Morgunblaðið - 08.11.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
43
fíéttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Sagt hefur verið að fslendingar
læri seint að meta eigin auðlindir.
Dæmi um það er síldin góða sem nú
á haustdögum dillar sér við land-
steina. Þegar rætt hefur verið um
sölutregðu þessa lostætis, þá höfum
við, óþreyjufullir kaupendur — inn-
lendir — einfaldlega gleymst.
Steikt sfld
marineruð
(fyrir 4—6)
er með bestu fiskréttum.
4 síldar (fersk síld)
1 eggjahvíta
brauðmylsna
jurtaolía, salt og pipar.
1. Síldin er flökuð og roðflett.
Fjarlægið úr flökunum bein
eins vel og mögulegt er.
2. Hitið feitina á pönnu. Veltið
heilum síldarflökunum upp úr
þeyttri eggjahvítu og brauð-
mylsnu og steikið vel (ca. 5 mín.
á hvorri hlið). Saltið eftir
smekk.
3. Að lokinni steikingu eru flökin
kæld. Síldinni er því næst raðað
á hlið í djúpt leirfat eða eldfast
fat. 1—2 laukar eru skornir í
sneiðar og lagðir yfir fiskinn og
ediklegi hellt yfir.
Setjið að síðustu álpappír yfir
eða lok og lokið þétt. Fatið er sett
í kæliskáp og síldin látin mariner-
ast í 12 klukkutíma að minnsta
kosti áður en hún er borin fram.
(2—3 dagar í marineringu mýkja
öll bein, hafi einhver orðið eftir í
fiskinum, svo þau verða vart finn-
anleg.)
Síldin er borin fram með laukn-
um og kartöflum í heitum jafn-
ingi.
Ediklögur í marineringu eða
notið eigin uppskrift:
3 dl vínedik
2 dl vatn
2 dl sykur
1—2 laukar
Sykurinn er leystur upp í köldu
vatninu og síðan blandað edikinu.
Þessi lögur er einnig ágætur
fyrir marineringu á saltsíld en þá
er bætt við 1—2 lárviðarlaufum og
4—5 piparkornum heilum.
Síld er sögð vera með nær-
ingarríkustu fisktegundum sem
völ er á. í síldinni eru mikilvæg
efni eins og eggjahvíta, fita, joð,
járn, kalk og fosfór einnig A- og
D-vítamín. Magnið er þó mjög
sveiflukennt og fer eftir því hvort
síldin er feit eða mögur.
Rétt er að benda á að síld geym-
ist prýðilega fryst. Þá er ágætt að
flaka hana og roðfletta og setja
síðan hæfilegt magn til máltfðar í
álpappír og frysta.
Verð á hráefni
er erfitt að segja til um þar sem
verð á síld fyrir innlendan markað
liggur ekki fyrir.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Tónleikar á
Egilsstöðum
TÓNLEIKAR verða haldnir í Vala-
skjálf á Egilsstöðum næstkomandi
laugardag og hefjast þeir klukkan
17. Þar munu þeir Gunnar
Björnsson, sellóleikari, og David
Knowlcs, píanóleikari, leika verk
eftir Bach: Samstæðu fyrir ein-
samla knéfiðlu nr. 3 í C-dúr, Beet-
Gunnar Björnsson
og David Knowles
hoven, sónötu fyrir píanó og selló
nr. 2 í G-moll og Schubert og són-
ötu Arpeggione (op. posth.) í
A-moll.
Auk þess verða á efnisskránni
íslensk tónverk, Úr dagbók haf-
meyjunnar, fyrir selló og pianó
eftir Sigurð Egil Garðarsson,
samið í september 1978 og frum-
flutt af Gunnar Björnssyni og
Sigríði Ragnarsdóttur á Isafirði
sama haust.
Blómarósir á Flateyri
Leikfélag Flateyrar frumsýnir leikritið „Blóma-
rósir“ eftir Ólaf Hauk Símonarson í Félagsheimil-
inu á Flateyri, laugard. 10. nóvember kl. 21. Leik-
stjórí er Jón Júlíusson. Önnur sýning verður á
sunnudag. Áætlað er að sýna sýninguna víðsvegar
um Vestfirðina.
Lýst eftir
stolnum bflum
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
lýst eftir tveimur bílum, sem stol-
ið hefur verið. Aðfaranótt 27. ág-
úst var bifreiðinni R—47956 stolið
frá Grettisgötu 81. Bifreiðin er
FIAT 127, árgerð 1978, græn að lit.
Þá var bifreiðinni R—67663 stolið
frá Borgartúni 24 hinn 13. október
sl. Það er bifreið af gerðinni
Volkswagen Golf, árg. 1976, blá að
lit. Þeir sem kynnu að vita hvar
þessar bifreiðir eru niðurkomnar
eru beðnir að láta Lögregluna í
Reykjavík vita.
Prjónalind, nýtt íslenskt
prjónablað, er nýkomið út. í blað-
inu er fjöldi af uppskriftum, aðal-
lega af peysum. Litmynd fylgir
hverri uppskrift. Einnig eru í
blaðinu ýmsar upplýsingar, sér-
stök sniðörk o.fl. Blaðið er 40 síður
í A-4 broti. Stefnt er að áfram-
haldandi útgáfu og mun f framtíð-
inni verða boðin áskrift. Blaðið er
unnið í prentsmiðjunni Odda en
dreifingu annast Innkaupasam-
band bóksala. Blaðið fæst I öllum
helstu bókaverslunum og víðar.
