Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 31 BMW 630 CS Til sýnis og sölu einn fallegasti sportbíll landsins. Einn með öllu. Bílatorg Nóatúni 2. Sími 13630, 19514. Skipadeild Sambandsins: Nýtt húsnæði fyrir starfsmenn við Holtabakka SKIPADEILD Sambandsins tók formlega í notkun húsnæði fyrir starfsmenn á hafnarsvæðinu við Holtabakka sl. þriðjudag. Byggingin sem húsnæðið er í er 750 fm að grunnfleti. Aðstaða fyrir starfsmenn er á efri hæð hússins. Þar verður mötuneyti fyrir 138 manns, búningsklefar, hvíldar- og hreinlætisaðstaða. Á neðri hæðinni verður verkstæði. Axel Gíslason framkvæmda- stjóri Skipadeildar SÍS ávarpaði gesti við athöfnina og sagði m.a. að mikil áhersla hefði verið lögð á að gera aðbúnað fyrir starfsmenn sem best úr garði. Húsnæði þetta verður jafnframt nýtt til að halda námskeið og skipuleggja aðra endurmenntum sem er nauðsynleg til að fylgjast með nýjungum í búnaði og bættum starfsháttum. Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins afhenti Ingibergi Gunnlaugssyni verkstjóra mál- verkið „Ur álögum hvítra manna" eftir Gísla Sigurðsson. Teiknistofa Sambandsins sá um útlits- og lagnateikningar auk þess sem hún hafði eftirlit með framkvæmdum. Verkfræðistofa Braga og Eyvindar sá um burðar- þolsútreikninga og teikningar. Að framkvæmdum hússins stóðu einnig Byggðaverk hf., Hitaver hf., Jötunn hf., Viðar og Þórarinn, Blikksmiðjan hf., Páll Wium og ólafur ólafsson. Athafnasvæði Skipadeildar við Holtabakka er nú um 9000 fer- metrar að stærð. Steinar hf.: Alþjóðleg viðurkenn- ing fyrir Mezzoforte STEINAR HF. hafa hlotið verðlaun sem kallast International Trophy of Quality sem verða afhent í Madrid á Spáni þann 11. mars nk. Verðlaun þessi eru nú veitt í 13. sinn og er það „Trade Leaders Club“ sem veitir verðlaunin. „Trade Leaders Club“ eru al- þjóðleg samtök leiðandi manna og fyrirtækja úr viðskipta- heiminum, sem staðsett eru á Spáni. Árlega veita forráða- menn „Trade Leaders Club“ nokkrum ólíkum fyrirtækjum á flestum sviðum viðskipta- og iðnaðar viðurkenningar sínar. Eru þessi verðlaun hugsuð til að vekja enn frekari athygli á þeim sem skarað hafa framúr á sínu sviði á alþjóðlegum vett- vangi. Verða verðlaunin afhent þann 11. mars við hátíðlega at- höfn í Melia Castilla hótelinu í Madrid að viðstöddu miklu fjölmenni. Meðal gesta verða nokkrir helstu stjórnmála- og embætt- ismenn Spánar, leiðandi menn úr spænsku efnahagslífi og menningarlífi, sem og erlendir sendiherrar og fulltrúar al- þjóðlegra fyrirtækja. Verðlaunaafhending þessi vekur jafnan mikla eftirtekt og senda allir fjölmiðlar Spánar og alþjóða fréttastofur fulltrúa sína til að fylgjast með henni. Auk þess fjallar spænska sjón- varpið og útvarpið jafnan ítar- lega um afhendingu þessa og þá sem viðurkenningar hljóta hverju sinni. Að sögn Péturs Kristjáns- sonar hjá Steinum hf. leikur lítill vafi á því að þessi verð- laun eru fyrst og fremst veitt fyrirtækinu einmitt nú vegna þess mikla árangurs sem náðst hefur í að koma tónlist hljóm- sveitarinnar Mezzoforte á framfæri erlendis. Steinar hf. hafa undanfarin tvö ár rekið skrifstofu í Lundúnum, en þar hefur Steinar Berg ísleifsson verið staðsettur og annast hann alþjóðleg viðskipti fyrir- tækisins. Hann mun fara til Spánar og taka við verðlaunun- um fyrir hönd Steina hf. Pétur Kristjánsson