Morgunblaðið - 31.03.1982, Síða 29

Morgunblaðið - 31.03.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982 29 skipt, jafnt starfsfólks sem við- skiptamanna. Það var ekki bara á vettvangi útgerðar og fiskvinnslu, sem sózt var eftir starfskröftum Ólafs. I byggðarlagi sínu naut hann mikils trausts manna og menn sóttust eftir að hafa hann með í ráðum og fela honum forustustörf. Þar átti hann sæti í stjórnum ýmissa fyrirtækja, en lengst og mest starfaði hann á vegum Hafnar- fjarðarkirkju, í safnaðarstjórn og sem safnaðarfulltrúi, og í stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar átti hann sæti um 30 ára skeið. Stjórnmálin lét Ólafur sig miklu skipta. Hann fyllti sæti á framboðslista sjálfstæðismanna, ef það þótti henta, en óskaði ekki eftir forustu. I stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði sat hann um áratuga skeið. Hygg ég, að þeir séu ekki margir, sem um jafnlangan tíma hafa innt af hendi störf fyrir sjálfstæðismenn í Hafnarfirði, oft þau störf sem ekki voru eftirsóttust. Ólafur Tr. Einarsson var hlé- drægur maður. Hann var afar hreinskiptinn, fáorður og gagn- orður, hógvær og óáleitinn við aðra. En þeim mun hjálpsamari þeim, sem einhvers þurftu með og til hans leituðu. Hann mun áreið- anlega minnisstæður öllum þeim, sem áttu við hann samskipti og orðheldnari maður en ólafur Tr. Einarsson var er vandfundinn. Ólafur Tr. Einarsson var ókvæntur og barnlaus. En í kring- um hann var systkinahópurinn og systkinabörnin og um þau hugsaði hann eins og þau væru hans eigin börn. Mér er sagt, að þau fáu ár, sem við móðurafi minn, Einar Þorg- ilsson, áttum saman, hafi ég mjög sótt til hans. Þegar afi minn, Ein- ar, var látinn, tóku synir hans við hlutverki hans, en þeir áttu heim- ili með móður sinni, Geirlaugu Sigurðardóttur og fjölskyldum sínum, á meðan hún lifði. Það samband, sem þá þegar skapaðist milli mín og móðurbræðra minna, styrktist eftir því sem árin liðu og breyttist úr umhyggju fyrir litlum snáða í samstarf um velferð þess veganestis, sem þeim hafði verið trúað fyrir af foreldrum sínum. Þegar nú frændi minn, Ólafur Tr. Einarsson, er genginn, eru honum færðar þakkir fjölskyld- unnar, allra barnanna, og við biðj- um honum Guðs blessunar á landi lifenda, og ég veit að hann þakkar samferðamönnum sínum öllum. Matthías Á. Mathiesen I dag verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju Ólafur Tryggvi Einarsson, framkvæmda- stjóri og útgerðarmaður. Hann andaðist föstudaginn 22. marz, eftir nokkuð langt stríð við erfið- an sjúkdóm, 78 ára að aldri. Með Ólafi er genginn einn af at- hafnamestu útgerðarmönnum þessa lands. Þessi hógværi og hlé- drægi maður hefur staðið í fylk- ingarbrjósti fyrir elzta útgerðar- fyrirtæki á Islandi nær 60 ára tímabil. Ólafur var fæddur í Hafnarfirði 24. febrúar 1904, sonur hjónanna Geirlaugar Sigurðardóttur og Ein- ars Þorgilssonar, útgerðarmanns og síðar alþingismanns. Foreldrar Ólafs lögðu grundvöll að miklum atvinnurekstri, bæði til sjós og lands fyrir hart nær 100 árum, bæði með útgerð, fiskvinnslu og verzlun, og varð þetta fyrirtæki eitt af umsvifamestu útgerðarfyr- irtækjum á landinu, og hefur starfað óslitið síðan. Árið 1924 keyptu þeir togarann