Morgunblaðið - 10.01.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.01.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984 17 Skoðanakönnun í Bretlandi: Paul Newman, Bo Derek og Diana njóta mestrar hylli Lundúnum, 9i janúar. AP. KÖNNUN SEM gerð var í Bretlandi bendir til þess að þau Paul Newman og Bo Derek, sem bæði eru frægir leikarar, séu það fólk sem allur almenningur á Bretlandseyjum myndi kjósa sér til ástarsambands. Sprengja í diskóteki Diskótek í þýsku stórborginni Miinchen skemmdist illa í sprengingu og eldsvoða í kjölfarið um helgina. Átta manns særðust, en enginn lét lífið. Grunur leikur á að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Voru tveir ungir ítalir handteknir skömmu eftir að ódæðið var framið, en þeim síðan sleppt. Leitar lögreglan nú sprengivarganna dyrum og dyngjum. símamynd ap. Þrátefli í Afganistan: Sovétmenn leita að viðunandi lausnum Bandaríska dagblaðið Los Angel- es Times sagðist í gær hafa fyrir því góðar heimildir, að svo vildu Sov- étmenn losna úr Afganistan-hnútn- um, að þeir hefðu lagt fyrir stjórn- völd í Pakistan drög að brott- flutningi sovéska herliðsins frá Afg- anistan. Blaðið segir „drögin“ að vísu hafa verið afar loðin og lítt á byggjandi, en kjarni málsins hafi verið sá, að með þeim vildu Sovét- menn leggja áherslu á vilja sinn til að leysa Afganistanvandamálið með öðrum leiðum en hernaði. Blaðið hafði eftir ónafngreind- um embættismönnum í Kreml, að Sovétmenn gerðii sér ljósa grein fyrir því að ástandið í Afganistan væri orðið að þrátefli sem engin leið væri út úr. Því væru Sovét- menn að athuga aðrar leiðir, meðal annars þá að flytja herlið sitt heim. Fyrrgreind drög að brott- flutningi sovéska liðsins átti að standa yfir í 18 mánuði. Embættis- mennirnir, viðmælendur LAT, sögðu að pólitísk lausn sem tryggði hlutleysi Afganistan væri æski- legasta þrautalendingin. Bandaríska blaðið segir Sovét- menn og Pakistana hafa rætt þessi mál á leynifundum, og er Sovét- mennirnir ræddu um brottflutning á 18 mánuðum, hafi Pakistanar stungið upp á, á móti, að brott- flutningurinn þyrfti ekki að standa yfir nema um það bil 6 mánuði eða svo. Slitnaði þá upp úr viðræðunum. Pakistanskir emb- ættismenn, einnig ónafngreindir, staðfestu í blaðinu að Rússar hefðu lýst áhuga sínum á því að kalla herinn heim frá Afganistan, en málið hefði siglt í strand er fyrrgreind gagnuppástunga var borin fram. Þeir sögðu hins vegar að í raun hafi Sovétmennirnir aldrei lagt „drögin" fram sem formlegt tilboð, heldur hafi hlut- verk þeirra fyrst og fremst virst vera til að sýna samkomulagsvilja Rússa í málinu. Kvenfólkið reyndist í miklum meiri hluta skotið í Newman, sem er 58 ára gamall og hefur verið giftur Joanne Woodward í -26 ár. Newman lét sig ekki muna um að skjóta aftur fyrir sig kyntáknum á borð við Sting og John Travolta, einnig var Andrew Bretaprins ofarlega á blaði, en átti þó engan möguleika gegn Newman. New- man varð efstur í fimm liðum spurningalistans, hann reyndist vera „hinn fullkomni maður", „hinn útvaldi í ástarsamband", „myndarlegasti maðurinn", „mest aðlaðandi og kynþokkafulli mað- urinn" og síðast en ekki síst „mest spennandi