Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
5
Kolaveiðar í dragnót á Faxaflóa:
Tæpar 450 lest-
ir komnar á land
— Baldur KE með 70 lestir
Kartöfluinnflutningurinn í sumar:
Einkafyrirtæki fluttu
inn 600 tonn af kartöflum
KOLAVEIÐI í dragnót i Faxaflóa
hefur veriö mjög góð síðan hún hófst
þann 15. þessa mánaðar. Á mánudag
voru alls komnar um 450 lestir á
land af 1.500 lesta heildarkvóta. 10
bátar frá vinnslustöðvum i Akra-
ncsi, Reykjavík, Hafnarfirði, Njarð-
vík og Keflavík hafa leyfi til veið-
anna og var aflahæsti báturinn kom-
inn með tæpar 70 lestir á mánudag.
Fyrirkomulag veiðanna er með
þeim hætti auk heildarkvóta og
veiðileyfa, að botnfiskur í afla við-
komandi báta má ekki fara upp
fyrir 15% af heildaraflanum mið-
að við hverja viku í senn. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur nær allur afli bát-
anna verið fallegur koli, aðeins
upp í 10% af botnfiski. Þórir
Ólafsson, verkstjóri hjá Baldri í
Keflavík, sem gerir út samnefnd-
an bát, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að veiðin hefði gengið
mjög vel og allt að 90% aflans
væri hreinn koli og mjög góður.
örlítið slæddist með af þorski og
væri hann að meðaltali 8 til 10
kíló að þyngd slægður. Einnig
væri smávegis af smálúðu í aflan-
um.
Á mánudag var afli bátanna 10
eftir því sem næst var komist sem
hér segir: Baldur KE, 6S,5 lestir,
Reykjaborg RE, 67,2 lestir, Vikar
Ráðstefna
Ároastofnunar:
Tíu erindi
varðandi
Sturlu
Á RÁIXSTEFNU Árnastofnunar um
næstu helgi um Sturlu Þórðarson
verða haldin tíu erindi varðandi
Sturhi.
Fyrirlesarar og efni fyrirlestr-
anna eru þessi:
Marleni Ciklamini: Sturla Sig-
hvatsson’s chieftaincy. A Moral
Probe. Finnbogi Guðmundsson:
Gripið niður i íslendinga sögu
Sturlu Þórðarsonar. Guðrún Ása
Grimsdóttir: Um sárafar manna i
Islendinga sögu. Gunnar Karlsson:
Siðamat íslendinga sögu. Helgi
Þorláksson: Sturla Þórðarson —
þjóðfrelsishetja? Hermann Páls-
son: Kveðskapur Sturlu Þórðar-
sonar. Jónas Kristjánsson: Islend-
inga sögur og Sturlunga. Saman-
burður nokkurra einkenna og efn-
isatriða. Magnús Stefánsson:
Sturla Þórðarson og norska kon-
ungsvaldið. Stefán Karlsson: Al-
fræði Sturlu Þórðarsonar.
Sveinbjörn Rafnsson: Um Staða-
hólsmál Sturlu Þórðarsonar.
Ráðstefnan er haldin af því til-
efni, að á þessu ári eru liðin 700 ár
frá dauða Sturlu Þórðarsonar og
770 ár frá fæðingu hans. Ráðstefn-
an verður haldin í hátíðarsal Há-
skóla Islands og hefst klukkan 10 á
laugardaginn, 28. júlí. Hún stend-
ur til klukkan 16 þann dag og dag-
inn eftir.
Gömul djúp-
sprengja
gerð óvirk
Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar sprengdu í fyrra-
dag á Reyðarfirði gamla djúp-
sprengju, sem kom í vörpu báts.
Duflið var breskt og kom í vörp-
una á austurkantinum á Lónsdýpi.
Að sögn Sigurðar Árnasonar hjá
Gæslunni er allt eins líklegt að
sprengjan hafi komið upp á yfir-
borðið áður en verið kastað í sjó-
inn á ný.
Árnason KE, 59,6 lestir, Aðalbjörg
RE, 54,4 lestir, Guðbjörg RE, 50,4
lestir, Aðalbjörg II RE, 43,5 lestir,
Ægir Jóhannsson ÞH, 42 lestir,
Reynir AK, 34 lestir og Farsæll
GK rúmar 20 lestir. Tíundi bátur-
inn er Þorsteinn HF, en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins hóf hann ekki veiðar fyrr en í
byrjun þessarar viku og ekki
fékkst uppgefið hver afli hans
væri.
Morgunblaðiö/Guðjón.
Gert að kolanum um borð í Baldri KE.
UM 600 tonn af kartöflum hafa ver-
ið flutt til landsins á vegum sex
einkafyrirtækja í sumar. Innflutn-
ingur Grænmetisverslunar landbún-
aðarins á sama tíma, tæpum þremur
mánuðum, hefur dregist saman frá
síðasta ári um sama magn, að sögn
Guðmundar Sigþórssonar, skrif-
stofustjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu. Innanlandsneyslan er talin
vera 700—800 tonn á mánuði.
Innflutningi kartaflna á vegum
einkafyrirtækja hefur nú verið
hætt enda fer að styttast í að nýj-
ar íslenskrar kartöflur komi á
markað. Fyrirtækin og Grænmet-
isverslun landbúnaðarins munu og
liggja með einhverjar birgðir.
Kartöflur, sem hafa verið á
boðstólum í sumar, hafa reynst
misjafnlega góðar eins og við var
að búast. „Verðið hefur sömuleiðis
verið misjafnt," sagði Guðmundur
Sigþórsson, „það var býsna hátt á
tímabili en nánari samanburður á
verði kartaflna, sem fluttar voru
inn á vegum einkafyrirtækja og
þeirra, sem fluttar voru inn á veg-
um ríkisins liggur ekki endanlega
fyrir hér í ráðuneytinu."
NÆLDU ÞER I BITA
ÁÐUR EN ALLT KLÁRAST
Eins og viö höfum sagt frá er Unol eins árs
um þessar mundir. Af því tilefni buðum viö
til afmælisveislu þar sem Unol er boöinn
á sérstöku afmælisverði.
Mjög margir gestir hafa komið í l/no/veisluna
og notfært sér afmælistilboðið.
Nú dregur að lokum veislunnar og krásirnar að
ganga til þurrðar.
Unol BASIC Kr. 218.000.-
aoMnmmB
MEST SELDIBILL
Á ÍSLANDI