Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANtJAR 1984 20424 14120 KiL Einbýlishús 5—6 herb. Með innbyggöum bílskúr á einum besta stað í Breiö- holti. Selst folhelt. Tilb. til afh. fljótl. Mjög góöar teikn- ingar af hentugu einbýlis- húsi. Til sýnis á skrifstof- unni. Ákv. sala. Engihjalli 4ra herb. Glæsileg íbúö á 2. hæö, 117 fm. Kríuhólar 3ja herb. Falleg og stór íbúð á 1. hæð með bílskýli. Ákv. sala. Hraunbær — 3ja herb. Stór og falleg íbúð á 2. hæð á einum besta stað í Hraunbæ. Sérþvottahús. Bugðulækur — Sérhæð Vorum að fá í einkasölu fallega efri sérhæð. 135 fm, 5—6 herb. á góðum staö viö Bugöulæk. Bílskýli. Ártúnsholt — hæö og ris Á góöum stað 150 fm, 30 fm bílskúr. Selst fokhelt. Teikn. á skrifstofunni. Ákv. sala. Skipholt 5—6 herb. góð íbúð á 1. hæð, 117 fm með aukaherb. í kjall- ara. Til sölu eða í skiptum fyrir 4ra herb. íbúð í sama hverfi. Vantar 2ja—3ja herb. 400 þús. viö samníng Höfum veriö beðnir að út- vega stóra 2ja eða 3ja herb. íbúð á stór-Reykjavíkur- svæöinu. Góðar greiöslur í boði. Öruggur kaupandi. Vantar í Árbæjarhverfi 4ra herb. fyrir fjársterkan kaupanda. Fáar og snöggar greiöslur í boði fyrir rétta eign. Holtsgata — 4ra herb. Falleg íbúð á 3. hæð öll ný- standsett. Hverfisgata — 3ja herb. Mikiö endurnýjuð íbúð. Ný eldhúsinnrétting. Nýstandsett baðherb. með öllum nýjum tækjum. Ný teppi á gangi og stofu og margt fleira. Ákv. sala. Dúfnahólar 3ja herb. góð íbúð á 3. hæð (efstu) með bílskúrsplötu. Stórkostlegt útsýni. Skipti möguleg á 1. hæð á svipuöum stað, eða í Bökkunum. Ákv. sala. Hringbraut — 2ja herb. Góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsl á einum besta stað við Hringbraut. Ákv. sala. Snorrabraut — 2ja herb. á 3. hæð. Ibúöin er í góöu standi með nýjum gluggum. Ákv. sala. Laus strax. Hesthúsabásar — Kjóavellir Til sölu eru 4 hesthúsabásar i glænýju hesthúsi við Kjóavelli með hlutdeild í hlöðu, kaffi- stofu, hnakkageymslu o.fl. .eimasími 52586 — 18163 Sigurður Sigfússon, sími 30008 Björn Baldursson lögfr. hagkvæmur auglýsingamiðill! J*lor£unl>Iafoií> Veðurblíða og hiti á Costa del Sol um hátíðirnar Athugasemd við sjónvarpsfrétt MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá ferðaskrifstofunni Útsýn: „Ríkisfjölmiðlarnir hafa haldið trútt við þá stefnu að minnast helzt ekki á ferðalög íslendinga erlendis, nema eitthvað neikvætt hafi verið til frásagnar. Að vísu fann bílferjuútgerðin sérstaka náð fyrir augliti fréttamanna sjón- varpsins sl. sumar, hvað sem veld- ur. Ferðir landans á sólríkasta stað álfunnar, Costa del Sol, á vegum Ferðaskrifstofunnar Útsýnar í 20 ár hafa aldrei þótt fréttaefni, fyrr en nú um jólin, þegar um þær var sérstaklega fjallað í fréttum 2. dag jóla á villandi hátt og neikvæðan að mati áhorfenda sjónvarpsins, svo að sumir þeirra fundu sig knúða til að hafa samband við ættingja sína í Torremolinos, sem þar dvöldu um jólin á vegum Út- sýnar og kanna sannleiksgildi fréttarinnar. Fara hér á eftir um- mæli hjónanna Ásgeirs Sigur- jónssonar og Bergþóru Baldvins- dóttur, Kleppsvegi 36, Reykjavík: „Við höfðum í dag símasamband við son okkar vegna hinnar nei- kvæðu fréttar, sem íslenzka sjón- varpið birti sl. mánudag, og viljum lýsa því yfir, að þar er rangt með farið. Hér er dásamlegt að hvíla sig í góðu veðri, en hér hefur verið 20—25° hiti síðan við komum þann 16. desember. Hér er margt um manninn, hótelið alveg fullt og vel um okkur hugsað hér. Fólk á öllum aldri sækir hingað í jóla- leyfinu til að njóta veðurblíðunn- ar.