Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 Sjálfstæðisflokkurinn: Fundi flokksráðs- og formanna haldið áfram í gærdag REIKNAÐ var með fundarslitum flokksráðs- og formannafundar Sjálfstæðisflokksins síðdegis í gær eftir umræður um stjórnmálaálykt- un og afgreiðslu hennar, en fyrir hádegið fóru fram umræður um flokksstarfið og undirbúning fyrir næstu þingkosningar. Fundurinn var settur á föstu- dag af formanni flokksins, Geir Hallgrímssyni, en síðan fór fram kjör stjórnmálanefndar og Frið- rik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gerði grein fyrir drögum að stjórnmálaálykt- un. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar klukkan 9 í gærmorgun en flokksráðsfundur er æðsta valdastofnun Sjálfstæð- isflokksins að landsfundi undan- skildum og eru flokksráðsfundir haldnir þau ár sem landsfundur kemur ekki saman. Enginn getur sagt fyr- ir um stjórnarmynstur að loknum kosningum — segir Pálmi Jónsson vegna yfirlýsingar Friðjóns Þórðarsonar „ENGINN getur sagt um það með neinni vissu hvaða stjórnarmynstur tekur við að loknum næstu kosn- ingum,“ sagði Pálmi Jónsson land- búnaðarráðherra er Mbl. spurði hann álits á yfirlýsingu Friðjóns * Fulltrúar Is- lands á þingi SÞ ÞING Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir sitja auk fastanefndar ís- lands og fulltrúa frá utanríkisráðuneyt- inu einn fulltrúi frá hverjum stjórn- málaflokki. Kulltrúar koma heim 11. desember n.k. Eru tveir menn tilnefnd- ir af hverjum flokki og skipta þeir með sér að sækja fundina. Þeir sem nú sitja þing Sameinuðu þjóðanna eru: Asgeir Pétursson, Sjálfstæðisflokki, Ólafur Þórðarson, Framsóknarflokki, Árni Gunnarsson, Alþýðuflokki og Garðar Sigurðsson, Alþýðubandalagi. Hinn hópurinn, sem ekki fór utan að þessu sinni, skipa eft- irtaldir: Geir Hallgrímsson, Sjálf- stæðisflokki, Stefán Valgeirsson, Framsóknarflokki, Hrafnkell Ásgeirs- son, Alþýðuflokki og Svava Jakobs- dóttir, Alþýðubandalagi. Þórðarsonar dómsmálaráðherra í útvarpsumræðum á Alþingi um van- trauststillögu á ríkisstjórnina, en Friðjón lýsti því þar yfir, að aldrei hefði komið til greina að fram- lengja núverandi stjórnarmynstur óbreytt eftir þingkosningar. Pálmi sagði einnig: „Á hinn bóginn treysti ég því, að gifta Sjálfstæðisflokksins dugi til þess að hann standi saman í afstöðu sinni til næstu ríkisstjórnar." Farið úr 18 krónum í 22 VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í vikunni, að heimila 22% hækkun á fargjöldum Landleiða milli Reykjavíkur og Garöabæjar og Hafnarfjarðar og hefur hækkunin tekið gildi. Sem dæmi um hækkunina má nefna, að fargjald fullorðinna hækkar úr 18 krónum í 22 krónur. Innanlandsflug- fargjöld hækka um 9%: Farið til Akur- eyrar úr 759 kr. í 826 kr. VERÐLAGSRÁÐ hefur sam- þykkt að heimila 9% hækkun á fargjöldum í innanlandsflugi, eins og skýrt hefur verið frá í Mbl. Dæmi um hækkunina er, að fargjaldið frá Reykjavík til Akureyrar, ásamt flugvallar- skatti, hækkar úr 759 krónum í 826 krónur, samkvæmt upplýs- ingum Sæmundar Guðvinsson- ar, fréttafulltrúa Flugleiða. Þá hækkar farið milli Reykjavíkur og ísafjarðar úr 709 krónum í 772 krónur og er flugvallarskattur ennfremur inni í þeim tölum. Farið