Morgunblaðið - 08.11.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
19
Afmæliskveðja:
Hólmfríður Björns-
dóttir 100 ára
í öllu því flóði afmælisgreina er
þráfaldlega birtast í blöðum þykir
tíðindum sæta að sjá þar kveðjur
til einhvers, sem náð hefur hundr-
að ára aldri. Svo fátitt er það að
fólk nái svo háu aldursmarki.
í dag, 8. nóvember, er þó haldið
hátíðlegt afmæli einnar aust-
firskrar heiðurskonu, sem þessum
aldri hefur náð. Það er Hólmfríð-
ur Björnsdóttir, sem lengi var
húsmóðir á Nesi í Loðmundarfirði.
Segja má að Hólmfríður beri
þennan háa aldur vel, hún klæðist
enn daglega, les blöð og grípur í
útsaum þegar henni býður svo við
að horfa. Það sem bagar hana
hvað mest er hve heyrn hennar er
biluð.
Hólmfríður er Fáskrúðsfirðing-
ur að uppruna, fædd í Dölum í
Fáskrúðsfirði 8. nóvember 1884.
Foreldrar hennar voru hjónin
Björn Stefánsson, sem bjó þar
lengi og var þekktur sveitarhöfð-
ingi á Austfjörðum, og kona hans,
Margrét Stefánsdóttir prests á
Kolfreyjustað i sömu sveit. Börn
þeirra Dalahjóna, Björns og
Margrétar, urðu sex, fimm dætur
og einn sonur. Hólmfríður er
yngst systkinanna, en elstur var
sonurinn, séra Stefán, sem lengi
var prestur á Hólmum í Reyðar-
firði og fluttist síðar á Eskifjörð.
Séra Stefán var um mörg ár
prófastur í Suður-Múlaprófasts-
dæmi.
Árið 1916 giftist Hólmfríður
sveitunga sínum, Halldóri Páls-
syni búfræðingi í Tungu, syni Páls
Þorsteinssonar hreppstjóra og
konu hans. Elínborgar Stefáns-
dóttur, og tengdust þar saman tvö
myndarheimili, sem orð fór af
víða um land, utan Fáskrúðsfjarð-
ar og Austfjarða. Vorið 1917 flutt-
ust þau Hólmfríður og Halldór að
Nesi í Loðmundarfirði, þar sem
þau síðan bjuggu í 24 ár, eða til
vorsins 1941, er þau brugðu þar
búi og fluttu til Suðurlands, fyrst í
Saltvík á Kjalarnesi, en síðar til
Reykjavíkur. Halldór, maður
Hólmfríðar, lést um áttrætt.
Þau hjónin eignuðust þrjú börn,
sem öll eru á lífi og búsett nú á
Reykjavíkursvæðinu. Eru þau:
Auður, kona sr. Jóns Kr. ísfeld,
sem prestur var á Hrafnseyri,
Bíldudal og víðar, Leifur, frum-
mótasmíðameistari, kvæntur Ár-
nýju Ingvaldsdóttur, og Björn
gullsmiður, kvæntur Ester Sigfús-
dóttur. Öll eru þau systkini góðrar
gerðar, svo sem þeim standa ættir
til.
Hvar sem þau Halldór og Hólm-
fríður voru búsett var heimili
þeirra byggt upp af heilbrigði,
smekkvisi og þeim þjóðlega mynd-
arbrag er vakti athygli allra er
Þannig lítur hið gáfaða skáld á
störf og hlutverk hinnar góðu hús-
móður, hvar og hver sem hún er.
Starfsvangur Hólmfríðar
Björnsdóttur var fyrst og fremst
heimili hennar, og sem húsmóðir,
eiginkona og móðir helgaði hún
því kærleikshug sinn og starfs-
krafta alla og vildi, ásamt manni
sínum, skapa þar þau vé börnum
þeirra og öðrum þeim, sem þar
leituðu dyra, að þeim mætti til
gleði og mannbóta verða. Og það
þykist ég mega fullyrða að það
muni börn hennar öll og aðrir, er
orð hennar og lífsráð hlýddu á.
sammála um, að í þeim hafi sá
eldur verið, sem lýst hafi til
þroska og heilbrigðs lífsmats á
hálum vegum þessa svo oft villu-
gjarna heims.
Ég sendi Hólmfríði, börnum
hennar, tengdabörnum og barna-
börnum, svo og öðrum ástvinum
hennar, innilegar hamingjuóskir
með þetta stórafmæli hennar.
Megi sá Guð, sem Hólmfríður á
löngum lífsferli ávallt hefur trúað
á og treyst, láta henni hverja
ævistund, er hún enn kann að eiga
ólifaða, verða sem mildasta og
besta.
