Morgunblaðið - 08.11.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
45
Kigendur Forlagsins, talið frá vinstri: Þorvaldur Kristinsson, Anna Gígja
Guðbrandsdóttir, Bryndís Dagsdóttir, Jóhann Páll Valdimarsson og Sigurður
Ragnarsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Nýtt bókaforlag:
Forlagið gefur út níu
bækur á þessu ári
NÝTT bókaforlag, Forlagið, hefur
tekið til starfa. Að fyrirtækinu
standa þau Jóhann Páll Valdimars-
son, útgefandi, Sigurður Ragnars-
son, framkvæmdastjóri, Þorvaldur
Kristinsson, bókmenntaráðgjafi,
Anna Gígja Guðbrandsdóttir, fjár-
Stykkishólmur:
Samningur
um heilsu-
gæslustöð
Sljkkishólmi, 30. oklöber.
Á SL. ÁRI var gerður samningur
milli st. Fransiskuspítalans í Stykk-
ishólmi og hreppsnefndar um rekst-
ur heilsugæslustöðvar.
Samkvæmt lögum eru sveitar-
félögin látin kosta rekstur heilsu-
gæslustöðva. Heilsugæslan hefir
haft aðstöðu í sjúkrahúsinu og þar
starfa á vegum heilsugæslunnar
tveir læknar og ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur. Með þessum
samningi er formlega bundið það
samstarf sem milli þessara stofn-
ana hefir verið en sveitarfélagið
greiðir fast leigugjald fyrir að-
stöðu í sjúkrahúsinu. Þá hefir
hreppurinn gert samning við
Rauðakrossdeildina hér um
sjúkraflutninga. Svæði þessara
flutninga nær yfir Stykkishólm,
Helgafellssveit, Miklaholtshrepp
og Skógarstrandarhrepp, einnig
nær það til Flateyjar.
Fréttaritari.
málastjóri, og Bryndís Dagsdóttir,
dreifíngar- og sölustjóri.
Að sögn Jóhanns Páls stóð ekki
til í upphafi að gefa út bækur á
þessu ári, en hjólin hafa snúist
hraðar en búist var við og er nú
ráðgert að gefa út nokkra titla á
árinu.
„Alls verða þetta níu bækur,"
sagði Jóhann Páll. „Það verður ný
ljóðabók eftir Þórarin Eldjárn,
sem nefnist Ydd; smásagnasafn
eftir Guðberg Bergsson, Hinsegin
sögur, og er bókin tileinkuð ástar-
lífí íslendinga, og Ekkert slor,
fyrsta skáldsaga ungs höfundar,
Rúnars Helga Vignissonar. Þar
segir frá lífi unglinga í sjávar-
þorpi úti á landi. Ein barnabók
verður gefin út, en það er Afmæl-
isdagurinn hans Lilla og er hún
byggð á Brúðubílnum eftir Helgu
Stephensen. í bókinni eru um 40
litmyndir, en þetta er fyrsta bókin
um brúðuleikhús, sem gefin er út
hér á landi. Auk þessa verða gefn-
ar út þrjár teiknimyndasögur."
Forlagið hyggst einnig gefa út
tvær námsbækur. önnur er Anna
frá Stóru-Borg eftir Jón Trausta,
en henni fylgja skýringar og verk-
efni ásamt kennsluhefti. Um út-
gáfu bókarinnar sáu kennararnir
Heiðdís Þorsteinsdóttir og Svan-
dís Sigvaldadóttir og er hún
myndskreytt með myndum eftir
Jóhannes Briem. Hin bókin er fs-
lensk bókmenntasaga fyrri alda
eftir Heimi Pálsson.
Að sögn Jóhanns Páls Valdi-
marssonar hafði verkfallið ekki
mikil áhrif á starfsemi Forlagsins
að vísu hefur verið ákveðið ac
fresta útgáfu einnar bókar.
LEYNDARMALIÐ...
... á bak við velklaedda konu
er hin fullkomna, alhliða og einfalda saumavél sem
laðar fram sköpunargleði þess sem saumar.
Þótt hin nýja Singer saumavél sé tæknilega
fullkomin, þá er hún einföld í meðförum —
og svo sparar hún þér stórfé.
SINGER
spori Jramar.
n i c P
nniaúái
&SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMI 681910
6. þáttur á myndbandaieigur í dag