“ Það sætir furðu að sjónvarpið skuli birta slíka frétt, sem tví- mælalaust er skoðanamyndandi fyrir almenning, án þess að leita upplýsinga hjá ferðaskrifstofunni eða farþegum sjálfum. Gagnstætt því sem frétt sjónvarpsins gaf til kynna, dvaldist mikill fjöldi fólks á Costa del Sol um jólin í góðu yfirlæti, og svo verður áfram til vors, en allt gistihúsnæði á Costa del Sol er þegar uppselt fyrir sumarið." Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! Leitin að „guliskipinuu hefst aftur að vori GULLSKIPSMENN hyggjast halda á Skeiðarársand í vor og taka upp þráðinn að nýju þar sem frá var horfið sl. haust eftir að skipið í sandinum reyndist vera annað en Indíafarið Het Wapen van Amsterdam, að því er Kristinn Guðbrandsson forstjóri Björgunar hf. sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær. „Við erum ákveðnir í að halda áfram að leita að skipinu og byrjum iíklega í maf,“ sagði Kristinn. „Þessa dagana er verið að athuga með tæki og fleira dót. Ég á von á að við verðum á svip- uðum slóðum og við vorum í fyrra en það er þó óákveðið." Hann sagði ekkert vera að frétta af áformum um að ná þýska togaranum, sem þeir komu niður á í stað „gullskips- ins“, upp úr sandinum og selja hann; það mál væri enn í athug- un. „Staðan er í rauninni svipuð og hún var þegar við byrjuðum í fyrravor," sagði Kristinn Guð- brandsson. Undirbúin framleiðsla horm- ónalyfs úr hryssublóði Á VEGUM heildverslunarinnar G. Óiafsson hf. í Reykjavík er unnið aö tilraunum til framleiðslu á hormóna- lyfjum úr blóði úr fylfullum hryssum. Tilraunirnar eru kostaðar af G. Ólafsson hf. en unnar af Tilraunastöð Háskóla íslands á Keldum og Læknadeild Háskólans. Að sögn Ein- ars Birnis forstjóra G. Ólafsson hf. hafa tilraunirnar staðið um þriggja mánaða skeið og hingað til fyrst og fremst beinst að upplýsingasöfnun og að finna heppilegustu aöferðirnar til lyfjaframleiðslunnar en nú færi að koma að sjálfri tilraunaframleiðsl- unni. G. Ólafsson hf. hefur staðið fyrir söfnun blóðs úr fylfullum hryssum hér á landi í 4 ár í samvinnu við hrossabændur. Blóðið hefur verið selt til lyfjaframleiðenda erlendis sem nota það til framleiðslu á hormónalyfi en lyfið er notað til að stýra tíðahringnum hjá konum og til hliðstæðra hluta hjá skepnum. „Þetta hefur gengið skínandi vel hjá okkur," sagði Einar Birnir um blóðsöfnunina. „Við, og þá á ég við okkur alla sem að þessu stöndum, höfum smám saman verið að kom- ast upp á lagið með blóðsöfnunina og erum nú komnir með þá þekk- ingu sem þar er þörf á. Með þessum tilraunum með framleiðslu lyfsins sjálfs erum við að fikra okkur upp á við í þessu til að vinna þetta sem mest hér heima. Úr blóðinu er tek- in ein sérstök tegund hórmóns og er það gert með nokkurs konar hreinsun. Vinna okkur hingað til hefur beinst að því að finna heppi- legustu aðferðina til þess.