milli Reykjavíkur og Egilsstaða hækkar úr 1.009 krónum í 1.099 krónur. Þá hækkar farið milli Reykjavíkur og Vest- mannaeyja úr 498 Jcrónum í 542 krónur. Arni John- sen gefur kost á sér „ÉG HEF ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suöurlandskjördæmi fyrir næstu Al- þingiskosningar," sagði Árni John- sen í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það er ljóst,“ sagði Árni, „að rétta þarf hlut Sunnlendinga á marg- an hátt, menn þurfa að sameinast um afl Suðurlands. Þaö kostar bar- áttu að styrkja stöðu Sunnlendinga í þjóðarbúinu og ég er tilbúinn til þess að leggja mitt af mörkum í þeirri baráttu." Sólheimar Grímsnesi: Sölusýning- in í dag SÓLHEIMAR í Grímsnesi halda sína árlegu sölusýningu, kökubasar og kaffisölu í Templarahöllinni við Eiríksgötu, sunnudaginn 5. desem- ber 1982, klukkan 2.00 eftir hádegi. Seldir verða handunnir munir gerðir af vistmönnum Sólheima, svo sem ofnar gólfmottur, prjón- aðar dúkkur, tréleikföng og margskonar trémunir. Einnig hin vinsælu bývaxkerti. Foreldra- og vinafélag Sólheima verður með kökubasar og kaffisölu. o INNLENT Margir missa vinnu vegna rækjudeilunnar Hlutur sjómanna allt aö 54 þúsund krónur fyrir 13 daga í nóvember FLESTIR þeir rækjubátar, sem frá því í haust hafa veitt rækju í Arnarfirði, ísafjarðardjúpi og Húnaflóa hafa legið bundnir við bryggju frá mánaðamót- um. Ástæðan er fyrst og fremst óánægja sjómanna með rækjuverð, en einnig er deilt um hlutaskipti á ísafirði. Að sögn Sveins Finnssonar í Verðlagsráði sjávarútvegsins hækkaði rækjuverð eins og annað fiskverð um 7,72% um mánaðamót og 13. desember verður fundur í ráðinu um það verð, sem gilda á frá áramótum. Sveinn sagðist ekki reikna með að rækjuverð hækkaði fyrir áramót. Á þeim stöðum þar sem rækja er unnin hefur verkfall sjómanna haft mikil áhrif á atvinnu í landi og hafa margir, einkum konur, misst vinnu sína. Talsmenn rækjuverksmiðja á ísa- firði segja þessa deilu sér óvið- komandi, samningar í þessu máli eru á milli eigenda báta og sjó- manna. Frá ísafirði róa tveir rækjubát- ar þessa daga, en þeir eru í eigu verksmiðja, aðrir bátar hafa ekki látið úr höfn til rækjuveiða. Frá Súðavík róa rækjubátarnir fjórir, en Súðvíkingarnir byrjuðu vertíð seinna en ísfirðingar vegna breyt- inga á rækjuverksmiðjunni. Átta rækjubátar eru gerðir út frá Bíldudal og hafa þeir ekki róið í Aukin söltun smáfisks veldur erfiðleikum 1 sölu NOKKIJK vandræði hafa nú komiö upp vegna vaxandi hiutdeildar smærri fisks í saltfiskverkun. Er hún nú um fjórðungur, eða 4.000 lest- um meiri en á síöasta ári. Nú á eftir að afhenda um 12.000 lestir af salt- fiski upp í sölusamninga við Portú- gal og hefur Sölusamband íslenzkra fiskframleiöenda því verið að reyna að auka magn smærri fisks í þeim samningum og jafnframt að selja hann til annarra landa. Að sögn Friðriks Pálssonar, framkvæmdastjóra SÍF, hefur það verið stórfiskurinn, sem erlendir kaupendur hafa mest verið að sækjast eftir héðan, þar sem mik- ið magn smærri fisks hefur verið fáanlegt hjá öðrum framleiðslu- löndum. Friðrik sagði einnig, að þó verið væri að reyna að selja meira af smærri fiski til Portúgal þýddi það ekki, að ekki væri hægt að standa við