Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 27
Sumarbúöir í Laugagerðisskóla:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
27
Sumarbúðir hvetja
til samfélagseflingar
Borgarfirði, 19. júlí.
UNDANFARIN ár hefur sumar-
búðastarf á vegum Æskulýðsstarfs
Þjóðkirkjunnar legið niðri. Blómlegt
starf'var á 7. áratugnum. Nú í sumar
hefur rætzt ur þessum málum, þar
sem við vestanverðan Borgarfjörð,
nánar tiitekið í Laugagerðisskóla í
Eyjahreppi, eru reknar sumarbúðir á
vegum Æskulýðsstarfsins. Til að
fræðast nánar um gengi starfsins í
sumar var einn nefndarmanna, sem
sá um undirbúning sumarbúðanna,
tekinn tali, Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, aðstoðarprestur í Bú-
staðakirkju, og spurð um það, til
hvers sumarbúðir væru eiginlega.
— Það er mjög uppbyggjandi
fyrir krakka að vera í sumarbúð-
um. Ég man eftir því sjálf, þegar
ég var í sumarbúðum í ein fimm
sumur. Þaðan á ég mínar dýrmæt-
ustu minningar. Á hverjum
morgni var gengið til morgun-
bæna og ekki farið að sofa á kvöld-
in fyrr en að kvöldbænunum lokn-
um. Það var útbúin kapella á
hverjum stað og t.a.m. vissi ég
ekki nema fyrir mánuði síðan, að
það væri engin kapella í Klepp-
járnsreykjaskóla, þar sem sumar-
búðirnar voru.
Sumarbúðirnar unnu að því, að
hvert barn fengi að njóta sín,
hvert barn sýndi öðru væntum-
þykju og lærði að umbera hvert
annað, þar sem þetta er oft í
fyrsta skipti, sem þau fara að
heiman. Allt þetta tengdi okkur
svo góðum böndum og elskusemi
ríkti í garð hvers og eins.
Þá var frú Unnur Halldórsdótt-
ir meðal annarra sumarbúðastjóri
og hefur verið mjög skemmtilegt
að vinna með henni að undirbún-
ingi sumarbúðanna í Laugagerð-
isskóla. Höfum við reynt að hafa
starfsemina í anda þeim, sem við
munum báðar frá Kleppjárns-
reykjum.
Enn eru laus pláss
Hver flokkur er 12 daga í einu
og tel ég það vera mjög hæfilega
lengd, því að ég tel, að krakkarnir
geti ekki náð eins góðu sambandi á
einni viku eins og á svona löngum
tíma. Fyrsta vikan fer oft í það að
kynnast og brjóta ísinn, og því er
unnt að byggja upp gott samfélag.
— Það er mjög góð aðstaða til
í sumarbúðunum er hægt að sulla án
þess að pabbi og mamma séu að
skamma mann sí og æ fyrir að vera
blautur í lappirnar.
Solveig L. Guðmundsdóttir
leikja og sundlaug er á staðnum.
Það eru fjögurra manna heima-
vistarsvefnherbergi fyrir samtals
44 krakka, og höfum við stelpur og
stráka saman í flokkum.
Hvernig hefur aðsókn verið í
sumar?
— Hún hefur bara verið góð, en
þó eru laus pláss í síðasta hópn-
um, sem kemur þann 30. júlí og fer
heim 10. ágúst.
Sumarbúðastjórar í sumar hafa
verið Bjarni Karlsson, æskulýðs-
fulltrúi Þjóðkirkjunnar, Guðjón
Kristjánsson og Auður Halldórs-
dóttir auk annarra dugmikilla
starfskrafta.
- pþ
Mú
et
. hessȒat
ab'at ínra s^
y var aú”'
^r'sen,et
aftV
(\taín
ou
S5&
lútnn"’
^e'öú' eVcVcvQ’
'&ZS&'t
nra vcosv-; áöV^öa'
&*s:%***0*
abe .i'S^ , e(0
o
eiuoo
&**££>«***
09'£*•'■**
ö'\aSf
IL
l^!s)V^(^IFmi^STÖÐIIM h.f.
Bíldshofða 14 110 Reyk|avik Sími 68 77 55
Iðnaðaibankinn
Aðalbanki ogöll útibú.
Þú færð gjaldeyrinn í utanlandsferðina hjá okkur.
Ef eitthvað er eftir þegar heim kemur er tilvalið
að opna gjaldeyrisreikning og geyma afganginn á vöxtum
til seinni tíma.