Morgunblaðið - 26.07.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
15
Hjaltasyni, yfirverkstjóra hjá
Hraðfrystihúsinu hf., viðurkenn-
ingarskjal í lok ræðu sinnar.
I þakkarávarpi sem Einar
Garðar flutti sagði hann m.a. að
fyrir sig og starfsfólk Hraðfrysti-
hússins væri viðurkenningar-
skjalið jafnvirði fimmfaldrar
þyngdar sinnar í gulli. Hann
sagði að starfsfólkið hefði unnið
markvisst að því að bæta gæði
hráefnisins og skila fullkominni
vinnu, viðurkenningin sýndi að
þvi marki væri náð. Hann þakk-
aði Magnúsi fyrir að koma alla
leið frá Ameríku til að veita þeim
þessa viðurkenningu. Hann gat
einnig Guðna Kristins Gunnars-
sonar, sem nú yr nýlátinn, en
hann starfaf e-rum saman að
gæðamálum fyrir Coldwater og
hvatti stöðugt islenskt i'sk-
vinnslufólk til að gæta stöðu
sinnar.
Einar Garðar sagði jafnframt í
stuttu spjalli við fréttaritara
Morgunblaðsins, að hann hefði
alla tíð lagt megin áherslu á
gæði. „Ég þori bara ekki öðru,
hvað heldur þú að fólkið mitt
segði ef ég stæði mig ekki,“ sagði
Einar, en hann er sonur Hjalta
Einarssonar hjá SH, afi hans er
Einar Guðfinnsson i Bolungarvík
og föðurbróðir hans er Guðfinnur
Einarsson, stjórnarformaður
Coldwater Seafood. „Maður er al-
inn upp við umræðu um fisk og
hverju fiskstykki sem maður
sporðrenndi i eldhúsinu heima
fylgdi áminning frá pabba um
vöndun. En besta gæslan er
fræðslan," sagði Einar Garðar,
„og þar er mikilvægt að gott sam-
starf sé milli allra aðila. Og hvort
sem menn gera sér grein fyrir því
eða ekki, þá er nefið mikilvæg-
asta líffærið hjá því fólki sem
leggur grundvöllinn að efnahag
þessarar þjóðar," sagði þessi ungi
og áhugasami verkstjóri í
Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal
að lokum.
Úlfar.
Kjaradeila BSRB:
Fundur í
næstu viku
„ÉG ER búinn að hafa samband við
báða aðila og geri ráð fyrir að það
verði fundur um miðja næstu viku,“
sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari er Morgunblaðið innti
hann eftir því hvort hann væri búinn
að boða fund með Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja og ríkisvaldinu.
Eins og sagt hefur verið frá í
fréttum vísaði BSRB málinu til rík-
issáttasemjara, strax og bandalagið
hafði tekið ákvörðun um að segja
upp kjarasamningi sínum. Ákvæði
eru um það, að hvor aðila geti vísað
kjaradeilum til ríkissáttasemjara,
ef þeim býður svo við horfa.
Guðlaugur sagði ekki komna
nákvæma tímasetningu á fundinn,
en hann yrði um miðja vikuna, fjar-
vistir og annað gerðu það að verk-
um að af fundi gæti ekki orðið fyrr.
Hárgreiðslu-
sveinar funda
áfram í dag
NÝR fundur með hárgreiðslu-
sveinum og hárgreiðslumeisturum
hefur verið boðaður í dag klukkan
13.00. Síðasti fundur með deiluað-
ilum var haldinn á þriðjudaginn
og var árangurslaus.
Hárgreiðslusveinar hafa boðað
verkfall á morgun og aftur föstu-
daginn 3. ágúst hafi samningar
ekki tekist.
^\uglýsinga-
siminn er 2 24 80
Arnarnesyegur:
I athugun
að færa
vegarstæði
ÍBÚAR í Seljahverfi og vfðar í Reykja-
vík hafa lýst yfír andstöðu við fyrir-
hugað vegarstæði Arnarnesvegar, sem
þeir telja eyðileggja útivistarsvæði við
' jaðar íbúðahverfanna.
