Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 32
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 Minning: Arni Jónsson húsgagnateiknari Kæddur 2. apríl 1929 Dáinn 1. desembcr 1983 í dag kl. 14 fer fram frá Bú- staðakirkju útför Árna Jónssonar húsgagnaarkitekts og kaupmanns. Skal hans því minnst hér örfáum orðum. Venjulega kemur að því fyrr eða síðar, að jafnvel fámennustu starfstéttir, stofna með sér félag, til að vinna að ýmsum sameigin- legum málefnum og kynnum. Þannig var þessu varið, hvað varð- aði húsgagnaarkitekta. Fjölgun þeirra var það hægfara lengi vel, að það var ekki fyrr en árið 1955 að þeir stofnuðu með sér félag. Nokkrir ungir menn voru þá fyrir skömmu komnir heim frá námi er- lendis, og meðal þeirra var Árni. Það má segja að þá hefjist okkar kynni, þó þau að vísu hafi verið nokkur, er hann var við nám hér í Iðnskólanum. Árni var faeddur á Kópaskeri 2. apríl 1929. Foreldrar hans voru hjónin Jón Árnason læknir, frá Garði í Mývatnssveit, og Valgerð- ur Guðrún Sveinsdóttir frá Felli í Sléttuhlíð, Skagafirði. Ekki kann ég að segja frá uppvaxtarárum Árna, en börn þeirra Jóns og Val- gerðar voru sjö og var Árni næst- yngstur þeirra. Jón, faðir Árna lést 1944, aðeins 54 ára að aldri. Framundan hafa því verið erfiðir tímar, hjá ekkju með barnahóp, eins og öllum félagsmálum var þá háttað. En Valgerður gefst ekki upp, heldur bregður á það ráð, að flytja til Reykjavíkur. Þar setti hún upp prjónastofu og hafði margt fólk í vinnu. Þannig kom hún börnum sínum vel til manns og mennta. Er Árni var 16 ára að aldri var hann svo heppinn að komast að sem nemandi í húsgagnasmíði hjá Jónasi Sólmundssyni, en vinnu- stofa hans hefur alla tíð verið álit- in meðal þeirra vandvirkustu hér í borginni. Ungir menn kepptust því um að komast þar að sem nemar. Sveinsprófi og tilskyldu námi við Iðnskólann lauk Árni svo 1949. En hann lét ekki þar við sitja. Haust- ið 1950 fór hann til Kaupmanna- hafnar og hóf nám við Kunst- handværkerskolen og lauk þaðan prófi sem húsgagnaarkitekt vorið 1953. Kom hann þá heim og stofn- setti fljótlega húsgagnavinnustofu að Laugavegi 67. Þar hafði hann lítinn sýningarglugga. Undirritað- ur minnist þess að hafa oft staldr- að við þar, því þar mátti jafnan líta fagra muni, með ferskum blæ og fáguðu formi. Á þessum árum ráðlagði ég oft ungu fólki, sem leitaði ráða hjá mér, vantaði kannski stól eða lítið borð, að líta til hans Árna og bar það oftast góðan árangur. Þetta ár, 1953, var mikið framkæmda- og happaár í lífi Árna, því auk þess sem að framan getur, kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni, Sigurlaugu Jónsdóttur, Sigtryggssonar, dóm- varðar í Reykjavík, og konu hans Ragnhildar Pálsdóttur. Fjögur börn eignuðust þau: Jón Þór, tölvufræðing, Pál, efnaverkfræð- ing, Ásdísi, vinnur við fyrirtæki foreldranna, gift Jóni Bergsveins- syni húsasmið og Ragnar, 15 ára í heimhúsum. Ekki man ég hve lengi Árni rak vinnustofuna að Laugavegi 67, en að því kom, að hann flutti í rýmra húsnæði við sömu götu og gerði verslunarrekstur að aðalstarfi. I þessari nýju verslun sinni hafði hann á boðstólum, auk húsgagna, ýmsar tegundir listmuna og jókst sá þáttur verslunarinnar jafnt og þétt þegar frá leið. Árið 1979 flutti verslunin í eigið húsnæði að Laugavegi 40. Þar hafði Árni keypt gamalt timburhús, sem hann breytti í mjög gott nútíma- verslunarhús. Þar er verslunin rekin núna, undir nafninu Kúnst, sem sameignarfyrirtæki fjölskyld- unnar. Frú Sigurlaug hefur lengi stutt mann sinn vel við rekstur fyrirtækisins og unnið í verslun- inni í mörg ár, sem kemur sér vel núna, eftir hina skyndilegu breyt- ingu sem