Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÍJLÍ1982 Hrímnir B-flokki Frá \ aldimar Kri.stinH.syni, blaðamanni Mbl. á Vindheimamelum. SEINNIPARTINN í gær lauk dómum í B-flokki gæð- inga og voru úrslit kunn í gærkvöldi. Hæstu einkunn ísafjarðardjúp: Lýsa vanþókn- un á seladrápi Boln í MjóaHrði, 7. júlí. BÆNDUR hér margir lýsa vanþóknun sinni á Kelaeyðingu eins og hún er i reynd. Sporthátaeigendur og fleiri skjóta seli um allt I)júp og jafnvel á friðlýstum svæðum, svo sem á Horn- strondum og eru mikil hrögð að því að hræjum sé kastaö í sjó og reki á fjörur við Djúp, jafnvel i sellátur bænda. Til er dæmi um urtu sem fannst dauð af skotsári í fjöru, þar sem kópur lá viö hlið hennar og var að reyna að sjúga. I'að er spurning hvort okkar fátæka arnarstofni stafi ekki stórhætta af, vegna spika og hrækju úr hræjunum. Ágúst efstur í gæðinga hlaut Hrímnir frá Hrafnagili 8,86 stig. Á sunnudag fara tíu efstu hestarnir í endurröðun, en þeir eru auk Hrímnis: Væng- ur frá Kirkjubæ með 8,76, Skarði frá Skörðugili með 8,67, Goði frá Ey með 8,62, Fylkir frá Ytra-Dalsgerði með 8,53, Bliki frá Hösk- uldsstöðum með 8,49, Frí- mann frá Súlunesi með 8,43, Haki frá Kirkjubæ með 8,43, Ófeigur frá Skorrastað með 8,40 og Safír frá Stokkhólma með 8,40. Keppnin var jöfn og skemmtileg, þrátt fyrir það að búist var við að tveir efstu hestarnir, Hrímnir og Væng- ur, hlytu hæstu einkunnir. Síðla í gærkvöldi var dómum á stóðhestum ólokið, en allt útlit fyrir að dómstörf stæðu fram yfir miðnætti. Vængur frá Kirkjubæ varð í öðru sæti í flokki klárhesta með tölti og hlaut hann einkunnina 8,67. Meðfylgjandi mynd er af klárnum og eiganda hans, Jóhanni Friðrikssyni. Ljósm. Mbi. vk. Kreditkort hf., Útvegsbankinn og Verzlunarbankinn: Verkamannafélagið Hlíf: Stofna sameignarfélag Álítur kjarasamn- um Eurocard-greiðslukort ingana léttvæga NÚ er lokið kosningu félagsfundar í flestum aðildarfelögum innan ASI um nýgerða kjarasamninga. Víðast hefur þátttakan verið dræm, en þó hafa öll félögin, sem atkvæði hafa greitt um samningana, samþykkt þá utan Félag leiðsögumanna, sem felldi þá. I'á hef- ur eitt aðildarfélaganna, verkamanna- félagið Hlíf í Hafnarfirði, samþykkt ályktun um samningana. Meðal stærstu félaganna, sem samþykkt hafa samningana, má nefna Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, en þar voru þeir sam- þykktir með 95 atkvæðum gegn 5 og um 30 sátu hjá. Verkakvennafélagið Framsókn samþykkti samningana einróma, en fundarmenn voru um 90. Verkakvennafélagið Framtíðin samþykkti samningana með 44 at- kvæðum gegn 9. í Félagi járniðnað- armanna fór atkvæðagreiðslan þannig að fylgjandi voru 31, á móti 8 og 47 sátu hjá. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði samþykkti samn- ingana með 17 atkvæðum gegn 12 og sátu nokkrir hjá. Þá samþykkti fundurinn ályktun um samningana, sem samþykkt var einróma og fer hér síðar í fréttinni. A Akureyri samþykktu verzlunarmenn samn- ingana samhljóða og í verkalýðsfé- laginu Einingu voru samningarnir samþykktir með 112 atkvæðum gegn 20, 14 atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir. Þá hefur félagsfundur í Fé- lagi blikksmiða ákveðið að fresta af- greiðslu samninganna vegna lélegr- ar mætingar á siðasta fundi. Áður hefur verið sagt frá félagsfundum í Dagsbrún og Iðju. Hér fer á eftir ályktun verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnar- firði: „Fundur haldinn í verkamannafé- laginu Hlíf 5. júli 1982 lýsir undrun sinni á því hættulega fordæmi samninganefndar ASI, að sam- þykkja skerðingu á vísitölu eins og gert er í nýgerðum kjarasamning- um, sem undirritaðir voru 30. júní síðastliðinn. Með þessum furðulegu vinnubrögðum er einu helzta bar- áttu- og hagsmunamáli láglauna- fólks kastað fyrir róða. Að öðru leyti álítur fundurinn samninginn létt- vægan, en þó spor í rétta átt og tel- ur, að miðað við tíma og aðstæður verði það af illri nauðsyn gert að samþykkja hann. Þó með því fororði að verkalýðshreyfingin taki á ný upp skelegga baráttu fyrir óskertri kaupgjaldsvísitölu." ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS og Verzlunarbanki íslands hafa undanfarið átt viðræður við eigendur Kreditkorts hf. um hugsanlegt samstarf þessara aðila um EUROCARD-kreditkortaþjónustu og hafa þessar viðræður nú leitt til þess, að samkomulag hefur nú tekizt og var ákveðið, að þessir þrír aðilar stofnuðu nýtt fyrirtæki í því skyni, undir nafninu Kreditkort sf. Tilgangur þessarar samvinnu er tæki, sem taka á móti kredit- að stuðla að frekari útbreiðslu EUROCARD-kreditkortsins jafnt innanlands sem utan. Leyfi til út- gáfu EUROCARDS til notkunar erlendis, er háð samþykki gjald- eyriseftirlits Seðlabanka íslands og fer eftir reglum þar um. Þeir einstaklingar og fyrirtæki, sem fá leyfi gjaldeyriseftirlitsins til notkunar á EUROCARD-kreditkorti erlendis þurfa aðeins eitt kort, sem þeir nota jöfnum höndum heima og erlendis. Samkvæmt skýrslum EUROCARD International eru um eða yfir 3,6 milljónir þónustu- og verzlunarfyrirtæki í heiminum, sem taka við EUROCARD-kredit- kortinu til greiðslu á vörum og þjónustu og er það því eitt út- breiddasta kort sinnar tegundar í heiminum í dag. Hér á landi hefur EURO- CARD-kreditkortaþjónustan verið fyrir hendi í rúmlega tvö ár. Nýj- ung þessari hefur verið vel tekið hérlendis og er fjöldi viðskipta- manna um 1200 en þjónustufyrir- sem taka a kortum liðlega 300 talsins. Hið nýja fyrirtæki Kreditkort sf. hefur nú umboð fyrir EURO- CARD International, sem er ein- hver stærsta kreditkortasam- steypa í heimi, þegar með eru tal- in MASTERCARD i Bandaríkjun- um, ACESS í Bretlandi, sem er eitt og sama kortið. Öllum undirbúningi er nú að ljúka og gert ráð fyrir, að hægt verði að afgreiða fyrstu kortin í lok þessa mánaðar. Félag leiðsögumanna felldi kjarasamninga ÁSÍ: Gerði samkomulag við ferðaskrifstofur Hárskera- og hárgreiðslusveinar sömdu í gær FÉLAG leiðsögumanna gerði í gær sérkjarasamkomulag við ferða- skrifstofueigendur eftir að hafa fellt heildarkjarasamningana samhljóða á fundi sínum siðastliðið mánu- dagskvöld. Einnig gerðu hárskera- og hárgreiðslusveinar samning við vinnuveitendur í gær. Ástæða þess að samningar leið- sögumanna voru felldir var sú, að leiðsögumenn töldu sig ekki hljóta Spænska sjónvarpið tók upp tón- leika Pólýfónkórsins í Sevilla Frá Arnaldi IndriAasyni, bladamanni Morgunblaúsins á Spáni, 6. júlí. „ÉG er afar glaður og þakklátur yflr sigursælum endi þessa hljóm- leikaferðalags. Það er stórkostlegt að hafa fengið húsfylli á öllum þess- um flmm tónleikum, sem við höfum haldið. Tónlistin hefur verið flutt af mikilli gleði og innlifun og hver konsert hefur verið tilhlökkunar- efni fyrir okkur,“ sagði Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi Pólý- fónkórsins, í samtali við Morgun- blaðið cftir mjög vel heppnaða loka- tónleika Pólýfónkórsins í Sevilla á Spáni i kvöld. Með tónleikunum í Sevilla lauk fimm daga söngferðalagi kórsins og hljómsveitar um Spán, þar sem haldnir voru jafnmargir tónleikar, ávallt fyrir fullu húsi. Spænska sjónvarpið tók upp þessa tónleika í Sevilla, sem haldnir voru í Kirkju Frelsarans, gullfallegri og risastórri 18. aldar barokk-kirkju. Hún rúmar um 1.000 manns í sæti og var hvert sæti skipað og ríflega það. Að tónleikunum loknum voru Ingólf- ur, kórinn, hljómsveit, einleikar- ar og einsöngvarar hylltir með dynjandi lófataki og voru Ingólfi og Nancy Argenta afhentir blómvendir að hljómleikunum loknum. Aðaltónlistargagnrýnandi stærsta dagblaðsins í Sevilla sagði í samtali við Mbl., að hér hefði verið um að ræða einhvern mesta tónlistarviðburð í borginni það sem af væri árinu. „Það er synd fyrir heimminn," sagði hann, „að kórinn skuli ekki fara víðar, sérstaklega með verk Jóns Leifs, Eddu-óratóíuna.