Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 1
72 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
294. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
I gær kom til Frankfurt í Vestur-Þýskalandi hópur líbanskra munaðarleysingja. Þeir
munu dvelja hjá þarlendum fjölskyldum næstu þrjár vikurnar og eiga með þeim friðsam-
leg jól. Það voru vináttusamtök landanna sem stóðu fyrir þessu. Símamynd AP.
Hitamál tekið fyrir á sænska þinginu:
Frumvarp um
launþegasjóði
var samþykkt
Lundi, 21. desember. Frá Pétri Péturssyni fréttaritara Mbl.
SÆNSKA þingið samþykkti í dag frumvarpið um launþega-
sjóði með 164 atkvæðum á móti 158, en 21 sátu hjá. Jafnaðar-
raenn studdu frumvarpið einhuga en borgaraflokkarnir stóðu
einhuga á móti. Kommúnistar sátu hjá.
Fimm launþegasjóðir verða
stofnaðir í landinu og allir eiga
þeir að hafa launþega í stjórn-
armeirihluta. Geta þeir hver
um sig keypt hlutabréf í fyrir-
tækjum fyrir 400 milljónir
króna á ári, en þeir mega ekki
eiga meira en 8% af hlutabréf-
um í einu og sama fyrirtækinu.
Fjármagnið sem sjóðirnir
koma til með að ráða yfir verð-
ur tekið hjá þeim fyrirtækjum
sem mestan hafa hagnaðinn.
Enn voðaatburðir í Líbanon:
Fjöldi manns lét lífið
í tveimur sprengingum
Einnig hækka tryggingagjöld
sem launþegar greiða og rennur
það fjármagn í sjóðina.
Upp á síðkastið hafa borg-
araflokkarnir hert andstöðu
sína gegn launþegasjóðstil-
lögunum sem jafnaðarmenn
áttu upphafið að. Þeir telja að
hér sé verið að innleiða sósíal-
isma og jafnvel kommúnisma í
atvinnulífið.
Jafnaðarmenn segja aftur á
móti að iaunþegasjóðirnir muni
styrkja hið blandaða hagkerfi
og hið bágborna atvinnulíf, sem
hrjáð er af fjármagnsskorti.
Sjóðirnir muni styðja að heil-
brigðri fjárfestingu og byggja
upp atvinnulífið.
Launþegasjóðirnir hafa nú
verið til umræðu í sænskum
stjórnmálum árum saman og
nokkurrar þreytu hefur gætt á
lokasprettinum. Hin almenni
launþegi sýnir málinu lítinn
áhuga.
Beir.ui, 21. denember. AP.
TVÆR öflugar sprengjur sprungu í Beirút í gær og voru þær mannskæóar, að
minnsta kosti 14 manns létu liTið og margir særðust. Önnur sprengjan sprakk
í veitingahúsi sem Bandarfkjamenn hafa gjarnan sótt, hin sprakk við stöðvar
franska friðargæsluliðsins. Létust fjórir á veitingastaðnum, en að minnsta
kosti tíu manns við bækistöð Krakkanna, margir þeirra voru í byggingu
skammt frá sem hrundi.
Við stöðvar franska friðargæslu-
liðsins var vörubifreið ekið upp að
og ekillinn spratt út úr bílnum og
hljóp á brott. Sprakk bifreiðin í
loft upp fáeinum andartökum síðar
og létust að minnsta kosti 10
Antonov í
stofufangelsi
Rómaborg, 21. desember. AP.
SERGEI Ivanov Antonov, búlg-
arski flugfélagsstarfsmaðurinn í
Róm, sem í haldi var vegna
meintrar þátttöku hans í morðtil-
ræðinu gegn Jóhannesi Páli páfa á
dögunum, var í gær færður úr
fangelsi til íbúðar í Rómaborg, en
þar verður hann í stofufangelsi
fyrst um sinn. I>að er af hcilsu-
farsástæðum sem Antonov fær
meðferð þessa.
Giuseppe Consolo, verjandi
Antonovs, staðfesti fregnina og
sagði ákvörðunina hafa verið
tekna eftir að dómarinn Ilario
Martella hafði athugað lækn-
isskýrslu Antonovs. Er hann
sagður alvarlega sjúkur. Italska
fréttastofan ANSA taldi sig
hafa fyrir því góðar heimildir að
Antonov hefði misst alla matar-
lyst og hefði lést um 11 kíló síð-
ustu vikurnar. Þá væri hann
með innvortis blæðingar, heila-
truflanir og ýmsar geðveilur.
manns, en vitað var um marga
særða til viðbótar. Ekki var um
bílasprengju að ræða í veitingahús-
inu, þar hafði sprengju annaðhvort
verið varpað inn, eða komið þar
fyrir. 4 létu lífið og 12 særðust.
