Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984
19
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
„Ég borða ekki lambakjöt," að-
varaði erlendur gestur mig.
„Ah ha, þú hefur ekki smakkað
íslenskt," gortaði ég.
„Reyndar ekki,“ svaraði hann
dræmt.
„Þú verður ekki fyrir vonbrigð-
um,“ fullvissaði ég hann og lagði á
borð.
Kjell Bækkelund
Tónlist
Egill Friöleifsson
Norræna húsið 20.11.84
Flytjandi: Kjell Bækkelund, píanó.
Efnisskrá: verk eftir E.Grieg,
Sparre-Olsen, J.Kvandal, A.Bibalo,
C.Ives.
Norski píanóleikarinn Kjell
Bækkelund kvaddi sér hljóðs í
Norræna húsinu sl. þriðju-
dagskvöld og lék fyrir okkur
verk eftir nokkur norsk tónskáld
og Bandaríkjamanninn C.Ives.
Kjell Bækkelund hefur lengi
staðið í fremstu röð norrænna
píanista og hlotið alþjóðlega við-
urkenningu fyrir list sína. Hann
hefur áður heimsótt okkur og
glatt með píanóleik sínum. Það
skal strax tekið fram, að ég varð
fyrir nokkrum vonbrigðum með
leik hans framan af að þessu
sinni, sem tæplega einkenndist
af sama fídonskrafti og snerpu
og stundum áður. Að vísu gerði
hann margt laglegt, en öryggi
hans og glæsileg yfirferð var
meira í ætt við rútínu atvinnu-
mannsins en innblástur snill-
ingsins. En hann spilaði sig upp
og sýndi hvernig nota á slag-
kraftinn í sónötu Bibalo. Annars
hóf hann leik sinn með fjórum
húmorsekum op. 6 eftir E.Grieg,
fáheyrðum glaðlegum æskuverk-
um, sem gefur í skyn hvers af
honum má vænta. Næst heyrð-
um við tilbrigði við norskt þjóð-
lag op. 5 eftir Sparre-Olsen, en
Kjell Bækkelund píanóleikari.
hann lést fyrir stuttu. Og þá 3
slaattefantasier eftir Johan
Kvandal, áheyrileg músík með
þjóðlegum blæ. En það var í són-
ötu Antonio Bibalo sem Bække-
lund tók verulega til hendinni.
Bibalo er norskur ríkisborgari
en mun af ítölskum ættum.
Hann samdi þessa sónötu árið
1974 og tileinkaði Bækkelund,
sem Iætur vel að fást við hrjúfa
tröllslega músík. „Tonnatak"
gæti hún heitið sónatan sú og
var hér flutt af miklum sann-
færingarkrafti og tilþrifum.
Tónleikunum lauk svo með
sónötu nr. 2 eftir æringjann
Charles Ives. Sá fór nú ekki al-
deilis troðnar slóðir í tónsköpun
sinni. Eða hverjum öðrum hefði
dottið í hug að semja píanósón-
ötu með aðstoð fiðlu, flautu og
spýtu! Það er ekki heiglum hent
að komast í gegnum slíkt fing-
urbrjótartorf, sem þessi sónata
er, en það vafðist ekki fyrir Kjell
Bækkelund.
Smásteikur
úr læri
með meiru
fyrir 4—5
1 kg lærissneiðar
'k sítróna
1—2 laukar
1 paprika græn
(M kg sveppir eða 1 dós niður-
soðnir)
feiti, hveiti, salt og pipar
1. Lærisneiðarnar skornar í 3—4
hluta. Bein fjarlægð og sem
mest af fitulagi.
2. Kjötið er marið og flatt út með
kjöthamri. Kjötstykkjunum er
síðan velt upp úr hveiti (bland-
að salti og pipar) og þau brúnuð
í feiti. 2 matsk. matarolía og 1
matsk. smjörvi, brúnið mjög
vel.
3. Steikunum er því næst raðað í
eldfast fat eða í ofnpott. Kreist-
ið safa úr Vfe sítrónu yfir kjötið,
setjið ca. 3 matsk. af vatni hjá
kjötinu, lokið pottinum og látið
í heitan ofn. Bakið við meðal
hita í 30 mín.
4. Laukurinn er sneiddur niður og
léttsteiktur. Paprikan er skorin
sundur og fræ fjarlægð. Hún er
síðan skorin í u.þ.b. 'k sm
breiða strimla og steikt með
lauknum í nokkrar mínútur. í
stað víns er kjúklingakraftur
leystur upp í xh bolla af vatni
sem því næst er helt yfir lauk-
inn og suðan látin koma upp.
Salti bætt við eftir þörfum.
5. Laukmaukið er síðan sett yfir
steikurnar í pottinum og þær
bakaðar áfram í 20 mín. í lok-
uðum potti.
Þegar meira er við haft má
bæta sveppum í rétt þennan, ann-
að hvort niðursoðnum sveppum
eða nýjum íslenskum sveppum. Ef
notaðir eru niðursoðnir sveppir
(ekki kínverskir Ma Ling, þeir
gefa réttinum ekki gott bragð), þá
síið vökvann frá og blandið lauk
og papriku á pönnu í steikingu.
Nýja sveppi er ágætt að steikja
á pönnu og láta yfir laukmaukið á
steikunum um leið og þær eru
bornar á borð. Hitið á pönnu 1
matsk. smjör og 'k matsk. matar-
olíu. Skerið niður 250 gr. af nýjum
sveppum, setjið á pönnuna og
hristið um leið svo feitin nái að
umljúka sveppina. Bætið hvít-
lauksrifi út í og steikið við meðal-
hita í 3—5 mín. og hristið oft.
Bragðbætið með nokkrum dropum
af sítrónusafa.
Með kjötinu eru kartöflur
sjálfsagðar sem meðlæti og t.d.
rósakál eða Brussel sprouts sem
nú er á íslenskum markaði.
Verð á hráefni
kfí lærissneiðar 242,30 kr.
1 sítróna 8,00 kr.
1 paprika 15,00 kr.
250 gr sveppir 80,00 kr.
ISLENSKUR
HÚSBÚNAÐUR
Langholtsvegi 111, 124 Reykjavík, pósthólf 4212, sími (91) 686605
íslenskur húsbúnaður sparar þér tíma og fyrirhötn og auðveldar
þér kaup á íslenskum húsbúnaði í háum gæðaflokki.
íslenskur húsbúnaður sýnir úrval húsgagna og
húsbúnaðar frá tíu þekktum íslenskum framleiðendum og
gerir tilboð í stærri verkefni.
Islenskur húsbúnaður hefur valin húsgögn fyrir heimiliö,
skrifstofuna, skóla, sjúkrahús og elliheimili. Ennfremur áklæði,
gluggatjöld, gólfteppi og lampa af ýmsum gerðum.
Góð greiðslukjör og heimsendingarþjónusta.
MICHELLE LEÐURSÓFASETT
DATO RÚM OG KOJUR
cc
LU
CO
Samtals
345,00 kr.