Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 27

Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984 75 staðreynd — realisminn, bitur og sár. Hún fleygir bókstaflega fram- an í mig staðreyndunum og lýsir það upp fyrir mér í einni svipan — betur en ótal ópersónulegar, fjar- ritaðar fréttir undanfarinna mán- aða — hvernig komið er fyrir hinu unga Kongólýðveldi, þessu þjóðar- barni, sem sjálfskapaðir forsjár- menn hafa vanrækt að ala upp og mennta og búa undir óblíð átök lífsbaráttunnar að öðru leyti. Svo skal sveinninn skyndilega standa á eigin fótum, mitt í hringiðu alls kyns magnaðra ytri áhrifa — þar sem harðsnúinn og ísmeygilegur áróður úr austri og vestri bylur á vanþroska hans, eins og óveður á ótraustum vegg. Margvísleg öfl berjast um yfirráðin yfir hugsun- um, tilfinningum og kenndum, en reynsluleysi og vanþekking leggja hinu versta lið, — og sveinninn hnígur lémagna í helmyrkt skaut ógæfunnar. V Þannig kemur myndin af hinni syrgjandi Pauline Lumumba með veruleikann til mín, veruleika, sem ég hafði áður í rauninni að- eins séð djarfa fyrir gegnum móðu fjarskans. Hún ber mig á vit hinn- ar stuttu, en átaklegu sögu Kongó- ríkis, flettir blöðunum hægt og bendir mér á aðalatriðin. — Og þessi saga er jafnframt í megin- dráttum persónuleg saga manns hennar, Patrice Lumumba. Hann var unglingurinn, sem skyndilega losnaði undan oki van- rækts og vanhugsaðs uppeldis, fagnaði frelsinu ákaflega — og raunar af lítilli hófsemi — stefndi hátt, en var svo naumt að heiman búinn, að hin langa ganga frá kot- inu til kóngsríkisins reyndist hon- um ofraun — og hann féll í trölla- hendur. Ekki hafði hann heldur til að bera gæfu yngsta karlssonar í ævintýrinu, sem vann svo hylli Trítils, Lítils og fuglanna, að þeir hjálpuðu honum síðar, er í harð- bakka sló, að sigrast á þrautum þeim, sem skessan stóra lagði fyrir hann, svo að hann eignaðist kóngsdótturina — og loks allt kóngsríkið. Patrice Lumumba náði aldrei að vinna kóngsríki hugsjóna sinna. Hann varð tröllunum að bráð — eins og hinir eldri karlssynir, sem vísuðu fyrrnefndum hollvættum á bug og töldu, í einþykkni sinni og sjálfsþótta, að sér væru allir vegir færir. Já, þannig er þetta „svið“ í huga mínum nú — er ég lít til baka. En svona skrifar maður ekki hinar daglegu fréttir. — Fréttir eru frá- sagnir af staðreyndum — ekki hugleiðingar ... Sorg í svörtu hjarta — það er nafnið sem ég hefi gefið myndinni af Pauline Lumumba í huganum. En hennar „svarta“ hjarta er ekki hið eina í suður Kongó, sem sorgin hefir kramið undanfarna mánuði. Bræður hafa borizt á banaspjót, hungursneyð hefir geisað. Sak- laus, svört börn hafa tærzt upp, soltið til bana við horaðan barm mæðra sinna. Ógnir, skortur og hvers kyns eymd hefir orðið hlutskipti þessarar sundruðu þjóðar, sem fagnaði fengnu frelsi á miðju liðnu sumri og skyggndist vonglöð fram á veginn. — Veru- leikinn er harður og miskunnar- laus, þegar hann bregður fæti fyrir björtustu vonir okkar, hvort sem við erum hvít eða svört — hvort sem okkur er skákað niður við heimskautsbaug eða miðbaug jarðarinnar, þessa sandkorns, sem skal vera heimili okkar allra, en við getum aldrei komið okkur saman um að deila í friði. VI Fjarlægin er komin til mín, vegna sterkra áhrifa „Gauguin- málverksins" af Pauline Lum- umba. Og ég minnist nú annarrar myndar af henni, sem áður hafði birzt víða. Sú mynd var líka þrungin sorg og kvíða. Hún sat flötum beinum utan við heimili sitt í Leopoldville og fórnaði hönd- um til himins í nístandi angist — en með eðlislægan þokka náttúru- barnsins í hreyfingunni. Eins og í sorgardansi. Hjá henni stóð snot- ur, svartur drenghnokki — Roland litli, tveggja ára sonur þeirra hjónanna. — Konunni hafði borizt fréttin um, að maður hennar hefði verið fluttur í fangelsi í Katanga, þar sem erkióvinurinn réð ríkjum, Moise Tsjombe. — Skyldi henni ekki þá þegar hafa boðið í grun, að hverju fór? Og ef litli drengurinn hefir nú spurt: — Mamma, hvar er hann pabbi? Hverju skyldi hún þá hafa svarað? — Þótt hún hefði reynt að útskýra það fyrir honum, hefði barnssálin varla skilið annað en það að pabbi var ekki heima. Að hann væri langt í burtu, og kannski væri langt þangað til hann kæmi heim. En ef Roland litli hefir nú hald- ið áfram að spyrja, eftir 13. febrú- ar, — hvað hefir konan þá sagt? Hafi hún getið stunið einhverju upp, hefir það sennilega verið: — Roland minn, hann pabbi þinn er kominn til guðs — og honum líður nú ósköp vel. Er það ekki þetta, sem flestar kristnar mæður segja litlu barni, er missir föður sinn? Og ef barninu hefur á annað borð verið sagt frá guði, þá skynjar það furðufljótt, með vissum hætti, í sinni ungu sál, hvað það þýðir, að pabbi sé hjá guði. — En kannski er Pauline Lumumba alls ekki viss um, hvar maðurinn hennar er nú. Ef til vill veit hún það eitt, að líkami hans liggur grafinn á leyndum stað — einhvers staðar í frumskóginum í ríki Tsjombes. VII Norður í Kaíró dveljast þrjú svört börn frá Kongó og njóta gistivináttu Nassers hins egypzka. Þau heita Francois, Patrice og Juliane — og bera öll eftirnafnið Lumumba. — Þau eru orðin það stálpuð, að það þarf ekki að segja þeim, að pabbi sé kominn til guðs. Þeim er full-ljós, já allt of ljós, sá ógnar-sannleikur, að pabbi er dá- inn — að hann pabbi er ekki leng- ur hér, og þau fá aldrei framar að sjá hann. Hvort sem hann er hjá guði, eða bara einhvers staðar — eða hvergi. Hér vakir líka helmyrk sorg í svörtum hjörtum. H.E. Creinin er írá 61. — Haukur Ei- ríksson rar hladamaður á Morgun- hlaðinu en er nú iátinn. Skírdag ’ laugardaginn 21. apríl Annan páskadag Lokað föstudaginn langa og páskadag. Muniö heimsendingarþjónustuna Þú hringir og viö sendum matinn Allir á Ask Allir á Ask ASKUR Suðurldndsbmut 14. Sími 81344. Gæðin eru landsþekkt mA|bn IIIVIIWI Þaö er auöséð aö þeir klæöast mclkc Hönnun og litir eftir nýjustu tísku. Gæöin veita öryggi — öryggi sem helst þótt flíkin sé margþvegin. Snorrabraut Simi 13505 Glæsibæ Simi 34350 ÍJ 1.1 .» liU Jv.*i 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.