Morgunblaðið - 08.11.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
Útivist:
Blót til heið-
- urs níræðum
ferðagarpi
UM NÆími helgi efnir Útivist til
Haustblóts á Snæfellsnesi til heiA-
urs Hallgrími Jónassyni, rithöfundi
og ferðagarpi, en hann varð níræður
þann .30. október síðastliðinn.
Hallgrímur er ekki aðeins kunn-
ur sem ferðamaður og fararstjóri
um óbyggðir og byggðir fslands og
víðar, heldur einnig fyrir ferða-
bækur, vísnagerð og fjölda ferða-
þátta í útvarp. Haustblótið verður
haidið á Lýsuhóli og er brottför á
föstudagskvöldið og verður komið
til baka á sunnudagskvöldið. Á
laugardeginum verða skoðunar-
og gönguferðir um svæðið undir
Jökli og um kvöldið verður afmæl-
ishóf og kvöldvaka til heiðurs
Hallgrími. Þegar hafa milli 90 og
100 manns skráð sig í ferðina.
(FrétUtilkynning)
Fundur á morgun
um sykursýki og
mótefnakerfiö
„Hefur mótefnakerfið hlutverki
að gegna í þróun insulin-háðrar syk-
ursýki?" nefnist fyrirlestur sem dr.
Steinunn Bækkaskov lífefnafræð-
ingur flytur á vegum Félags um inn-
kirtlafræði á Landspítala kl. 13.20 á
morgun, fostudaginn 9. nóv. (í fund-
arsal Hjúkrunarskóla íslands).
Dr. Steinunn er stúdent frá MA
1968 og lauk prófi í lífefnafræði
frá Kaupmannahafnarháskóla
1974. Síðustu fimm árin hefur hún
starfað við Hagedorn-rannsókn-
arstöðina í Gentofte, Danmörku,
og unnið m.a. að mótefnamæling-
um í blóði sykursjúkra. Hún lauk
doktorsprófi frá Kaupmannahafn-
arháskóla i haust. Rannsóknir
hennar og samstarfsmanna hafa
vakið verulega athygli á alþjóða-
vettvangi. Félag um innkirtla-
fræði og Nordisk Insulin bjóða dr.
Steinunni Bækkeskov hingað til
þessa fyrirlestrahalds.
(FrétUtilkynning)
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
JflprgtmWnfciií*
Haustmót TR 1984:
Einvígi þarf um titilinn
Skák
Margeir Pétursson
ÞÁTITAKA á Haustmóti Taflfé-
lags Reykjavíkur 1984 var með
allra bezta móti, 140 skákmenn
mættu til leiks, þar af 42 í ungl-
ingaflokki. Teflt var í sex flokkum
og í þeim efsta var keppt um
sæmdarheitið: „Skákmeistari Tafl-
félags Reykjavíkur 1984“. Eftir
harða keppni í A flokki stóðu þeir
Sævar Bjarnason og Benedikt Jón-
asson uppi efstir og jafnir með átta
vinninga af ellefu mögulegum.
Verða þeir því að tefla fjögurra
skáka einvígi um titilinn og hófst
það sl. miðvikudag í Skákheimil-
inu við Grensásveg.
Mótið var ekki eins öflugt og
oft áður þar sem keppni í lands-
liðsflokki á Skákþingi tslands
fór fram í september og margir
af okkur beztu skákmönnum
orðnir hvildinni fegnir. Þetta
þýddi það að þrír efnilegir ungl-
ingar fengu að spreyta sig í A-
flokki á haustmótinu, þeir Þröst-
ur Þórhallsson, Davíð ólafsson
og Tómas Björnsson. Þeir stóðu
sig allir mjög vel og þeir Þröstur
og Davíð voru lengi með í barátt-
unni um efsta sætið, en misstu
flugið í lokin.
