Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 29 Hjónaminninp: Guðrún Gísladóttir og Svavar Gíslason Guðrún Fædd 4. september 1915 Dáin 2. mars 1980 Svavar Fæddur 9. aprfl 1915 Dáinn 26. nóvember 1983 Kaldur nóvemberdagur hér á meginlandinu, nokkrir sam- starfsmenn á spjalli yfir volgum kaffisopa, er ég skyndilega rak augun í íslenska lopapeysu vinar míns og eitthvað tók að bærast innra með mér. Peysan átti at- hygli mína óskipta um stund og mér varð ljóst, að sá tregi, sem ég nú skynjaði, tengdist henni á ein- hvern hátt. Ég kom mér fyrir í næði, lét hugann reika og reyndi að skynja og skilja tilfinningar mínar. Mér varð hugsað til þess, er ég bað nágranna minn hana Gunnu að prjóna peysuna góðu, sem ég síðan gaf vini mínum. Hugurinn festist við Gunnu, tregi og sársauki mögnuðust hið innra og ég endurlifði á stuttri stundu síðustu dagana fyrir lát hennar veturinn 1980. Óljós grunur um að hún ætti skammt eftir, en jafn- framt neitaði eitthvað í mér að fallast á að svo væri. Ég frestaði í sífellu fyrirhugaðri heimsókn minni til hennar í sjúkrahúsið. Undir niðri vissi ég að um yrði að ræða kveðjustund og ég vildi ekki fallast á að tími væri kominn til að kveðja. Dag nokkurn var það um seinan. Gunna var dáin og ég gat ekki lengur kvatt. Þennan kalda nóvemberdag meira en þremur og hálfu ári seinna fann ég hversu sárt það var að þurfa að kveðja — en einnig hversu sárt það er að hafa ekki kvatt. Viku síðar barst mér sú frétt, að Svavar væri dáinn. Þau bjuggu við Skipasund, á kaflanum milli Holtavegar og Brákarsunds. Þar var og er enn dálítið sérstakt samfélag, iítið um flutninga í gegnum árin, en tím- inn líður, börnin orðin fullorðin og eiga börn og margir hafa fallið frá undanfarin ár. í heimi okkar barnanna var mikið líf. Við þekkt- umst vel og umhverfið bauð upp á óþrjótandi möguleika. Stórir drullupollar urðu að úthöfum og tengdust öðrum með þar til gröfn- um skipaskurðum á ómalbikaðri götunni og óbyggð Kleppstúnin með öllum sínum skurðum voru heimsins besti leikvöllur og íþróttaleikvangur. Af fullorðna fólkinu kynntist ég mörgum, sum- um við að sækja leikfélagana heim, aðrir komu í kaffi eða spil- uðu bridge við foreldra mína. Og loks voru þeir, sem fengnir voru, þar eð þeir. kunnu til verka. Þetta voru galdramenn og gatan átti marga slíka. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, STEFANÍA GUÐBJÖRG GESTSDÓTTIR, éöur til heimilia aö Eiríksgötu 33, verður jarösungin þriöjudaginn 3. janúar kl. 13.30 frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Erna Helgadóttir, Hjörleitur Jónsson, Sævar Helgason, Helga Pélmadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUDMUNDUR KARLSSON frá isafiröi, Engjaseli 86, Reykjavlk, sem lést 25. þessa mánaöar veröur jarðsunginn frá Fríkirkjunnl í Reykjavík mánudaginn 2. janúar kl. 13.30. Kristjana Magnúsdóttir og börn hina látna. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR, Hólmgaröi 62, verður jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Landspítala. Méllríöur Einarsdóttir, Guölaug Einarsdóttir, Sveinbjörn Björnsson og barnabörn. t Sonur okkar, HÖGNI ERPER TRYGGVASON, sem lést þann 24. desember, veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaglnn 2. janúar kl. 10.30. Ragnheióur Brynjólfsdóttir, Tryggvi Sigurösson. t Sonur minn og bróöir okkar, BENEDIKT BENEDIKTSSON, Keilugranda 8, veröur jarösunglnn frá Neskirkju þrlöjudaginn 3. janúar kl. 15.00. Jarðsett veröur í Fossvogskirkjugaröi. Gyöa Erlendsdóttir og aystkini hina létna. i Gunna kom oft í kaffi. Hún kom haltrandi utan úr búð og mátti til að fá sér smá sopa. örstutt hlé var gert á amstri dagsins og eldhús- krókurinn fylltist lífi. Bláókunn- ugt fólk stóð allt í einu ljóslifandi á miðju eldhúsgólfinu og frá mörgu var að segja. Glaðværð og glettni fylgdu þessari konu, sem svo oft var líkamlega sárþjáð og átti erfitt með gang. En þá var hún bara „óttalegur ræfill" eða skildi ekki, hvað hún gat verið mikill „aumingi" og hún hló. Þetta var hennar aðferð. Og svo hélt hún allt í einu, að hún væri bara að verða vitlaus að slóra svona — verkin kölluðu. Svavar var einn af þessum galdramönnum. í höndunum á honum breyttust aumkunarverðir sárum þaktir gluggarnir heim í stolta, rennislétta hvítgljáandi glugga og óhreinir eldhúsveggirn- ir öðluðust á svipstundu nýtt líf. Slík kunnátta vakti aðdáun mína. Og stoltur var drenghnokkinn, sem gat heilsað Svavari vagn- stjóra, er hann gekk upp í Alf- heimavagninn. Síðustu árin urð- um við góðir kunningjar. Stundum aðstoðaði ég hann eilítið við hitt og þetta, en veikindi gerðu honum ekki kleift að galdra sem fyrr. En hann hætti aldrei, dundaði við Skodann sinn, brá sér í ferðalög og hóf meira að segja matseld á sjö- tugsaldri. Hann átti líka til þessa glettni og sagði mér gjarnan glaðhlakkandi frá samskiptum sínum við kartöflur, kótilettur og fleira góðgæti. Að fást við eitt- hvað var jú hans líf. Skipasundið hefur á ný breytt um svip. Enn hefur fækkað í þess- ari kynslóð, sem byggði upp göt- una. { þessari kynslóð, sem ólst upp við þá lífsnauðsyn að láta aídrei verk úr hendi falla og þurfti að stelast til að staldra örstutt við. Handan götunnar stendur húsið þeirra sem fyrr, en það hafa orðið kaflaskipti. Svavar fæst ekki við neitt lengur og í eldhúsgluggann vantar hana Gunnu, þessa bros- andi vinkandi konu, sem mér þótti vænt um. Ég sakna þeirra hjóna, þetta var gott fólk. Wurzburg í desember 1983 Sigmar Karlsson t Eiginmaöur minn og faðir, ÓLAFUR SVEINSSON, kaupmaöur fré Maalifellsé, Ásvallagötu 20, andaöist í Landakotsspítala 29. desember. Stefana Guömundsdóttir, Pórunn Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.