Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Hjörgun ungmennanna þriggja Valdimar Bjarnason fri Hvolsvelli, sem fann ferðalangana. Sigurður Sigurðsson, Laugarvatni. Tbeódór Vilmundarson, Efstadal. að beita þeim fjölmörgu vélsleð- um sem björgunarsveitir höfðu komið með til leitarinnar. Taldi Hilmar að samtals hefðu tæp- lega 500 manns tekið þátt í leit- inni, þar af um 380 beint við leit- ina í gær. Hilmar sagði að sáralitlu hefði munað að fólkið kæmi i leitirnar í fyrradag þegar þyrlu Land- helgisgæslunnar var flogið yfir hluta leitarsvæðisins. Hilmar var í þyrlunni og sagði hann að þoka hefði legið lágt yfir Prestsvatni og því ekki hægt að Hilmar Einarsson í stjórnstöð leit- armanna, sem var á mánudag i eldhúsinu í íbúðarhúsinu í Miðdal. fljúga yfír það þó vel hefði sést út á ísilagt vatnið. Hilmar sagði, þegar hann var beðinn að gefa fólki ráð i ferðalögum á fáförn- um vegum: „í fyrsta lagi að gera ferðaáætlun með tímasetningum og halda henni. Og í öðru lagi að yfírgefa bílinn ekki þó eitthvað komi fyrir því vegakerfið er ekki svo flókið að yfirleitt finnst slíkt farartæki fljótt." Þegar rætt var við Hilmar að leit lokinni var hann að fara á fund þremenninganna sem hann átti þátt í að bjarga. Þegar hann var að lokum spurður að þvi hvað honum væri efst i huga á þessari stundu sagði hann: „Innilegur fögnúður, það er litið annað hægt að segja. Þetta kem- ur svo sannarlega við hjartaræt- urnar i manni. Þá hugsa ég jafn- framt til foreldra þeirra og ann- arra aðstandenda og samgleðst þeim.“ Rafmagnað andrúmsloft í stjórnstöðinni Sigurður Sigurðsson og Theó- dór Vilmundarson, félagar í björgunarsveitinni Ingunni á Laugarvatni, fundu Bronco- bifreið ungmennanna skammt frá Gullkistu á Miðdalsfjalli á ellefta tímanum á mánudags- morgun. Höfðu þeir farið með fleiri félögum sínum á bíl upp frá Miðdal eftir miðnætti aðfaranótt mánudagsins þegar leit hófst að jeppanum, en urðu frá að hverfa vegna ófærðar. Fóru þeir félagar því upp á tveimur snjósleðum um klukkan átta um morguninn. Fundu þeir Bronco-inn mannlausan um klukkan 10.40 og urðu að snúa til byggða aftur vegna þess að tal- stöð þeirra var óvirk. Að því loknu héldu þeir aftur á Mið- dalsfjall og hugðust freista þess að komast í gangnamannaskál- ann á Hlöðuvöllum því þeir töldu að fólkið hefði ef til vill haldið til baka til skálans eftir eigin bíl- förum þegar bíll þeirra bilaði. Engar fregnir bárust af Sig- urði og Theódór allan mánudag- inn. Ófært var í skálann og vissi því enginn hvort ferðalangarnir hefðu komist f Hlöðuvallaskál- ann. Upp úr klukkan eitt aðfara- nótt þriðjudags, þegar farartæki sem send höfðu verið í átt til skálans nálguðust hann, var rafmagað andrúmsloft f stjórn- stöð leitarinnar. Töldu þá marg- ir að nánast eini möguleikinn til að ungmennin þrjú úr jeppanum væru á lífi væri sá að þau hefðu komist f skálann. Ekki var farið að óttast um vélsleðamennina en mönnum létti óneitanlega þegar fregnir bárust af því að þeir væru í skálanum en að sama skapi var af mönnum f stjórn- stöðinni dregið þegar leitarmenn tilkynntu að ekkert annað fólk væri þar, og engin merki um að það hefði komið þangað. „Gengum frá báö- um snjósleðunum“ Theódór lýsti ferðinni inn í skálann þannig f samtali við blaðamann Mbl. í gærmorgun, áð- ur en fregnar bárust af því að ferðalangarnir hefðu fundist heil- ir á húfí: „Þegar við héldum upp eftir hádegið var farið að rigna mikið að allt var komið í krapa- flóð. Okkur sóttist ferðin seint. Við þurftum að ganga af báðum sleðunum á Rótarsandi. Annar sleðinn bilaði og hinn sökk f krap- ann. Við gengum þá það sem eftir var leiðarinnar til skálans, sem er um 5 til 6 km. Slagveðursrigning var og urðum við rennblautir í lappirnar en leið að öðru leyti vel. Við vorum um þrjá klukkutfma að ganga þetta enda þurftum við að fara miklar krókaleiðir vegna vatnsflaumsins, og komum f skál- ann um klukkan 23. Við vorum að vona að við sæum fólkið f skálan- um en einhvern veginn fannst okkur að með tilliti til þess hvað okkur sóttist ferðin seint, þrátt fyrir okkar kunnugleika og útbún- að, að fólkið gæti varla hafa kom- ist þangað því það hlýtur að hafa orðið gegnblautt strax.