Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
65
Ásmundur Eiríksson
Ásgarði - Minning
Hann lést 27. sept. sl. Útför
hans var gerð frá Selfosskirkju
laugardaginn 6. okt. að viðstöddu
miklu fjölmenni. Jarðsett var á
Búrfelli, sóknarprestur, sr. Rúnar
Þór Egilsson, jarðsöng. Kirkjukór
Selfosskirkju söng undir stjórn
Glúms Gylfasonar organista og
Guðmundur Þ. Gíslason söng ein-
söng.
Ásmundur var fæddur í Búr-
fellskoti 2. apríl 1921, sonur hjón-
anna Guðbjargar Jónsdóttur, ætt-
aðri úr Landeyjum, og Eiríks Ás-
mundssonar frá Neðra-Apavatni í
Grímsnesi, bónda í Búrfellskoti og
síðar á Helgastöðum í Stokkseyr-
arhreppi.
Vegna veikinda móður Ásmund-
ar buðust Guðrún Gísladóttir og
Guðmundur Ólafsson bóndi í Ás-
garði til að annast hið nýfædda
barn um einhvern tíma og þannig
varð það að Ásmundur flutti að
Ásgarði aðeins þriggja nátta gam-
all.
Upphaflega átti dvölin aðeins að
vera um skamman tíma, en svo fór
að hann ílentist á þessum stað og
átti þar heima alla ævi. Guðrún og
Guðmundur í Ásgarði áttu eina
dóttur, Guðbjörgu, sem var tvítug
stúlka þegar Ásmundur kom á
heimilið. Hún og allt heimilisfólk í
Ásgarði fagnaði þessum unga
sveini, sem kom svo óvænt inn á
heimilið og leit Guðbjörg á hann
sem fóstbróður sinn alla tíð.
Eftir venjulegt barnaskólanám
lá leið Ásmundar í íþróttaskólann
að Haukadal. Þar hygg ég að hann
hafi fengið áhugann á félagsmál-
um, því brátt var hann kominn í
forystusveit UMF. Hvatar og
starfaði þar í stjórn næstu 20 árin.
Árið 1941 byrja UMF. Hvöt og
UMF. Biskupstungna á árlegu
samstarfi um íþróttamót, sem
hleypir miklu lífi í starfsemi þess-
ara félaga, því eftir íþróttaæf-
ingar og keppnir sumarsins hélt
þessi hópur áfram að koma saman
og snýr sér að leiklist yfir vetrar-
tímann.
Mörg stór og viðamikil leikrit
voru æfð og sýnd hér í byggðalag-
inu á þessum árum og fór Ás-
mundur jafnan með stór hlutverk,
sem okkur yngri félögunum verða
minnisstæð. Hann átti auðvelt
með að hrífa aðra með sér til
slíkra verka, en var jafnan leið-
toginn, sem starfið snerist um. Að
öðrum störfum í ungmennafélag-
inu beitti hann sér fyrir gerð
íþróttavallar á Borg 1950 og var
svo hvatamaður að byggingu fé-
lagsheimilisins að Borg og for-
maður byggingarnefndar á meðan
húsið var í byggingu á árunum
1959—1966. Mikil sjálfboðavinna
var við þessar framkvæmdir og
Ásmundur fremstur í flokki þegar
kallað var til starfa, auk þess að
útvega efni og ráða smiði til
verksins.
En Grímsnesingar kveðja hann
til frekari starfa, hann verður
hreppsnefndarmaður og oddviti
sveitar sinnar frá árinu 1972 til
dauðadags. í oddvitatíð Ásmundar
á hann þátt í byggingu sundlaugar
við Ljósafoss, sem var vígð 1975,
umfangsmiklum endurbótum á
skólahúsnæði Barnaskólans við
Ljósafoss og byggingu leitar-
mannahúss í Kringlumýri, auk
annarra framfaramála sveitarfé-
lagsins. Allt reikningshald var í
besta lagi og samskipti við okkur,
sem njótum verka hans með ágæt-
um. Oddvitastarf í Grímsnesi er
Reykjavík:
Veðbókarvottorð þarf ekki
lengur við umskráningu bfla
Veðbókarvottorð þarf ekki lengur
við umskráningu bifreiða í Keykja-
Isafjörður:
Unglingar
játa á sig
innbrot
LÖGREGLAN á ísafirði befur hand-
tekið þrjá unglinga, sem grunaðir
voru um nokkur innbrot og
skemmdarverk sem framin hafa ver-
ið í bænum að undanfórnu. Við yfir-
heyrslur játuðu unglingarnir að hafa
verið hér að verki og hefur nokkur
hlutí þýfisins komist til skila.