Bandaríkjamenn eru oft á veitinga-
húsi þessu, en aðeins einn er til-
ræðið var framið. Varð honum ekki
meint af.
Klukkustund eftir að sprengj-
urnar sprungu, en þær sprungu
nánast á sama augnablikinu,
hringdi maður til útvarpsstöðvar-
innar „Rödd Líbanons" og sagðist
vera talsmaður hryðjuverkahóps
sem nefndist „Svarta höndin".
Sagði hann samtökin hafa staðið á
bak við sprengingarnar. Ekkert er
vitað um hóp þennan, en shitarnir í
Bekaa-dalnum liggja undir grun að
hafa skipulagt verknaðinn.
ísraelskar herþotur gerðu í
gærmorgun árásir á stöðvar um-
ræddra shita í Bekaa-dal. Voru
árásirnar svar ísraela við skærum
shitana gegn tsraelum að undan-
förnu. Sýrlendingar sem ráða að
mestu ríkjum á þessum slóðum,
skutu mörgum eldflaugum að ís-
raelsku þotunum, en grönduðu
engri.
Af Yasser Arafat var það að
segja í gær, að seint í gærkvöldi
virtist ekki útilokað að hann myndi
eiga fund með Hosni Mubarak for-
seta Egyptalands í Port Said, en
þangað var hann væntanlegur með
grísku skipi seint í gærkvöldi.
Tveir bandarískir friðargæsluliðar í Beirút komnir í jólaskap. Á milli þeirra
er lítið furutré frá Minnesota, en faðir piltsins til hægri á myndinni sendi það
syni sínum. Simamynd AP.
Sprengingin í Harrods:
Fjórir hand-
teknir í gær
Lundúnir, 21. deaember. AP.
MIKIÐ lögrcglulið tók þátt i aðgerð-
um í Lundúnum, þar sem fjórir
menn voru handteknir, grunaðir um
að hafa átt aðild að einu eða öðru
leyti, að sprengjutilræðinu í Har-
rod’s-verslunarbyggingunni frægu
fyrir skömmu.
Háttsettur maður hjá Scotland
Yard staðfesti fregnina, en vildi
ekki láta nafns síns getið. Að-
spurður hvort hinir handteknu
væru sprengjuvargarnir svaraði
hann: „Kannski, kannski ekki, það
er of snemmt að segja neitt þar
um. Hvort sem er, gerum við
okkur vonir um að verða margs
vísari eftir að hafa yfirheyrt
mennina."
Óhappadagur skipherrans
Kochestor, Knglandi, 21. desembcr. AP.
PETER Fewster var ekki Yfir Ermarsundið, og lagði
hjátrúarfullur, en kannski
er hann það núna. Þannig
er mál vcxti, að alla sína
starfsævi hefur Fewster
verið sjómaður, en aldrei
skiphcrra á eigin fari. Það
fór þó aldrei svo að það
gerðist ekki og Fewster var
gerður að skipstjóra á Hoo
Venture, 488 tonna flutn-
ingaskipi. Fyrsta sjófcrðin:
Fewster hreykinn úr höfn
klukkan 02.10, föstudaginn
13. maí síðastliðinn.
Ekki hafði skipherrann
áhyggjur af því að dagur-
inn væri föstudagur og
hinn 13. í þokkabót. Enda
ekki hjátrúarfullur. En
svona fór sjóferðin:
Klukkan 02.30 rakst skip-
ið á ljósdufl sem ekki log-
aði á. Klukkan 03.00
strandaði Hoo Venture.
Klukkan 7.15 tilkynnti
skipstjóri annars skips,
að ljósmerki nokkuð
skammt frá ósum Tham-
es hefði laskast og væri
að falli komið. Viður-
kenndi Fewster þá að
hafa lent í árekstri við
umrætt ljósmerki, en gat
þess jafnframt, að stýri-
maður hefði verið við
stjórnina þá!
Fewster var gert að
greiða 100 punda sekt,
auk alls málskostnaðar
fyrir vítavert kæruleysi.
Hann er nú óbreyttur há-
seti á ný, en hjá öðru út-
gerðarfyrirtæki.