Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Hjördís Jónsdótt- ir — Minningarorö Kveðja frá barnabörmim Fædd 23. nóvember 1923 Dáin 25. janúar 1983 „Kn meAan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfdu eftir þér í sárum trega, þá hlómgast enn, og hlómgast ævinlega, þitt hjarta vor í hugum vina þinna.“ (Tómas (•uómundsson) Það var dapur morgunn þegar við fréttum að amma á Rauðalæk væri dáin. Þó að við vissum að amma væri búin að vera lengi á sjúkrahúsi og berjast við hættu- legan sjúkdóm í tæp þrjú ár, þá vonuðum við alltaf að hún myndi sigra í þeirri baráttu, því hún var hetja og barðist ótrauð við sjúk- dóminn, en leikurinn var ójafn og nú hefur hún öðlast sína hinstu hvíld. Við viljum nú að leiðarlokum þakka elsku ömmu fyrir allt sem hún var okkur. Hún gaf sér alltaf nægan tíma til þess að hlúa að okkur börnunum, tala við okkur og segja okkur skemmtilegar sögur. Það var alltaf mikil eftirvænting þegar amma og afi áttu að passa okkur og sjá um heimilið, því þá dekraði amma við okkur allan daginn svo engin takmörk voru á. Það var spilað við okkur, farið í bílferðir og snúist í kringum okkur á allra handa máta. Amma eignaðist góðan mann, ívar Andersen, verkstjóra hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og voru þau sérstaklega samrýnd eins og glöggt kom í ljós í veikind- um hennar. Þau áttu fallegt heim- ili, nú síðast að Rauðalæk 12, sem gaman var að heimsækja. Oft var beðið um að fara til afa og ömmu á Rauðalæk, því þar var ávallt tekið vel á móti okkur og amma átti alltaf til kökur eða annað góðgæti til að gefa okkur. Heimili þeirra var alþakið heimatilbúnum mun- um sem amma hafði búið til, því hún var listræn í sér og hafði mik- ið yndi af hannyrðum og föndri. Allt lék í höndum hennar, hvort sem um var að ræða að bæta gatslitnar buxur eða sauma falleg veggteppi. Hún var einnig mikil prjónakona og eru ófáar lopapeys- urnar sem hún prjónaði fyrir okkur og aðra. Þó að amma hafi unnið úti öðru hverju, bæði hjá Mjólkursamsöl- unni og við farmiðasölu hjá Stræt- isvögnum Reykjavíkur, þá var heimilið og fjölskyldan hennar að- aláhugamál og það sem henni var kærast. Minningarnar sem við eig- um frá sumardvölum okkar í Mun- aðarnesi með afa og ömmu verða okkur dýrmætar, en hún var þá jafnan fremst í flokki í leikjum og margs konar skemmtunum. Amma átti ekki kost á því að ganga menntaveginn eins og þykir sjálfsagt nú á dögum. Sjálfs- menntun hennar nýttist þó betur en löng seta á skólabekk hjá mörg- um. Þekking hennar á íslenskri tungu var mjög góð, bæði varð- andi málfræði og stafsetningu; einnig hafði hún góða þekkingu á öðrum tungumálum. Hún var afar bókhneigð og voru ekki margar bækur í bókabílnum sem hún átti eftir að lesa og gilti það jafnt um fræðibækur og skáldsögur. Amma elskaði lífið, sat aldrei auðum höndum og var áhugi hennar á fólki og umhverfi greinilegur og aldrei heyrðum við hana hallmæla nokkrum manni. Nú þegar við kveðjum elsku ömmu, þökkum við henni af alhug allt það sem hún hefur verið okkur. Við huggum okkur við það að hún muni áfram vera nálæg, fylgjast með okkur og að nú líði henni vel hjá Guði. Ömmu er sárt saknað af allri fjölskyldunni og við biðjum algóð- an Guð að blessa afa á Rauðalæk sem mest hefur misst. Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu au^nahliki — (T.G.) Hjördís, Palli, ívar, Heiðrún og Hjörvar Ingi. í dag verður gerð frá Fossvogs- kirkju útför tengdamóður minnar, Hjördísar Jónsdóttur, en hún and- aðist í handlækningadeild Land- spítalans að morgni hins 25. janú- ar. Hjördís var fædd í Hafnarfirði 23. nóvember 1923, dóttir hjón- anna Steinunnar Þorbergsdóttur og Jóns Hjartar Vilhjálmssonar bifreiðarstjóra. Hún var fyrra barn þeirra hjóna, en bróðir henn- ar, Þorbergur, dó tveggja ára að aldri. Þau hjónin Jón og Steinunn slitu samvistum er Hjördís var enn á barnsaldri og lést Steinunn móðir hennar nokkru síðar. Hún ólst síðan upp hjá föðurforeldrum sínum, Önnu Magneu Egilsdóttur og Vilhjálmi Gunnarssyni, fram að fermingaraldri, eða þar til amma hennar lést. Þá fluttist hún með afa sínum til hjónanna Guð- laugar Guðlaugsdóttur og Gunn- ars Vilhjálmssonar, en Gunnar var föðurbróðir hennar. Hjá þeim sæmdarhjónum dvaldist hún að mestu þar til hún kynntist eftirlif- andi eiginmanni sínum ívari And- ersen vélstjóra, sem er verkstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og gengu þau í hjónaband þann 7. september 1946. Jón, faðir hennar, kvæntist síðar Kristjönu Þor- steinsdóttur, mikilli heiðurskonu sem alltaf reyndist Hjördísi inn- anhandar og mat hún stjúpmóður sína mikils. Jón lést fyrir aldur fram aðeins 38 ára að aldri. Hjördís á fjögur hálfsystkini, þau Huldu, Helgu og Guðjón Jónsbörn og Hilmar Mýrkjartansson sem Hjördís hitti aftur nú fyrir nokkr- um árum eftir margra ára að- skilnað. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Hjördís og ívar á Reynimel 45 í skjóli tengdaforeldra hennar, Ingibjargar Þórðardóttur, sem lést árið 1975, og Guðmundar Guð- jónssonar skipstjóra, sem er stjúpfaðir ívars. Arið 1959 fluttu þau Hjördís og ívar í eigið hús- næði að Laugalæk 26 hér í borg og bjuggu þar til ársins 1979 er þau fluttu í minni íbúð að Rauðalæk 12. Þeim varð fimm barna auðið, en eitt þeirra, stúlka, lést stuttu eftir fæðingu. Hin börnin eru: Ingibjörg, fædd 1944, gift Kjartani Pálssyni lækni; Guðmundur, fæddur 1950; Erla, fædd 1951, gift Haraldi Sigursteinssyni tækni- fræðingi, og Grétar, fæddur 1957, jarðfræðingur, nú við framhalds- nám í jarðfræði við háskólann í Honolulu á Hawaii. Barnabörnin eru orðin fimm: Hjördís, Páll og ívar, börn Ingibjargar; Heiðrún og Hjörvar Ingi, börn Erlu. Fyrstu hjúskaparárin starfaði Hjördís aðallega hjá Mjólkur- samsölu Reykjavíkur, en síðan tóku börnin og uppeldi þeirra all- an hug hennar. Eftir að börnin uxu úr grasi fór hún aftur að vinna utan heimilisins, fyrst hjá Mjólkursamsölunni við afgreiðslu- störf og síðar hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, einnig við af- greiðslustörf. Þessi störf sín rækti, Hjördís af sömu kostgæfni og barnauppeldið og heimilisstörfin. Hjördís var ágætlega greind kona, víðlesin, minnug og fróð um marga hluti. Hún fékk mjög