Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 51
1
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
51
Kveðjuorð — Pétur
Jökull Pálmason
Fæddur 10. janúar 1933
Diinn 1. september 1984
I júlímánuði síðastliðnum fór-
um við hjónin í hringferð norður
og austur fyrir land.
Er við komum til Akureyrar var
ekkert sjálfsagðara en að líta inn
til Péturs og Hrafnhildar eins og
jafnan áður er leið okkar lá um
þær slóðir.
Eins og endranær áttum við
sarnan dásamlegt kvöld með þeim
hjónum og var mikið rætt um
heima og geima.
I minni fyrstu bílferð norður í
land bauðst Pétur til að keyra með
mér en hann var þá staddur í
Reykjavík.
Það var komið fram á vetur og
allra veðra von. „Við svona að-
stæður ber þér skylda til að hafa
með þér mann á skóflu," sagði
Pétur og brosti góðlátlega. Það
voru líka orð að sönnu því að við
hrepptum blindbyl á Holtavörðu-
heiði, ísing komst á blöndunginn í
bílnum og það var einungis harð-
fylgi Péturs að þakka að við kom-
umst niður á Borðeyri áður en allt
fennti í kaf.
Mér kom þá í hug að gott mundi
að eiga líf sitt undir Pétri Pálma-
syni.
Eftir þessa ferð var Pétur
sjálfskipaður ráðgjafi í öllum mál-
um mínum norðan heiða. Gilti þá
einu hvort um var að ræða hin
flóknustu verkfræðilegu viðfangs-
efni eða persónuleg málefni. í
hvert sinn sem ég þurfti á aðstoð
að halda var hún auðfengin.
Hún var veitt með sérkennilegu
ívafi af þekkingu, kímni og hlýju
sem umfram annað einkenndi Pét-
ur Pálmason.
Þessir eiginleikar voru líka
ávaxtaðir af Hrafnhildi og börn-
um þeirra. Þar fann maður hin
styrku fjölskyldubönd hvar sem á
var litið.
Pétur Pálmason var afburða
glæsilegur maður. Hávaxinn og
herðabreiður og fríður sýnum.
Hann var rammur að afli eins og
hann átti kyn til og hlífði sér
hvergi er til átaka kom.
Með honum er genginn hógvær
og prúður atgervismaður, sönn
fyrirmynd að vönduðum einstakl-
ingi.
Guð blessi minningu Péturs
Pálmasonar og gefi fjölskyldu
hans styrk í þungri sorg.
Edgar Guðmundsson
Pétri var þá efst í huga framtíð
Akureyrar sem hann hafði þungar
áhyggjur af í atvinnulegu tilliti.
Hann taldi að nauðsyn bæri til
að koma á fót stóriðju á borð við
álver við Eyjafjörð sem síðar gæti
orðið ein af máttarstoðum at-
vinnulífsins þar um slóðir.
Þar sem ég veit fáa menn er
unnu náttúru Islands meir en Pét-
ur Pálmason þá var þeim mun at-
hyglisverðara að hlusta á sjón-
armið hans. Hann hafði í þessu
máli sem og öðrum þrautkannað
allar hliðar og útskýrði af festu en
jafnframt af nærfærni hvers-
vegna byggja ætti álver við Eyja-
fjörð.
Málflutningur hans einkenndist
af tillitssemi við skoðanir ann-
arra. Hann ásakaði engan um
hleypidóma. Það fór hins vegar
ekki milli mála að Pétur Pálmason
hafði tekið rökstudda afstöðu eftir
að hafa grandskoðað það sem
mælti með og á móti jafn afdrifa-
ríkri ákvörðun.
Pétur Pálmason leitaði sann-
leikans.
Faðir hans, Pálmi rektor Hann-
esson, sagði við skólasetningu
Menntaskólans í Reykjavík 1929:
„Ný menning er að fæðast, —
nýr tími að renna. Tími vísinda-
legrar hyggju — og visindalegs
siðgæðis. Tími hinnar tuttugustu
aldar. Hann kemur hægt og hljóð-
lega, eins og dögunin, en líkt og
morgunsárið berst við myrkur
næturinnar, þannig ryður hinn
nýi tími sér til rúms.
Flestir menn eru morgunsvæfir.
Og flestir byltast nú í drauma-
móki liðinna tíma. Aðeins fáir sjá
dögunina. — Aðeins fáir vöku-
menn, — leitendur sannleikans.
Hinir sofa uns dagur er um allt
loft.“
Þetta mælti Pálmi Hannesson
fyrir 55 árum. Pétur sonur hans
var einn af hinum fáu vöku-
mönnum. Hann sótti rök sín til
vísindalegrar hyggju og siðgæðis.
Kvöldstundin góða með Pétri og
Hrafnhildi verður okkur ógleym-
anleg. Okkur hjónunum varð eftir
á tíðrætt um hve árin hefðu farið
einstaklega vel með Pétur og
Hrafnhildi. Það var eins og þau
hefðu dottið í einhvern æskubrunn
fyrir óralöngu. Þau beinlínis geisl-
uðu af heilbrigði og hreysti.
Það má því nærri geta hvílíkt
reiðarslag það var þegar Pétur
Pálmason var burtkallaður úr
þessum heimi svo langt fyrir aldur
fram.
Kynni okkar Péturs hófust árið
1963 er Pálmi Ragnar bróðir hans
kvæntist Ágústu systur minni.
Það var þó ekki fyrr en 1968 að
kunningsskapur okkar ágerðist
svo um munaði. Ég hafði þá ráðið
mig sem bæjarverkfræðing á Dal-
vik og ólafsfirði en Pétur var þá
einn fárra verkfræðinga sem
komu að sunnan og höfðu tekið sér
bólfestu norðan heiða.
ÞESSI AUGLYSING VARÐAR ORYGGI ÞITT OG ÞINNA!
í hættu vegna
mísskilníngs?
Geturðu STAÐIÐ í skilum
ÁN SIÚKRA- OG SLYS ATRYGGINGAR?
A Islandi eru almannatryggingar
betri en víðast hvar annars staðar í
heiminum.
Því er eðlilegt að fólk telji hag sínum
borgið hvað sem á dynur.
En- eftir áratuga starf okkar að
tryggingamálum getum við fullyrt að
margir hafa orðið fyrir biturri reynslu
í því efni.
Þegar á reyndi, eftir að sjúk-
dómar eða slys höfðu barið að dyrum,
uppgötvuðu þeir að bætur almanna-
tiygginga tryggðu þeim og heimilinu
ekki fulla og óbreytta framfærslu.
Kynntu þér staðreyndimar um sjúkra-og
slysatryggingar okkar. Þannig forðastu
misskilning sem gæti orðið dýrkeyptur.
_____________________________________ZSéL
rT
Já, takk, ég vildi gjarnan fá senda bæklinga um slysa- og líf-
tryggingar Samvinnutrygginga og Andvöku.
Nafn:
Heimili:.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
Ármúla 3, 108 Reykjavík Sími: (91)81411
Þín félög - í blíðu og stríðu
AUK HF. Auglýsingastofa Kristínar 62.131