Surprise GK-4 og árið 1930 létu þeir smíða togarann Garðar GK- 25, sem var stærsti togari, sem ís- lendingar höfðu látið smíða. Þeir tóku þátt í nýsköpun togaranna 1947 og fengu þeir annan Surprise. Það má því segja, að fyrirtæki þetta átti stóran þátt í að byggja upp atvinnulíf Hafnarfjarðar og hefur ævinlega rekið starfsemi sína með miklum myndarbrag. Nú á fyrirtækið 2 stóra fiskibáta, Fífil GK og Faxa GK. Ólafur stundaði nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og síðan Verzlunarskóla íslands. Brautskráðist þaðan árið 1922. Var um skeið við verzlunarnám í Kaupmannahöfn. Eftir það starf- aði hann við fyrirtæki föður síns og tók við forstöðu þess ásamt bróður sínum, Þorgils Guðmundi, við lát föður þeirra 1934. I íslenzkum sjávarútvegi hafa gengið yfir ár velgengni og erfið- leika, og þá reyndi mikið á Olaf oft á tíðum að stýra framhjá boðaföll- um, en það sýnir mannkosti Ólafs, að allir sem viðskipti áttu við hann, hvort heldur var starfsfólk eða viðskiptamenn, treystu orðum hans jafn vel og um skriflegan samning væri að ræða. Ég kynntist Ólafi eftir að ég tók að mér að vera oddviti útvegs- manna 1944. Hann var mikils met- inn í samtökum, var í stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna, Fél. ísl. botnvörpuskipaeigenda og innkaupadeildar LÍU. Þar nutu hæfileikar hans sín mjög vel. Hann var ekki margmáll, en ein- arður og fastur fyrir og lagði ávallt gott til allra mála. Ólafur var einnig í stjórnum annarra útgerðarsamtaka og þar naut sín vel sú staðgóða þekking, sem hann hafði aflað sér og upp- lifað á löngum starfsferli. Það er trú mín, að Ólafs verði minnst með virðingu og vinarhug og hans sárt saknað og mest af þeim, sem þekktu hann best. Sverrir Júlíusson Fundum okkar Ólafs Tryggva Einarssonar bar saman fyrir rétt- um 37 árum. Ég leit strax svo til, að þar færi mikilhæfur og traust- ur drengskaparmaður. Mér var kunnugt um, að hann nyti óskor- aðs trúnaðar þeirra aðila, er hann hafði forsjá með eða vann fyrir. Fyrirtæki þau, er hann átti hlut að, uxu í áliti, þá er nafns hans var getið. Síðari kynni færðu mér sanninn um, að ekkert hafði verið ofsagt um mannkosti Ólafs Tryggva og í engu var hann minni en bestu um- sagnir tjáðu. Við unnum saman í sóknar- nefnd Hafnarfjarðar um fjölda mörg ár. Þar kynntist ég honum gjörla og vinnubrögðum hans. Hlédrægur en ráðhollur lagði hann einatt gott til málanna og var mannasættir. Hann var mikill kirkjunnar maður. Átti sæti í sóknarnefnd mjög lengi og var safnaðarfulltrúi meðan hann gaf kost þess. Þeir, sem kirkju sóttu í Hafnarfirði á undanförnum ára- tugum, nutu þess að vera boðnir velkomnir í hús drottins til helgra stunda af þessum prúða, látlausa og hógværa manni. Þá heilsa bannaði honum þangaðkomu, varð sjónarsviptir. Eitthvað það á braut horfið, er minnti á festu, varanleika og föðurkennd. Nú er Ólafur Tryggvi kvaddur síðustu kveðju. Fyrir hönd Hafn- arfjarðarkirkju færi ég þessum látna öðlingi innilega þökk fyrir hans miklu, góðu og athyglisverðu þjónustu, er hann lét kirkju sinni í té og safnaðarlífi. Minning hans mun lengi vara í þakklátum huga þeirra, er kynntust honum eða nutu fyrirgreiðslu hans og vel- vilja. Hér er í sannleika góður maður