gerða samninga þar vegna skorts á stórfiski. I samn- ingunum við Portúgali væri gert ráð fyrir því, að hlutfall stórfisks væri 80% og við það væri hægt að standa, þegar vertíðarfiskurinn kæmi inn í dæmið. Vandamálið væri hins vegar að losna við smá- fiskinn á viðunnandi verði og að því máli væri nú unnið. Aðspurður um það, hvers vegna hlutdeild smærri fisks færi vax- andi, sagði Friðrik, að það gæti stafað af erfiðleikum annarra vinnslugreina. Á þessu ári yrði framleitt svipað magn af söltuð- um þorski og á síðasta ári, þrátt fyrir samdrátt í þorskaflanum og hlyti því sú framleiðsla að vera á kostnað annarra vinnslugreina og þá líklega aðallega smærri fiskur. Þá gæti meðalþyngd þorsks einnig verið að lækka, eins og ýmislegt benti til. Þá má benda á það, að nú er flutningaskipið Keflavík að lesta saltfisk á Portúgal á Akureyri og býður þar átekta eftir því, hvort hægt verði að fá Portúgali til að kaupa meira af smærri fisknum. mánuðinum. Frá Hólmavík eru gerðir út átta rækjubátar og fjórir frá Drangsnesi, þeir hafa ekki haldið til veiða síðustu daga. Á Blönduósi eru rækjubátarnir tveir að hluta í eigu vinnslunnar og hafa þeir ekki hætt róðrum. Frá Hvammstanga eru gerðir út fjórir rækjubátar og hafa þeir ekki róið frá mánaðamótum. Tveir eða þrír menn eru á hverjum rækjubáti. Starfsfólk í rækjuvinnslum hef- ur margt misst vinnuna og þá einkum húsmæður, sem stunda þessi störf. Er það hálfum mánuði fyrr en venjulega, en undanfarin ár hafa rækjubátarnir ekki róið frá miðjum desember fram í miðj- an janúar þegar dagur er skemmstur. Á Hvammstanga hef- ur um 15 manns verið sagt upp, um 30 manns hafa misst vinnuna á Hólmavík og Drangsnesi, um 40 manns á ísafirði og stór hluti þeirra 25 sem vinna við rækju- vinnslu á Bildudal. Við Húnaflóa eru skipti þannig að 50—60% hlutar fara til áhafn- ar, en 40—50% í hlut bátsins. Á Isafirði er skiptum hins vegar þannig háttað, að áhöfn fær % aflaverðmætis, en báturinn 'h. Samkvæmt upplýsingum frétta- ritara var aflahlutur rækjusjó- manna 30—54 þúsund krónur hjá einni verksmiðjunni á Isafirði í nóvember eftir úthaldsdögum og reri þá hæsti báturinn 13 daga. Kuml könnuð á næsta vori „ÞAÐ er ákveðið að rannsaka þetta nánar með vori, þegar tíð verður orðin sæmileg,“ sagði Þór Magnússon þjóðminjavörður í samtali viö Morgunblaðið, að- spurður hvort á döfinni væru rannsóknir í Borgarfirði eystra. í frétt frá Borgarfirði fyrir nokkru kom fram, að hauskúpa og tann- garður hefðu fundist í dys í landi Njarðvíkur í Borgarfirði. Þór sagði, að ekki væri vitað hvaða minjar þarna væri um að ræða, en trúlega væru þarna forn kuml. Þá var Þór spurður um kamb, sem fannst í Borgarfirði, og sagði hann, að kambur þessi væri úr beini og óvenjulegur í laginu. Þó væru til kambar með þessari lögun, en úr bronzi. Þór sagðist ætla, að kamburinn væri frá fyrri hluta miðalda. Hann sagði, að um merkan grip væri að ræða, þó ekki væri nema vegna aldurs hans, en ekki er um marga gripi að ræða í Þjóðminjasafninu frá þessum tíma. Þór var að lokum spurður hvort til stæðu rannsóknir í landi landnámsjarðarinnar Bakka í Borgarfirði. Hann sagði svo ekki vera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.