Af þeim stöðum á ísafirði, sem
brotist hefur verið inn í að undan-
förnu, má nefna Netagerð Vest-
fjarða, Gúmmíbátaþjonustuna,
verslunina Vinnuver og verslun
óliusamlags útvegsmanna. Var
hér um að ræða bæði þjófnaði á
peningum og vörum, svo og
skemmdarverk, og játuðu ungl-
ingarnir þessi innbrot við yfir-
heyrslur í gærdag. Þá munu þeir
einnig vera viðriðnir bílþjófnaði
og skemmdarverk á bflum, sem
unnin hafa verið á ísafirði að und-
anfömu.
vík. Borgarfógetaembættið í Reykja-
vík er komið í beint samband við
tölvu Bifreiðaeftirlits ríkisins og get-
ur nú sent bifreiðaeftirlitinu upplýs-
ingar um hvort bifreiðir séu veðsett-
ar í Reykjavík.
Hvili engin veðbönd á viðkom-
andi bifreið með R-númeri getur
umskráning nú farið fram hjá Bif-
reiðaeftirliti rikisins án þess að
veðbókarvottorð liggi frammi eins
og venja hefur verið fram að
þessu.
Hins vegar þarf Borgarfógeta-
embættinu i Reykjavík að berast
staðfest tilkynning frá Bifreiða-
eftirliti ríkisins um umskráningar
allra bifreiða með R-númeri, sem
veðbönd hvila á.
nokkuð frábrugðið því sem gerist í
sveitarfélagi með um 300 íbúa, þar
sem mikil sumarhúsabyggð hefur
risið innan marka sveitarfélags-
ins. Viðskiptamenn sveitarfélags-
ins eru um 11 hundruð, þannig að
í mörg horn er að líta. Fyrir öll
þessi miklu störf sem Ásmundur
hefur innt af höndum fyrir okkur
og sveitarfélagið þökkum við af al-
hug.
Það var árið 1946 sem Ásmund-
ur tekur við búi í Ásgarði og gerist
bóndi. Alla tíð rak hann gott og
afurðasamt bú og sérstaka ánægju
hafði hann af hestum og átti jafn-
an góða reiðhesta, sem hann naut
i ríkum mæli þegar stund gafst til.
Á fyrstu búskaparárum sinum
stundaði hann sláturhúsavinnu á
haustin, eins og svo margt fólk úr
sveitum. Hann var ágætur flán-
ingsmaður og var eftirsóttur til
þeirra starfa og naut þeirra af
gáska og gleði, því hann varð
vinmargur hvar sem hann fór.
Árið 1952 kvænist Ásmundur
Sigríði Eiríksdóttur frá Langholti
i Hraungerðishreppi, ágætri konu
sem staðið hefur við hlið manns
, síns af mikilli prýði. Þau voru
mjög samhent alla tíð og fljótlega
byrjuðu þau á uppbyggingu i Ás-
garði, íbúðarhús, fjós, hlöður og
fjárhús rísa hvert af öðru, jafn-
hliða mikilli ræktun.
Þau eignuðust 8 börn: Eygló
Lilja, húsfreyja í Keflavík, gift
Hermanni Hermannssyni, Gunn-
ar, kjötiðnaðarmaður á tsafirði,
býr með Þórdísi Ásgeirsdóttur,
Eiríkur, trésmiður, starfar á Sel-
fossi, stúlka dó í bernsku, Guð-
mundur, bílasmiður í Reykjavík,
Margrét, stúdent, Áslaug nemandi
í Menntaskólanum á ísafirði og
Kjartan, nemandi í Héraðsskólan-
um á Laugarvatni.
Ég hef með þessum línum stikl-
að á nokkrum staðreyndum úr
lífshlaupi Ásmundar í Ásgarði.
