Morgunblaðið - 05.07.1984, Side 48
OPIÐALLA DAGA FRA
KL. 11.45-23.30
AOSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI. SlMI ’16X*
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
■■■
Sjílfsagt munu margir fagna þrí
að fi aftur Uekiferi til að fylgjast
með fólskuverkum JR í Dallas.
Dallas-þætt-
irnir fáan-
legir á
myndböndum
Borgfilm og OLÍS hafa
fengið einkaleyfí á
dreifíngu þáttanna
SAMNINGAR hafa tekist milli
Borgfilm hf. og Olíuverslunar ís-
lands hf. annars vegar og framleið-
enda Dallas-sjónvarpsþáttanna
hins vegar um einkaleyfi á dreif-
ingu þáttanna á myndbðndum bér
á landi. Verða þættirnir fáanlegir á
myndböndum á flestum bensín-
stöðvum OLÍS um allt land og
munu fyrstu fjórir þættirnir koma
til landsins um miðjan júlí og síðan
einn á viku, en alls verða þættirnir
um eitt hundrað talsins.
Þáttaröðin hefst þar sem frá
var horfið í íslenska sjónvarpinu,
en sjónvarpið hafði sýnt 103
þætti þegar ákvörðun var tekin
um að hætta sýningum. Nú hafa
verið framleiddir 206 Dallas-
þættir í Bandaríkjunum og felur
samningur hinna islensku aðila
og bandarísku framleiðendanna i
sér einkaleyfi á dreifingu þeirra
þátta sem þegar hafa verið gerð-
ir. Dallas-þættirnir eru taldir
með vinsælasta sjónvarpsefni
sem framleitt hefur verið og er
talið að um 350 milljón manns
horfi á þættina í viku hverri viða
um heim.
Könnun stjómmálafræðings á viðhorfum Islendinga til öryggis- og utanríkismála: .
Mikill meirihluti styður
hefðbundna utanríkisstefnu
— Tveir þriðju vilja taka gjald af varnarliðinu
— Fjórðungur kjósenda Alþýðubandalagsins
styður Atlantshafsbandalagið
MIKILL meirihluti íslenskra kjós-
enda styður tvo meginþætti þeirrar
utanríkisstefnu sem stjórnvöld hafa
fylgt undanfarna áratugi; aðild að
Atlantshafsbandalaginu og dvöl
bandarísks varnarliðs í landinu. Aft-
ur á móti eru tveir þriðju hlutar kjós-
enda sammála almennt orðaðri
hugmynd um gjaldtöku af varnarlið-
inu.
Þetta er höfuðniðurstaða um-
fangsmikillar skoðanakönnunar
sem ólafur Þ. Harðarson stjórn-
málafræðingur hefur gert á við-
horfum íslendinga til öryggis- og
utanríkismála, en öryggismála-
nefnd gaf könnun hans út í rit-
gerðarformi í gær. 1 fréttatilkynn-
ingu nefndarinnar segir að könn-
unin sé fyrsta fræðilega rann-
sóknin sem veiti upplýsingar um
afstöðu íslenskra kjósenda til
þessara mála.
Yfirgnæfandi meirihluti kjós-
enda Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks og
Bandalags jafnaðarmanna er
hlynntur aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og sérstaka athygli
vekur að um 25% — eða fjórðung-
ur — kjósenda Alþýðubandalags-
ins eru einnig hlynnt Atlants-
hafsbandalaginu.
Könnun Ólafs var framkvæmd
eftir alþingiskosningarnar í fyrra
og náði sá hluti hennar sem greint
er frá hér að framan til 1003 kjós-
enda. Auk þess voru 329 kjósendur
á Reykjavíkursvæðinu spurðir
nokkurra annarra spurninga er
tengjast utanríkis- og öryggismál-
um, s.s. um það með hvaða heims-
hluta íslendingar eigi samleið, um
skoðun á styrjaldarlíkum, um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum og friðarhreyf-
ingar, um þróunaraðstoð og víg-
búnað Atlantshafsbandalagsins.
Af niðurstöðum þessa hluta
könnunarinnar má nefna að 90%
- £8$
Stund milli stríða
MorRunblaóió/Helgi.
Varðskipin hafa að undanförnu sinnt flutningum fyrir vitana allt I kringum landið auk annarra starfa. Á
dögunum voru varðskipsmenn við Galtarvita, en þar urðu nýlega vitavarðarskipti. Við flutningana kom
TF-GRÓ, þyrla Landhelgisgæzlunnar, í góðar þarfir og var myndin tekin þegar varðskipsmenn tylltu sér á
lendingarbúnað þyrlunnar er stund gafst til að slappa af.
Kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði:
Fulltrúar bandarísks
fyrirtækis til viðræðna
Fulltrúar frá ALCOA koma til viðræðna um álver
NÆSTUNNI er von á fulltrúum frá bandarísku stórfyrirtæki hingað til
ds til viðræðna um hugsanlega aðild að byggingu kísilmálmverksmiðju á
■ ' yðarfirði. Einnig eru væntaníegir fulltrúar frá bandaríska álfyrirtækinu
('OA til að kynna sér aðstæöur vegna hugsanlegrar aðildar þeirra að
gingu nýs álvers á íslandi.