tak- markaða skólagöngu, en með stöð- ugri sjálfsmenntun tókst henni að afla sér góðrar almennrar mennt- unar, sem nýttist henni vel. Áhugamál átti hún fjölmörg og má þar nefna hannyrðir hvers konar og sótti hún nokkur nám- skeið til þess að ná betri árangri á því sviði. Kjarninn úr lífi hennar var þó helgaður fjölskyldunni, en hún var mikil húsmóðir, reglusöm á öllum sviðum og nærgætinn uppalandi. Á síðari árum hefur æ betur komið í ljós að hún var sannkallaður sólargeisli fjölskyld- unnar, alltaf kát og hress og tengdi fjölskylduböndin betur og traustar en nokkur annar. Á laug- ardögum hefur fjölskyldan um árabil notið sameiginlegs hádegis- verðar að Rauðalæk 12 og hafa þær samverustundir eflt mjög fjölskyldutengslin. Fyrir tæpum þremur árum kenndi hún fyrst þess sjúkdóms, sem átti eftir að verða henni að aldurtila. Á þessum árum gekkst hún undir sjö stórar skurðaðgerð- ir og þurfti auk þess að taka sterk lyf langtímum saman. í þessum sjúkdómsraunum komu mann- kostir hennar ef til vill skýrast í ljós, svo og mjög náið samband þeirra hjóna, en þau voru sérlega samrýnd enda þótt þau væru að mörgu leyti ólík að eðlisfari. Síðustu jólin hennar verða fjöl- skyldunni áreiðanlega minnis- stæð, en hún kom þá sína hinstu ferð heim af sjúkrahúsinu enda þótt hún væri orðin fárveik. Þrátt fyrir það reyndi hún að bera höf- uðið hátt og taka þátt í jólahátíð- inni með okkur. Nú að leiðarlokum bið ég henni blessunar Guðs með þakklæti fyrir samfylgdina. Verði vegir hennar bjartir og sólríkir handan við móðuna miklu, sem aðskilur líf og dauða. Innilegar samúðar- kveðjur sendi ég ívari tengdaföður mínum, sem misst hefur sólar- geislann úr lífi sínu. Að lokum færi ég læknum og öðru starfsfólki á deild 13-D á Landspítalanum innilegar þakkir fjölskyldunnar fyrir frábæra um- önnun í veikindum hennar. Kjartan Pálsson Við kveðjum í dag Hjördísi Jónsdóttur, húsmóður að Rauða- læk 12 hér I bæ, en hún lést í Landspítalanum 25. janúar síð- astliðinn eftir langa og hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm, sem hún laut í lægra haldi fyrir að lok- um. Hjördís var fædd í Reykjavík 23. nóvember 1923. Hún var dóttir hjónanna Steinunnar Þorbergs- dóttur og Jóns Hjartar Vil- hjálmssonar en þau slitu samvist- um. Fór hún þá í uppeldi til föður- afa síns og -ömmu og var hjá þeim þar til amma hennar lést, þá flutt- ist hún til Gunnars föðurbróður síns og konu hans Guðlaugar og dvaldi hún á því heimili þar til hún stofnaði sitt eigið. Hún giftist eftirlifandi manni sínum, Ivari Andersen vélstjóra, 7. september 1946 og hafa þau búið í farsælu hjónabandi í rúm 36 ár. Þau bjuggu fyrstu árin að Reyni- mel 45, en byggðu sér síðan raðhús að Laugalæk 26 og nú síðustu árin hafa þau búið að Rauðalæk 12. Þau eignuðust fjögur börn: Ingi- björgu, húsmóðir, hún er gift Kjartani Pálssyni lækni, þau eiga þrjú börn; Guðmund, skrifstofu- maður, ókvæntur; Erlu, húsmóðir, hún er gift Haraldi Sigursteins- syni, þau eiga tvo börn; Grétar, jarðfræðingur, er við framhalds- nám á Hawaii, ókvæntur. Öll eru þau fagurt vitni um að hafa alist upp á traustu og