Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 1
128 SÍÐUR
220. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
150 þjóðir heita
þátttöku í Seoul
Mexíkóborg, 10. nóvember. AP.
RÚMLEGA 150 ríki, þ. á m. Sovétrík-
in, afhentu Alþjóðaólympíunefndinni
undirritad skjal þar sem því var heit-
ið að sKkja sumarólympíuleikana í
Seoul í Suður-Kóreu 1988.
Nefndarmaður sagði að skjalið
væri þó engin trygging fyrir því að
ólympíulið ríkja sætu ekki heima
eins og á sl. sumri þegar Sovétríkin
og 14 fylgiríki þeirra mættu ekki til
leiks í Los Angeles. Þegar nær
drægi gætu þau t.d. ákveðið að sitja
heima þar sem þau teldu öryggi
íþróttamannanna ekki tryggt.
Fjarvera Sovétmanna og fylgi-
ríkja þeirra frá ólympíuleikunum í
sumar var að allra áliti í hefnd-
arskyni fyrir fjarveru margra tuga
ríkja frá Moskvuleikunum 1980.
I skjalinu, sem undirritað var af
öllum þátttökuþjóðum í fundi al-
þjóðasambands ólympíunefnda er
lauk í Mexíkó í vikunni, voru sér-
stök tilmæli til skipuleggjenda
leikanna i Seoul um „ráðstafanir til
að tryggja eðlilega framkvæmd
leikanna“.
Chile:
Pinochet herðir tökin
Santiago, Chile. 10. nóvember. AP.
LEYNILÖGREGLAN í Chile greip til
harkalegra aðgerða í dag, réðist inn á
skrifstofur tveggja verkalýðshreyf-
inga, handtók 17 starfsmenn og lagði
hald á plögg og pappíra. Þar með hafa
90 manns verið handteknir síðustu
Ættingjar
tíbetska
„snjómanns-
ins“ fundir?
New York, 9. nóvember. AP.
BANDARÍSKUR mannfræðipró-
fessor, dr. Grover Krantz, heldur
því fram, að í hinum torfæru skóg-
um í norðvesturhluta Bandaríkj-
anna sé að finna nokkur þúsund
ættingja tíbetska „snjómannsins".
Sl. 15 ár hefur prófessorinn
leitaö að þessum loðnu 2,15 m
háu og að þvi er talið er 100 kg
þungu verum, sem ganga undir
nafninu Sasquatch eða Stórfótur.
Vísbendingarnar eru fjölmarg-
ar, t.d. ljósmyndir, en flestar
hafa þær reynst falsaðar eða
myndatakan verið á misskilningi
byggð. Fyrir nokkrum árum
henti það einn skógarvarðanna i
þjóðgarði einum i Washing-
ton-ríki, að hann stóð allt i einu
augliti til auglitis við eina af
þessum verum. Það varaði svo
sem i hálfa mínútu, og síðan
hlunkaðist hún á brott. Sérfræð-
ingar voru kallaðir til, og gátu
þeir tekið mót af fótsporunum.
dagana, eða eftir að Augosto Pino-
chet setti herlög í landinu.
10 hinna handteknu voru gómað-
ir á skrifstofu námuverkamanna,
hinir 7 hjá samtökum sem eigi voru
nafni gefin, en bæði verkalýðsfé-
lögin eru stýrð af Marxistum.
Stjómvöld hafa aðeins handtekið
Marxista i aðgerðunum, en látið af-
skiptalausa félaga i hinu 6-flokka
stjórnarandstöðubandalagi, en það
skipa ekki kommúnistar. Þó hafa
forsvarsmenn samtakanna for-
dæmt ákvörðun Pinochets að setja
á herlög og svarið að berjast gegn
þeim. Pinochet hefur látið hafa eft-
ir sér að allt sé þetta gert til þess
að lýðræði megi komast sem fyrst á
í landinu.
Morgunblaðið/Gunnar Berg
Hressir Akureyrarsnáðar að leik í snjónum nyrðra í vikunni. í gær
var á Akureyri jörð alþakin þéttum snjó. Þá spáði veðurstofan góðu
veðri sunnan heiða, með smáskúrum til landsins, og hægviðri og
þurru til landsins fyrir norðan en dálitlum slydduéljum á annesjum.
Hörð
átök í E1
Salvador
Suchitoto, 10. nóvember. AP.
HÖRÐUSTU bardagar í fimm
mánuði áttu sér stað í borginni
Suchitoto, sem stjórnarherinn hef-
ur á valdi sínu og er hernaðarlega
mikilvæg. Öflugur liðsauki var
fluttur flugleiðis til borgarinnar þar
sem skæruliðar létu til skarar
skríða árla á föstudag, og þegar
bardögum linnti eftir 11 stunda
rimmu, lágu a.m.k. 120 manns í
valnum og yfir 30 særðust
Borgin er síðasta vígi stjórn-
arhersins á landsvæði sem
skæruliðar hafa að mestu leyti á
sínu valdi. Búa þar um 2.000
manns, flestir þeirra flóttamenn
undan hörmungum borgara-
stríðsins, sem staðið hefur í
fimm ár. Útvarp skæruliða sagði
þá hafa nánast yfirbugað lög-
reglu og borgaravörð í gærmorg-
un og hafið árásir á stöð hersins
við miðborgina, en um það leyti
barst öflugur liðsauki á þyrlum.
