Morgunblaðið - 25.02.1984, Síða 31

Morgunblaðið - 25.02.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 31 Hringur Jóhannesson opnar tvær sýningar „MflTA eru tvær sýningar eða ein í tvennu lagi með myndum sem allflestar eru málaðar frá því ég hélt mína síðustu sýningu í Norræna húsinu 1980,“ sagði Hringur Jóhannesson, listmálari, í viðtali við Mbl. í gær, en hann opnar í dag, laugardag, 20. einkasýningu sína á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsal við Freyjugötu. Hringur sagðist sækja mikið af myndefni sínu norður í Aðaldal þar sem hann dvelur jafnan sumarlangt að Haga. Hann sýnir að þessu sinni 145 verk, olíupast- elmyndir, olíumálverk, teikningar og verk unnin með litkrít. Olíu- pastelmyndirnar verða allar til sýnis í Ásmundarsal. Hringur stundaði nám í Mynd- lista- og handíðaskólanum frá 1949—1952. Hann hefur haldið 19 einkasýningar víðsvegar um land- ið frá 1962, síðast í Norræna hús- inu 1980 sem fyrr segir. Hann hef- ur einnig tekið þátt í u.þ.b. 50 samsýningum hér á landi, á öllum Norðurlöndunum, Skotlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Hann var einnig valinn sem full- trúi íslands á Accenter i Nordisk konst í Sveaborg í Helsingfors 1980. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsal við Freyjugötu verða opnaðar laugardaginn 25. febrúar, á Kjarvalsstöðum klukk- an 14.00 og í Ásmundarsal við Freyjugötu klukkan 15.00. Sýn- ingarnar standa til sunnudagsins 11. mars og eru opnar frá 14—22 daglega. DRAGON DATA LIMITED TÖLVA fyrir heimili, skóla og smáfyrirtæki Dragon — tölva sem vex meö þér. Dragon getur: 1. Teflt: Skák 2. Spilaö: Bridge. 3. Utvnið sem: Ritvél 4. Unniö: Heimilisbókhald. 5. Unnið: Viöskiptabókhald. 6. Gert: Fjárhagsáætlanir. 7. Spilaö: Lög sem þú semur. 8. Líkt eftir: Geimskutlu. 9. Spilaö: Golf. 10. Og svo eru það allir leikirnir. Er hægt aö hugsa sér betri fermingargjöf? Vegvísinn á framtíöina. Verð frá kr. 8.625. Leikjakassetta og námskeiö innifalið. iSAMEIND HF Grettisgötu 46. Símar 21366 og 25833. Akranes: Bókaskemman. Akureyri: Hljómver. Húsavík: Radíóstofa S.B.G. Höfn: Radíóþjónustan. Reykjavík: Bókabúö Braga. HRINGDU — KOMDU — SKOÐAÐU OPGL KADGTT I984 Opel Kadett 1984 hefur vakiö svo mikla athygli, að fyrsta sendingin hingað er nærri uppseld. Ástæðan er einföld. Opel Kadett samsvarar þeim kröfum sem gerðar eru til fyrsta flokks fjölskyldubíla. Hann sameinar vestur-þýska vand- virkni, tækniþekkingu og reynslu. Sparneytni, lipurð, öryggi og kraftur. Kadett. Bensínnotkun 6,5 lítrar á hverjum 100 kílómetrum í blönduðum akstri. Verð frá 272,000 Sex ára ryðvarnarábyrgð. (miðaðvið gengi 16.2.1984) HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.