“ Theódór og Sigurður lögðu sig í blautum fötunum f skálanum sem er óupphitaður en félagar úr Hjálparsveit skáta f Reykjavík komu þangað um klukkan 1.30 eft- ir miðnættið og gistu þar líka um nóttina. „Ég hef aldrei lent í öðr- um eins göngum. Við vorum aldrei hætt komnir en geysilega var þetta erfitt,“ sagði Theódór. „Kemur svo sannarlega við hjartaræturnar“ — segir Hilmar Einarsson leitarstjóri á Laugarvatni Ungmennin þrjú sem leiUð hefur verið að síðan á sunnudag á hálend- inu norðaustan við Laugarvatn fundust beil á húfi við Prestsvatn fyrir ofan Efsta-Dal við Laugarvatn um klukkan 11.25 í gærmorgun. l'm- fangsmikil leit hafði staðið frá þvf seint á sunnudagskvöld er ungmennin komu ekki fram úr skemmtiferð á tilsettum tíma. Náði leitin hámarki I gær þegar tæplega 500 manns, félagar úr fjölmörgum björgunarsveitum Slysavarnafélags fslands, flugbjörgunarsveitum, hjálparsveitum skáta auk heimamanna og nemenda Iþróttakennaraskólans á Laugarvatni tóku þátt í leitinni. Ungmennin voru köld og nokkuð þrekuð en voru ótrúlega vel á sig komin eftir úfivistina. Fann ferðalang- ana fyrstur „Það er frekar hægt að segja að þau hafi fundið okkur en við þau. Þau urðu vör við okkur og stóðu upp þegar við nálguð- umst,“ sagði Valdimar Bjarna- son félagi f Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli, þegar blaðamaður Mbl. hitti hann að máli uppi f hlíöum Efstadals- fjalls á meðan beðið var eftir að þremenningunum yrði komi fyr- ir í bíl sem sótti þau þangað. Valdimar var að leita á leitar- svæði númer 4, sem liggur frá Gullkistu og yfir Vatnsheiði, þegar hann varð þremenning- anna var, fyrstur manna, þar sem þau komu út úr snjóhúsi sínu við Prestsvatn skömmu fyrir hádegið í gær. Björgunarsveitarmennirnir urðu fyrst varir við spor og þeg- ar þeir sáu ungmennin sem leit- að hafði verið að héldu þeir fyrst að þau væru leitarmenn á öðru svæði. Valdimar sagði að fagn- aðarfundir hefðu orðið. Ung- mennin hefðu grafið sig í fönn; gert sér litið snjóhús. Sagði hann að þau hefðu látið illa af dvölinni enda verið blaut og ís- köld en mesta furða væri hvað þau hefðu þó verið hress. Voru þau gangfær þegar björgunar- sveitarmenn höfðu lánað þeim þurr föt af sér. Engum datt í hug að fólkið væri á lífi Hilmar Einarsson á Laugar- vatni stjórnaði fyrstu aðgerðum í leitinni að ungmennunum þremur og var í leitarstjórn all- an leitartimann. Að leitinni af- staðinni sagði hann, aðspurður um hvernig honum hefði orðið við, þegar fréttir bárust í stjórn- stöð leitarmanna í barnaskólan- um á Laugarvatni um að fólkið, sem saknað hafði verið í hátt í tvo sólarhringa, væri fundið heilt á húfí: „Ég var ekki við- staddur þegar fyrsta tilkynning- in kom, klukkan 11.25, en í sann- leika sagt þá var ekki spurt að Morgunbladid/Júlíus. Bflum leitarmanna, sem ungmennin þrjú voru flutt f til byggða eftir giftusamlega björgun, hjálpað yfir forarpytt undir Efstadalsfjalli. þvi þá hvort fólkið væri á lifí. Aðstæður voru þannig að flestir voru ósjálfrátt farnir að reikna með að illa hefði farið. Það var því ekki fyrr en við vorum búnir að ræða þrisvar eða fjórum sinn- um við björgunarsveitarmenn- ina sem það kom í ljós að þau voru heil á húfi og voru göngu- fær. Þá var auðvitað kátt I höll- inni og menn auk þess fegnir að þessu skyldi vera lokið. Ég held þó að innst inni hafi menn stöðugt haldið I vonina um að vel færi, enda hefur reynslan kennt mönnum hvað fólk getur lifað ótrúlega lengi við misjafn- ar aðstæöur. Þessu svipaði nokk- uð til þess þegar rjúpnaskytta týndist við Skjaldbreiö fyrir nokkrum árum en fannst heil á húfí á þriðja degi. Þetta var vissulega afrek hjá ungmennun- um að komast af nú þegar litið er til allra aðstæðna, því undir venjulegum kringumstæðum króknar fólk við að vera úti I veðri eins og gekk yfir þessa daga. Þau hafa sjálfsagt farið rétt að miðað við þá aðstöðu sem þau voru búin að koma sér I en ( upphafi voru það auðvitað geysi- leg mistök hjá þeim að yfirgefa bílinn." 500 manns tóku þátt í leitinni „Leitað var á tiltölulega þröngu svæði og var því hægt að raða miklum mannskap á allt svæðið. í birtingu i morgun lá fyrir nákvæmt skipulag leitar- innar, þar sem svæðið var hólfað niður i leitarsvæði. í heild hljót- um við að vera ánægðir með leit- ina en eins og venja er til verður kallað saman til fundar nú á næstunni og farið yfír allt skipu- lagið til þess að hægt sé að lag- færa fyrir næstu leit það sem aflaga kann að hafa farið,“ sagði Hilmar þegar hann var spurður um skipulag leitarinnar. Veður til leitar var ágætt í dag en þó ekki hægt að koma við leit með þyrlum. Færð var erfíð vegna krapa og lítið sem ekkert hægt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.