orðin er. Ég kynntist Árna best á fyrstu árunum eftir stofnun félags okkar, en við vorum saman í fyrstu stjórn þess, ásamt Hjalta Geir Kristjánssyni. Það samstarf var ætíð hið ánægju- legasta í hvívetna. Þægilegri sam- starfsmann en Árna get ég varla hugsað mér. Éftir að því samstarfi lauk hitt- umst við auðvitað oft, þó að sam- gangur væri ekki mikill milli okkar. En ávallt er fundum okkar bar saman, fannst mér hann ætíð miðla vissri glaðværð og kímni. Jafnvel þó maður mætti honum á götu í dagsins önn, og ætti við hann einhver orðaskipti, skildi maður við hann léttari í sinni. Þannig hygg ég að minning Árna muni lifa í hugum þeirra er hon- um kynntust náið. Fyrir hönd Fé- lags húsgagna- og innanhússarki- tekta þakka ég Árna Jónssyni fyrir fórnfúst starf í þágu félags- ins á fyrstu árum þess og þar með talin mikil vinna við fyrstu sýn- ingar þess hér á árum áður. Við kveðjum hér góðan dreng, sem kallaður hefur verið burt frá okk- ur á besta aldri, og þökkum sam- verustundirnar. Ég sendi Sigurlaugu, börnunum og öðru venslafólki mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Helgi Hallgrímsson Það er tæpt ár síðan við Arni Jónsson kaupmaður í Kúnst á Laugavegi 40 sáumst fyrst. En þó kynni okkar yrðu ekki lengri, fannst mér ég hafa þekkt hann í áratugi, og hin stuttu kynni verða mér minnisstæð. Árni var sonur bekkjarbróður míns, Jóns Árnasonar læknis frá Garði í Mývatnssveit. Og þegar blessaður læknirinn okkar Árna, dr. med. Snorri Ingimarsson, kynnti okkur fannst mér bekkj- arbróðir minn, Jón, vera þar lif- andi kominn. Rifjaðist þá margt upp fyrir mér frá skólaárum mín- um á Akureyri og þaðan var ein- ungis góðs að minnast. Það var vorið 1910 að tveir Mý- vetningar komu til Akureyrar. Er- indið var að taka próf upp í annan bekk Gagnfræðaskólans á Akur- eyri, sem nú er M.A. Annar þeirra var Jón Árnason frá Garði í Mý- vatnssveit, sonur hjónanna Guð- bjargar Stefánsdóttur frá Haga- nesi í sömu sveit og Árna bónda Jónssonar í Garði. Þura skáldkona í Garði var systir Jóns. Hinn pilt- urinn var Jón Sigurðsson frá Baldursheimi í Mývatnssveit. Þessir ungu Mývetningar vöktu brátt athygli í litla bænum okkar við Eyjafjörð, þeir voru miklir að vallarsýn og hinir vörpulegustu. Próf voru þreytt um vorið og allt gekk að óskum. Um haustið sett- ust þeir í annan bekk og við urðum sambekkingar. Þóttu þeir góðir námsmenn, einkum þótti Jón frá Garði bera af í íslenzku. Bar séra Jón frá Hrafnagili, sem þá kenndi íslensku við skólann, mikið lof á stíla Jóns. Fljótur var Jón að kynnast skólasystkinum sínum, tók af lífi og sál þátt í félagslífi skólans og þótti hvarvetna góður listamaður. Hann var ávallt glað- ur og reifur í viðræðum og vildi hvers manns vanda leysa ef því var að skifta. Við urðum brátt mestu mátar, þó aldursmunur væri nokkur, ég 13 ára, en hann 21 árs. Jón frá Baldursheimi var aðeins einn vet- ur í skólanum. Hann varð skammlífur, dó langt fyrir aldur fram. Jón frá Garði tók gagn- fræðapróf eins og lög stóðu til vor- ið 1912 og var hæstur í íslensku. Lánið var með honum. Hann sett- ist í Menntaskólann í Reykjavík um haustið, en ég var heima og skildu þá leiðir. Tók hann stúd- entspróf vorið 1915 og leiðin lá svo í Háskóla íslands, þaðan tók hann læknispróf 1921 og sama ár var Jón skipaður héraðslæknir í Öx- arfjarðarhéraði og settist hann að á Kópaskeri. Gegndi hann því embætti til dauðadags, en hann andaðist 10. janúar 1944 og varð öllum harmdauði, er til þekktu. Auk læknisstarfa lét Jón sig varða ýmis menningarmál héraðsins. Hann var félagslyndur að eðlisfari og var fús á að blanda geði við fólk. Meðan Jón lifði fóru öðru hvoru