Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 11
MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 11 Tíu íslendingar á Ólympíuleikum fatlaðra 1984 í Bandaríkjunum ÓLYMPÍULEIKAR fatlaöra 1984 eru að þessu sinni haldnir í tvennu lagi, annars vegar í Bandaríkjun- um, fyrir hreyflhamlaða, og hins vegar á Knglandi, fyrir mænuskað- aða. Fyrri Ólympíuleikarnir, fyrir hreyfihamlaða, voru haldnir í New York-borg, dagana 17. til 29. júní sl. Keppendur á leikunum voru um átján hundruð og komu frá 54 löndum. Tfu íslendingar tóku þátt í Ólympíuleikunum, þau Jónas Óskarsson, Haukur Gunnarsson, Sigrún Pétursdóttir, Oddný Óttarsdóttir, Guðjón Skúlason, Hafdís Ásgeirsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir, Snæbjörn Þórð- arson, Eysteinn Guðmundsson og Sævar Guðiónsson. Blm. Mbl spjallaði við Olaf Jensson, for- mann íþróttasambands fatlaðra, um ólympíuleikana í New York, en hann fór utan með íslensku þátttakendunum, sem farar- stjóri hópsins. „Ronald Reagan, Bandaríkja- forseti, setti ólympíuleikana 1984 við hátíðlega athöfn, sunnudaginn 17. júní,“ sagði Ólafur. „Keppnin hófst síðan daginn eftir og var þátttakend- um skipt niður í flokka eftir fötl- un. Keppnin stóð yfir nánast frá morgni til kvölds alla dagana, og keppt var í öllum greinum íþrótta. íslensku þátt- takendurnir, sem flestir byrjuðu ekki að æfa íþróttir fyrir alvöru fyrr en sl. haust, stóðu sig allir mjög vel, og unnu sex þeirra til verðlauna." — Hvernig var aðstaðan fyrir þátttakendur Ólympíuleikanna? „Aðstaðan var öll til fyrir- myndar og fólkið sem stóð að leikunum allt hið alúðlegasta. Þátttakendur leikanna bjuggu ásamt aðstoðarfólki sínu í Hofstra University í Nassau County, þar sem dekrað var við okkur, með góðum mat og fleiru." — Þú segir að dagurinn hafi verið strangur fyrir þátttakendur. Eitthvað hafa þeir þó gert sér til skemmtunar að loknum erfiðum keppnisdegi? „Já, vissulega var það svo. Á hverju kvöldi var annaðhvort diskótek fyrir þátttakendur eða frægar hljómsveitir komu og skemmtu, og gáfu þær allar vinnu sína. Til dæmis kom hinn frægi Michael Jackson og skemmti eitt kvöldið. Á kvöldin gafst því þátttakendum kostur á að koma saman og kynnast hverjir öðrum, öðruvísi en að- eins i keppni. íslensku þátttak- endurnir voru við keppni alla Ólafur Jensson, formaður íþrótta- sambands fatlaðra og fararstjóri íslensku ólympíufaranna. daga nema einn og notuðum við þá tækifærið og fórum í siglingu í kringum Manhattan. Síðan var okkur boðið til hádegisverðar hjá íslensku sendiherrahjónun- um hjá Sameinuðu þjóðunum, Herði Helgasyni og Söru konu hans. Ólympíuleikarnir á Long Is- land tókust að allra mati mjög vel og sá vinskapur sem tókst þar þátttakenda á milli verður vonandi varanlegur," sagði ólaf- ur. Af íslensku keppendunum tíu unnu sem áður segir sex til verð- launa á Ólympíuleikunum. Þeir eru Jónas Óskarsson sem fékk silfurverðlaun í sundi; Sigrún Pétursdóttir sem fékk ein silfur- verðlaun og tvenn bronsverðlaun í sundi; Haukur Gunnarsson sem fékk tvenn bronsverðlaun í hlaupum; Oddný Óttarsdóttir sem fékk ein bronsverðlaun I sundi; Hafdís Gunnarsdóttir sem fékk tvenn bronsverðlaun í borðtennis, annars vegar í ein- liðaleik og hins vegar í tvíliða- leik ásamt stöllu sinni og nöfnu Hafdísi Ásgeirsdóttur. Blm. spjallaði við þrjá af verðlauna- höfunum, þau Sigrúnu Péturs- dóttur, Oddnýju Óttarsdóttur og Hauk Gunnarsson. „Ferðin var erfið, en