ólafur R. Dýrmundsson er einn
af talsmönnum íbúa í Seljahverfi og
sagði hann í samtali við Mbl. að
þeir hefðu haft samband við borg-
arstjóra. Hann hefði tjáð þeim að
málið væri í athugun hjá borgar-
stjórn Reykjavíkur, en hún væri
ekki ánægð með þá tillögu, sem kom
frá skipulagsstjóra um að færa veg-
inn til. Ólafur kvað tilfærslu vegar-
ins ekki nógu róttæka, en helst vilja
íbúar að vegurinn verði færður upp
á Vatnsendahæð eða yfir hana.
— Verða snjóþyngsli á veginum
ekki meiri ef hann er fluttur svo
ofarlega?
„Nei, því fer víðs fjarri," svaraði
Ólafur. „Við íbúar hér í Seljahverfi
vitum það af reynslu, að sá vegur,
sem liggur nú yfir Vatnsendahæð,
teppist afar sjaldan, en hins vegar
eru oft miklir erfiðleikar vegna
snjóa neðan i hlíðunum. Vegurinn
myndi, að öllu óbreyttu, liggja allt
of nálægt byggð. Breytingartillagan
er að vísu til nokkurra bóta, en þó
svo að vegurinn myndi liggja
80—100 metra frá byggð, þá er það
ekki nóg þegar um er að ræða jafn
mikla umferð og þarna verður. Við
vissum fyrir löngu, að hér yrði ein-
hvers staðar vegur, en þá var talað
um að þetta yrði svokölluð tengi-
braut, sem er minni háttar vegur.
Síðan kemur fram í skipulagi í vet-
ur, að þetta á að vera stofnbraut,
sem er þjóðvegur með miklu meiri
umferðarþunga. Ég veit, að Nátt-
úruverndarráð er með þetta i at-
hugun líkt og borgarstjórn og ég
vona að þetta leysist. Hitt er svo
staðreynd, að staðsetning vegarins
er gróf skipulagsmistök. Hann átti
að vera neðar þar sem Jaðarsel
liggur núna og því átti ekki að
byggja hér efst í hverfinu. Síðan
var ákveðið að úthluta lóðum upp í
Vatnsendahæðina og þá var þessum
vegi bara ýtt á pappírunum. En nú
er þetta sem sagt í biðstöðu, en við
vonumst til að eftir beiðni borgar-
stjórnar verði þetta tekið til miklu
ýtarlegri skoðunar hjá skipulags-
stjóra," sagði Ólafur R. Dýr-
mundsson að lokum.
Sendum í póstkröfu
Sími 11620.
22,
Glæsibæ, Marz Hafnarfirði.
11620.
MEIMHATTAR
KASSETTA MEÐ
20 TOPPLÖGUM
í tilefni þess aö Steinar hf. hafa nú
gefiö út 100 íslenskar hljómplötur,
hefur 20 lögum af þessum 100 plöt-
um verið safnaö saman og gefin út á
kassettu eingöngu.
Nú þegar verslunarmannahelgin er
framundan, er kjöriö aö fá sér
hina stórgóöu kassettu Á 100,
sem inniheldur 20 íslensk úr-
valslög meö flestu vinsælasta
popptónlistarfólki landsins. Á
100 er sannarlega kassetta,
sem snúast mun á hundraði í
kassettutækjum landsmanna
á næstunni.
Á 100 er pottþétt einn
besti feröafélaginn sem
kostur er á og veröiö er
alveg hlægilega lágt, aö-
eins kr.
349
Sumarpakkarnir
okkar eru sér útbúnir fyrirOpel,
C5M, Isuzu og V/auxhall bíla.
Komið við á leið úr bænum í þjónustumiðstöð
Bílvangs sf. að höfðabakka 9. bendum hvert á land sem er.
Hringið í síma: 84710, 84245.
Sumarpakkinn inniheldur:
Kerti — kveikjulok — platínur (hamar)
reim(ar) - tvist - splendo töflur.
Sumarpakkarnirkosta frá 600-950.00 kr.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300