Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 MorgunblaðiA/RAX Stefán Hjartarson hefur stundað krabbaveiðar í gildrur síðastliðna þrjá mánuði. I gær kom hann að landi með 250 kíló úr 11 gildrum. Veiðar og vinnsla á trjónukrabba hafin VKIÐAR og undirbúningur að vinnslu og útflutningi á trjónu- krabba er nú hafinn hér á landi. Stefán Hjartarson, kafari, hefur stundað veiðarnar í um þriggja mánaða skeið, tilraunavinnsla er hafin hjá Niðursuðuverksmiðjunni Ora og Sölustofnun lagmetis er að hefja markaðskönnun, meðal ann- ars fyrir þær afurðir. Fiskafurðir og Marex eru að kanna möguleika á útflutningi á krabbananum lif- andi og íslenzk matvæli eru einnig byrjuð að kanna þessa möguleika. Stefán Hjartarson sagði í samtali við Morgunblaðið, að veiðarnar þennan tíma hefðu gengið nokkuð vel. Miðin væru út af Hvalfirði og afli allt upp í 300 kíló á dag. Hann hefði verið með 10 til 30 gildrur í sjó og vitjaði um daglega. Hann væri nú búinn að fækka þeim og í gær hefði hann fengið um 250 kíló í 11 gildrur. Kristján Þ. Gunnarsson, mat- vælaverkfræðingur hjá Niður- suðuverksmiðjunni Ora, sagði í samtali við Morgunblaðið, að enn hefði ekki verið soðið um- talsvert magn niður af krabba. Tilraunaframleiðslan nú miðað- ist fyrst og fremst við súpugerð úr krabbanum og niðursuðu krabbakjarna til súpugerðar og í sósur og fleira. Engin marktæk reynsla hefði enn fengizt af framleiðslu þessari, en aðallega væri litið til Frakklands, Þýzka- lands, Svíþjóðar, Bandaríkjanna, Bretlands og Danmerkur sem hugsanlegra markaðslanda. Rekstrara fkoma BÚR stórbatnað Tapið fyrstu 8 mánuði ársins nam 38 milljónum, en var 141,5 allt síðasta ár og hafði verið áætlað 180 milljónir á þessu ári REKKrRARTAP Bæjarútgerðar Reykjavíkur nam um 38 milljónum króna eftir fyrstu átta mánuði þessa árs. í rekstraráætlunun fyrrum forstjóra BÚR var reiknað með 180 milljóna króna rekstrartapi á þessu ári, en tap síðasta árs nam 141,5 milljónum króna. Framlag Reykjavíkurborgar til BÚR hefur á undanrórnum árum farið sívaxandi og verður á þessu ári 60 milljónir króna. Þessar upplýsingar um rekstur Bæjarútgerðarinnar koma fram í nýútkomnu tölublaði Frjálsrar verzlunar, sem þar vitnar í rekstr- ar- og efnahagsreikning unninn af endurskoðunarskrifstofu Sigurðar Stefánssonar sf. Bæjarútgerðin hefur tvívegis á þessu ári látið gera athugun á rekstrarstöðu sinni, fyrst eftir fjóra mánuði og síðan eftir átta. Samkvæmt niðurstöðu endurskoð- unarskrifstofunnar hefur aðeins eitt skipa BÚR skilað hagnaði eft- ir átta mánuði ársins, en það er Ottó N. Þorláksson. Bókfærður hagnaður af rekstri hans þetta tímabil er 1,3 milljónir, en tap er á öðrum togurum fyrirtækisins og samtals tap á útgerðinni er 17,5 milljónir króna. Tapið á Ingólfi Arnarsyni nam um 7,5 milljónum, á Jóni Baldvinssyni 5 milljónum, á Snorra Sturlusyni og Hjörleifi 2,7 hvoru skipi og af Bjarna Bene- diktssyni 750.000 krónum. Tap á fiskvinnslu fyrirtækisins þetta tímabil nam 20,4 milljónum króna. Á saltfiskverkun var tapið um 6 milljónir króna eða 66% af tekjum, tap af skreiðarverkun var ívið hærra, meðal annars vegna skemmdar í skreiðinni fyrr á þessu ári og var um 60% af tekj- um. í krónutölu nam tap af fisk- iðjuverinu 6,7 milljónum króna eða um 3,5% af tekjum. Eignir Bæjarútgerðarinnar námu í lok ágúst 1.005 milljónum króna en skuldir liðlega 1.023 milljónum. Langtímaskuldir eru rúmlega 700 milljónir, skamm- tímaskuldir 323 milljónir og þar af eru í vanskilum tæplega 52 milljónir króna. íslenzkir hestamenn leigja þýzkan búgarð Akureyri, 5. desember. „ÞAÐ MÁ segja, að við fjármögnum þetta að mestu á bjartsýni einni saman ásamt velvilja leigusala,“ sagði Herbert Olafsson frá Akureyri í samtali við blm. Mbl., en hann hef- ur ásamt Reyni Aðaisteinssyni, Sig- mundarstöðum í Borgarfirði, öðrum landsþekktum hestamanni, tekið á leigu búgarðinn Falkenhorst í Mið- Þýzkalandi, um 25 kílómetra frá Koblenz. Búgarður þessi er á um 25 hekt- ara eigin landi, auk 15 hektara leigulands sem fylgir honum og er þarna allt nýuppbyggt og aðstaða til alhliða hestamennsku mjög fullkomin. Þarna eru tveir 200 metra kappreiðavellir, skeiðbraut, reiðhöll og fullkomin veitingaað- staða, þar sem þeir félagar hyggj- ast meðal annars