skemmtileg“ Sigrún Pétursdóttir er 15 ára gömul og vann sem áður segir til verðlauna í sundi. „Ég byrjaði að æfa sund fyrir tveimur árum í Hátúni hjá Erlingi Jóhannssyni, og hef æft þar síðan. Ég hef keppt áður í sundi í Noregi, Þrír af íslensku verðlaunahöfunum á ólympíuleikum fatlaðra 1984, talið frá vinstri: Oddný Óttarsdóttir, Sigrún Pétursdóttir og Haukur Gunnars- SOD. Mbl. Emilía. Danmörku og Sviþjóð á bama- og unglingamóti Norðurlanda. Hins vegar hef ég aldrei áður keppt á Olympíuleikum fatlaðra, og þó að ferðin hafi verið erfið þá var hún mjög skemmtileg. Mér fannst líka mjög gaman að kynnast nýju fólki frá svo mörg- um löndum,“ sagði Sigrún. „Hljóp í krapinu í fyrravetur“ Haukur Gunnarsson er 17 ára gamall og var að koma úr öku- tíma þegar blm. bar að garði. Haukur vann til verðlauna í tvö hundruð og fjögur hundruð metra hlaupi. „Ég byrjaði ekki að æfa hlaup fyrr en sl. haust. Islenskir vetur eru ekki beint fallnir til íþróttaæfinga úti við, en ég lét mig hafa það og hljóp í krapinu í fyrravetur. Þó byrjaði ég ekki að hlaupa fyrir alvöru fyrr en snjóa tók að leysa af göt- unum. Ég hef keppt í „boccia“, sem er boltaleikur, á barna- og unglingamóti Norðurlanda, í Noregi og Svíþjóð, en aldrei komist á Olympíuleika áður. Ég á það allt einum manni að þakka, Júlíusi Arnarsyni, að ég komst á þessa leika, en hann þjálfaði mig í vetur,“ sagði Haukur. „Bjóst aldrei við að komast á leikana“ Oddný Óttarsdóttir er 15 ára gömul og vann til verðlauna í sundi. „Ég byrjaði ekki að æfa sund fyrir alvöru fyrr en sl. haust, og bjóst því aldrei við að komast á leikana. Ég hef keppt á á barna- og unglingamóti Norð- urlanda, í Noregi og Svíþjóð. en þá æfði ég ekkert. Mér fannst æðislega gaman { þessari ferð. Það var svo margt að sjá og svo kynntist ég svo mörgu fólki. Ég eignaðist meira að segja tvo pennavini í Bandaríkjunum,“ sagði Oddný hróðug. Olafur Jensson var að lokum spurður að því hvernig aðstaða til íþróttaæfinga fyrir fatlaða væri hér á landi. „Aðstaða til æf- inga sumra greina er vægast sagt mjög bágborin hérlendis og ber helst að nefna sund í því sambandi. Hins vegar er hún góð í sumum greinum s.s. borðtenn- is. Það sem hefur háð fötluðu íþróttafólki mest er það hvað að- staðan til íþróttaiðkana er dreifð um borgina. Þetta stendur þó til bóta því í bígerð er að reisa íþróttahús í Hátúni, fyrir Iþróttafélag fatlaðra í Reykja- vík. Verður það fyrsta íþrótta- mannvirkið á íslandi sem sérstaklega er hannað fyrir fatl- að fólk. Mig langar til að koma hér að í lokin örlitlu þakklæti til þjálf- ara og aðstandenda íslensku ólympíufaranna, sem gerðu þeim kleift að komast á ólympíuleik- ana 1984,“ sagði Ólafur Jensson að lokum. Síðari Ólympíuleikar fatlaðra 1984, fyrir mænuskaðaða, verða haldnir í borginni Aylesbury á Englandi, dagana 22. júlí til 1. ágúst nk. Átta íslendingar munu taka þátt í leikunum, en þátttak- endur verða þar alls tólf hundr- uð. 110 þjóðhátíð Vestmann- eyinga verður haldin um verslunarmannahelgina UM NÆSTU verslunarmannahelgi verður haldin 110. þjóðhátíð Vestmann- eyinga og ei undirbúningur að hefjast um þessar mundir. íþróttafélögin í Vestmannaeyjum, Þór og Týr, hafa skipst á að undirbúa þjóðhátíðina og er það Þór sem sér um framkvæmdir að þessu sinni. Nýlega hélt þjóðhátíðarnefnd blaðamannafund til þess að kynna þjóðhátíðina og það sem þar verð- ur á dagskrá. Að sögn Ásmundar Friðrikssonar er mikil áhersla lögð á að hafa dagskrána sem fjöl- breyttasta og er stefnt að því að hafa atriði fyrir fólk á öllum aldri. Reiknað er með að dagskráratrið- in verði i kringum 60 svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikið verður um fasta liði, sem heimamenn sjá um, til dæmis klifur og bjargsig, svo eitthvað sé nefnt. Einnig verða fjölmörg önnur skemmtiatriði og munu hljómsveitirnar Daríus og Hljómsveit Stefáns P. koma fram ásamt Brúðubílnum, HLH-flokkn- um, Hálft í hvoru o.fl. Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þjóð- hátíðarinnar. Hann sagðist vonast til að um 5—6000 manns kæmu á þjóðhátiðina, eða sem allra flestir til þess að hátíðin stæði undir sér. Þjóðhátíðin er margra milljóna króna fyrirtæki og er kostnaður þegar orðinn allnokkur. I tilefni þjóðhátíðarinnar hefur verið valið merki og er það mynd af teistu. Einnig hefur verið valið þjóðhátíðarlag og er það eftir Ása í Bæ. Stefnt er að því að gefa lagið út á hljómplötu. Mikil hefð hefur komist á í sam- Ljósm. KEE. Á myndinni má sjá nokkra skemmtikrafta sem koma munu fram á þjóðhátíð- inni ásamt þeim Ásmundi Friðrikssyni, Óskari Óskarssyni og Þór Vil- hjálmssyni úr þjóðhátíðarnefndinni. bandi við hátíðina. Heimamenn tjalda t.d. allir í sérstökum tjald- búðum og til þess að komast í dal- inn ferðast menn með vörubílum. Bekkjum er komið fyrir á vöru- bílspöllunum og er síðan tjaldað yfir. Þessir bílar hafa verið nefnd- ir bekkjabílar. Langstærstur hluti heimamanna tekur þátt í hátíð- inni og alltaf kemur nokkuð stór hópur af fólki af meginlandinu. Áð lokum vildu þeir þjóðhátíð- arnefndarmenn minna á að þessi hátíð er byggð upp sem skemmtun fyrir fólk á öllum aldri og sé vand- að til hennar á allan hátt. AMERÍKA PORTSMOUTH/NORFOLK City of Perth 24. júlí Bakkatoss 8. ágúst City of Perth 22. ágúst Bakkafoss 5. sept. NEW YORK City of Perth 25. júli Bakkafoss 7. ágúst City of Perth 21. ágúst Bakkafoss 4. sept. HALIFAX Bakkafoss 11. ágúst Bakkafoss 8. sept. BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Álafoss 8. júli Eyrarfoss 15. júlí Álafoss 22. júlí Eyrarfoss 29. júlí FELIXSTOWE Alafoss 9. júlí Eyrarfoss 16. júli Álafoss 23. júlí Eyrarfoss 30. júlí ANTWERPEN Álafoss 10. júlí Eyrarfoss 17. júlí Álafoss 24. júli Eyrarfoss 31. júlí ROTTERDAM Álafoss 11. júli Eyrarfoss 18. júlí Álafoss 25. júlí Eyrarfoss 1. ágúst HAMBORG Álafoss 12. júlí Eyrarfoss 19. júlí Álafoss 26. júlí Eyrarfoss 2. ágúst GARSTONE Grundarfoss 11. júli LISSABON Vessel 25. júli LEIXOES Vessel 26. júlí BILBAO Vessel 27. júlí NORDURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN Oettifoss 6. júlí Mánafoss 13 júlí Dettifoss 20. júlí Mánafoss 27. júli KRISTIANSAND Dettifoss 9. júlí Mánafoss 16. júlí Dettifoss 23. júlí Mánafoss 30. júlí MOSS Dettifoss 6. júlí Mánafoss 17. júlí Dettifoss 20. júlí Mánafoss 31. júli HORSENS Dettifoss 11. júlí Dettifoss 25. júli GAUTABORG Dettifoss 11. júlí Mánafoss 18. júlí Dettifoss 25. júlí Mánafoss 1. ágúst KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 12. júlí Mánafoss 19. júlí Dettifoss 26. júlí Mánafoss 2. ágúst HELSINGJABORG Dettifoss 13. júlí Mánafoss 20. júlí Dettifoss 27. júli Mánafoss 3. ágúst HELSINKI Elbström 6. júli Elbström 3. ágúst GDYNIA Elbström 9. júli ÞÓRSHÖFN Mánafoss 14. júli VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka fra REYKJAVÍK alla mánudaga frá ISAFIRÐI alla þriðjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.