Knútur Þorsteinsson
Opinn umræðufund-
ur um gróður og beit
FÖSTUDAGINN 9. nóvember
gengst Líffræðifélag íslands fyrir
opnum umræðufundi um gróður og
beit. Sérfróðir menn munu hafa
framsögu og síðan verða umræður
bæði á palli og úr sal.
Það hefur löngum verið deilt um
áhrif beitar á gróður hér á landi
sem annars staðar. Má minna á að
í sumar varð töluverð umræða um
þessi mál í tengslum við upprekst-
ur hrossa á Auðkúlu- og Éyvind-
arstaðaheiði. Enginn neitar því að
mjög hefur gengið á landið síðan
menn settust hér að, en deilan
snýst um það hversu áhrif mann-
anna, bæði bein og óbein, eru mik-
il í því sambandi.
Niðurstöður ýmissa fræði-
manna, sem rannsakað hafa beit-
arþol og ástand gróðurs, liggja nú
fyrir, en skortur hefur verið á því
að þær hafi verið ræddar nægilega
mikið opinberlega. Félagið boðar
því til opins fundar þar sem þessi
mál verða rædd á fræðilegum
grundvelli.
Fundurinn verður haldinn í
ráðstefnusal Hótels Loftleiða og
hefst kl. 15.
Framsögn hafa: Hörður Krist-
insson, prófessor í grasafræði,
sem talar um: „Náttúrulegt gróð-
urfar og áhrif sauðfjárbeitar“;
Ingvi Þorsteinsson, deildarstjóri
gróðurfarsdeildar Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, sem
talar um: „Áhrif beitar á gróður-
far“; Ólafur Dýrmundsson, land-
nýtingaráðunautur Búnaðarfélags
fslands, sem talar um: „Beitarnýt-
ingu og skipulagningu beitar-
mála“.
Auk framsögumanna taka þátt í
pallborðsumræðum þeir Stefán
Aðalsteinsson, deildarstjóri búfj-
árdeildar Rannsóknastofnunar
Landbúnaðarins og Sveinn Run-
ólfsson, landgræðslustjóri.
Fundarstjóri verður Þorsteinn
Tómasson, aðstoðarforstjóri Ran-
nsóknastofnunar Landbúnaðarins.
(FrélUlilkjrnning)
Hólmfríður Björnsdóttir
þar bar að garði. Og rausn þeirra
og gestrisni brugðust aldrei.
Hólmfríður er að eðlisfari
listhneigð og handlagin og eru
verk hennar á sviði útsaums og
kvenlegrar handavinnu rómuð
meðal allra, sem séð hafa. Hefur
hún prýtt og fegrað heimili sitt
með ógrynni slíkra listmuna og
svo hugleikin hefur henni verið
þessi listmunasköpun, að aldrei
var tómstund sleppt er gafst frá
heimilisstörfum til að sinna henni
og enn í dag grípur hún til slíkra
starfa er þrek og heilsa leyfðu.
Á svo stóru og óvenjulegu ald-
ursafmæli, sem Hólmfríður
Björnsdóttir á nú í dag, verður það
eðlilega margt, sem á hugann leit-
ar, margt, sem vert væri að skrifa
um, hundrað ára lífsferill, sem
borinn hefur verið uppi af at-
hafna- og eljusemi þjóðfélags-
borgara, sem af bestu getu og
trúmennsku við Guð og menn hef-
ur viljað leysa hvert sitt hlutverk
af hendi, skapar svo margar minn-
ingar, sem kært er að rifja upp, en
sem ógerlegt er í stuttri afmæl-
iskveðju.
í einu góðkvæða sinna, „Hús-
móðirin", kemst Davíð Stefánsson
svo að orði:
„Um allt er barist, völd og fé og fjöll,
um fisk á miðum, sprek á eyðisandi.
En jörðin yrði fögur friðarhöll,
ef fengi ráðið hennar kærleiksandi.
Án verkalauna vann hún störf sín öll,
en vigði sína krafta þjóð og landi.
1 bænum hennar bíður eldur falinn,
til bjargar þeim, sem leita heim í dalinn/
Vinsælu ensku ullarúlpurnar (Duffel
Coat) dömu-, herra og barnastærðir
komnar aftur.
Verð frá 898.-
GElSiP
H
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANOADRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF.
MICROLINE
tölvuprentari
á aðeins
kr. 9.900!
Við höfum flutt starfsemi okkar í nýtt og
rúmgott húsnæði að Skeifunni 11.
Af þessu tilefni höfum við ákveðið að bjóða
tölvueigendum Microline 80, tölvuprentara
á sérstöku tilboðsverði, kr. 9.900.—
og gildir tilboðið út nóvember.
Við viljum ennfremur benda á að vegna
hagstæðra innkaupa hefur verð á flestum
gerðum Microline prentara lækkað
um allt að 15%.
MICROLINE
Mest seldu tölvuprentarar á íslandi.
MÍKR
Skeifunni 11 Sími 685610