hafa íslenzka rétti á boðstólum. Hægt er að hýsa allt að 60 hross á búgarðinum og munu Herbert og Reynir hefja út- flutning á íslenzkum hrossum til tamningar og þjálfunar, auk þess sem þeir ætla að reka reiðskóla, efna til námskeiða og fleira til- heyrandi reiðmennsku. Að sögn Herberts verður lögð rík áherzla á að koma þarna upp sölumiðstöð fyrir íslenzka hestinn, þannig að hægt verði að stórauka útflutning á íslenzkum hrossum til Evrópu. — GBerg. Sléttanes ÍS seldi 159 lestir af þorski í Grimsby: Fékk hæsta heild- arverð sem um get- ur á markaðnum SKUTTOGARINN SlétUnes frá Þingeyri fékk í gær hæsta heildar- verð í pundum talið, sem um getur á fiskmörkuðum í Englandi. Hann seldi alls 159,2 lestir af þorski og var heildarverðið 144.500 pund eða William Arkin um varnir íslands: Engin kjarnorkuvopn en heimild á stríðstímum WILLIAM Arkin, bandarískur sér- fræðingur um vígbúnaðarmál, sem gaf fréttastofu hljóðvarpsins til kynna í maí 1980, að hann hefði staðgóðar heimildir fyrir því að hér á landi væru kjarnorkuvopn, er síaddur hér á landi. Arkin segist nú hafa haft rangt fyrir sér í maí 1980 en hann hafi hins vegar sUð- góðar heimildir fyrir því að kjarn- orkuvopn verði flutt til íslands á stríðstímum. Hefur Arkin gengið á fund forsætisráðherra og utanrík- isráðherra og afhent þeim þessar heimildir. Eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað er hér um ljósrit Ríkisstjórnin óskar skýringa í Washington af prentuðum lista yfir ýmis ríki að ræða. Er merkt við ísland á listanum og síðan sagt í skýr- ingargrein að merkið þýði að forseti Bandaríkjanna hafi gefið flotanum heimild til að taka ákvörðun um að til íslands verði fluttar 48 djúpsprengjur með kjarnahleðslum á stríðstímum sem ætlaðar séu til nota í P-3C Orion kafbátaleitarvélum til að granda kafbátum á höfum úti. Segir Arkin að listinn sem hann hafi fengið hjá bandarískum embættismanni sé frá 1975 en þá var Gerald Ford forseti Banda- ríkjanna en sjálfur hafi hann séð nýlegri lista. Geir Hallgrímsson utanríkis- ráðherra óskaði eftir þvi við bandaríska sendiráðið í Reykja- vík að það léti í té upplýsingar um þetta mál. Þá hafa þeir Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og Geir Hall- grímsson ítrekað fyrri yfirlýs- ingar íslenskra stjórnvalda um að hér yrðu ekki kjarnorkuvopn nema með samþykki ríkisstjórn- ar íslands. Hjörleifur Gutt- ormsson þingmaður Alþýðu- bandalagsins hefur beðið um umræður um málið utan dag- skrár á Alþingi í dag. William Arkin var starfsmað- ur Center for Defense Informa- tion í Washington 1980 en starf- ar nú við Institute for Policy Studies, en báðar þessar stofn- anir eru vinstra megin við miðju í stjórnmálum. Hér talaði Arkin í Háskóla íslands í boði félags- vísindadeildar og sóttu um 60 manns fyrirlesturinn. (Sjá forystugrein á miðopnu.) 6.972.500 krónur. Meðalverð var 43,78. Fyrra sölumetið átti Ögri RE, 144.400 pund, sett í ársbyrjun 1980. Vigri RE seldi einnig afla sinn í gær, mest karfa í Bremerhaven. Hann var með 189,4 lestir, heild- arverð 6.771.700 og meðalverð 35,76. Að sögn Péturs Björnssonar, starfsmanns fyrirtækisins J. Marr & Son, sem sér um sölu á ferskum fiski í Grimsby og Hull, er nú óvenju mikið um siglingar ís- lenzkra fiskiskipa á þessar hafnir í Englandi og markaðurinn stöð- ugur og góður. Pétur sagði, að svo virtist sem þetta væri, auk hag- stæðs markaðar, örþrifaráð sumra utgerðarmanna til að geta haldið skipum sínum úti. Skýring þessa háa markaðsverðs væri fyrst og fremst lítið framboð í kjölfar lé- legs aflaárs í Norðursjónum og miklar brælur þar í síðustu viku. Þa skipti ennfremur máli sú þróun - Pundsins gagnvart dollar, sem ylli þvi að framboð á frystum fiski í Englandi væri fremur lítið. Einnig skipti það auðvitað máli varðandi solu Slettanessins, að fiskur þess |hefj'x?nð fyrsta flokks enda landað 16 dögum eftir að veiðiferð hofst, en það þætti gott í Eng- landi. Að lokum gat Pétur þess, að við samanburð á heildarverði Slétta- nessmsogögra.yrti aðgetaþess, Ae' Cooaf 1 Slétt«nessins hefði venð 159,2 lestir, en Ögra 242,3 lestir. Þannig hefði Sléttanesið fengið að meðaha11 57 pund á hvertkit(62,5kílo)en Ögrium37 pund fyrir hvert kit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.