“ Einar sagði að mikið framboð hefði verið af hryssublóði á heims- markaðnum í ár og þessvegna hefði minna blóði verið safnað í sumar en árin á undan. Ef út í framleiðslu á hormónalyfinu væri farið hér á landi þyrfti að flytja það mest allt út, því sáralítil notkun væri á því hér á landi en það væri spurning sem ekki væri komið að, hvort hægt yrði að vinna markað fyrir lyfið þegar þar að kæmi. Ragnar S. Halldórsson formaður VÍ: Ritvilla í áramótagrein Blac5bnröarfólk óskast! Austurbær Miöbær I Ármúli 1 —11 Vesturbær Tjarnargata frá 39 Faxaskjól í áramótagrein minni í Morgun- blaðinu þann 31. desember misrit- aóist eitt orð, þannig að hugmynd- in um frádrægan tekjuskatt varð að frádráttarbærum tekjuskatti. Þessi mistök gefa tilefni til leið- réttingar og frekari skýringar. Reynslan hefur sýnt, að ekki er unnt í kjarasamningum að bæta hag hinna lægst launuðu með sérstökum kauphækkunum þeim til handa. Ástæðan er ekki sú, að þeir hæst launuðu uni því illa, heldur verða þá þeir með næst lægstu launin með sömu laun og þeir sem áður voru lægst launaðir. Þá verða þeir óánægð- Uthverfi Ártúnsholt Kópavogur Hlíöarvegur 30—57 HITAMÆLINGA- MIÐSTÖÐVAR fyrir skip báta, og iðnað Fáanlegar fyrlr sex, átta, tíu, tðlf, sexfán, átján eöa tuttugu og sex mœllstaöi. Eln og sama mlöstööln getur tekiö vlö og sýnt bæöi frost og hlta, t.d. Celclus +200-f850 eöa 0+1200 o.fl. Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mls- munandi skrúfgangi fáanlegar Fyrlr algengustu rlö- og jafnstraumsspennur. Ljósastafir 20 mm hélr. Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashlta, kæll- vatnshita. smurolíuhlta, lofthita, kulda í kælum, frystum, lestum. sjó og „man ekki fleira í bWT í einu tæki. Lofaöu okkur aö heyra frá þér VMtweatu 1«. tw 14680 _ 13280 ir. Þessar kauphækkanir hafa því fyrr eða síðar tilhneigingu til að sækja upp launastigann. Af þessum sökum er mun vænlegri leið að bæta hag þeirra verst settu í gegnum tekjuskattskerf- ið. Frádrægur tekjuskattur gæti verið slík lausn. f grein minni var orðið frá- drægur tekjuskattur notað yfir hugtakið „negative income tax", en sú hugmynd byggir á tekju- jöfnun í gegnum tekjuskatts- kerfið. Upp að vissu tekjumarki fá framteljendur greiðslur frá ríkinu, við jafnvægismarkið er hvorki greitt úr ríkissjóði né í, en úr því greiðist tekjuskattur. Með þessari aðferð mætti ein- falda skattkerfið verulega, t.d. sameina tekjuskatt og útsvar, en einnig gera ýmsar tekjutilfærsl- ur skilvirkari með því að sam- eina þær skattkerfinu. Útborgun þeirra ræðst þá af tekjum, þann- ig að bætur almannatrygginga og niðurgreiðslur vöruverðs yrðu ekki inntar af hendi jafnt til þeirra lægst launuðu og þeirra, sem betur eru settir. Hugmyndin um frádrægan tekjuskatt hefur verið allítar- lega könnuð erlendis. Á undan- förnum árum hefur hún einnig komið til skoðunar hér. Nú stendur yfir á vegum Kauplags- nefndar könnun, sem leiða á í ljós, hversu stór hópur láglauna- fólks er. í komandi kjarasamn- ingum virðist því vænlegra að kanna þessa hugmynd nánar í stað þess að stefna stöðugleika verðlags í hættu með óraunhæf- um kauphækkunum, sem fyrr eða síðar æða upp allan launa- stigann og út í verðlagið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.