Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983 eftir Hauk Viktorsson Tilefni þessarar greinar er aug- lýsing frá borgarskipulagi Reykja- víkur frá 5. ágúst, um tillögu að breyttu skipulagi að því er land- notkun snertir á spildu við horn Sundlaugavegar, Laugalækjar og Leirulækjar. Breytingin er á þann veg að hluti af svæði fyrir hverf- isstofnanir (skóli, dagvistarheim- ili), verði nú ætlað fyrir miðbæj- arstarfsemi. Skipulagsnefnd Reykjavíkur samþykkti á fundi 20. 6. ’83 að gefa Kjötmiðstöðinni kost á umræddri lóð og staðfesti borg- arráð síðan samþykkt skipulags- nefndar á fundi 24. 6. ’83. Málið var síðan sent til skipulagsstjórn- ar ríkisins ásamt beiðni um að stjórnin samþykkti breytinguna samkvæmt 19. grein skipulagslaga nr. 19/1964, en þar er kveðið á um: að ef um „óverulegar breytingar" á staðfestum skipulagsuppdrætti er að ræða er ekki talin ástæða til auglýsingar. Skipulagsnefnd ríkis- ins ákvað hins vegar að afgreiða málið samkvæmt 17. gr. skipu- lagslaga en þar segir að auglýsa þurfi breytinguna þannig að al- menningur geti kynnt sér málið og gert athugasemdir. Breytingartil- lagan er til sýnis hjá borgarskipu- lagi Reykjavíkur, Þverholti 15. At- hugasemdir þurfa að hafa borist borgarskipulaginu fyrir kl. 16.15, 30. september, 1983. Með tillögunni til skipulags- stjórnar ríkisins fylgdi m.a. grein- argerð borgarskipulags Reykja- víkur dags. 14. 6. ’83 og tillaga að skipulagsskilmálum dags. 20. 6. ’83. í greinargerðinni stendur m.a.: „í hverfinu eru u.þ.b. 4.200 íbúar þ.e. 525 íbúar um hverja verslun en meðaltalið í Reykjavík er 637 íbúar á matvöruverslun, skv. verslunarkönnun 1981, og í nýjum hverfum er ekki talinn grundvöll- ur fyrir matvöruverslun nema 1.000 til 1.500 íbúar séu á „um- ráðasvæði" hennar. Ljóst er af framansögðu að þjónusta matvörukaupmanna er Haukur Viktorsson „Af ofangreindu má sjá að ef Kjötmiðstöðin verður byggð á þessum stað getur það haft afdrifaríkar af- leiðingar fyrir alla íbúa hverfisins.“ mikil og góð í þessu hverfi ef mið- að er við fjölda og staðsetningu verslana. Vegna umsóknar frá eig- anda Kjötmiðstöðvarinnar, dags. 2. maí 1983, um lóð nálægt Lauga- lækjarskóla, á horni Laugalækjar og Sundlaugavegar er rétt að skoða ýmis atriði nánar. Engin umsögn er fyrirliggjandi frá umferðarsérfræðingum um áhrif verslunar á þeim stað sem sótt er um. Hana þarf að fá! Ekki er ljóst hvort ný verslun á að koma sem viðbót í hverfið eða í stað Kjötmiðstöðvarinnar, þar sem hún er nú. Ef hún á að koma sem viðbót er augljóslega verið að bera í bakka- fullan lækinn, en eigi að hefja nýja starfsemi í gamla húsnæðinu væri rétt að gera sér grein fyrir því í upphafi hver hún verður." Það er ljóst að hinn faglegi um- sagnaraðili, borgarskipulag Reykjavíkur, hefur ýmislegt við þessa tillögu að athuga. Miðbæjarstarfsemi Hverfinu er mjög vel þjónað af matvöruverslunum og nú er í byggingu kjötvinnsluhús í eigu SS á gatnamótum Laugarnesvegar og Sætúns. Það er því augljóst að ef aukin umsvif Kjötmiðstöðvarinn- ar eiga að bera sig fjárhagslega gerist annað af tvennu: 1) Sam- dráttur hjá öðrum samskonar verslunum í hverfinu. 2) Hin nýja verslun byggir aðallega á við- skiptavinum utan hverfisins. Kjötmiðstöðin hefur aldrei dregið dul á að hún höfði til viðskipta- vina af öllu höfuðborgarsvæðinu, sem er og eðlilegt hjá blómstrandi fyrirtæki. Hér mun um miðbæjar- sækna starfsemi að ræða með öll- um sínum kostum og löstum. Ahrif nýrrar staðsetn- ingar Kjötmiðstöðvar- innar á umferð Það sem vekur mig til þessara skrifa er val á staðsetningu og þeirri umferð sem að sjálfsögðu verður þessu samfara. Og einnig að engin umsögn frá umferðarsér- fræðingum fylgdi tillögunni eins og borgarskipulagið benti á. Áður en Sætúnið kom til sög- unnar fór nær öll umferð úr Kleppsholtinu, Laugarnesinu og Laugarásnum um Sundlaugaveg- inn til og frá miðbænum. Slysa- hætta var því mikil og þó sér í lagi við gagnamót Sundlaugavegar og Laugalækjar og við gatnamót Sundlaugavegar og Reykjavegar. Laugarnesskóli, grunnskóli fyrir yngri deildir, og Laugalækj- arskóli, grunnskóli fyrir eldri deildir, liggja sitt hvoru megin við þessi gatnamót. Börn í Laugarnes- skóla sem heima eiga á Lauga-, Bugðu- og Rauðalæk, Kleppsvegi og norðurhluta Laugarnesvegar þurfa að fara yfir gatnamót Laugalækjar og Sundlaugavegar. Þetta á einnig við um börn, sem heima eiga á Teigunum, á leið sinni í Laugalækjarskóla. Umferð baðgesta í Sundlaugarnar er allt árið um kring. Við þessi gatnamót skapaðist mikil slysahætta og um- ferðarslys voru ófá. Foreldrafélög beggja skólanna beittu sér fyrir því að eyjum yrði komið fyrir á horni Sundlaugavegar og Lauga- lækjar og umferðarljósum fyrir gangandi umferð á Sundlaugaveg- inum. Með tilkomu eyjanna og tengingu Sætúnsins við Kleppsveg hefur slysatíðni minnkað verulega þrátt fyrir aukna umferð í Sund- laugarnar og hina miklu umferð sem skapast vegna „ríkisins" við Laugarásveg. Samkvæmt teikningu dags. 26. 7. ’83 frá borgarskipulagi Reykja- víkur og uppkasti að skilmálum 1. Laugalækjarskóli 3. Greiningarstöð, fyrirhuguð 2. Laugarnesskóli 4. Laugardalssvæðið 5. Kjötmiðstöðin, fyrirhuguð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.