genginn. Því er skarð fyrir skildi. Áutt sæti og ekki auðfyllt. Starfs- ins maður, stilltur vel á brott vik- inn. Hélt sinni reisn uns yfir lauk. Við þökkum tilveru hans og samfylgdina og árnum honum velfarnaðar á vegum bjartrar framtíðar. Eiríkur Pálsson Ég kynntist Ólafi Tr. Einars- syni strax á fyrstu árum mínum í Hafnarfirði. Var það bæði á vett- vangi hinna daglegu starfa í at- vinnulífinu og í félagsstörfum í Sjálfstæðisflokknum. Það var gott að eiga skipti við Ólaf. Hann var alltaf hreinn og beinn, sagði hvort honum líkaði betur eða verr en var ekki með óþarft málæði eða hálf- velgju. Orð hans stóðu og honum var hægt að treysta. Ólafur var mikill reglumaður í lífi og starfi. Hann hafði ákveðnar skoðanir og kynnti sér málin til hlítar og voru ákvarðanir hans byggðar á rökum og festu, þó gætti ávallt velvilja, þegar taka þurfti tillit til annarra. Meðan ég starfaði hjá Sjálf- stæðisflokknum í Hafnarfirði var Ólafur í stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna. Alltaf var gott til hans að leita og þægileg tilfinning að eiga hann að bak- hjarli. Hann var alltaf boðinn og búinn til starfa, var viðræðugóður og tillögur hans reyndust farsælar í sambandi við lausn mála. Ólafur leitaði ekki eftir því að komast til áhrifa en ég held að það hafi verið sama hvar hann kom til starfa að til hans var leitað um að taka að sér ýmis trúnaðarstörf, þá var öruggt að þau voru unnin og vel af hendi leyst. Ólafur var raungóður maður og stór í sniðum. Hjálparhönd var honum ljúft að rétta en slíku vildi hann ekki flíka. Hann vildi ekki láta sinn hlut eftir liggja og vinum sínum var hann ákaflega tryggur. Góður drengur er genginn með Ólafi Tr. Einarssyni, þar horfir byggðarlagið og samfélagið í heild á eftir einum sínum besta syni. Honum ber að þakka og blessun- arbænir fylgja honum á nýjum vegum. Aðstandendum flytjum við samúðarkveðjur. Páll V. Ilaníelsson Nú að leiðarlokum, þegar við kveðjum Óla frænda, eins og við frændsystkinin kölluðum hann, koma margar endurminningar upp í hugum okkar. Þessi hægi og trausti frændi og vinur hafði meiri áhrif á okkur en maður gerir sér grein fyrir í fljótu bragði. Allt frá því að við förum að muna eftir okkur þá skipar „Ommuhús” fastan og sterkan sess í lífi okkar. í „Ömmuhúsi" að Strandgötu 25 átti amma Geirlaug heima á efri árum sinum og bjó hún þar ásamt tveimur sonum sínum og einni dóttur, þeim Dagbjörtu, sem var elzt þeirra systkina, Þorgils Guð- mundi, giftur Viktoríu Sigur- jónsdóttur, og Ólafi Tryggva. I „Ömmuhús" komum við frændsystkinin til að heimsækja ömmu Geirlaugu, þiggja góðgerðir í búrinu hjá Birtu frænku og ræða síðan við og leita ráða hjá frænd- um okkar Óla og Guðmundi. Snemma byrjaði ég að leita ráða og ræða málin við Öla frænda. Að ég sem barn hallaði mér að honum var sjálfsagt vegna þess að ég fann traustan vin og leiðbeinanda til að koma í stað föður míns sem lézt er ég var 10 ára gamall, að minnsta kosti upp frá því var það þessi frændi minn sem fyllti í þá mynd sem mig vantaði. ÓIi frændi var alla tíð ókvæntur og barnlaus, en sérstaklega var hann barngóður heimilismaður og þess nutu systkinabörn og systk- inabarnabörn hans í ríkum mæli. Þegar við vorum yngri kom