíma, er að lækka launa- skatt á fiskvinnslunni og á iðnaði úr 3,5% í 2,5%, en aðrar greinar, sem í dag greiða launaskatt, greiði áfram sömu prósentuna, eða 3,50% af brúttó- launagreiðslum. Útgerðin og landbún- aður greiða hins vegar ekki þennan skatt. Þessar hugmyndir ríkisstjórnar- innar skjóta hins vegar nokkuð skökku við niðurstöður starfsskil- yrðanefndar, sem skilaði áliti sínu á sl. ári. Þar er lagt til, að launaskatt- urinn verði lækkaður og jafnframt að allar atvinnugreinar greiði launa- skatt til að jafna aðstöðumun þeirra. Morgunblaðið innti Guðmund Arnaldsson, hagfræðing Verzlunar- ráðs Islands, álits á þessum hug- myndum. — Þessar hugmyndir ganga auðvitað þvert á okkar hug- myndir um þennan skatt og ber því að mótmæla þeim. Ef þær ná fram að ganga, eykst enn það misrétti, sem atvinnuvegirnir búa við, sagði Guðmundur. — Það er reyndar okkar skoðun, að þessi skattur sé ekki af hinu góða og beri því að ieggja hann niður. Ef hins vegar á að skattleggja atvinnu- vegina á þennan hátt, þá finnst okkur lágmark, að þeir sitji allir við sama borð, sagði Guðmundur Arn- aldsson, hagfræðingur Verzlunar- ráðs Islands, að síðustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.