“ Hann hældi einsöngvurunum, Kristni Sigmundssyni og Jóni Þorsteins- syni og sérstaklega Nancy Arg- enta, kanadíska einsöngvaranum. Tónlistargagnrýnandi blaðsins Sur, stærsta blaðs í Malaga, sagði meðal annars í blaði sínu eftir að hafa hlýtt á tónleika Pólýfón- kórsins og hljómsveitar í Malaga: „Kammerhljómsveitin var mjög samstillt og hinn stóri kór var vel æfður og agaður. Einleikarinn, María Ingólfsdóttir, stjórnaði konsert Bachs mjög vel og var leikur hennar á fiðluna hreint út sagt stórkostlegur og hafði hún fullkomið vald á hljóðfærinu. í óratóríu Jóns Leifs voru ein- söngvararnir Kristinn Sigmunds- son og Jón Þorsteinsson mjög góðir. Það, sem var athyglisverð- ast og stórkostlegast á efnis- skránni, var Gloría F. Doulencs og var söngur kanadíska ein- söngvarans, Nancy Argenta, óað- finnanlegur og var flutningur verksins í heild sinni mjög góður. Verkin voru flutt undir öruggri stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, sem ásamt kór og hljómsveit, ein- leikurum og einsöngvurum var klappað mikið lof í lófa af hinum stóra áheyrendahópi." Blaðið Granada, sem gefið er út í samnefndri borg, sagði eftir tónleika kórsins þar: „Það voru svolítið sérstakir tónleikar, sem Pólýfónkórinn og hljómsveit fluttu í dómkirkjunni í Granada undir stjórn Ingólfs Guðbrands- sonar, en konsertmeistari var Rut Ingólfsdóttir. Allur flutning- ur efnisskrárinnar var stórkost- legur og kom það á óvart hve vel og örugglega verkin voru flutt. Án erfiðleika fyllti kórinn þessa stóru kirkju með söng sínum, þannig að það var sama hvar fólk sat, alls staðar heyrðist tónlistin jafn vel.“ Kórinn og hljómsveitin koma heim á fimmtudag, en einhverjir mun þó verða eftir hér á Spáni og njóta lífsins. sömu kjarabætur samkvæmt þeim og aðrir viðmiðunarlaunþegar. Með samkomulaginu, sem gert var í gær, telja þeir sig hins vegar hafa náð viðunandi árangri. Kristbjörg Þórhallsdóttir, sem sæti á launanefnd Félags leiðsögu- manna, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að ekki hefði verið um annað að ræða en að fella samningana vegna almennrar óánægju félagsmanna. Með því móti hefði verið hægt að fá frekari viðræður. Með þessu móti hefði sú lausn fengizt sem félagsmenn mættu betur við una. Það væri erfitt fyrir félag, sem aðeins ynni hluta ársins og félagar væru allir lausráðnir að standa í heildar- samningum. Þá bæri að geta þess að leiðsögumenn hefðu verið að semja til tveggja vertíða, eða í raun 24 mánaða og það hefði haft mikið að segja í þessu samkomu- lagi. Hún sagði að ekki hefði verið gerður samanburður á launa- hækkunum á samkomulaginu við ferðaskrifstofurnar og heildar- kjarasamningi ASÍ. Vegna sér- stöðu félagsmanna væri það ekki mögulegt. Samkomulagið verður lagt fyrir félagsfund á næstu dögum. Blaðamenn fjalla um samninga ALMENNUR félagsfundur verður í Blaðamannafélagi íslands á morg- un, fostudag, klukkan 12.00 að Síðu- múla 23. Á fundinum verður fjallað um nýgerða kjarasamninga blaða- manna og útgefenda og greidd at- kvæði um þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.