Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 19 Innbrot í Hressingar- skálann í FYRRINÓTT var brotist inn í Hressingarskálann við Austur- stræti. Farið var inn um þak- glugga. Nokkru var rótað í húsinu en engu stolið. Þá var brotist inn á skrifstofur Happdrættis SÍBS við Suðurgötu og þaðan var skjölum merktum SÍBS stolið. 4 ára drengur fyrir bifreið FJÖGURRA ára gamall drengur hlaut höfuðáverka og handleggs- brotnaði þegar hann varð fyrir bif- reið á Suðurbraut í Hafnarfirði um klukkan 19 á fimmtudag. Drengur- inn var á ferð með móður sinni, en hljóp fyrirvaralaust út á götuna og í veg fyrir bifreiðina og lenti framan á henni. Drengurinn var fluttur í slysadeild en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Ok á ljósastaur AÐFARANÓTT föstudagsins ók tvítugur piltur bifreið á ljósastaur við Sundlaugarveg. Atvikið átti sér stað laust fyrir klukkan hálf þrjú. Þrír voru í bifreiðinni og voru tveir fluttir í slysadeild. Farþegi í fram- sæti fótbrotnaði og ökumaðurinn skarst í andliti, en farþegi í aftur- sæti slapp ómeiddur. Ókumaður er grunaður um ölvun við akstur. Bifreiðin, sem er af gerðinni Ford Pinto, er mikið skemmd. W FRtf at^ONlNW/ dONOM 03 ÖGtlNóNOM VIONOM Wtít- flfll flRNRLOS. VW 'MW HVöflT w ætlom íkhi ðp KfKifl trnti föNfllNN fl MofeON 03 ÍIL flp ÍÁTfl fl(Kl9 SMftfl Oflft OKKíjR" Vörukaupalán Reykjavfkurborgar: Álögur svara til 78% ársvaxta „HITAVEITAN getur ekki bætt á sig fleiri erlendum lánum, eins og málum er nú háttað," sagði Davíð Oddssnn, formaður borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna, á fundi í borgarstjórn Keykjavíkur 4. mars, og mælti með því að hafnað yrði tillögu um að sótt verði um lánsheimild á lánsfjárlögum fyrir llitaveitu Reykjavíkur. Máli sínu til stuðnings benti Davíð á, að stjórnvöld hefðu opinberlega viðurkennt, að Hitaveitunni sé hald- ið í fjárhagslegu svelti, til þess að koma í veg fyrir áhrif taxtahækkun- ar á framfærsluvísitölu. Versti kost- ur veitunnar væri, að stjórnvöldum tækist að þvinga hana til að taka stórt erlendt lán, sem ofbýður greiðslugetu hennar. Til marks um það, hve óhagkvæmt væri að taka erlent lán um þessar mundir nefndi Davíð, að í nóvember 1981 hefði á vegum borgarinnar verið tekið vöru- kaupalán til skamms tíma, sem greiðast ætti 19. mars. Að óbreyttu blasir við, að gengissig og annað leiði til þess, að álögur á lánið nema sem svarar 78% ársvöxtum. Athugasemd við opið bréf Matthíasar Eggertssonar - eftir Anders Hansen í TILEFNI greinar, sem ég reit í Morgunblaðið hinn 24. fyrra mánað ar, skrifar Matthías Eggertsson mér „opið bréP' í Morgunblaðinu í dag, 5. mars. Þar segir hann í lok bréfs síns: „Þú hefur, Anders. Hansen, sýnt áhuga á störfum Gunnars Bjarna- sonar. Ég ráðlegg þér að skyggnast dýpra en þú hefur gert hingað til. Enn eru flestir þeir sem voru á Hólum, þegar Gunnar Bjarnason var þar skólastjóri, til vitnis, og margt er að finna um fjármál Hólaskóla í opinberum gögnum. Með fullu trausti til þín um að þú viljir hafa það sem satt reyn- ist.“ Án þess að ég hyggi á ritdeilur við Matthías Eggertsson, eða opinberar orðræður við hann um Hólamál, langar mig þó að benda á eftirfarandi: I hinni nýútkomnu bók Gunnars, Líkaböng hringir, er rækilega skýrt frá þeim blaða- skrifum, sem urðu um Hólamál á sínum tíma. Þar er að finna margvíslegar upplýsingar, bæði um málið sjálft, og ekki síður um persónulega afstöðu margra manna til málanna á þeim tíma. í Líkaböng er einnig eitt og annað tínt til úr opinberum skjölum. — Telji Matthías hins vegar þörf á því, að opinberar upplýsingar eða gögn um Hólaskóla í skólastjóratíð Gunnars Bjarnasonar birtist opinberlega í blöðum nú, vil ég ein- dregið hvetja hann