Skýringin á velgengni pilt-
anna er alls ekki sú, að mótið
hafi verið illa skipað, því þó tit-
ilhafana hafi vantað voru marg-
ir af okkar sterkustu skák-
mönnum með, t.d. Sævar
Bjarnason, núverandi skák-
meistari Reykjavíkur, og Hilmar
Karlsson, Islandsmeistari 1983.
Þeir Sævar og Hilmar komu
glóðvolgir úr íslandsmótinu þar
sem þeir voru að vísu ekki í allra
fremstu víglínu en höfðu báðir
úrslitaáhrif á gang mála með því
að velgja titilhöfum undir ugg-
um þegar sízt skyldi. Árangur
þeirra tveggja á haustmótinu
kemur því ekki á óvart, en þeim
mun meira að Benedikt Jónasson
skyldi hreppa efsta sætið ásamt
Sævari. Benedikt, sem er 26 ára
Hafnfirðingur, var um árabil í
hópi okkar efnilegustu unglinga
en tefldi lítið í nokkur ár þar til
nú. Hann hefur ekki orðið efstur
á slíku móti áður. Benedikt er
mjög hvass og lætur bezt að
tefla upp á kóngssókn, en Sævar
teflir hins vegar þungan stöðu-
stíl. Verður því vafalaust fróð-
legt að fylgjast með einvígi
þeirra tveggja.
Halldór Jónsson frá Akureyri
var nú aftur með eftir langt hlé,
en virðist litlu hafa gleymt.
Sveinn Kristinsson lét tíma-
hrakið allt of oft eyðileggja fyrir
sér góðar skákir. Ásgeir Þór var
yfirleitt heillum horfinn en
tefldi að vanda nokkrar
skemmtilegar skákir. Hann átt-
aði sig of seint á því að tveggja
leikja gildrur duga ekki lengur á
unglingana og hlaut þrjá slæma
skelli í upphafi mótsins gegn
yngstu þátttakendunum.
Uros Ivanovic, sem er júgó-
slavneskur að uppruna, varð að
hætta þegar tvær umferðir voru
eftir.
Um heildarúrslit á A-flokki
vísast til meðfylgjandi töflu, en
helstu úrslit í öðrum flokkum
urðu sem hér segir:
B-flokkur:
Andri Áss Grétarsson 9'/2 v. af
11 mögulegum.
Árni Á. Árnason 8‘k v.
Gunnar Freyr Rúnarsson 7‘/2 v.
Snorri G. Bergsson 6'/2 v.
Þórarinn Stefánsson 6 v.
Þessi frábæri árangur Andra,
sem er aðeins 15 ára gamall,
hlýtur að tryggja honum öruggt
sæti í A-flokki á Skákþingi
Reykjavíkur í janúar nk.
C-flokkur:
Haraldur Baldursson 7'á v. af 11
mögulegum.
Jón Þór Bergþórsson og Hjalti
Bjarnason 7 v.
Pálmar Breiðfjörð, Ágúst Ingi-
mundarson og Hannes H. Stef-
ánsson 6 ‘k v.
D-flokkur:
Þráinn Vigfússon 9 v. af 11
mögulegum.
UAUiTMCT TK my 1s‘
Birkir Leósson 8 v.
Unnsteinn Sigurjónsson l'k v.
Jóhann H. Ragnarsson 6'k v.
Baldvin Viggósson 6 v.
E-flokkur (Opinn flokkur):
Magnús Kjærnested og Þröstur
Árnason 9 v. af 11 mögulegum.
Ægir Páll Friðbertsson og Bald-
ur Kristinsson 8‘/2 v.
Sigurður Daði Sigfússon, Jóhann
Sigurbjörnsson, Tómas Ponzi,
Hallgrímur Sigurðsson og Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir 7 v.
Unglingaflokkur:
Arnaldur Loftsson 7 v. af 9
mögulegum.
Hannes Hlífar Stefánsson 7 v.
