Morgunblaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 24
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
r/ Serv> opinb-er SVnaklcar/ minn,ber p'er
a& ls\a\da i keíáirf shiiAiAa /£>
fyrírrenncvr~cí. þÍKvrva '1
Hea/nAn
ásí er ...
... ad hrósa
honum öóru
hvoru.
TM Reg U S P«t OfT — aK rtQhts reserved
•1M2 Loe Angeéee Tlmee Syndtcete
Með
morg'unkaffrnu
Vangaveltur um geðheilbrigðis-
kerfið eru bráðnauðsynlegar
Stjórn Geðhjálpar vill lýsa
ánægju sinni með og koma á
framfæri kæru þakklæti til
þeirra Andrésar Ragnarsson-
ar og Wilhelms Norðfjörð
fyrir ágætis grein þeirra í
Mbl. 13. ágúst, um bók Ragn-
ars Gunnarssonar og Jónasar
Gústafssonar um geðheil-
brigðismál, „Frigorelse — ikke
helbredelse".
Geðhjálp, sem er félag
geðsjúklinga, aðstandenda
þeirra og velunnara, vill ein-
mitt efla frekari umræður og
vangaveltna um breytingar og
þróun í geðheilbrigðiskerfi Is-
lendinga, sem að okkar áliti
eru bráðnauðsynlegar. Geð-
hjálp er stolt af því, að mikinn
hluta núverandi umræðna um
þessi mál megi rekja til frum-
kvæðis félagsins. Fyrir þrem-
ur árum samdi Geðhjálp til-
lögu til þingsályktunar um
geðheilbrigðismál, um skipu-
lag og úrbætur. Ráðherraskip-
aða nefndin, sem nú er starf-
andi og nefnd er í grein Andr-
ésar og Wilhelms, er beinn
árangur tillögunnar.
Geðhjálp er þrýstihópur,
sem er að berjast fyrir betri
geðheilbrigðisþjónustu, leggur
litla áherslu á byggingu stórra
stofnana, beitir sér þess í stað
fyrir að framkvæmd verði
fyrirbyggjandi störf, komið á
fót geðhverfamiðstöðvum,
fleiri vernduðum vinnustöðum
og að heimili geðsjúkra verði
heimsótt oftar en verið hefur.
Félagið telur það mjög já-
kvætt og ekki af öðru en hinu
góða þegar fólk lætur heyra
frá sér, á opinberum vett-
vangi, eitthvað um þessi mál,
sem snerta okkur öll. Ég vona
að þessi grein verði kveikjan
að skrifum frá öðrum sérfræð-
ingum um þörf breytinga í
geðheilbrigðiskerfinu, fræðslu
um sjúkdóminn og um önnur
geðræn vandamál og hin ýmsu
meðferðarprógröm sem í
gangi eru í dag.
Félagið Geðhjálp vill enn-
fremur benda á, að fræðslu-
þættir þess eru í Morgunblað-
inu einmitt þessa dagana.
Virðingarfyllst,
Hope Knutsson, iðjuþjálfi
og formaður Geðhjálpar.
Jón er minn maður
Alveg er dásamlegt að koma
heim á mánudögum og eiga
von á þættinum hans Jóns
Gröndal eftir hádegið.
Það er hreint eins og undir-
rituð hafi sjálf valið lögin sem
leikin eru, og rabbið hans er
ekki til að skemma fyrir.
Tiltekt og annað það, sem
húshaldi fylgir, er hreinn
barnaleikur þegar hlustað er á
þessa yndislegu tónlist, sem
hann velur. Maður getur sung-
ið hástöfum á meðan unnið er
og jafnvel tekið dansspor á
eidhúsgólfinu á milli verka.
Þættirnir hans hafa sann-
arlega glatt mitt sinni í sumar,
Jón Gröndal. Þættirnir hans hafa
glatt sinni bréfritara í sumar.
og veit ég að fleiri hafa sömu
sögu að segja!
Væri ekki tilvalið að fá hann
til að sinna slíkum þætti í vet-
ur og þá t.d. á laugardags- eða
sunnudagseftirmiðdögum,
þegar sem flestir geta notið
þess að hlusta.
Nóg er af „hávaða-músik-
þáttum" og mál að linni, enda
margir þeir sem þeirrar
hljómlistar njóta, með slíka
tónlist á hljómplötum og bönd-
um heima hjá sér en Jón
Gröndal hugsar einmitt um
okkur hin. Þakka honum góðar
stundir.
„1034—1698“ sem er kona á
besta aldri.
Hvort yrði þar gróði eða tap?