hann til okkar í barnaafmælin og þá var kíkt út um næsta glugga til að vita hvort hann væri ekki á 48 eins og við kölluðum bílinn hans og það brást ekki, Óli fór með okkur í bíltúr, en þá var heilt ævintýri að keyra suður að Straumi eða upp að Vatnsenda. Það má segja að hann hafi opnað fyrir okkur heiminn sem þá virtist svo stór. Það var oftast fjölmennt í „Ömmuhúsi", því þannig vildi amma Geirlaug hafa það. Það var sama hvort okkur bar að rétt fyrir hádegi, kaffitíma eða kvöldmat, allir urðu að þiggja góðgerðir, svo að oft var mannmargt við borð- stofuborðið í „Ömmuhúsi". Bræð- urnir, eins og þeir Óli og Guð- mundur voru stundum kallaðir, stjórnuðu þessu með ömmu ásamt Birtu og svona átti þetta að vera. Við hugsum öll með hlýju til baka til þessara daga. Þegar maður óx úr grasi og fór til skólagöngu og síðan út í lífið sjálft þá leitaði ég oft til Ólafs frænda míns. Þegar ég valdi að fara í Verzlunarskólann þótti hon- um vænt um það, því það var skól- inn sem þeir bræðurnir höfðu gengið í og héldu æ síðan mikilli tryggð við. Þegar skólanámi lauk og unga fólkið, systkinabörnin, uxu upp urðu samskipti á jafnari grund- velli eíns og hjá fullorðnu fólki, því þótt Óli frændi væri formfast- ur og hefði sínar ákveðnu lífsskoð- anir, þá hlustaði hann ætíð vel og var mjög sanngjarn í sínum niður- stöðum. Hann dæmdi ekki fyrir- fram og var tilbúinn til að veita liðsinni og gefa tækifæri ef við- komandi gat rökstutt sitt mál og ekki sízt ef viðkomandi hafði trú á sínum málstað. Það var Óla ætíð mikilsvert. Þetta allt sannast þeg- ar horft er til þess fjölda fyrir- tækja sem Ólafur gerðist stofnað- ili að, þó ekki ætlaði hann sér stóran hlut frá borði, en var meira að hugsa um að ljá lið sitt ef það mætti verða til framgangs góðum og áhugaverðum málum. Ég ætla ekki með þessum fáu línum að rekja atvinnusögu Ólafs. Það munu aðrir gera, en eins vil ég minnast þó sérstaklega. Það var á vordegi árið 1960 að ég kom til fundar við Ólaf og tjáði honum að ég hefði hug á því að stofna hluta- félag ásamt tengdaföður mínum Sveinbirni Árnasyni, og var ætl- unin að fást við innflutningsverzl- un. Ég reifaði málið fyrir Ólafi, lýsti undirbúningi, spurði hvernig honum litist á og hvort hann mundi fús til að styðja þetta með því að gerast hluthafi. Ólafur spurði ýmissa spurninga og ræddi þetta mál við mig um góða stund og sagði síöan i sínum fáu orðum: „Mér finnst rétt að ungir menn velji sér verkefni og takist á við þau. Þú skalt reikna með mér sem hluthafa." Hann hafði aldrei mörg orð um hlutina en hann meinti og stóð við það sem hann sagði. E. Th. Mathiesen hf. var síðan stofnað 30. júní 1960 og Ólafur Tryggvi var einn af stofnendum þess. Hann sat í stjórn fyrirtækisins frá stofnun ásamt Sveinbirni Árnasyni og undirrituðum og var Ólafur Tryggvi formaður stjórnar frá upphafi allt til síns dauðadags. Áldrei bar skugga á þetta sam- starf okkar þriggja enda hefði undirritaður ekki getað setið í stjórn með meiri heiðursmönnum en þeim Ólafi Tryggva og Svein- birni. Og ég veit að þeir nutu sam- starfsins í ríkum mæli og mátu hvorn annan mikils. Ég færi Ólafi sérstakar þakkir okkar Svein- bjarnar fyrir einstakt samstarf. Það var mikils virði fyrir mig