maður að vera með“. Geri aðrir betur. „Gamalt brýni" ef svo mætti að orði komast var þó útvalinn „maðurinn sem ég vildi deila ævi minni með“. Það var hinn siungi poppari Cliff Richard, sem nú stendur á 43 árum. f öðru sæti í þessum bás var Clint Eastwood, leikari með meiru, 53 ára gamall. Þó að kynbomban Bo Derek sé sá kvenmaður sem flestir breskir karlmenn vildu næla í til ástar- sambands, bar þó ein kona af öll- um öðrum í öllum hinum spurn- ingunum. Var það engin önnur en Diana prinsessa hin sívinsæla. Var hún efst nema á heimavelli Bo Derek, og í flokkinum „falleg- asta konan". Þar skaut söngkon- an Olivia Newton-John öðrum ref fyrir rass, en Diana varð önnur. Gáfaðasti maður Bretlandseyja var kjörinn í athugun þessari David Steel, formaður Frjáls- lynda flokksins í Bretlandi. Úr- takið i könnuninni var 1010 manns og það var dagblaðið Sunday Mirror sem að henni stóð. Bo Derek Paul Newman Saumuðu 9 fing- ur á prentarann Árangur aðgerðarinnar „fágætt afrek“ Peking, 9. janúar. AP. Kínverska fréttastofan Xinhua greindi frá því í gær, að þarlendir skurðlæknar hefðu saumað níu fingur á prentstofustarfsmann í Peking og hefði aðgerðin staðið yf- ir í 30 klukkustundir. Slysið átti sér stað fyrir nokkru, er maðurinn var að vinna við prentvél. Setti hann hendurnar óvart inn í og svipti hún umsvifalaust níu fingrum af og stórskaddaði þann tíunda. Var maðurinn drifinn á sjúkra- hús og þurfti að fljúga með hann, því slysið átti sér ekki stað í Peking. Fjórir hópar skurð- lækna unnu saman að verkinu. Síðan hafa sár mannsins gróið og hann er í meðferð. Læknar gera sér vonir um, að sögn Xinhua, að maðurinn muni í framtíðinni hafa næstum full fyrri not af fingrum sínum og árangur aðgerðarinnar hafi ver- ið „fágætt afrek". Olíuleiðsla í Túnis sprengd Túni.sborg, 9. janúar. AP. Varnarmálaráðuneytið í Túnis skýrði frá því í dag að fjórir vopn- aðir menn frá Líbýu, sem komið hefðu með ólögmætum hætti inn í landið, hefðu sprengt í loft upp olíuleiðslu á landamærum Túnis og Líbýu. Talsmaður ráðuneytisins sagði að mennirnir fjórir hefðu komið til Túnis snemma á sunnudagsmorgun og komið sprengjunum fyrir við Henchir A1 Bassasa olíuvinnslustöðina, en hún er um tvo kílómetra frá landamærunum. Ekki tókst að ráða niðurlög- um eldsins sem kviknaði við sprenginguna fyrr en síðdegis á sunnudag. AUGLýSING UM INNLAUSNARVERD VERÐTRVGGÐRA SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*1 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1970-2. fl. 05.02. 84 kr. 17.415,64 1972 - l.fj. 25.01. 84-25.01. 85 kr. 12.886,60 1973 - 2. fl. 25.01. 84-25.01. 85 kr. 7.046,76 1975 — l.fl. 10.01. 84- 10.01. 85 kr. 4.002,39 1975-2. fl. 25.01. 84-25.01. 85 kr. 3.021,25 1976- 1.fl. 10.03. 84- 10.03. 85 kr. 2.877,97 1976- 2. fl. 25.01. 84-25.01. 85 kr. 2.273,74 1977 — 1. fl. 25.03. 84 - 25.03. 85 kr. 2.122,16 1978- 1.fl. 25.03. 84 - 25.03. 85 kr. 1.438,89 1979 - 1.fl. 25.02. 84 - 25.02. 85 kr. 951,45 Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Sérstök athygli skal vakin á lokagjalddaga 2. flokks 1970, sem er 5. febrúar n.k. Reykjavík, janúar 1984 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.