Morgunblaðið - 31.03.1982, Síða 32

Morgunblaðið - 31.03.1982, Síða 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10-100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 2tt*t£xwblaí>ib MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982 Neyðarfæði í björg- unarbáta „lúxusvara“ MATUR í björgunarbáta fiskiskipa er nokkurs konar lúxusvara, ef dæma má eftir tollmeðferð á slíkri vöru. Fyrst er lagt á 3% jöfnunar- gjald, síðan kemur 24% vörugjald og loks 32% tímabundið innflutnings- gjald. Samanlagt gerir þetta 68%. Þessar upplýsingar koma fram í nvj- asta fréttabréfi Verzlunarráðs Is- lands. Þetta vekur ekki aðeins furðu, að neyðarbúnaður eins og matur í björgunarbáta skuli vera svo hátt tollaður, heldur er einnig skringi- legt til þess að vita hvað olli því. Upprunalega voru greidd miklu lægri gjöld af mat til björgunar- báta, vegna þess að það þótti sanngjarnt. Uppistaðan í matnum var kjöt. Rannsóknir leiddu síðan í Ijós, að heppilegra var að nota sojamjöl, sem m.a. er næringarrík- ara, og úr því voru bakaðar kökur. Þar með skipti engum togum. Björgunarmaturinn var flokkaður undir kex í totlskránni og þá hlóð- ust gjöldin á. Einnig 32% vernd- artollur fyrir islenzkan kexiðnað. En þörfin fyrir hollan og nær- ingarríkan mat, ef sjómenn lenda í háska, hefur ekki breyzt. Um leið og útgerðin vill reyna að tryggja öryggi sjómanna, er henni refsað með hærri gjöldum, segir enn- fremur í fréttabréfi Verzlunarráðs Islands. Vorhugur1 trillukörlum á Eskifirði Ljósm. Vorhugur er kominn í smábátaeigendur á Eskifirði, enda hagur þeirra að vænkast. Verið er að útbúa smábátalægi innst i firðinum, en aðstöðu- leysi hefur háð útgerð þeirra. Flestir hafa kosið að geyma báta sína á þurru landi yfir vetrarmánuðina og því orðið að láta sér nægja að dytta að bátunum, þegar veður hefur gefíð. Siglufjörður: Hundrað manns sagt upp kauptryggingu hjá Þormóði ramma UM KITTHUNDRAÐ manns hefur nú verið sagt upp kauptryggingu í þrjá daga hjá frystihúsi Þormóðs ramma í Siglufírði. Vinna mun því liggja niðri að mestu hjá fyrirtækinu þar til á föstudag er fískur berst á land að nýju. Að sögn Sæmundar Árelíussonar, framkvæmdastjóra Þormóðs ramma, stafar þessi uppsögn af því, að ekki hefur borizt nægur fiskur á land. Annar togari fyrirtækisins, Stálvík, hefur verið á karfaveiðum fyrir sunnan land vegna þorskveiði- banns og mun sigla með aflann til Cuxhaven. Sagði Sæmundur að erf- itt og óhagkvæmt væri að vinna karfann í frystihúsinu, þar sem ekki væru til vélar til að handflaka hann. Þá fengist lítið verð fyrir hann og væri olíukostnaður í meðal veiðiferð um 180 þúsundir króna en fyrir 100 lestir af karfa fengjust að- eins tæpar 300 þúsundir og ætti þá eftir að greiða launakostnað áhafn- ar og ýmislegt annað. Því hefði ver- „Engin fjárveiting til aö hafa sendi- herra í Nigeríu“ ÞAÐ ERU ekki til fjárveitingar til að hafa sérstakan sendiherra í Nígeríu, sagði Olafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, er Mbl. spurði hann álits á ályktun Samlags skreiðarframleið- enda, þar sem skorað er á ríkisstjórn- ina að koma á nánara stjórnmálasam- bandi við Nígeríu með því að skipa sérstakan sendiherra Islands fyrir Afríkuriki með aðsetri í Nigeriu. Ólafur sagði að sendiherra þess- ara ríkja sæti áfram í London. Hann sagði einnig, að skreiðar- markaðurinn væri nú fremur ótraustur í Nígeríu, en úrslitum í