Morgunblaðið - 12.12.1984, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.12.1984, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984 4. greinin r Eg náði í skottið á unglinga- þætti hér á dögunum í Ríkis- útvarpinu, þar sem nokkrir ungl- ingar voru inntir álits á hinu svo- kallaða frjálsa útvarpi, sem nú virðist í burðarliðnum á hinu háa Alþingi. Ungmennin voru á einu máli um að leyfa skyldi sjálfstæðar út- varps- og sjónvarpsstöðvar. Höfðu krakkarnir ljósa hugmynd um æskilegt dagskrárefni hinna frjálsu stöðva. Hið frjálsa útvarp skyldi absolút útvarpa poppi, helst allan sólarhringinn, og í hinu nýfrjálsa sjónvarpi átti einkum að sýna „spennumyndir". Ja ekki eru kröfurnar miklar hjá krökkunum. Sýnist mér að hinar frjálsu útvarps- og sjónvarps- stöðvar muni ekki eiga í miklum vandræðum með að koma til móts við þennan aldurshóp. Auglýs- ingar munu og streyma inn til unglinganna, því eins og allir vita eru þeir frekir til fjörsins, háðari tískusveiflum, og þar með mark- aðinum, en flestir aðrir samfé- lagsþegnar. 4. greinin Ég nefni þetta, því mér sýnist að þarna sé hagnaðarvon og sá steinn er geymir glitrandi gull liggur eigi lengi óhreyfður. Að vísu stendur í 4. grein frumvarps til nýrra útvarpslaga, ... út- varpslaganefnd er andvíg því að stofna til hreinræktaðs viðskipta- útvarps („Commercial radio/tv“). Að baki þessari klausu liggur vafalaust göfugt lífsviðhorf, en svolítið framar í 4. greininni stendur: Hér er lagt til að hljóð- varps- og sjónvarpsstöðvar, sem leyfi hafa fengið til þráðlausra útsendinga, megi afla fjár til dagskrárgerðar með auglýsing- um. Slíkar stöðvar geta ekki með góðu móti innheimt afnotagjöld, þótt bjóða megi áskrift að efni stöðvanna ... Bann við auglýs- ingum stöðva af þessu tagi gæti leitt til lélegrar dagskrár." Nýtt útvarpsráð? Mér finnst gæta hér nokkurs tvískinnungs í afstöðu útvarps- laganefndar. Annars vegar leggst hún gegn „hreinræktuðu við- skiptaútvarpi" og hins vegar styður hún „frjálsar" útvarps- og sjónvarpsstöðvar, sem svo til al- farið lifa af auglýsingum. Hver á að beina efni þessara frjálsu út- varps- og sjónvarpsstöðva í þann menningarlega farveg, er hindrar þær í að umhverfast í „... hreinræktað viðskiptaútvarp". Máski eins konar „útvarpsráð"? Hvað lifir þá af hugsjóninni um hið frjálsa útvarp. Auðvitað hvorki tangur né tetur, því eðli sínu samkvæmt hagar frjálst út- varp sér í samræmi við hin al- mennu lögmál er gilda í samfé- laginu, það er lögmálið um fram- boð og eftirspurn. Hinar frjálsu útvarps- og sjónvarpsstöðvar geta eigi staðist samkeppnislög- málið nema þær fái að starfa óháðar miðstýringarvaldinu. Þær verða að haga dagskrá sinni að miklu leyti i samræmi við neyt- endur og auglýsingamarkaðinn, en ekki í samræmi við menning- arlegar forskriftir ríkisvaldsins. Því er út í hött að leggjast gegn „... hreinræktuðu viðskiptaút- varpi“, en berjast á sama tíma fyrir frjálsu útvarpi er ... megi afla fjár til dagskrárgerðar með auglýsingum". Unglingarnir í fyrrgreindum unglingaþætti vildu gera meira popp og fleiri spennumyndir. Verði þeim að ósk sinni, þeir eiga að erfa landið blessaðir, svo geta kallinn og kellingin borgað hærra afnotagjald ... sem nemur tapi auglýsingatekna ... eins og stendur á blaðsíðu 12 í frumvarpi til útvarpslaga. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP Matur og næring - lokaþáttur Garðávextir Raunapottréttur 12 smálaukar eða 2 venju- legir laukar 750 g af rótum og hnýð- um, t.d. 