Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983 Þjóðhagsstofnun og þorskurinn MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá Þjód- hagsstofnun: I leiðara Morgunblaðsins í dag, 20. desember 1983, segir: „Fiski- fræðingar, stærðfræðingar og hagfræðingar hafa nú komist að þeirri niðurstöðu að hámarksafli á þorski skuli nema 220 þúsund lestum á árinu 1983. Þessi niður- staða er nær tillögum Hafrann- sóknastofnunar en Þjóðhags- stofnunar. í þjóðhagsáætlun fyrir 1984, sem lögð var fram í október var gert ráð fyrir um 300 þúsund tonna þorskafla á næsta ári. í til- lögum fiskifræðinga sem komu fram nokkrum vikum síðar var mælt með 200 þúsund lesta árs- afla af þorski." í þessari frásögn Morgunblaðs- ins er látið í veðri vaka, að haf- rannsóknastofnun og Þjóðhags- stofnun hafi sett fram mismun- andi tillögur, nokkurn veginn á sama tíma, um hámarksafla af þorski á næsta ári og þjóðhags- áætlun hafi verið byggð á tillög- um Þjóðhagsstofnunar. Hér er um mikinn misskilning að ræða. í fyrsta lagi gerir Þjóðhagsstofnun ekki tillögur um hámarksafla, hvorki af þorski né öðrum fisk- tegundum. f öðru lagi felur Þjóð- hagsáætlun, sem lögð var fram á Alþingi í október, fyrst og fremst í sér stefnumörkun ríkisstjórnar- innar í efnahagsmálum fyrir komandi ár, þar með um fisk- veiðistefnu. Þjóðhagsstofnun vinnur ásamt öðrum opinberum aðilum og ráðuneytum að undir- búningi þjóðhagsáætlunar, og getur þess vegna upplýst, að hvað spár um þorskafla á árinu 1984 varðar, voru lögð drög að þjóð- hagsáætlun ársins 1984 í júlí og ágúst síðastliðnum. Þá var fyrst og fremst byggt á áliti og tillög- um Hafrannsóknastofnunar um Athugasemd frá Blönduóshreppi Ágúst Stefánsson á vaktinni í hjarta Reykjavfkur. Ljósm. Mbl. RAX Gústi úr Eyjum syngur Ágúst Stefánsson úr Eyjum, í daglegu tali Gústi, syngur um þessar mundir í Hollywood. Hann söng fyrst fyrir helgi við góðar undir- tektir og í kvöld syngur hann í síðasta sinn í þessari lotu, en m.a. kynnir hann þar nýja plötu sína með laginu Nú meikar þú það Gústi. Það mun háttur Gústa að leika á als oddi þar sem hann er og sama er upp á teningnum í Hollywood. ísland, ferða- saga frá 17. öld MORGUNBLAÐINU hefur borizt svohljóðandi athugasemd frá sveitarstjóranum í Blönduós- hreppi: „Vegna fréttar í Morgunblað- inu þriðjudaginn 13. þ.m. sem ber yfirskriftina „Blönduós af- þakkaði fjárveitingar" vill hreppsnefnd Blönduóshrepps að eftirfarandi komi fram. Frétt blaðsins er á misskiln- ingi byggð, en ekki var haft samband við heimamenn áður en fréttin var birt. Skeyti það sem vitnað er til í fréttinni og sent var formanni fjárveitinganefndar Alþingis og þingmönnum Norðurlands vestra er svohljóðandi: „Samkvæmt upplýsingum sem fyrir liggja getur hrepps- nefnd Blönduóshrepps með engu móti sætt sig við þá af- greiðslu sem fjárveitingabeiðn- ir sveitarfélagsins hafa fengið. Hreppsnefnd hefur því sam- þykkt einróma að draga til baka fjárveitingabeiðnir vegna fjár- laga fyrir árið 1984." Eins og hver og einn getur séð eru engar fjárveitingar til Blönduóss afþakkaðar. Til þess að láta í ljós megna óánægju hreppsnefndar með tillögur fjárveitinganefndar Alþingis um fjárveitingar til sameigin- legra framkvæmda ríkis og Blönduóshrepps, ákvað hrepps- nefnd að draga til baka fjárveit- ingarbeiðnir Blönduóshrepps, enda ekki að sjá að tillit hafi verið tekið til þeirra við „út- hlutunina" svo notað sé orðalag Morgunblaðsins. Rétt er að fram komi að til framkvæmda sem eru sameig- inlega á vegum ríkissjóðs og Blönduóshrepps eru veittar kr. 1.765.000.00 samkvæmt þeim upplýsingum sem hreppsnefnd hafa borist. Bygging heilsugæslustöðvar á Blönduósi, en til hennar eru veittar kr. 6.600.000.00 er sam- eiginlegt verkefni ríkis og sveit- arfélaga í Austur-Húnavatns- sýslu þar sem Blönduós er að- eins einn aðili af 10. Það er úr lausu lofti gripið sem fram kemur í frétt Morg- unblaðsins að ástæðan fyrir óánægju hreppsnefndar sé ein- hver ein fjárveiting öðrum fremur, t.d. til byggingar í þróttahúss. Óánægjan er vegna heildarafgreiðslu fjárveitinga- nefndar á fjárveitingabeiðnum Blönduóshrepþs v/fjárlaga 1984.