Magnús P. Örnólfsson, Þröstur
Árnason, Hjalti Bjarnason, Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir og
Ragnar Valsson 6‘/2 v.
Arnaldur sigraði Hannes í ein-
vígilV^ — Vi.
Hraðskákmót TR:
Þar urðu þeir Benedikt Jón-
asson, Ágúst S. Karlsson og Ás-
geir Þór Árnason efstir og jafn-
ir. Ula gekk að fá úrslit, en að
lokum stóð Benedikt uppi sem
sigurvegari. Nú er spurningin
hvort honum tekst að vinna
Haustmótið tvöfalt. Fyrirfram
veðja líklega flestir á að Sævar
beri sigur úr býtum í einvíginu,
en þegar Benedikt kemst í sókn
er hann til alls líklegur, auk þess
sem hann hefur gott auga fyrir
fléttum:
llvítt: Benedikt Jónasson.
Svart: Uros Ivanovic.
Frönsk vörn.
1. e4 — e6, 2. d4 — Rf6,
Óvenjuleg byrjun. Svartur
býður upp á Aljekínvörn, sem
kemur upp eftir 3. e5 — Rd5.
3. Bd3 — d5, 4. e5 — Rfd7, 5. Rd2
— c5, 6. c3 — Rc6, 7. Re2 — Db6,
8. Rf3 — cxd4, 9. exd4 — Bb4+,
10. Kfl — Be7, 11. Rc3
Þessi riddari á meira erindi á
kóngsvængnum eins og Benedikt
gerir sér grein fyrir síðar. Nú
gengur 11. — Rxd4? að sjálf-
sögðu ekki vegna 12. Be3 — Bc5,
13. Ra4. Svartur hefði nú átt að
ráðast á miðborðið með f7—f6,
en í stað þess velur hann alranga
uppbyggingu og situr fljótt uppi
með þrönga stöðu án þess að
hafa nokkurt mótspil.
11. — a6, 12. a3 — f5?, 13. Be3 —
0-0,14. g3 — Dd8, 15. Re2 — Rb6,
16. b3 — Bd7, 17. h4 — De8, 18.
Rf4 — Rd8, 19. a4 — g6, 20. Kg2
— Rf7, 21. Rh3 — h5
Svartur hefur byggt upp mik-
inn varnarmúr, en gallinn er sá
að hvítur getur ótruflaður stillt
liði sínu upp til kóngssóknar og
beðið bezta færisins.
22. Dd2 — Kh7, 23. Rfg5+ —
Rxg5, 24. hxg5!
Benedikt hefur nú þegar eygt
möguleika á fórn á h5.
24. — Kg7, 25. Rf4 — Dd8, 26. a5
— Rc8, 27. Hh3
Nákvæmara var 27. Hh2, því
eftir 28. g4 — fxg4, í framhald-
inu, stendur hvíti hrókurinn á h3
í uppnámi.
27. — Hh8, 28. Hahl — Ra7, 29.
H3h2 — Rc6, 30. g4!
Árásin er hafin!
30. — Dxa5, 31. gxf5 — exf5, 32.
De2 — Rd8, 33. e6! — Rxe6, 34.
Rxe6 — Bxe6, 35. Bf4 — Kf7?
Betra var 35. — Db6, þó það
kosti skiptamun eftir 36. Be5 —.
36. Hxh5! — gxh5, 37. g6+ — Kg7,
38. Dxe6 — Haf8, 39. Dxe7+ —
Kxg6, 40. De6+ — Hf6, 41. Bxf5+
- Kg7, 42. Be5 — Dd8, 43. Hgl
— Hhf8, 44. Kfl+ — Kh8, 45.
Hg8+!
og svartur gafst upp.
KOt>
1-2
1-2.
3.
H
5 6
5Í
7-8.
7-8
9-/0.
9-10
11
12.
Nýr þáttur í hverri vfloi
Einkaréttur á íslandi.
st/g
Dreifing
fUiflðrirf