'k seljurót ‘k gulrófa 2 gulrætur 2 kartöflur 2 msk. matarolía xk tsk. pipar 1 dós niðursoðnir tómatar (500 g) 2 msk. sojasósa e.t.v. salt 2 hvítlauksrif, marin 2 lárviðarlauf 'k tsk. tímjan 1— 1'k dl vatn 2— 4 dl soðnar hvítar eða brúnar baunir 1. Hreinsið laukana og grænmetið og skerið það í stóra bita. 2. Brúnið grænmetið í olíunni við snarpan hita. 3. Látið piparinn, inni- hald tómatdósarinnar, sojasósu, (salt), hvítlauk, lárviðarlauf, tímjan og vatnið út í og sjóðið þar til grænmetið er næstum fullsoðið. 4. Bætið baununum út í og hitið að suðu. Berið réttinn fram með grófu brauði. Virginíusalat 1 salathöfuð — í bitum 3 tómatar í bátum 'k gúrka — í bitum 2 harðsoðin egg í bátum 8 soðnar kartöflur í sneið- um nokkrar greinar dill eða steinselja — klippt Látið allt í lögum í skál. Salatsósa matarolía edik eða sítrónusafi tarragon salt, pipar Blandið þessu saman og hellið yfir salatið. Þetta salat er heil máltíð ef gróft brauð er borið fram með. Alda Möller dósent t.v. og Laufey Steingrímsdóttir dós- ent, umsjónarmaður þáttarins Matar og næringar. Stjórnendur þáttarins „Hvað viltu verða?“, Sigrún Hall- dórsdóttir t.v. og Erna Arnardóttir. Starf leikara kynnt í þættinum „Hvað viltu verða“ ■^■■B Starfs- og O A 20 náms- áívl “ kynningarþátt- urinn „Hvað viltu verða?" í umsjá Ernu Arnardóttur og Sigrúnar Halldórsdótt- ur er á dagskrá útvarps- ins í kvöld. f þessum þætti verður nám og starf leikara kynnt. í samtali við Ernu Arnardóttur kom fram, að Kjartan Bjargmunds- son leikari kemur í heim- sókn og mun hann segja frá því hvernig er að vera leikari. „Síðan fórum við niður í Leiklistarskóla," sagði Erna, „og hittum Helgu Hjörvar, skóla- stjóra Leiklistarskólans, og hún sagði okkur allt um Leiklistarskólann, inntökuskilyrði, nám í skólanum, námsgreinar o.s.frv. Einnig verðum við með viðtöl við leiklistarnema á 4. ári í Leiklistarskóla ís- lands. Þar verður spjallað um leiklist, nám og starf leikara." í þættinum verður flutt tónlist og verða að þessu sinni einungis flutt lög af plötunni Pleasuredome með Frankie Goes to Hollywood. Úr kvennabúrinu: Hazel O’Connor og Big Mama Thornton ■■■■ Á dagskrá rás- 1 7 00 ar 2 í dag er A • -’ m.a. þáttur Andreu Jónsdóttur Úr kvennabúrinu. Þáttur þessi mun að mestu leyti fjalla um bresku ný- bylgjusöngkonuna, laga- smiðinn og hljóðfæraleik- arann Hazel O’Connor. Andrea Jónsdóttir sagði, að þrátt fyrir að Hazel O’Connor hefði verið í þessum „bransa" um nokkurt skeið, væri hún fyrst nú smám saman að öðlast frægð. Nýjasta plata hennar verður einn- ig kynnt í þættinum. Eflaust muna einhverj- ir eftir henni úr myndinni Braking Glass, sem sýnd var hér fyrir nokkru. í myndinni fór Hazel O’Connor með aðalhut- verkið. í þættinum verður einnig fjailað um banda- rísku blús-söngkonuna Big Mama Thornton, sem lést fyrir stuttu. Hún var fædd 11. desember árið 1926. Svo virðist sem hún hafi ekki verið mjög þekkt hér á landi, því aðeins er til eitt lag með söng henn- ar á plötu í Ríkisútvarp- inu. Þetta lag er á safn- plötu með lögum eftir Johnny Ace, sem var poppstjarna í Bandaríkj- unum á 6. áratugnum og verður það flutt í þættin- um ásamt lagi eftir Big Mama Thornton sjálfa, Ball and Chain, sem Janis Joplin söng og gerði frægt. Andrea Jónsdóttir. í þættin- um Úr kvennabúrinu í dag kynnir hún söngkonurnar Hazel O’Connor og Big Mama Thornton. ÚTVARP MIÐVIKUDAGUR 12. desember 7.00 Veðurfregnír. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn- ir. Morgunorð: — Hólmfrlður Nikulásdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Jólagleði" Sigrún Guðjónsdóttir les smásögu eftir Ragnheiði Jónsdóttur. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.15 Ur ævi og starfi íslenskra kvenna Umsjón: Björg Einarsdóttir. 11.45 Islenskt mál Endurtekinn þáttur Jörgens Pind frá laugardegi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 Barnagaman Umsjón: Sigrún Jóna Krist- jánsdóttir. 13.30 Arja Saijonmaa, Duke Ellington, Erik Paaske o.fl. syngja og leika. 14.00 A bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.30 Miðdegistónleikar Mormónakórinn í Utah syng- ur lög eftir Stephan Foster; Richard P. Condie stj. 14.45 Popphólfið — Bryndls Jónsdóttir. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Islensk tónlist Ólafur Þ. Jónsson syngur lög eftir íslensk tónskáld. Ólafur Vignir Albertsson leikur á planó. 17.10 Slðdegisútvarp Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Utvarpssaga barnanna: „ Ævintýri úr Eyjum" eflir Jón Sveinsson Gunnar Stefánsson les þýð- ingu Freysteins Gunnarsson- ar (10). 20.20 Hvað viltu verða? Starfskynningarþáttur i um- sjá Ernu Arnardóttur og Sig- rúnar Halldórsdóttur. 21.00 „Let the People Sing" 1984 Alþjóðleg kórakeppni á veg- um Evrópusambands út- varpsstöðva. 5. þáttur. Um- sjón: Guðmundur Gilsson. Keppni samkynja kóra. 21.30 Utvarpssagan: Grettis saga Óskar Halldórsson les (13). SJÓNVARP MIÐVIKUDAGUR 12. desember 19.25 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni: Söguhornið: Sálin hans Jóns mins — þjóðsaga. Sögumaður Gunnlaugur Astgeirsson. Myndir eftir Ragnhildi Ólafsdóttur. Litli sjóræning- inn, Tobba og Högni Hinriks. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Matur og næring Lokaþáttur — Garðávextir. Myndaflokkur I fimm þáttum um næringu og hollt matar- æði. Gestur verður Alda Mðller, dósent. Umsjón: Laufey Stein- grímsdóttir, dósent. Stjórn upptöku: Kristln Pálsdóttir. 21.15 Þyrnifuglarnir Attundi þáttur. Framhaldsmyndaflokkur I tlu þáttum, gerður eftir sam- nefndri skáldsögu eftir Coll- een McCullough. I slöasta þætti sagði frá þvl að Meggie ól meybarn en ekki bætti það sambúð þeirra Lukes. Ralp de Bric- assart biskup snýr heim til að velja milli kirkjunnar og Meggie. Þýðandi Oskar Ingimarsson. 22.15 Eþiópla — þjóð I þreng- ingum Einar Sigurðsson fréttamað- ur, sem var á ferð ( Eþióplu nú um mánaðamótin, lýsir neyðarástandinu I landinu. 22.50 Djassþáttur Airto og Flora Purim flytja djass með suðrænu hljómfalli. 23.20 Fréttir I dagskrárlok. 22.00 Horft I strauminn með Kristjáni frá Djúpalæk (RUVAK) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Tlmamót Þáttur i tali og tónum. Um- sjón: Arni Gunnarsson. 23.15 Nútimatónlist Þorkell Sigurbjörnsson kynn- ir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RÁS 2 MIÐVIKUDAGUR 12. desember 10.00—12.00 Morgunþáttur Róleg tónlist. Viötöl. Gesta- plötusnúður. Ný og gömul tónlist. Stjórnendur: Kristján Sigur- jónsson og Jón Ólafsson. 14.00—15.00 Eftir tvö Létt dægurlög. Stjórnandi: Jón Axel Ólafs- son. 15.00—16.00 Nú er lag Gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 16.00—17.00 Vetrarbrautin Stjórnandi: Júllus Einarsson. 17.00—18.00 Ur kvennabúrinu Hljómlist flutt og/eða samin af konum. Stjórnandi: Andr- ea Jónsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.