“ Aths. ritstj.: í frétt Morgunblaðsins 13. desember síðastliðinn segir, að fjárveitinganefnd Alþingis hafi borizt skeyti, þar sem „kemur fram að hreppsnefnd Blönduós- hrepps afþakki allar fjárveit- ingar til Blönduóss á árinu 1984“. í ofangreindri athugasemd segir sveitarstjóri Blönduós- hrepps, að hreppsnefndin hafi „samþykkt einróma að draga til baka fjárveitingabeiðnir vegna fjárlaga fyrir 1984“. Á þessu er enginn eðlismunur og frétt Morgunblaðsins því ekki á „mis- skilningi byggð". Fjárlög 1984 vóru afgreidd í Sam- einuðu þingi meö þeirri einu umtals- verðu breytingu, að samþykkt var tillaga frá Páli Péturssyni (F), Ragn- ari Arnalds (Abl.), Eiöi Guönasyni (A), þess efnis, að verja „til blað- anna að fegnum tillögum stjórnskip- aðrar nefndar 13 m. kr.“. Heildar- gjöld, samkvæmt fjárlögum kom- andi árs, verða kr. 18,285 m. kr., en heildartekjur kr. 17,895 m. kr. Rekstrarhalli er áætlaður 390 m. kr. en greiðsluafgangur 5 m. kr. Meginskýring þess, að fjárlög komandi árs sýna rekstrarhalla, er sú, að vextir vegna byggðalína, 267 m. kr. eru nú færðir til gjalda á A-hluta fjárlaga (ríkissjóð) en ekki B-hluta (ríkisfyrirtæki), eins og verið hefur til þessa. Að öðru leyti eru verri horfur í þjóðar- búskapnum nú, en þegar frum- varpið var lagt fram. Þegar fjárlagafrumvarp var lagt fram í haust stóðu áætlanir til 650 m. kr. hækkana á tekjuhlið þess en breyttar forsendur hafa fært þann tekjuauka niður í um 300 m. kr., að sögn Lárusar Jóns- sonar, formanns fjárveitinga- nefndar. Formaður fjárveitinga- nefndar sagði gjaldahlið frum- varpsins hafa hækkað í um 360 m. kr., sem er aðeins 2% af áætluðum útgjöldum, að blaðastyrknum meðtöldum. Þá hafi breyting orðið á sérstökum tekjum frá Alþjóða- Steingrímur árit- ar „Ellefu IiT4 STEINGRÍMUR Sigurðsson áritar bók sína „Ellefu líf“ í dag kl. 16—18 í Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 10. ástand þorskstofnsins frá júlí 1983. Hafrannsóknastofnun lagði þá til, sem kunnugt er, að há- marksafli af þorski yrði 300 þús- und tonn á árinu 1983, gerði ekki tillögur um afla 1984, en tók fram að miðað við ástand þorskstofns- ins að lokinni vetrarvertíð 1983 virtist jafnstöðuafli ekki meiri en 300 þúsund tonn á ári. Aths. ritstj. í tilefni af þeirri athugasemd sem Þjóðhagsstofnun gerir hér að ofan telur Morgunblaðið rétt að birta kafla úr forystugrein sinni frá 4. nóvember 1983, þar sem viðhorf blaðsins til þess máls sem hér er lýst kom skýrt fram án athugasemda frá Þjóðhagsstofn- un: „Niðurstaða fiskifræðinganna (um 200 þúsund lesta hámarks- afla á þorski innsk.) er birt rétt- um tveimur vikum eftir að Stein- grímur Hermannsson, forsætis- ráðherra, flutti stefnuræðu ríkis- stjórnarinnar og þjóðhagsáætlun fyrir árið 1984 var lögð fram á alþingi. Áætlunin er frá Þjóð- hagsstofnun og byggist á „eldri athugunum og reynslunni á þessu ári“ eins og það er orðað um fisk- aflann og er gerð með þeim fyrir- vara að „um margt sé rennt blint í sjóinn". Þjóðhagsstofnun gerði sem sé ráð fyrir að þorskaflinn á árinu 1984 yrði 300—320 þúsund lestir. Verði þorskaflinn þriðj- ungi minni á næsta ári er aug- ljóst að forsendurnar fyrir þjóð- hagsáætlun eru brostnar og fjár- lagafrumvarpið er þar að auki byggt á sandi. Miðað við úrslita- gildi þorsksins í fslenskum þjóð- arbúskap er óvarlegt, svo ekki sé meira sagt, að samræma ekki vinnu fiskifræðinga og hagfræð- inga við slíka áætlanagerð. En sá skipulagsskortur er þó smáatriði í samanburði við alvarlegar af- leiðingar þess að þorskurinn finnst ekki.