Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.01.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 3 Afleiðingar flóðanna að Árbakka í Bæjarsveit: „Heyið baneitrað og ekki gefandi nokkurri skepnu“ Víða farið að hitna í heyjum og fregnir berast af fleiri bæjum um tjón vegna flóðanna í Borgarfirði Horgarnesi, 28. janúar. „ÞAÐ flæddi hcrna inn í hlöduna og er neðsta lagið alveg ónýtt. Einnig fla'ddi fremst í fjárhúskrærnar en þaö vildi tii, að rnikið tað er í þeim þar sem ekki hefur viðrað til að stinga þær út, sem ég annars hefði verið bú- inn að gera,“ sagði Ketill Jóhannes- son bóndi á Árbakka í Bæjarsveit í samtali við Morgunblaðið. Ketill var þá með hjálp nágranna sinna að grafa geilar í heyið og moka því til í hlöðunni, þar sem farið var að hitna í heyinu. Þegar þeir höfðu grafið niður að neðsta laginu rauk þar úr og var heyið þar brennandi heitt. Ketill sagðist fylgjast með hitanum í heyinu með teini, sem hann stingi niður. Hann sagðist ætla með góðri hjálp granna sinna að reyna að grafa geilar í það og einnig að moka ofan af því og jafna þannig í hlöðunni. Síðan yrði að sjá til, en ljóst væri, að þetta væri gífurlegt verk. Ketill sagði, að flóðið hefði farið 40 sentimetrum hærra en nokkru Var unnt að afgreiða lögin á fimmtudag? Alexander Stefánsson (F) gegndi forsetastarfi í neðri deild er bráðabirgðalögin komu þar til annarrar umræðu sl. fimmtudag. Ef hann hefði fram haldið umræð- unni þann dag og/eða um kvöldið, sem verið hefði í samræmi við það kapp sem stjórnarliðar lögðu í orði kveðnu á framgang málsins, sýn- ast þeir hafa getað, eftir 3ja klukkustunda umræðu, knúið fram lyktir málsins, þó sú máls- meðferð hefði verið óvenjuleg. I 38. grein þingskaparlaga stendur m.a.: „Eigi má þó, með- an nokkur þingmaður kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við nokkra umræðu svo, að hún standi skemur en 3 klukku- stundir alls.“ Síðar í greininni segir: „Sömuleiðis geta 3 þing- menn í efri deild, sex í neðri deild og níu í sameinuðu þingi krafizt þess, að greidd séu at- kvæði mað það umræðulaust, hvort umræðu skuli lokið, um- ræðutími eða ræðutími hvers þingmanns takmarkaður ....“ sinni áður í sinni tíð, en hann er 59 ára gamall. Ekki hefði verið hægt að fara á klofstígvélum á milli húsa. „Neðsta lagið er sjálfsagt orð- ið baneitrað og ekki gefandi nokk- urri skepnu. Vatn fór upp á miðjan galta, sem hér stendur fyrir utan og er hann sjálfsagt ónýtur líka,“ sagði Ketill. „Ég er með hey í hlöðu í Þingnesi, en komst ekki þangað í flóðinu. Allt eins má búast við því, að það hafi farið eins.“ Hætt er við að hitna fari í heyj- um á fleiri bæjum þar sem víða flæddi inn í hlöður í flóðunum. Ráðunautar Búnaðarsambandsins eru þessa dagana að kanna hey- skemmdirnar. Árnar eru komnar í farvegi sína, en eftir sitja ísjakar á túnum og engjum og hætt er við að þeir sitji þar fram á vor. Jakarnir eru ekki mjög þykkir, en eru óvenju víða vegna þess hve flóðin voru mikil. Búast má við, að neðan í þeim sé möl, sem erfitt getur orðið að hreinsa af túnum í vor. Á engj- um Hvítárbakka og víðar er 5 senti- metra lag af leir, sem barst með flóðinu og ljóst er, að hann verður ekki hreisaður af, heldur verður grasið að gróa upp úr leirnum. Annars er erfitt að átta sig á hversu mikið tjón hefur orðið á landi, ræktun og girðingum vegna klakans og einnig er snjór yfir öllu. Vitað er að margir kílómetrar af girðingum liggja niðri og sjálfsagt meira og minna skemmt, en engar tryggingar bæta það tjón. Alltaf er að fréttast af fleiri og fleiri bæjum þar sem flóðin hafa valdið skemmd- um. Á Krossi í Lundarreykjadal stífl- aðist til dæmis bæjarlækurinn og flæddi í gegnum fjós og hlöðu. Stóðu kýrnar í að minnsta kosti fetsdjúpu vatni og skemmdir urðu á heyi. Vegaskemmdir eru enn ekki fullkannaðar, en nú er unnið að lag- færingum vega. — H.Bj. JNNLENT Frá fundi JC í gömlu kirkjunni ( Grindavík. Félagsheimili JC-Grinda- vík er í gömlu kirkjunni (irindavík, 28. janúar. Fimmtudagskvöldið 27. janúar var haldinn 6. félagsfundur JC Grinda- vík í nýja félagsheimilinu þeirra í Grindavík. Það sem gerir þennan fund sögulegan er fyrst og fremst það að nýja félagsheimilið þeirra er gamla kirkjan, sem félagið fékk á leigu eftir að sú nýja var vígð í haust. Gömlu kirkjunni hefur verið breytt að innan og er nú fundar- aðstaða bæði uppi og niðri. Fé- lagarnir unnu að breytingunum í sjálfboðavinnu og mæddi mest á þeim Magnúsi Olafssyni, forseta félagsins, og Guðjóni Sigurðs- syni, varaforseta, með stjórnun- ina. Félagið hefur skuldbundið sig með leigusamningi til að hugsa vel um húsið og sjá um allt