kveðjur okkar á milli. Kæmi það fyrir að hann léti til sín heyra á prenti sendi hann mér sérprent- anir af því svo sveitakonan, skóla- systir hans í fjarlægu héraði, fylgdist með því sem hann var skrifa, því Jón var mesta tryggða- tröll. Kona Jóns, móðir Árna, var Valgerður Sveinsdóttir Árnasonar að Felli í Sléttuhlíð í Skagafirði, mikil myndar- og atgerviskona, sýndi það sig best hvern mann hún hafði að geyma er maður hennar féll frá og hún stóð ein uppi með stóran barnahóp. Hún giftist síðar Páli Sigurðssyni lækni og er hún nýlega látin. Árni átti til góðra að telja, enda var hann af öllum kunnugum tal- inn mikill mannkostamaður. Læknirinn minn hafði nokkrum sinnum minnst á Árna við mig, vissi að ég hafði þekkt föður hans í æsku. Meira að segja lét hann í veðri vaka að þeir hefðu í hyggju að heimsækja mig. Ég varð him- inlifandi dag einn, er þeir til- kynntu komu sína. Það var gaman að sjá hve Árni líktist föður sínum í sjón, góðvildin og drengskapur- inn var einnig áberandi. Tíminn var fljótur að líða og margt bar á góma á meðan þessir elskulegu gestir stóðu við. Áður en þeir kvöddu afhenti Árni mér til eign- ar ljósritað handrit af sögu Gagn- fræðaskólans á Akureyri, sem samin er af féiagi norðlenskra gagnfræðinga í Reykjavík. Kafl- inn sem ég fékk er yfir skólaárin 1910—1912 og er Jón Árnason frá Garði einn af þeim sem skrifar þann kafla. Ekki var mér kunnugt um að saga þessi væri skráð, en það rifjaðist upp fyrir mér að gagnfræðingar að norðan höfðu stofnað með sér félag í Reykjavík haustið 1911. Norðanmenn voru flestir ókunnugir í höfuðstaðnum. Þegar þangað kom söknuðu þeir heimavistarinnar og félaganna fyrir norðan. Þeim fannst þeir hvergi eiga höfði að halla og því var brugðið á það ráð að stofna til félagsskapar þeim til hugarhægð- ar. Eg varð orðlaus og djúpt snort- in, er ég tók á móti þessari óvæntu gjöf, mér fannst hún svo stór- kostleg. Ég átti ekki orð til yfir þakklæti mitt. Maður hefði ætlað að Árni hefði átt nóg með sig og sína nánustu, eins og heilsu hans var þá komið, en svo var ekki. Helsjúkur maðurinn lét sig ekki muna um að gera sér ómak til að gleðja gamla konu, sem hann hafði þó hvorki heyrt né séð, vissi aðeins að hún hafði setið á skóla- bekk með föður hans í Gagnfræða- skólanum á Akureyri fyrir rúmum 70 árum. Það er ekki á hverjum degi sem gamalt fólk verður fyrir slíkri umhyggju og ræktarsemi, en af slíku má manninn þekkja. Að skilnaði var talað um endurfundi áður en langt liði. En það ræður enginn sínum næturstað. Veikindi Árna ágerðust og mörgu þurfti að sinna. Oðru hvoru frétt ég af líðan Árna, stundum kviknaði von um bata, en sú von varð skammvinn. Og svo kom fregnin um að Árni hefði fengið hægt andlát. Hann kvaddi þegar aðventan var að ganga í garð, þessi árstími vonar- innar, eftirvæntingarinnar er jól- in nálgast, og í myrkrum ljómar lífsins sól. Góður drengur var genginn og ég saknaði þess að sjá hann ekki aftur. Minnug dýrmætra samveru- stunda sendum við Snorri læknir konu hans og börnum innilegar samúðarkveðjur. Þegar þau kveikja á jólakertum sínum von- um við að þau eygi bjarmann af stóra jólaljósinu hans Árna sem minni þau á að allt var í kærleika gjört. Hulda Á. Stefánsdóttir í dag, þriðjudaginn 13. desem- ber, verður Árni Jónsson kaup- maður, Lálandi 19, Reykjavík, til moldar borinn frá Bústaðakirkju. Árni andaðist í Landspítalanum eftir erfiða hinstu baráttu. Árni Jónsson fæddist á Kópa- skeri þann 2. apríl 1929, sonur Jóns Árnasonar læknis og konu hans, Valgerðar G. Svansdóttur, einn af sex börnum þeirra hjóna. Leiðir okkar Árna lágu fyrst sam- an fyrrihluta ársins 1976, en þá innrituðumst