Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.10.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 27 Athugasemd frá Kenn- arasambandi íslands: Leita verð- ur til dóm- stóla, náist ekki sættir VEGNA blaðaskrifa um ráðningu Ormars Snæbjörnssonar að Þela- merkurskóla, vill Kennarasamband íslands koma eftirfarandi á fram- færi: Deilt er um hvort fyrrverandi menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, hafi á fullnægjandi hátt gengið frá ráðningu Ormars Snæ- björnssonar. Ekki er vitað um hliðstæða deilu áður og stjórn KÍ getur ekki dæmt um hvort fullyrð- ing fyrrverandi menntamálaráð- herra um að hann hafi gengið frá ráðningu Ormars stenst. Náist ekki sættir í deilu þessari er augljóst að leita verður úr- skurðar dómstóla. Það er skylda Kennarasambandsins að gæta réttar félagsmanna sinna og þurfi úrskurð dómstóla til þess að mati stjórnar KÍ, er það gert þótt því fylgi jafnan fyrirhöfn og kostnað- ur. Leiðrétting í FRÁSÖGN Mbl. í gær af ríkis- stjórnarfundi þar sem Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra gerði grein fyrir mótmælum Sovét- manna var ranglega sagt, að Sovét- menn hefðu áskilið sér skaðabóta- rétt gagnvart íslendingum. Hið rétta er að sendiherra ís- lands 1 Moskvu var greint frá því um leið og mótmælin voru borin fram við hann, að Sovétmenn hefðu áskilið sér skaðabótarétt á hendur þeim þjóðum, sem þeir hafa reglulegar flugsamgöngur við. ísland er ekki í þeim hópi. Breytingar á dagskrá leiklistardeildar útvarpsins: Færri leikrit, en fleiri leikarar í hveriu verki Nokkrar breytingar eru í vændum hjá leiklistardeild Rikisútvarpsins varðandi útvarpsleikrit. Til þessa hafa að jafnaði verið þrjár útsendingar á nýjum leikritum á mánuði, en verður nú fækkað í tvær. „Þessi breyting er ekki gerð af sparnaðarástæðum," sagði Jón Viðar Jónsson, leiklistarstjóri út- varpsins, „heldur vegna þeirrar reynslu sem við höfum af þremur nýj- um útsendingum á mánuði. Æfingar- tími hefur verið nokkuð stuttur og með því að hverfa frá fiutningi leikrits I hverri viku verður hægt að lengja hann og að sama skapi taka til flutnings fjöl- mennari leikrit. Það hefur hingað til sett leiklistardeild útvarpsins þröngar skorður, sem ég tel að hafi bitnað á verkefnavali. Þessi breyting er þó ein- ungis tilraun." I vetur sendir leiklistardeildin væntanlega frá sér 16 nýjar leikrita- upptökur, þar með talið leikritið Nashyrningarnir, sem var á dagskrá í síðustu viku. Jólaleikrit Ríkisút- varpsins verður í ár leikrit Jóhanns Sigurjónssonar „Mörður Valgarðs- son“ í nýrri leikgerð sem Bríet Héð- insdóttir hefur gert fyrir útvarps- flutning. Hún er einnig leikstjóri. Þá er í ráði að flytja verk Tsjekhovs „Ivanov" í þýðingu Geirs Kristjáns- sonar og verður það frumflutningur á íslandi. Að vanda verða erlend leikrit i meirihluta á verkefnaskrá, en af ís- lenskum leikritum verða flutt, eftir Andrés Indriðason leikritin „Fiðr- ildi“ og „Fimmkóngavit", „ódauð- leiki" sem Þorgeir Þorgeirsson gerði eftir smásögu Heinesens og leikritið „Tólfkóngavit" sem Páll H. Jónsson samdi upp úr samnefndri sögu Guð- mundar Friðjónssonar. Af erlendum verkum er helst að nefna „Listamað- ur fer niður stiga“ eftir Thomas Stoppard, „Brunn dýrlinganna" eftir írann J.M. Synge og „Evgeníu Grandet", útvarpsleikrit sem Hein- rich Böll hefur samið eftir skáldsögu Frakkans Honoré de Balzac. Þá hef- ur leiklistardeildin hug á að flytja tvö ný leikrit, „Sumar“ eftir Edward Bond og „Sendiherrann" eftir Slav- omir Mrozek. Stök leikrit verða flutt annað hvert fimmtudagskvöld, en eldri upptökur endurfluttar á mánu- dagskvöldum í vetur. Þá verður barnaleikritið „Tordýfillinn flýgur í rökkrinu", framhaldsleikrit i tólf þáttum, flutt á þriðjudagskvöldum og hefst flutningur þess í október. Nokkrar ötular félagskonur í Félagi einstæðra foreldra vinna við að setja upp framhaldsflóamarkað félagsins sem verður í Skeljahelli, Skeljanesi 6, á laugardag Og sunnudag. Morgunblaðið/ Kristján Einarsson Þú getur fengið þennan frábæra bíl á ótrúlega hagstæðu verði. Verð aðeins frá kr. 245.000,- og framhjóladrif að auki. Tökum vel meö farna bíla upp í þann nýja. Opið í dag, laugardag, kl. 1—5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.