Það kostar kr. 150. Útgefandi er
fyrirtækið Prjón sf.
Nýtt prjónablað
Félagar í hljómsveitinni Kaktus.
Kaktus endurvakin
Hljómsveitin Kaktus, sem lék á
öllum helstu sveitabölium austan
fjalls í fjölda ára, hefur verið endur-
reisL
Að endurreisninni standa þau:
Björn Þórarinsson (Bassi), sem
leikur á hljómborð og syngur,
bróðir hans ólafur Þórarinsson
(Labbi) leikur á gítar og syngur,.
Sigríður Birna Guðjónsdóttir leik-
ur á hljómborð og er ásamt Labba
aðalsöngvari hljómsveitarinnar,
Magnús Einarsson leikur á bassa
og syngur og Árni Áskelsson leik-
ur á trommur og syngur einnig.
Þeir Labbi, Bassi og Árni eru
gamalreyndir Kaktusmeðlimir,
einnig lék Sigríður Birna með
hljomsveitinni eitt sumar áður.
Magnús, sem er Seyðfirðingur, lék
með hljómsveitunum Þokkabót og
Einsdæmi þegar þær voru upp á
sitt besta, en undanfarin ár hefur
hann verið á heimshornaflakki,
þar af var hann I tónlistarnámi á
Italíu í 3 ár.
Kaktus hyggst halda sig að
mestu á heimaslóðum, þ.e. austan-
fjalls, og stefnir að því að endur-
vekja gamla Kaktuss-stuðið.
Fyrsti dansleiur Kaktuss verður
á Hvoli, Hvolsvelli, næstkomandi
laugardag.
IfffV'•' ’,jrv
* *, t
Helgarskákmótið í
Eyjum um helgina
Eins og kunnugt er hafa tímaritið
Skák og Skáksamband íslands stað-
ið sameiginlega að Helgarskákmót-
um vítt um land. Nýlega lauk 25.
mótinu í Grundarfirði sem haldið
var við mikinn glæsibrag. Sigurveg-
ari í Grundarfirði varð Margeir Pét-
ursson, hlaut 6'/z vinning af 7 mögu-
legum. 2.—3. urðu Jón L Árnason
og Guðmundur Sigurjónsson með
sex vinninga.
Hlutskarpastur öldunga varð
Sigurgeir Gíslason. Kvennaverð-
laun hreppti Ólöf Þráinsdóttir og
unglingaverðlaun hlutu Hannes
Hlífar Stefánsson, Þröstur Árna-
son og Þráinn Vigfússon. Verð-
laun fyrir besta framistöðu
Erindi um fram-
kvæmd lífláts-
hegninga
FRÆÐAFUNDUR í Félagi áhuga-
manna um réttarsögu verður hald-
inn í kvöld klukkan 21 í stofu 103 í
Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla
íslands.
Á fundinum mun dr. Páll Sig-
urðsson, dósent, flytja erindi er
hann nefnir: Athuganir á fram-
kvæmd líflátshegninga og á
aftökustöðum og aftökuörnefnum
á íslandi — utan alþingisstaðarins
við öxará. Fundurinn er öllum
opinn.
heimamanns hlaut Árni Emilsson
og dreifbýlismanns Bjarni Ein-
arsson Stykkishólmi. Skákstjórar
voru Þráinn Guðmundsson frá
skáksambandinu og Jóhann Þórir.
Eins og áður getur fer 26. helg-
arskákmótið fram í Vestmanna-
eyjum um næstu helgi. Búist er
við fjölmenni og að vanda verða
flestir bestu skákmeistarar þjóð-
arinnar meðal þátttakenda. Þá er
talið líklegt að Ólympíusveitirnar
sjái sér fært að nota þetta tæki-
færi sem síðustu æfinguna fyrir
ólympíumótið sem hefst í Grikk-
landi 18. þ.m.
Að venju verða tefldar 7 um-
ferðir eftir Skák-monrad kerfi, 3
umferðir á föstudag, 2 á laugardag
og 2 á sunnudag. Keppendur fara
til síns heima á sunnudagskvöld.
Gert er ráð fyrir að fljúga með
Flugleiðum en Flugleiðir hafa lagt
þessu mótshaldi mikið lið á allan
máta.
Verðlaunin sem keppt er um eru
myndarleg í góðu hófi. 1. 15.000. 2.
10.000. 3. 7.000. öldunga- og
kvennaverðlaun 5.000 og unglinga-
verðlaun 3 x 4.000 sem afgreiðast
sem boð á næsta mót sem viðkom-
andi telur sér fært að taka þátt í.
Þá er keppt um aukaverðlaun
fyrir besta framistöðu í næstu
fimm mótum og eru þau kr. 40.000.
Gert er ráð fyrir að mótið verði
teflt í Safnahúsinu og hefjist kl.
16.00—16.30 á föstudag. öllum er
heimil þátttaka og er þáttökugjald
kr. 250.00.
(