Það hefur víst farið framhjá
fáum, að nú þreifa og þjarka
ráðherrarnir í ríkisstjórninni
um hvort reisa skuli nýja
flugstöðvarbyggingu á Kefla-
víkurflugvelli. Margt er upp á
teningnum og ekki laust við, að
hann sé farinn að halla á aðra
hliðina, þá sem fólkið getur far-
ið að sjá glampa í X-ið, sem það
færir sér í nyt á kosningadög-
um. Einn ráðherrann telur að
nú sé orðin rökbundin nauðsyn
á því að hefjast handa um fram-
kvæmdir í takt við fyrri ráða-
gerðir, en annar er hreint ekki
sammála, má ekki heyrast
minnst á dollara, án þess að
falla í stafi og er tilbúinn til að
fórna sínum fyrri kosningalof-
orðum til þess eins, að það sem
hinn hefur að segja, nái ekki
fram að ganga. Hvað um það.
Það, sem mig langaði að gera að
umræðuefni, eru fréttaskrif
fjölmiðla um málið. Mikil ósköp
virðast þeir bera litla virðingu
fyrir viskuþyrstum almúganum,
eða svo má virðast ef bornar eru
saman fréttir tveggja morgun-
blaða um flugstöðvarmálið síð-
astliðinn föstudag. Morgunblað-
ið segir á baksíðufrétt að
rekstrarhagnaður flugstöðvar-
byggingarinnar á Keflavíkur-
flugvelli gæti orðið allt að 34,6
milljónir króna og styðst þá við
skýrslu fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar, sem út kom í mars í
fyrra. Þjóðviljinn leitar í visku-
brunn Ólafs Ragnars Grímsson-
ar og segir að ráðgerð flug-
stöðvarbygging verði ný taphít
fyrir ríkið. Þjóðviljinn vitnar í
sérsjónarmið, sem fram kemur í
séráliti Ólafs í nefnd sem ríkis-
stjórnin skipaði í fjugstöðvar-
málinu. Sjónarmið Ólafs er að
nú blasi við að hið opinbera
verði annaðhvort að gefa við-
skiptaaðilum, sem koma til með
að reka fyrirtæki í nýrri flug-
stöð fjármagnskostnaðinn að
öllu leyti eða greiða árlega
verulegan halla af rekstrinum.
Nú vil ég, og svo er eflaust um
marga fleiri, fá vitneskju um
hið rétta í málinu. Er ekki til
einhver góður maður sem vill
varpa fram réttum upplýsing-
um um málið, eða þá að skera
úr um hvort Morgunblaðið eða
Ólafur R. Grímssonar (Þjóðvilj-
inn) hafi rétt fyrir sér.
Gestauga
Vísa vikunnar
Hef ekki útneftit Ólaf Ragn-
ar sem blaðafulltrúa minn
— segir Eggert HaukdaJ um frétt DV f gær
| VW I !
WA íftif f>Wl Racuri (Irlwqw. Éu vtt rUM|éra IWn
Immmmmi þéagfbkke ATtméfcm
fcpm •* Egfm Hwkéil alþéng I tilrfm jnurlr frétUr DV
hWI tfm yflr té hu« haföi fréttaatofa Rikiaútvarpæ
*T*J1 rtkMJkrata. t mmmí «7** ma vifttal ».ft K«rrl Haukdal I
kvoldfréttatima I gmkrWdt.
Hann aagAi. rr kann »ar apurður
um trtu biaAama S* *U f
fyrata lac aagja. aft ** hrf
hvorkí fyrr né fíftar útnafnt ólaf
Ragnar Grimaaon né nrinn ann-
an arm blaftafulltrua minn t
ftAru lagi vil ég argja aft ríí akrífa
akki uppá ðútfylltan vfill o
er þaaai frétt algjOrlcga lir I
lofti grípin. t þríAja lagi ríf
aagja. aft væri rkkí mál
ótaf Ragnar Grlmaaon og
flokk. aft fara aft upplyaa ui
fáta þar viá aitja’*
apurftur Spurnrng
.Br akki ólafur Ragnar
brríéa yflr úrraaAalayai og
[ þvf óaamatAAu í eigin liAi? Har
mau lætur DagbiaAiA hafa aftir ai
li ég tilhæfulauaa frátt, f von um ■
Vrfr viAbrtgA min varAi þeaa cAiia i
taaa hann og hana mrnn geti noU
i úr þau aam átyllu til atjórnaralit
aina Þaft aé acm aagt aaginn mair
hluti til. En v»rí akki rétt i
kommarnir fmru aft aýna afn ú
rmAi**
Spuming fréttamanna .E
hvemig er þaaau þá háttaft. Egj
ert Haukdal StyAur þú atjftrnir
ennþá ofta atyAurAu hana akki’
.Um þetta mál hef ég akkei
meira aft aagja aft ainni,* Uf
Eggart Haukdal aft lokum
Ólafur Ragnar aldrei þagnar,
orðalagni beitir snjall,
en sannleiksmagni sjaldan fagnar
sá er agnarlítill kall.
Hákur