Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
47
Ólöf Stefáns-
dóttir — Kveðja
Fædd 9. desember 1951
Dáin 9. október 1984
Mig setur hljóða þegar ég sest
niður til að rita nokkur kveðjuorð
um nýlátna elskulega vinkonu
mína hana Ólöfu. Mér finnst ég
varla eiga orð. Svo ótrúlegur er
sannleikurinn. Hún kvaddi jarðlíf-
ið þann 9. október 1984 að morgni
þess dags. Hún hafði heyjað erfiða
baráttu við þann sjúkdóm sem á
hana herjaði, og barðist hún af
miklum krafti, það var stundum
óskiljanlegt hver dugur hennar
var, og þá sérlega síðustu vikurnar
sem hún lifði.
Við Ólöf gengum fyrst í sama
barnaskólann (Breiðagerðisskóla).
Okkar kynni urðu fyrst veruleg er
við vorum samferða í Verknámið,
Brautarholti, (saumadeild), sem
svo fluttist í Ármúlaskóla, en það-
an lukum við gagnfræðaprófi og
ég þakka enn í dag Ólöfu það að ég
tók þá ákvörðun að ljúka þessari
gagnfræðagráðu, sem þótti bara
ágætt þá.
Upp frá því eyddum við flestum
okkar stundum sem við gátum
saman. Síðan lá leið Ólafar í Fóst-
urskóla íslands, og þar var Ólöf á
réttri leið sem hefur sýnt sig
hvarvetna sem hún hefur starfað
og utan við það, hennar mikla þol-
inmæði og ástúð sem hún beitti á
óskiljanlegan hátt, hún hafði sér-
stakt lag á börnum.
Ólöf var einstaklega sanngjörn
og heiðarleg manneskja og alltaf
var hægt að leita til hennar
óhræddur.
Ég á fullt af yndislegum minn-
ingum frá hinum ýmsu tímum er
ég naut vináttu hennar, sem ég
ætla ekki að rekja hér í smáatrið-
um, en mun varðveita í brjósti
mér.
Ég minnist þess kvölds enn í
m & <* n
dag þegar Ólöf kynntist eftirlif-
andi eiginmanni sínum sem studdi
hana af mikilli ástúð frá upphafi
kynna þeirra til dauðadags og á
hann sannarlega góðar þakkir
skilið.
Ég votta ástvinum hennar öll-
um mína dýpstu samúð og bið góð-
an Guð að styrkja þau í erfiðri
sorg.
Kveðja frá Sirrý vinkonu
Kína:
Dagblað afhjúpar valdníðslu
Pekiog, 5. nóvember. AP.
FORMAÐUR flokksdeildar komm-
únistaflokksins í fámennu byggðar-
lagi í Suður-Kína hefur orðið uppvís
að því að kúga íbúa þorps nokkurs á
áhrifasvæði sínu. Hefur hann sett þá
í varðhald, þvingað út úr þeim fé og
þjakað þá á fleiri vegu. Að minnsta
kosti eitt af fórnarlömbum hans hef-
ur framið sjálfsmorð og annað geng-
ið af vitinu, að því er fram kemur í
dag í blaði einu í Peking.
Frásögnin af máli þessu var á
forsíðu blaðsins og formaðurinn,
Liang Yugui frá þorpinu
Zhanghua, sagður hafa haft sér til
fulltingis flokk glæpamanna. Hafi
þeir beint spjótum sínum að
íbúum nágrannaþorpsins Liwu-
tang, sem eru 114 talsins, og geng-
ið í skrokk á þeim.
Birting fréttarinnar endur-
speglar áhyggjur stjórnvalda af
“smákóngum" úti á landsbyggð-
inni, þ.e.a.s. harðstjórum sem
hreppt hafa embætti á vegum
flokksins og misnotað svo vald sitt
og aðstöðu til þess að kúga al-
menna borgara. Stjórnvöld telja
þetta skaða álit kommúnista-
flokksins hjá almenningi.
Hreinsanir hafa verið í gangi í
flokknum frá því í október 1983 og
m.a. verið á stefnuskránni að
losna við fólk eins og formanninn
sem áður var getið. En ekki hefur
verið látið uppi, hversu mörgum
hafi verið vikið frá embætti.
Já hinn nýji framdrifni MAZDA 626 DIESEL eyðir aðeins 4.7 lítrum
á hundraðið, ef ekið er á jöfnum 60 — 90 km hraða.
Nýja dieselvélin er afar hljóðlát, þýðgeng og aflmikil, þannig að
vart finnst að bíllinn er með dieselvél, þegar setið er undir stýri.
MAZDA 626 DIESEL hefur hlotið einstaklega góðar viðtökur
hérlendis, því að á þessu ári höfum við selt yfir 50 slíka bíla, sem
er einsdæmi fyrir fólksbíla með dieselvél.
Við getum nú boðið örfáa MAZDA 626 DIESEL GLX með vökvastýri
og ríkulegum búnaði á einstöku verði.
Mest fyrir peningana!
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23. si'mi 812 99
Veriö
velkomin.
ópavogsbúa
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
ijalástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv;
Opið frá kl. 9—18 á virkum dögum.i
Lokaö á laugardögum í sumar.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
8ECJ7
HJÁLPARKOKKUKINN
KENWOOD CHEF
,,CHEF-inn“ er allt annað og miklu meira en venjuleg
hrærivél.
Kynnið ykkur kosti hennar og notkunarmöguleika.
ÖMBOÐSMENN:
REYKJAVÍK
JL-húsið, Hringbraut 121
Rafha hf., Austurveri
AKRANES
Rafþjónusta Sigurd. Skaga-
braut 6.
BORGARNES
Húsprýði
STYKKISHÓLMUR
Húsið
BÚÐARDALCIR
Verslun Einars Stefánssonar
DALASÝSLA
Kaupfélag Saurbæinga.
Skriðulandi
ÍSAFJÖRÐUR
Póllinn hf.
BOLUNGARVÍK
Verslun Einars Guðfinnssonar
HVAMMSTANGI
Verslun Sigurðar Pálmasonar
BLÖNDUÓS
Kaupfélag Húnvetninga
SAUÐÁRKRÓKUR
Kaupfélag Skagfirðinga
Radío- og sjónvarpsþjónustan
AKUREYRI
Kaupfélag Eyfirðinga
HÚSAVÍK
Grímur og Árni
EGILSSTAÐIR
Verslun Sveins
Guðmundssonar
HELLA
Mosfell
SELFOSS .
Kaupfélag Árnesinga
Radío- og sjónvarpsþjjónustan
VESTMANNAEYJAR
Kjarni
PORLÁKSHÖFN
Rafvörur
GRINDAVÍK
Verslunin Bára
KEFLAVÍK
Stapafeil hf.
Eldhússtörfin verða leikur einn
með KENWOODchef