Skæruliðar kváðust hafa
grandað þremur þyrlum og lask-
að fjórar, en talsmaður hersins
vísaði því á bug, sagði aðeins
tvær þyrlur hafa laskast. í til-
kynningu stjórnarhersins sagði
að „rúmlega 100“ skæruliðar
hefðu verið felldir, en tölur um
mannfall eru óljósar, að sögn
borgarbúa og hermanna. Vam-
armálaráðuneytið sagði 20 her-
menn hafa fallið og 32 særst.
Bandaríkjamenn nú í vafa
um tilvist MIG-þotanna
Öryggisráð SÞ ræðir málið og Nicaraguabúar búa sig undir stríð
Gervihnetti
komið á braut
hnökralaust
Houston, 10. nóvember. AP.
Geimfararnir um borð f geimferj-
unni Discovery komu kanadískum
gervihnetti á hraut um jörðu og tókst
framkvæmdin vel. f dag koma þeir
öðrum gervihnetti, talsvert stærri, á
braut.
Á mánudag á geimferjan stefnu-
mót við tvo fjarskiptagervihnetti,
sem fyrirhugað er að flytja til jarð-
ar vegna bilunar. Gervihnöttum
hefur ekki áður verið „bjargað" úti í
geimnum og þeir fluttir til jarðar.
Viðgerð hefur hins vegar farið fram
á einum hnetti á braut um jörð, Sol-
ar Max.
SanU Barbara, Kaliforníu, Managua og vídar. 10.
HÁTTSETTIR bandarískir embætt-
ismenn sögðu í dag, að Bandaríkja-
stjórn vantaði óyggjandi sönnunar-
gögn fyrir því að sovéska flutninga-
skipið sem liggur við bryggju í Cor-
into hafi í raun og veru fært sandin-
istum 12 MIG-herþotur af sovéskri
gerð, eins og áður hafði verið látið
liggja að. Þá er sú skoðun komin upp
hjá ýmsum sérfræðingum
nóvember. AP.
bandarísku leyniþjónustunnar, að
þaö hafl í raun aldrei verið MIG-
þotur um borð, aðeins veigaminni
vígvélar þess eðlis að Bandaríkjunum
stafar ekki hætta af þeim eins og um
MIG-þotur hefði verið að ræða.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fjallaði um Nicaragua-málið í dag
að beiðni sandinista sem telja ör-
uggt að Bandaríkin séu í þann
mund að ráðast á land sitt.
ónafngreindur embættismaður í
Washington sagði að þegar skoðuð
væri gervitunglamynd af skipinu
og þeim gámum sem uppskipaðir
hefðu verið, virtist útilokað að 12
þotur gætu enn verið um borð,
„kannski örfáar, en aldrei 12
stykki, líkurnar á því að herþotum-
ar séu i skipinu fara því óðum
þverrandi," sagði hann. Émbættis-
maðurinn sagði að gervitungl hefði
náð mynd af 12 gámum sem Banda-
ríkjamenn töldu að innihéldu
MIG-þotur, er flutningaskipið var í
höfn í Svartahafinu fyrir mánuði
síðan. Voru gámarnir á hafnar-
bakkanum. Síðan olli skýjaþykkni
því að ekki var unnt að fylgjast
með hvað fram fór, en er aftur létti
til, voru gámarnir horfnir og skipið
lagt af stað til Corinto.
Sandinistar segja allt i háalofti
heima fyrir, þar sé almenningur
óðum að búa sig undir bandaríska
innrás. 200.000 manna varalið hef-
ur verið ræst út og einstaklingum
þess afhentir gamlir rifflar. Blóð-
banki landsins er í herferð til að
byrgja sig upp fyrir átökin, verið er
að skipuleggja barnagæslu, grafa
skotgrafir og flýta kaffiuppsker-
unni. Segja sandinistar njósnavél-
ar Bandaríkjamanna sifellt rjúf-
andi lofthelgi sina og hersveitir
þeirra séu að koma sér fyrir þar
sem strandhöggið eigi að hefjast.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur fjallað um málið að beiðni
sendiherra Nicaragua, Javier
Chomorro, en fundi var frestað eft-
ir talsverðra umræður. í þeim um-
ræðum hélt Chamorro öllu fram-
anskráðu fram um ástandið heima
fyrir og neitaði með öllu að MIG-
þotur hefðu verið um borð í skip-
inu. Sendiherra Sovétríkjanna,
Oleg Troyanovski, sagði Banda-
ríkjamönnum að þeir skyldu halda
sig á mottunni, það hafi engar
MIG-þotur verið fluttar til Nicar-
agua. Bandaríkjamenn hjá Sam-
einuðu þjóðunum hafa sagt innrás-
artal andstæðinga sinna „skáld-
skap“. Hins vegar hefur Jesse Jack-
son, blökkumannaleiðtoginn sem
keppti við Walter Mondale um út-
nefningu sem forsetaefni Demó-
krataflokksins, iýst yfir að Reagan
hafi áform um innrás í Nicaragua á
prjónunum. „Hann er að skapa
andrúmsloft sem myndi réttlæta
innrás með ásökunum um MIG-
þotur í Nicaragua," sagði Jackson
nýlega í viðtali.