Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
Aukin strandferða-
þjónusta Eimskips
UM ÞESSAR mundir tekur gildi nú strandsiglingaáætlun hjá
Eimskip. Vidkomuhafnir verða átta, ferðir verða tíðari og stærri
skip en áður munu nú sinna þessum siglingum. Markmiðið með
þessum breytingum er að auka þjónustu við landsbyggðina og
einfalda aðfóng í dreifbýli, segir í frétt frá Eimskip.
Tvö skip félagsins, Mánafoss og
Norðurlandaskip, verða í þessum
siglingum, auk þess sem Eimskip
annast vöruflutninga með Herjólfi
til og frá Vestmannaeyjum.
Nýja áætlunin er tvískipt.
Mánafoss mun þjóna Vestur- og
Norðurlandshöfnum og er sigl-
ingaáætlunin þannig að siglt er
frá Reykjavík einu sinni í viku, á
mánudögum. Komið er til ísa-
fjarðar tvisvar í viku, einu sinni í
viku til Akureyrar og hálfsmánað-
arlega til Húsavíkur og Patreks-
fjarðar, Siglufjarðar og Sauðár-
króks. Sunnan- og austanlands er
siglt til tveggja hafna. Herjólfur
siglir tvisvar á dag á milli lands
og Eyja og annast Eimskip alla
vöruflutninga með skipinu. Annað
Norðurlandaskip Eimskips kemur
hálfsmánaðarlega til Reyðarfjarð-
ar á leið sinni frá Reykjavík til
Norðurlandanna. Samfara reglu-
legum viðkomum á Reyðarfirði
mun þjónusta Eimskips við Aust-
firði aukast verulega.
f frétt Eimskips segir enn-
fremur.
„Þessi nýja strandsiglingaáætl-
un mótast af sívaxandi þörf við-
skiptavina Eimskips fyrir flutn-
inga innanlands, ekki síst í ljósi
vaxandi einingaflutninga. Við
gerð áætlunarinnar var því lögð
sérstök áhersla á fullkominn
skipakost, samræmingu innan-
landsflutninga og millilandasigl-
inga og hagnýtingu þeirrar að-
stöðu sem Eimskip hefur byggt
upp í Sundahöfn á undanförnum
árum.“
\e£
A
en satt
„Gull og demantar á útsölu“
í tilefni eigendaskipta á
verslun Jóhannesar Norðfjörðs
höfum við ákveðið að
efna til
Rýmingar-
sölu
á stórum
hluta af
vörum verslun-
arinnar
Herra og dömu gull og silfurhringar.
Herra og dömu úr, veggklukkur, skeiðklukkur
Hálsmen gull og silfur.
Armbönd o.fl. osfl.
ótrúlegt en satt — nú er
hægt að gera verulega góð
kaup á gæðavörum
— lítið inn.
Verið velkomin
afsláttur
Konunglega, Hverfisgötu 49, sími 13313.
Hönnun að ljúka
HÖNNUN i brú yfir Kringlumýrarbraut, í framhaldi af Bústaðavegi, er nú
að Ijúka og verður verkið væntanlega boðið út nú f vetur. Að sögn Stefáns
Hermannssonar, aðstoðarborgarverkfræðings, er miðað við að framkvæmd-
um við brúna Ijuki næsta sumar. Brúin mun tengjast fyrirhugaðri Foss-
vogsbraut og er miðað við að hún taki við umferð úr suðri og til vesturs.
Fyrirhugað er að fimm akreinar verði i brúnni.
Sjóstangaveiði-
félag stofnað
ínfirði, 8. nóvember.
HJÓSrANGAVEIÐI hefur verið VM-
andi tómstundaiðja ísfirðinga hin síð-
ari ir. Síðustn þrjú irin hafa verið
haldin hér mót með þitttöku hvaðan-
æva af landinu. Áhugamenn úr sport-
bitafélaginu Sæfara ásamt nokkrum
öðrum ihugamönnum um sjóstanga-
veiði hafa séð um mðtin. í gærkvöldi,
miðvikudagskvöld, var haldinn stofn-
fundur Sjóstangaveiðifélags ísfirðinga.
Félagssvæðið er lsafjarðarsýslur
og kaupstaöirnir Bolungarvík og ísa-
fjörður. Á fundinum voru rædd
helstu áhugamál sjóstangaveiði-
manna og var meðai annar ákveðið
að efna til sjóstangaveiðiferðir ein-
hverja næstu helgina. Mikill áhugi
var í stofnfélögum að efla hag þess-
arar íþróttar og að auka tengsl sjó-
stangaveiðimanna á landinu.
í gangi er Islandsmeistarakeppni
sem fer fram á þrem stöðum á land-
inu. Var fyrsta mótið á þessu keppn-
isári haldið á Akureyri I ágúst.
Næsta mót verður í Vestmannaeyj-
um um Hvítasunnuna og lokamótið
á ísafirði í júlí. ísfirðingar sendu
bæði karla og kvennasveit á mótið á
Akureyri, með góðum árangri og
hyggjast nú undirbúa sig vel undir
Hvítasunnumótið í Vestmannaeyj-
um. Núverandi íslandsmeistari sjó-
stangaveiðimanna er Páll A. Pálsson
á Akureyri, en hann hefur náð mjög
góðum árangri á undanförum árum.
Úlfar.
„Bróðir minn Ljóns-
hjarta“ endurútgefin
ÆVINTÝRIÐ Bróðir minn Ljónshjarta
eftir Astrid Lindgren er komin út f
annað sinn hjá Máli og menningn.
Þýðingin er eftir Þorleif Hauksson og
myndir eftir Ilon Wikland. Bókin kom
út iríð 1976 en hefur lengi verið
ófianleg. Eins og kunnugt er hafa Svf-
ar gerí sjónvarpsþætti eftir bókinni
sem nú er verið að sýna bér og kvik-
mynd sem einnig hefur verð sýnd bér i
landL
Þetta er sagan af bræðrunum
Jónatan og Snúð Lejon í landinu
Nangijala þar sem ennþá er tlmi
varðeldanna og ævintýranna. Það er
þangað sem menn fara þegar þeir
deyja, segir Jóntan við Snúð sem
liggur veikur. Snúð þykir ekki eins
vænt um neinn og Jónatan, sem er
svo hugrakkur og sterkur, og hann
kviðir þvf að þurfa aö skilja við
hann. En til þess kemur ekki, það er
Jónatan sem fer á undan til Nangij-
ala og tekur á móti Snúð þegar hann
kemur.
Eftir það verður ekkert lát á
spennandi viðburðum.
Þes8i útgáfa er jafnframt fyrsta
bókin í flokki pappfrskilja frá Máli
og menningu sem ætlunin er að
bjóða a mun lægra verði en inn-
bundnar bækur. Flokkurinn ber
samheitið Uglur, og Bnróðir minn
Ljónshjarta er fyrsta Barnauglan.
Bókin er 248 bl., sett 1 Hólum hf.,
filmuunnin í Repró, prentuð f Form-
kprenti og bundin í Bókfelli.
(Fréttatilkynning.)