Fulltrúar bandaríska stórfyrir-
kisins koma hingað til lands 16.
iiií næstkomandi að sögn Birgis
-leifs Gunnarssonar, formanns
oriðjunefndar. Birgir ísleifur
gði að í vetur hefði verið rætt
ið 8 fyrirtæki um samvinnu við
.ggingu kísilmálmverksmiðju á
ceyðarfirði. Fulltrúar þessa
andaríska fyrirtækis hefðu
ásamt 2—3 öðrum fyrirtækjum
óskað eftir nánari upplýsingum og
kæmu þeir nú hingað til frekari
viðræðna. Sagði Birgir Isleifur að
þetta væri stórt efnaiðnaðarfyr-
irtæki sem væri stór notandi kís-
ilmálms en ræki einnig litla kís-
ilmálmverksmiðju. Vonaðist hann
til að það myndi skýrast eftir
þennan fund hvort um raunveru-
legan áhuga væri að ræða hjá
þessu fyrirtæki á kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði. Auk banda-
ríska fyrirtækisins hafa, eins og
kunnugt er, farið fram fram-
haldsviðræður við norska fyrir-
tækið Elkem, en einnig er jap-
anskt stórfyrirtæki og tvö þýsk
fyrirtæki enn í dæminu varðandi
aðild að byggingu verksmiðj-
Fulltrúar ALCOA koma hingað
til lands 18. júlí og fer aðalfor-
stjóri fyrirtækisins fyrir hópnum.
ALCOA er annað af tveimur
stærstu álfyrirtækjum heims og
koma þeir til að kynna sér aðstæð-
ur í sambandi við byggingu nýs
álvers hér á landi að sögn Birgis
ísleifs. Sagði Birgir að viðræður
við þá væru mun skemmra á veg
komnar en viðræðurnar við full-
trúa ALCAN sem nýlega voru hér
á ferð, og skoðuðu meðal annars
aðstæður í Eyjafirði. Birgir ísleif-
ur sagði að það næsta sem gerðist
í sambandi við ALCAN væri það
að í ágúst færi hópur Eyfirðinga
til Kanada til að skoða álver, bæði
ný og gömul, sérstaklega með til-
liti til mikilla tækniframfara sem
orðið hefðu í mengunarvörnum.
Síðan færu fulltrúar stóriðju-
nefndar til framhaldsviðræðna í
Kanada í lok september.
telja að íslendingar eigi „mesta
samleið" með Norðurlöndunum og
70% telja að við eigum „næst-
mesta samleið" með Vestur-
Evrópu.
Allur þorri þátttakenda, eða
86%, var annaðhvort „alveg sam-
mála“ eða „frekar sammála"
hugmynd um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum og
66% þátttakenda kváðust „alveg
sammála" eða „frekar sammála"
því að friðarhreyfingar, eins og
þær sem sprottið hafa upp í
Bandaríkjunum og Evrópu, væru
spor í rétta átt.
70 af hundraði lýstu sig sam-
mála staðhæfingu um að Atl-
antshafsbandalagið mætti ekki
dragast aftur úr Varsjárbandalag-
inu hernaðarlega ef tryggja ætti
frið, en 17% voru þessu ósammála.
Álíka margir voru sammála og
ósammála þeirri fullyrðingu að ís-
lendingum væri nauðsynlegt að
hafa einhvers konar hervarnir í
landinu.
Sjá nánar í miðopnu blaðsins.
Farþeginn
stökk úr
flugvél-
inni í
1200 m hæð
FARÞEGI sem hafði pantað leigu-
flug fyrir einn að Reykhólum I
Austur-Barðastrandarsýslu, fór á
allsérstæðan hátt út úr flugvél-
inni, hann stökk út I 1200 metra
hæð.
Þegar farþeginn, Jón Sveins-
son frá Miðhúsum, foringi i
norska hernum, gekk um borð í
eina af flugvélum Leiguflugs
Sverris Þoroddssonar á Reykja-
vikurflugvelli fyrir nokkrum
dögum, dró hann úr pússi sinu
bakpokahylki og hnýtti á sig.
Þegar flugmaðurinn, Reynir
Ólafsson, hugðist lækka flugið
að Reykhólum bað Jón hann að
halda 1200 metra hæð, þvi hann
hygðist stökkva út með fallhlff
sem var f bakpokanum. Stökkið
gekk að óskum og fslenski for-
inginn f norska hernum sveif i
fallhlíf niður í sveitina sína i
sumarleyfið. Vélin lenti sfðan á
Reykhólum, með Mackintosh-
dósirnar og fleira góðgæti
handa vinum og vandamönnum.
í samtali Mbl. við Jón kvað
hann þetta f fyrsta skipti sem
hann stykki i fallhlff á íslandi,
en hann hefði að baki 30 fallhlff-
arstökk í Noregi þar sem hann
dvelur í Bergen hjá norska
hernum. Hann sagði að ástæðan
fyrir stökkinu hefði einfaldlega
verið sú að hann hefði langað að
prófa að stökkva heima og það
hefði ekkert verið þvi til fyrir-
stöðu, því mjög hæfur flugmað-
ur hefði stjórnað vélinni og
hann hefði flogið að sínum
óskum. „Nei, nei, ég var ekkert
að stökkva í faðm unnustu,"
svaraði hann, „ég var að koma
heim til að heimsækja fólk mitt
og vini í sveitinni."