Margs er að minnast og margt er
enn ósagt, hans stæsta hamingja
var eiginkonan, sem stóð sem
klettur við hlið hans í blíðu og
stríðu.
Sigga mín, megi góður Guð gefa
þér og fjölskyldunni allri styrk í
ykkar miklu sorg.
Böðvar Pálsson
Legslelnar
Framleidum allar stærðir og gerðir af legsteinum
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
______um gerð og val legsteina_
ÍS S.HELGASON HF
ISTEINSMKUA
■
SWWMUVEGI 48 76677
Ný bók,
Svartlist
ÚT ER komin Svartlist, ljóð og
mynd, eftir Kristján Kristjánsson
og Aðalstein Svan. í bókinni eru
25 Ijóð og 18 dúkristur, 60 blaðsíð-
ur og er gripurinn prentaður i
Hólum. Höfundarnir gefa út.
Legsteinar
granít — marmari
Opiö alla daga,
einnig kvöld
og helgar..
Hamii ð.f.
Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
símar 620809 og 72818.
t
Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
SIGRÍOUR S. HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Stuólaseli 4,
Reykjavfk,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember
ki. 13.30.
Kristinn Óiafsson,
Ingibjörg Hallgrimsdóttir,
Auöur S. Kristinsdóttir,
Lúövfk Kristinsson,
Hallgrímur Kristinsson,
Ólafur Ó. Kristinsson
og barm
Hjörleifur Ólafsson,
Bannay Ólafsdóttir,
Ólafur K. Hjörlaifsson,
Jóhann Ó. Hjörlaifsson,
ibarnabarn.
t
Viö þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýja vináttu viö andlát
og útför
JÚLÍU SVEINBJARNARDÓTTUR
laiósögumanns,
Klaifarvagi 11.
Baldvin Tryggvason,
Sveinbjörn Sigurjónsson, Sofffa Ingvarsdóttir,
Svainbjörn I. Baldvinsson, Jóna Finnsdóttir,
Tryggvi M. Baldvinsson, Vilborg Einarsdóttir,
Guörún Sveinbjarnardóttir, Arnþór Garöarsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall móöur minnar,
tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÞÓRU GUDMUNDSDÓTTUR
frá Eyöi-Sandvfk,
Sólvallagötu 40.
Grétar Jónsson,
Guöfínna Jóhannesdóttir, Erla Grétarsdóttir,
Jón Þór Guömundsson, Halla Grétarsdóttir,
Alma H. Guómundsdóttir, Vilborg Grétarsdóttir,
Hrafna Guömundsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa,
FLOSA ÞÓRORMSSONAR
frá Féskrúösfiröi, Klappsvagi 82, Raykjavfk.
Sigurborg Jónasdóttír,
Áslaug Flosadóttir, Jóhannas Gunnarsson,
Stefanía Flosadóttir, Halldór Þórhallsson,
Ellan Flosadóttir,
Guövin Flosason
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför systur okkar,
HELGU EINARSDÓTTUR,
Suöurgötu 14,
sem andaöist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 9. okt. sl.
Þorgaröur Einarsdóttir,
Sigrfóur Einarsdóttir
og aörir vandamann.
t
Þökkum öllum þelm sem sýndu okkur samúö og heiöruöu minn-
ingu móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
EVU FANNEYJAR JÓHANNSDÓTTUR,
Kirkjuvagi, 9 Hafnarfiröi,
sem jarösungin var frá Frfkirkjunni i Hafnarfiröi mánudaginn 29.
okt. sl.
Jóhann Ólafsson,
Eóvar Ólafsson,
Siguröur Ólafsson,
Guörún Ólafsdóttir,
Bryndfs Ólafsdóttir,
barnabörn og
Edda Ólafsson,
Guöbjörg Guðjónsdóttir,
Halga Ármannsdóttir,
Guómundur Vigfússon,
Hilmar Ágústsson,
barnabarnabörn.
Lokað
Lokaö mánudaginn 12. nóvember vegna jaröarfarar
KRISTINS EINARSSONAR, klæöskera.
Efnalaugin Venus,
Hverfisgötu 59.