Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984 Glæpur og refsing — í útgáfu Máls og menningar Glæpur og refsing, frægasta bók rússneska meistarans Dostojevsk- ís, er komin út hjá Máli og menn- ingu í röð heimsbókmennta. Það er Ingibjörg Haraldsdóttir sem þýðir verkið úr frummálinu. Svið þessarar miklu skáldsögu er Pétursborg um 1860, ört vax- andi stórborg, iöandi af litriku mannlífi. Lesendur kynnast embættismönnum og flæking- um, rikismönnum og skækjum, morðingjum og heilögum mönn- um, en í miðju sögunnar er ein- farinn Raskolnikof, tötrum bú- inn stúdent með stórmennsku- drauma, sem hann vill fyrir hvern mun gera að veruleika. GLÆPUR OG- REFSING n Spennan, mannlýsingarnar og heimssýnin sameinast um að gera Glæp og refsingu að ein- hverri eftirminnilegustu skáld- sögu síðari tíma. Bókin er gefin út með styrk úr Þýðingarsjóði. Hún er 469 bls. Setningu og prentun annaðist Prentstofa G. Benediktssonar, Bókfell sá um bókband. Kápu- mynd gerði Robert Guillemette. (Frétutilkjuiag.) Sinfóníutónleikar annað kvöld FJÓRÐU áskrifUrtónleikar Sinfón- íuhljómsveiUr íslands á þessu sUrfsári verða I Háskólabfói nk. fimmtudag, 29. nóv., og hefjast þeir kl. 20.30. Efnisskrá tónleikanna verður sem hér segir: Leifur Þórarinsson: Sinfónía nr. 1. Franz Liszt: „Malediction" fyrir píanó og strengjasveit. Franz Liszt: „Totentanz". Alexander Skrjabin: Sinfónía nr. 2 i c-moll. Einleikarinn, Halldór Haralds- son, lauk burtfararprófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík 1960 og stundaði síðan framhaldsnám við Royal Academy of Music I London árin 1962—'65, en þaðan lauk hann einleikaraprófi í píanó- leik. Halldór hélt sína fyrstu opin- beru tónleika í Reykjavík á vegum Tónlistarfélagsins 1965. Síðan hef- ur hann haldið fjölda tónleika bæði hérlendis og erlendis. Hann hefur oft komið fram sem einleik- ari með Sinfóníuhljómsveit ís- lands og leikið m.a. píanókonserta eftir Liszt, Ravel, Bartók, Poulenc, Beethoven, Tsjaikovskf o.fl. Hann hefur verið mjög virkur í kamm- ertónlist og farið í nokkrar utan- landsferðir í því skyni. Árið 1973 Vetrar veður... Nú þegarallra veðra er von, vill Hafskip hf. benda viðskiptavinum sínum á eftirfarandi: 1. 2. 3. Að þeir séu á verði um hagsmuni sína t.d. með því að tryggja vörum sínum viðeigandi umbúðir og gera allar þær ráð- stafanir fyrir sitt leyti, til að auka flutningsöryggi vörunnar á komandi árstíma. Bent er einnig á ótvírætt öryggi þess fyrir farmeigendur, að vátryggja á frjálsum markaði farm sinn í flutningi og geymslu, þar sem ábyrgð farmflytjenda er á margan hátl takmörkuð, t.d. vegna veðurfars og ófullnægjandi umbúða. Sérstaklega skal gæta þess að frostlögur sé á kælikerfum véla og tækja og huga þarf að öryggi farms í vöruskemmum eða á útisvæðum sem kynni að vera hætt vegna frosts, foks eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Með kveðjum. HAFSKIP HF. WFSHP var hann valinn til að fara í tón- leikaferð um öll Norðurlönd, hina fyrstu svokölluðu kynningarferð einleikara um Norðurlönd á veg- um Nordisk Solistrád. Þá hefur hann frumflutt mörg verk ís- lenskra samtíðartónskálda og síð- ustu árin hefur hann oft haldið tónleika með Gísla Magnússyni pí- anóleikara, þar sem þeir hafa leik- ið verk fyrir tvö píanó. Fyrir nokkrum árum var gefin út hljóm- plata með leik þeirra, þar sem þeir leika Vorblót Stravinskis í útsetn- ingu höfundar. Síðan 1966 hefur Halldór verið kennari við Tónlist- arskólann í Reykjavik. (Frétutllkjnning.) Bernskumyndir M Langanesströnduin — eftir Kristján frá Djúpalæk SKJALDBORG hf. á Akureyri hefur gefið út bókina „Á varinhellunni — bernskumyndir frá Langanesströnd- um“ eftir Kristján frá Djúpalæk. Á bókarkápu er efnið nánar skilgreint sem „daglegt aml og mannleg lífbrigði í útkjálkasveit milli stríða". Þar segir og: „Á var- inhellunni er ekki eiginleg ævi- saga heldur sjálfstæð minninga- brot, margvíslega samsett; bernskumyndir er höfundur bregður upp úr heimasveit sinni, „frá nyrstu ströndum" þriðja ára- tugarins. Það var á tímum hins kjarnmikla mannlifs þegar sér- lyndi og sérvitund voru ennþá regla en ekki undantekning í sam- félaginu. Og hér er enginn hörgull á kynlegum kvistum ... Yfir allri frásögninni hvílir sú heiðríkja hugarfarsins, sú góðlát- Kristján frá Djúpalæk lega kímni og sá tærleiki máls og stíls sem skáldinu frá Djúpalæk er laginn. Og við kynnumst lífheimi þar sem gjöful fjara, kliðmjúkur lækur og herðabreið fjöll mynda umgjörð um veröld sem var.“ Skáldsaga eftir Arna Bergmann MÁL og menning hefur gefið út skáldsöguna Með kveðju frá Dublin eftir Áma Bergmann, en eftir Árna hafa áður komið út endurminn- ingarnar Miðvikudagar í Moskvu og skáldsagan Geirfuglarnir. í frétt frá MM segir m.a.: „Óvænt ástarævintýri í Suður- Frakklandi verður til að rífa aðal- persónuna Björn úr friðsælum hvunndagsheimi hins miðaldra kennara. Hann eltir stúlkuna til írlands, þar sem hann kemst i samband við skæruliða írska lýð- veldishersins. Þegar Björn snýr aftur til íslands er hann flæktur í átök, þar sem engum er hlíft. Með kveðju frá Dublin er spennusaga, Arni Bergmann. sem jafnframt vekur upp ýmsar spurningar." Þessi nýja skáldsaga Árna verð- ur gefin út bæði innbundin og sem kilja í Ugluflokki Máls og menn- ingar. Hún er 189 bls. að stærð, unnin að öllu leyti í Prentsmiðj- unni Odda hf. Kápu gerði Hilmar Þ. Helgason. HAUSTHAPPDRÆTTI SJALFSTÆDISFLOKKSINS Dregið eftir 5 daga VINSAMLEGA GERID SKIL SEM ALLRA FYRST SÆKJUM SENDUM Vinningar: 1. Greiösla upp i íbúö kr. 350.000 2. Greiðsla upp i íbúö kr. 300.000 3. Bifreiðavinningur kr. 200.000 Verömæti vinninga alls kr. 850.000. Aðeins dregiö úr seldum miöum. Skrifstofa happdrættisins aö Háaleitisbraut 1, er opin frá kl. 9—22. Sími 82900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.