sem ungan mann að byrja at- vinnurekstur með því að hafa slíka félaga sem Ólafur og Sveinbjörn hafa verið. Þeir Ólafur og Sveinbjörn bundust með þessu samstarfi órjúfandi vináttubönd- um sem ég veit að hvorugur hefði viljað fara á mis við. Ekki get ég minnst á Óla frænda án þess að inn í þá mynd komi bæði heimili mitt og fjöl- skylda. Óli hafði ætíð verið tryggur vin- ur og gestur foreldra minna á heimili þeirra að Suðurgötu 23 og sú tryggð'hélzt áfram eftir að við Erna hófum búskap þar og enn var Óli frændi hjá okkur að Smárahvammi 18, ásamt börnum okkar og skyldmennum síðasta gamlárskvöld, til að kveðja árið sem var að líða og fagna komandi ári. Við Erna gerðum okkur ljóst að þetta myndu verða síðustu ára- mótin sem við ættum saman með honum, því engum gat dulist að hverju dró. Hann vissi að hverju stefndi hröðum skrefum og hann tók því með sínu yfirvegaða æðru- leysi og karlmennsku. Allt skyldi vera eins og það hafði verið þar til hans dagar væru á enda. Það er dýrmætt hverri fjöl- skyldu og hverju samfélagi að éiga slíka menn sem Ólafur Tryggvi var. Hann hafði unnið sitt dags- verk af trúmennsku. Við kveðjum hann nú með þökk fyrir allt það sem hann gaf lífi okkar. Allt sem hann gaf af sjálfum sér án þess að ætlast til endurgjalds. Hann mun uppskera eins og hann sáði. Ég vil að leiðarlokum þakka Óla frænda sérstaklega frá okkur Ernu og börnunum fyrir vináttuna og sam- verustundirnar. Blessuð sé minning hans. Einar Þ. Mathiesen 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Hvernig stendur á því, að margir svokalladir kristnir menn eru enn fullir af hleypidómum gagnvart öllum gyðingum? Mér skilst, að kristin trú eigi rætur í gyðingdómi og að fyrstu áhangendur kristinnar trúar hafi verið gyðingar. Hvers vegna hafa þá svo margir mótmælendur andúð á gyðingum? Eg er feginn, að þér skrifið „svokallaðir kristnir menn“, því að eg trúi því ekki, að sannkristinn maður eigi að hafa andúð á neinum manni. Að vísu eru til kristnir menn, sem hýsa hleypidóma gagnvart til- teknum ættbálkum. Mönnum er eðlilegt að vera hlið- hollir þeim sem talar, lítur út og hagar sér eins og þeir sjálfir. En það var eitt einkennið á kristnum mönnum í frumkirkjunni, hve kærleiksríkir þeir voru, ekki aðeins í garð „bræðra", heldur allra. Á hvíta- sunnu voru menn frá öllum menningarheimi þess tíma saman komnir í Jerúsalem. Heilagur andi féll yfir þá alla jafnt. Hvað má valda því, að sumir hafa horn í síðu gyð- inga? Ef til vill er ein ástæðan öfund, enda vitum við, að gyðingar eru bráðgáfaðir og skara yfirleitt alls staðar fram úr, sem þeir láta til sín taka. Önnur ástæða getur verið sá misskilningur, að það hafi verið gyðingar, sem krossfestu Krist. Það er ekki rétt. I raun og veru voru það Rómverjar, sem tóku hann af lífi. En á vissan hátt komum við þar öll við sögu. Biblían segir: „Vér fórum allir villir vega sem sauðir, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.“ Fólk margra kynflokka átti hlut að máli, þegar Kristur var krossfestur. Það gildir einu, hvers konar ranghugmyndir menn gera sér um gyðinga, þær verða ekki réttlættar með Biblíunni. Biblían segir: „Ekki er greinarmunur.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.