við- hald á því að utan og að ytri umgerð þess haldist óbreytt. Á þessum fyrsta fundi í nýja heimilinu hóf félagið titilvörn síná í ræðukeppni Reykjanes- svæðis, en í þeirri keppni sigraði félagið í fyrra með sigri yfir stofnfélagi sínu, JC Suðurnes. í þessari keppni stíga nýliðar í JC-félögum sín fyrstu spor í ræðukeppni. Þess utan voru haldnar margar ræður frá félög- um og gestum, félaginu til heilla. Það eru um 70 ár liðin frá því að kirkjan var byggð og þá hefur sjálfsagt engan grunað, að hún ætti eftir að verða félagsheimili fyrir félagsskap, sem hefur það að markmiði að efla og þroska einstaklinga sjálfum sér og sínu byggðarlagi til heilla. Þetta er vel við hæfi. — Gudfinnur * Sighvatur Björgvinsson um bráðabirgðalögin, ASI og ríkisstjórn: „Náið samband um alla tilhögun málsins“ SIGHVATUR Björgvinsson segir í áliti sínu sem annar minni- hluti fjárhags- og viðskiptanefndar, þar sem fjallað er um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar, að lagðar hafi verið spurn- ingar fyrir aðstoðarmann fjármálaráðherra um samráð milli ASÍ og ríkisstjórnarinnar og ábyrgð ASÍ-forystunnar á bráða- birgðalögunum og innihaldi þeirra. í nefndaráliti Sighvats segir orðrétt: „í þessu sambandi voru eftirfar- andi spurningar lagðar sérstak- lega fyrir aðstoðarmann fjármála- ráðherra, sem þátt hafði tekið í umræddu samráði af hálfu fjár- málaráðuneytisins: • „1. Hvaða fulltrúar Alþýðu- sambands íslands sátu á sam- ráðsfundum við starfsmenn fjár- málaráðuneytisins um þessi mál? Svar: Ásamt forseta og varafor- seta Alþýðusambands íslands sátu þessa fundi yfirmenn á skrifstofu Alþýðusambandsins og ýmsir verkalýðsforingjar svo sem eins og Guðmundur J. Guðmunds- son o.fl. Sumir komu aðeins á einn samráðsfund; aðrir voru á þeim öllum. • 2. Voru einhverjar af hinum fjölmörgu útfærsluhugmyndum og tölvukeyrslum, sem gerð voru í sambandi við athugun málsins, sem fulltrúar Alþýðusambandsins ekki fengu í hendur til skoðunar? Svar: Nei. „Þessi mynd er ekki hrollvekjaa — segir Andrsej Zulawski KVIKMYNDAHÁTÍÐ Listahátíöar verður sett í dag í kvikmyndahús- inu Kegnboganum og mun hátíðin standa til 6. febrúar. Sýndar verða 32 myndir frá 17 löndum, en auk þess verða nokkrar íslenskar mynd- ir á hátíðinni. Þær tvær myndir sem skiptu með sér gullverðlaununum á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra verða meðal þeirra sem sýndar verða, en það eru tyrkn- eska myndin Leiðin (Yol) og bandaríska myndin Týndur (Missing). Gestir hátíðarinnar að þessu sinni verða Helma Sanders Brahms, en mynd hennar, Þýska- land, náföla móðir, verður opnun- armynd sýningarinnar, banda- ríski leikstjórinn Connie Field og pólski leikstjórinn Andrsej Zul- awski. Blm. Mbl. átti stutt spjall við hinn síðastnefnda um myndina „Haldin illum anda“ eða „Poss- ession", sem hann sýnir á kvik- myndahátíðinni. „Þó ég geri myndirnar mínar í Frakklandi, þá er ég fyrst og fremst pólskur leikstjóri," sagði Zulawski í upphafi. „Það er vegna þess, að myndirnar mínar eru fangelsaðar í Póllandi og ekki leyfðar til sýninga, að ég verð að Andrsej Zulawski. Morgunblaðið/KE fara burtu til að starfa. Eg hef unnið í Frakklandi og búið þar síðustu tvö ár. Ég gerði þar mynd með Romy Schneider í aðalhlut- verki fyrir fimm árum og nú þessa þar sem Isabella Adjani leikur aðalhlutverkið. Hún hlaut mjög góða dóma fyrir leik sinn og fékk verðlaun á hátíðinni í Cann- es og einnig frönsku óskarsverð- launin. Þessi mynd, Possession, er ekki hrollvekja, þetta er trú- verðug mynd, en hún virðist hafa slegið áhorfendur mjög. Kannski að fólk í dag vilji ekki horfast í augu við sannleikann, ég veit það ekki. En ég vona innilega að ég geti snúið aftur til Póllands og mun gera það um leið og myndir mínar verða leyfðar þar.“ • 3. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur, sem fulltrúar Alþýðu- sambands fslands komu með um útfærslu kerfisins, ekki kannaðar og skoðaðar? Svar: Nei. • 4. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur um fyrirkomulag lág- launabótanna sem fulltrúar Al- þýðusambands fslands settu fram, sem ekki var fallist á? Svar: Nei. • 5. Voru einhverjar hugmyndir eða tillögur um'útfærsluna sem fulltrúar Alþýðusambandsins andæfðu eða mótmæltu, sem engu að síður voru framkvæmdar? Svar: Nei. Ástæðulaust er að orðlengja þetta frekar, en ljóst er af þeim upplýsingum sem fjárhags- og viðskiptanefnd hlaut, að ítarlegt og náið samband var milli fjár- málaráðuneytisins og forystu Al- þýðusambands íslands um alla til- högun málsins og stóð það samráð í tvær til þrjár vikur.“ “

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.