“ flugmálastofnun (ICAO). Loks hafi gjaldfærslur vegna Vegagerð- ar ríkisins verið teknar inn í frumvarpið. Þegar þetta allt sé með tekið hafi í raun verið 450 m. kr. rekstrarhalli á fjárlagafrum- varpinu, þá fram var lagt, en sá halli er nú áætlaður 390 m. kr. Ríkisframlag til blaða var sam- SÖGUFÉLAG sendir frá sér bókina ísland. Ferðasaga frá 17. öld. eftir Tékkann Daníel Vetter. Þetta er fyrsta bindi í nýrri ritröð sem nefnist Safn Sögufélags. Þýdd rit síðari alda um ísland og Islendinga. Daníel Vetter kom að líkindum til fslands árið 1613 eða því sem næst. Hann gerðist kunnur menntamaður, prestur og bóka- útgefandi. Um komuár Vetters, lífshlaup hans o.fl. rita rékkneski fræðimaðurinn Helena Kadecková og Helgi Þorláksson í inngangi. Vetter segir frá ýmsu, s.s. kynnum sínum af Herluf Daa höfuðsmanni tillögur um þykkt með 33:25 atkvæðum, 1 al- þingismaður sat hjá, 1 var fjarver- andi. Gegn framlaginu greiddu at- kvæði þingmenn Sjálfstæðisflokks utan einn, sem sat hjá, og þing- menn Bandalags jafnaðarmanna. Þingmenn Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags, Framsóknarflokks og tveir af þremur þingmönnum og Oddi Einarssyni, biskupi í Skálholti og nefnir margt um líf og kjör landsbúa o.fl. sem ýmsum íslendingum á seinni tímum hefur þótt ótrúlegt. Þorvaldur Thor- oddsen ritar hins vegar að „Vetter hafi sagt svo rétt frá sem honum frekast var unnt“. Heilum 345 árum eftir útkomu sína birtist ferðalýsing Vetters í fyrsta sinn á islensku, þýdd beint úr tékknesku af Hallfreði Erni Eiríkssyni og Olgu Maríu Franz- dóttur. Myndir eru í bókinni, ýtar- legar skýringar og skrár. úthlutun Kvennalista samþykktu 13 m. kr. fjárútlát til blaðanna (1 sat hjá). Ein tillaga stjórnarandstöðu, hækkun framlags til Blindrabóka- safns um kr. 200.000.— var sam- þykkt með 56 samhljóða atkvæð- um. Aðrar breytingartillögur vóru felldar, fjölmargar að viðhöfðu nafnakalli. Iðunn: Nýtt bindi af Öldinni okkar Morgunblaðinu hefur borist cTtirfarandi: „Iðunn hefur sent frá sér nýtt bindi í bókaflokknum „Aldirn- ar“. Nýja bókin er Öldin okkar, minnisverð tíðindi 1971—1975. (Gils Guðmundsson tók saman.) Þetta er fimmta bindi sem gerir skil tuttugustu öldinni, en tólfta bindi bókaflokksins „Aldirnar" rekja í formi fréttablaðs sögu þjóðarinnar frá byrjun sextándu aldar, eða nú samfellt í 475 ár. Gils Guð- mundsson hefur að mestu tek- ið saman bindin um nítjándu öldina og hina tuttugustu, en Jón Helgason ritstjóri annað- ist þau bindi sem segja frá hinum fyrri öldum. Öldin okkar 1971—1975 er eins og fyrri bindi flokksins prýdd miklum fjölda mynda. Meginþorra þeirra tók Gunnar Andrésson ljósmyndari. Hild- ur Helga Sigurðardóttir tók saman efni um íþróttir og æskulýðsmál. — Hér er að sjálfsögðu sagt rækilega frá helstu stóratburðum þessara ára: eldgosinu í Vestmanna- eyjum, útfærslu landhelginnar tvívegis og þorskastríðum við Breta, heimsmeistaraeinvíginu í skák, þjóðhátíð í minningu ellefu alda búsetu í landinu, pólitískum sviptingum sem náðu hámarki í þingrofinu 1974 og deilum út af uppsögn varnarsamningsins við Banda- ríkjamenn, kvennafrídeginum mikla, svo nokkuð sé nefnt. Ekki er heldur gleymt hinum smáu og einatt spaugilegu at- vikum sem krydda þjóðlífið á hverri tíð. Allt speglar þetta söguna í margvíslegum lit- brigðum sínum eins og samtíð- armenn lifa hana frá degi til dags. Aftast í bókinni er rækilegt efnisyfirlit. Hún er 253 blað- síður. Oddi prentaði, en Aug- lýsingastofa Kristínar gerði kápu.“ Fjárlög afgreidd á Alþingi í gær: Ríkisstyrkur til blaða samþykktur Stjórnskipuð nefnd geri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.