við á Dale Carn- egie-námskeið sem stjórnunar- skólinn hér í borg heldur. Snemma á þessu námskeiði komu ríkustu eðlisþættir Árna í ljós, létt lund blönduð kímni og velvild ásamt yfirgripsmikilli al- mennri þekkingu þar sem hæfi- leikinn til þess að greina kjarnann frá hisminu var ríkur. Árni sagði vel og skemmtilega frá, seint gleymist okkur félögum frásögn hans þegar hann var við nám í Danmörku og þurfti að verða sér úti um húsnæði og rakst á her- bergi, sem kostaði nánast ekkert að leigja nema hvað hann þurfti að viðra hund eigandans, sem var roskin hefðarfrú, kvölds og morgna, ásamt ýmsum fleiri skyldustörfum sem til féllu og þegar allt var samantalið mátti segja að um fullt starf væri að ræða. Þannig var Árni. 1 öllum hans frásögnum kom hans letta lund og kímni fram, kímni sem særði eng- an en skildi hópinn eftir með tár í auga af hlátri. Þessi hópur, sem varð til á þessu námskeiði, hélt saman að mestu, nokkrir urðu viðskila og aðrir bættust við, en kjarninn var alltaf sá sami, kjarni sem Árni átti drjúgan þátt í að mynda og halda saman. Árni, ásamt eiginkonu sinni Sigurlaugu, rak verslunina Kúnst við Laugaveg. Þar kom ég við á leið minni um Laugaveginn. Ég man ekki til þess að nokkurntíma hafi svo mikið verið að gera í versluninni þótt hún væri troðfull af fólki, eins og oft vill nú verða fyrir jól, að Árni gæfi sér ekki tíma til þess að setjast niður, bjóða veitingar og rabba. Um margt var spjallað tæpi- tungulaust á slíkum stundum, SVAR MITT eftir Billy Graham Skilningur á Biblíunni Mig langar til að geta skilið Biblíuna betur, en veit ekki, hvar ég á að byrja. Hverjar eru skoðanir yðar í þessu efni? Guð hefur gefið okkur Biblíuna, og ekkert ráð er betra til að þroskast andlega en sækja til hennar næringu handa hug og sál á hverjum degi. „Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi háðgjarnra, heldur hefur yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt“ (Sálm. 1,1—2). Smám saman fer okkur að langa til að rannsaka alla Biblíuna, því að sérhver hluti hennar kennir okkar eitthvað um Guð og vilja hans varðandi okkur. En ég legg til, að þér byrjið í Nýja testamentinu. Ástæðan er sú, að Jesús Kristur er þungamiðja Bibl- íunnar. Gamla testamentið bendir til hans, og Nýja testamentið fjallar um hann. Þess vegna ráðlegg ég yður að snúa yður fyrst að einhverju guðspjallinu, t.d. guðspjalli Jóhannesar. Lesið það hægt. Farið t.d. yfir smákafla á hverjum degi, uns þér hafið lesið það til enda. Þá langar yður e.t.v. að lesa eitthvert af bréfunum, t.d. fyrsta bréf Jóhannesar. Mikið ríður á því að lesa Biblíuna með reglu, en ekki nokkur vers hér og þar, eftir því hvar okkur ber niður, þegar við opnum hana hverju sinni. Hafið ákveðna aðferð, þegar þér lesið Biblíuna. Byrjið ætíð lestur hennar með bæn. Biðjið Guð að fræða yður, þegar þér rannsakið hana. Heilagur andi, sem er Guð, er höfundur Biblíunnar. Látið þennan sama anda vera kennara yðar. Biðjið hann hjálpar, svo að þér sjáið ekki aðeins, hvað Biblían segir, heldur látið það verða að veruleika í lífi yðar. Lesið síðan kafla, þangað til þér eruð vissir um, að þér skiljið efni hans. Lesið jafnvel aftur og aftur, ef nauðsyn krefur. Ef til vill ættúð þér að skrifa megin- atriðin í glósubók. Hvað kennir þetta um Guð, eða um vilja hans varðandi okkur? Að lokum: Tengið kenningar Biblíunnar alltaf við líf yðar. Eru þarna sannindi, sem ég á að reyna að skilja? Er í kaflanum fyrirmynd eða boðorð, sem ég á að breyta eftir? Látið Biblíuna vera leiðbeinanda yðar á hverjum degi, er þér rannsakið hana og hugs- ið um efni hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.