góðu heimili. Heimili Hjördísar og ívars var fagurt og hlýlegt enda hjónin bæði einstök snyrtimenni í allri umgengni. Við hjónin minnumst margra góðra og ánægjulegra stunda á heimili þeirra og eins þegar við fórum saman í ferðalag hvort sem var einn dag eða fleiri út fyrir borgina. Þegar við nú á kveðju- stund lítum til baka til liðinna ára, finnst okkur að þessi góðu ár hafi liðið allt of fljótt og að þau hefðu átt að vera miklu fleiri, en sá sem öllu ræður hefur afmarkað henni lífsbraut og kallað hana til starfa í öðrum heimi. Minningin um ástríka eigin- konu, móður og ömmu, sem ávallt var glöð og kát og hvers manns hugljúfi í allri framkomu, léttir sorgina þótt allir viti að skarðið sem orðið er í heimilið á Rauðalæk 12 verður ekki fyllt að nýju. Hjördís var einstaklega ljúf og glöð í allri framkomu, það var eins og ljúfur sunnan þeyr færi um, þar sem hún fór. Við dáðumst oft að því hvað hún gat tekið sjúkdómi sínum létt. Stundum þegar hún hafði gengið undir stórar aðgerðir, þá hringdi hún eftir fáa daga til okkar frá spítalanum og hafði gamanyrði á vörum, hló og gerði að gamni sínu þó hún væri í raun helsjúk. Það var þessi andlegi kraftur og lífs- gleði sem hún var svo rík af og eflaust hjálpaði henni í barátt- unni við langvarandi og erfiðan sjúkdóm. í öllum hennar veikindum hefur ívar staðið við hlið hennar, hjúkr- að henni og stutt af einstæðum dugnaði og alúð svo vart verður á betra kosið. Þessi fátæklegu orð sem hér eru skrifuð eiga að vera örlítið þakklæti frá okkur hjónun- um fyrir samferðina, einlæga vin- áttu, tryggð og hjálpsemi á liðnum árum. Við sendum innilegar samúð- arkveðjur til ívars, barnanna, tengdasona og barnabarna og biðjum guð að senda þeim styrk og kraft á þessum dögum. Megi ljúfar minningar frá samverunni á liðn- um árum létta ykkur sorgina. Markús Stefánsson + Maöurinn minn, lést 31. janúar. RAGNAR G. GUDJÓNSSON, Laufskógum 17, Hveragerdi, Guörún Magnúsdóttir. + lést 31. janúar. ÓLAFUR JÓNSSON, bóndi, Eystra-Geldingaholti, Börn og tengdabörn. + GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR frá Marteinstungu veröur jarösungin frá Marteinstungukirkju, föstudaginn 4. febrúar kl. 14.00. Vegna jaröarfararinnar verður ferö frá Umferðarmiðstööinni í Reykjavík kl. 11 árdegis sama dag. Ólöf Gunnarsdóttir, Dagbjartur Gunnarsson, Guttormur Gunnarsson, Elek Gunnarsson, Kristjón J. Gunnarsson, Þórdís Kristjánsdóttir. + Utför mannsins míns og föður okkar, BJÖRNS GUDMUNDSSONAR, verkstjóra, Boóagranda 7, fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands. Blóm afþökkuð. _. . . Eiginkona og born. + Alúöarþakkir færi ég öllum þeim sem sýndu mér samúö og vinar- hug við andlát og jarðarför móöur minnar, HELGU GESTSDÓTTUR, Mel, Þykkvabæ. Þóra Kristín Jónsdóttir. + Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar og dóttur, BRYNDÍSAR SIGURDARDÓTTUR, Reynigrund 9, Akranesi. Tómas Friöjónsson og börn, Svava Símonardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför bróöur okkar, GUÐMUNDARJÓHANNESSONAR frá Fremri-Fitjum. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.