málinu réði að fjármagn til þessa væri ekki fyrir hendi. ið gripið til þess ráðs að sigla með aflann þangað, sem betra verð feng- ist fyrir hann. Sæmundur sagði ennfremur að nú væri hinn togar- inn, Sigluvík, á þorskveiðum, en gengi treglega og hefði svo verið að undanförnu. Á föstudag fengist svo fiskur af afla Siglfirðings, sem er í eigu ísafoldar, og hæfist þá vinna að nýju. Arnarflug flýgur fyrir Air France BOEING 720-þota Arnarflugs hefur undanfarna daga verið í leiguflugi fyrir franska ríkis- flugfélagið Air France. Flogið hefur verið áætlunarflug til ým- issa staða í Evrópu eins og Frankfurt, Genf og Manchester út frá París. — Þetta flug kom til vegna verkfalls flugvélstjóra hjá Air France, sem vildu með verk- falli sínu mótmæla fyrirætl- unum um að taka Boeing 737-þotur inn í áætlun Air France, en þær vélar eru mannaðar tveimur flugmönn- um, en engum flugvélstjóra, sagði Halldór Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Arnarflugi, í samtali við Mbl. — Air France greip því til þess ráðs, að leigja vélar frá einum 15 evrópskum flugfé- lögum, þar á meðal Arnar- flugi og Lufthansa, svo ein- hver séu nefnd. Þá má geta þess, að þetta er í fyrsta sinn, sem Arnarflug flýgur fyrir Air France, sagði Halldór ennfremur. Leiguþota í innanlandsflugi Ljðfnnynd Mbl. RAX. Þcssa Boeing 727 þotu eru Flugleiðir með á leigu vegna verkefnis fyrir Kabo Air í Nígeríu. Því verkefni er nú lokið og því er þotan notuð í innanlandsfíugi og mun meðal annars flytja farþega á milli Reykjavíkur og Akureyrar um páskana. Hefur þessi þota komið sér vel í innanlandsfluginu nú vegna óhappsins á dögunum, að sögn forráðamanna Flugleiða. Eftir páska mun þotan síðan fara aftur til Nígeriu til að leysa af hólmi þotu Flugleiða, sem þar er nú staðsett. Mun sú þota koma hingað heim til skoðunar. Að því loknu verður leiguþotunni skilað aftur. Heimamenn í Deildartungu: Skemmdarverk unnin á Deildartunguhver llvanneyri 30. marz. HEIMAMENN í Deildar- tungu telja að nú hafí verið unnin skemmdarverk á Deildartunguhver. Hefur skuröur verið grafínn í gegnum hveraugu, sem Náttúruverndarráð hafði friðlýst. Hefur þessi skurður verið grafinn af verktakafyrirtæki, sem sér um framkvæmdir vegna Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, til þess að sam- eina vatn úr hvernum. Ekki var borað í hverinn heldur rennur úr áðurnefndum hveraaugum 100 gráðu heitt vatn og átti að safna því saman án þess að aug- un yrðu skemmd. Ekki hafa heimamenn orðið varir við menn frá Náttúruverndarráði á staðnum. Hverinn var tekinn eignarnámi af eigendum hans í Deildartungu og mun nú hafa verið afhentur Hitaveitu Akra- ness og Borgarfjarðar og hafa heimamenn því ekki beinna hagsmuna að gæta í þessu máli. Mun það því fremur núverandi eigenda hans og Náttúruvernd- arráðs að sjá til þess að ekki verði unnar skemmdir á hvern- um. Ófeigur Utanríkisráðherra í opinbera heim- sókn til Kína ÓLAFUR Jóhanncsson, utanríkisráð- herra og frú, Hörrtur Helgason, ráöu- neytisstjóri í utanríkisráóuneytinu og hans frú, fara í opinbera heimsnkn til Kína þann 21. apríl nk. Ferðin er farin í boði kínverska utanríkisráðherrans og ríkisstjórnar Kína, en utanríkisráðherra og föru- neyti verða alls 16 daga í ferðinni. Að sögn utanríkisráðherra hafa ís- lendingar og Kínverjar verið í stjórnmálasambandi í um 10 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.