til að hafa frumkvæði að slíkri birtingu. Ég er til dæmis ekki í nokkrum vafa um að mörgum þætti fróðlegt að sjá niðurstöður opinberrar nefndar um ástand Hólastaðar hið um- deilda vor, úttektina á staðnum við skólastjóraskiptin. Hvatningu þeirri er Matthías beinir til mín um að ég kynni mér Hólamál betur en ég hef gert, vil ég í fullri vinsemd vísa heim til föðurhúsanna. Opinber gögn liggja f.vrir, og telji Matthías þau eiga erindi inn á síður dagblaðanna nú, þá leggst ég ekki gegn birtingu þeirra. Einkaskoðanir Matthíasar Egg- ertssonar á Gunnari Bjarnasyni og hæfileikum hans, sem hann sér ástæðu til að viðra í opinberu bréfi til mín, hef ég á hinn bóginn ekki áhuga á að ræða. En Matthíasi er að sjálfsögðu heimilt að hafa þær í friði fyrir mér. Reykjavík, 5. mars 1982. Anders Hansen. Hjörleifur Guttormsson um samþykktir Alþýðubandalagsins í ÍSAL-málinu: Samþykktin gerð í fullri alvöru á „þeim yettvangia „MÁLIÐ snýst ekki um það, að við fórum að leggja það fyrir ríkisstjórn á þessu stigi málsins. Við erum með þessa ríkisstjórnarsamþykkt og hún dregur upp þann ramma sem full sam- staða er um innan ríkisstjórnarinnar að fylgt verði," sagði Iljörleifur Gutt- ormsson iðnaðarráðherra, er Mbl. spurði hann, hvort þeir Alþýðubanda- lagsráðherrar myndu leggja samþykkt- ir miðstjórnar Alþýðubandalagsins um ISAL málið, þar á meðal hugmyndina um eignarnám álversins, fyrir ríkis- stjórn. Hjörleifur sagði aðspurður, að hann stæði að samþykktum mið- stjórnarinnar sem miðstjórnarmað- ur. Hann var þá spurður hvort hann sem jðnaðarráðherra myndi fram- fylgja þeirri samþykkt innan ríkis- stjórnarinnar. Hann svaraði: „Ég tel enga ástæðu til að tjá mig um það á þessu stigi. Ég tel að samþykkt mið- stjórnar Alþýðubandalagsins sé gerð í fullri alvöru á þeim vettvangi.,, „Miðstjórn Alþýðubandalagsins er upplýst um meginatriði í gangi Snýst ekki um að við förum að leggja það fyrir ríkisstjórn á þessu stigi málsins mála. Það var enginn ágreiningur þar um það efni,“ svaraði hann í framhaldi af spurningu um hvort hann teldi ekki að miðstjórnar- fulltrúar Alþýðúbandalagsins reikn- uðu meö að hann framfylgdi sam- þykktinni, eða hvort hér væri aðeins um málamyndatillögu að ræða. Iðnaðarráðherra var þá spurður hvað hann miyndi leggja fyrir dr Múller á þeim fundi, sem hann hefur boðað hann til í ráðuneytinu 25. marz n.k. „Ég mun ræða við dr. Múller um þau efni sem fram hafa komið á milli aðila Islands og Alu- suisse og kynna honum viðhorf ríkis- stjórnarinnar. Ríkisstjórnarsam- þykktin varðar deilumál fortíðarinn- ar í sambandi við ársreikninga ISAL 1980 og verðlagningu á aðföngum frá fyrri árum. Einnig óskir ríkisstjórn- arinnar um endurskoðun á samning- um. — Muntu kynna dr. Múller hug- myndir þínar sem miðstjórnarmað- ur í Alþýðubandalaginu? „Ég vil ekki tjá mig neitt um það efni á þessu stigi málsins. Ég mun að sjálfsögðu koma fram sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar í þessum viðræð- um.“ Hjörleifur var einnig spurður, hvort ríkisstjórnin myndi sam- þykkja að vísa ágreiningsmálunum í gerðardóm. Hann svaraði: „Við höf- um lýst okkur reiðubúna til þess að ágreiningsefnin fari í heild sinni í gerðardóm, án fyrirvara frá aðilum, enda hlíti aðilar niðurstöðum slíkrar gerðar.“ Ráðherra sagði einnig að gert væri ráð fyrir erlendum gerð- ardóm hvað þetta varðaði. Allir í fullu fjori i TEPPfíLttND! Fjölskyldan er velkomin í undra- heim teppanna ★ Emmess-íspinnar frá Mjólkursamsöl unni og svaland Pepsi og Seven U| frá Sanitas ★ Endurskinsmerki frá Sanitas hand; börnunum Opið 15.00 í dag wOO£U OAJf? m m m mmmmu.mwmkm Grensásvegi 13, símar 83577 — 83430

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.