sagði ennfremur, að tónlist Mezzoforte væri nú fáanleg í allri Vestur-Evrópu, Kanada, Ástralíu, ísrael, Jap- an, Singapore, Hong Kong, Thailandi, Filippseyjum og víð- ar. Sagði Pétur að tónlist hljómsveitarinnar hefði hvar- vetna hlotið lofsamlega dóma og verið mikið leikin í útvarps- og sjónvarpsstöðvum víða um heim. Skeifan 3h - Sími 82670 Hljómsveitin Mezzoforte hefur gert það gott að undanförnu. Úttak á rafmagni; 3x380 V/1x220 V LEITIÐ UPPLÝSINGA. Annar mælikvarði á mynd bönd en kvikmyndahús? „Hugmyndin góðra gjalda verð,“ segir forstöðumaöur Kvikmyndaeftirlitsins „ÉG GET tekið undir allt það sem kemur fram í grein Árna l>órarinssonar, enda sýnist mér hún skrifuð af mikilli skynsemi,“ sagði Níels Árni Lund, forstöðumaður Kvikmyndaeftirlits ríkisins, þegar blm. Mbl. ræddi við hann í gær. I Morgunblaðinu á sunnudag ritar Árni Þórarinsson grein, þar sem hann furðar sig m.a. á því hvaða myndir er að finna á bann- lista kvikmyndaeftirlitsins. Nefn- ir Árni tvær myndir á listanum, Scanners og Visiting Hours, sem hann segir eiga lítt erindi á list- ann. Árni viðrar þá hugmynd að tveir mælikvarðar verði notaðir á kvikmyndir, annar fyrir mynd- bandaleigur og hinn fyrir kvikmyndahús. Yrði þá leyft að sýna svokallaðar klám- og ofbeld- ismyndir í kvikmyndahúsum, þar sem börn og aðrir sem minna mega sín geta ekki séð þær. Einn- ig furðar Árni sig á því að myndir, sem sýndar voru í kvikmyndahús- um séu á listanum. „Kvikmyndaeftirlitið mat það svo, að þessar tvær myndir sem Árni nefnir skyldu vera á listan- um,“ sagði Níels Árni. „Að vísu urðu nokkrar umræður um mynd- ina Scanners, en niðurstaðan varð MORGUNBLAÐINU barst eftirfar- andi fréttatilkynning frá Félagi ráðgjafarverkfræðinga: I tilefni af fréttum um umræður á alþingi vegna sjóefnavinnslu á Reykjanesi ályktaði stjórn Félags ráðgjafarverkfræðinga á fundi sínum 4. mars 1985: Stjórnin harmar að ósmekkleg ummæli iðnaðarráðherra um nafngreinda verkfræðinga á Al- þingi skuli hafa verið gerð að fréttaefni og rangtúlkuð af fjöl- miðlum sem rógur um stétt verk- fræðinga. Ráðherrann byggir málflutning sinn á niðurstöðum verkfræðinga, og því hlýtur hann að hafa tiltrú á stéttinni. Stjórnin sem sé sú að hún skyldi bönnuð. Um allar aðrar myndir á listanum var algjör einhugur hjá eftirlits- fólki.“ Níels Árni sagði fulla þörf á að setja nánari reglur um klám- og ofbeldismyndir, því lögin sem kvikmyndaeftirlitið hefði nú til hliðsjónar væru mjög óljós. „Framleiðendum og myndbanda- leigum er líka full þörf á fyllri lögum, svo þeir geti varast slíkar myndir og lendi ekki í eftirmál- um,“ sagði Níels Árni. „Mér finnst hugmynd Árna um tvenns konar mælikvarða á myndir, eftir því hvort kvikmyndahús eða mynd- bandaleigur eiga í hlut, allra góðra gjalda verð, enda get ég tek- ið undir það með honum að kvik- myndahúsin hafa yfirleitt séð um að skilja sorann frá , þau hafa ekki farið fram úr sínum tak- mörkunum í vali á efni. Þegar Árni furðar sig á því að myndir, sem voru sýndar í kvikmyndahús- unum skuli vera á listanum, vil ég væntir þess að ráðherranum ber- ist sem fyrst þau svör sem hann hefur óskað eftir um störf verk- fræðinga, þannig að málin skýrist fyrir honum. benda honum á að þær voru sýnd- ar á meðan engin lög voru í gildi um þessi mál. Kvikmyndaeftirlitið gat ekki bannað slíkar myndir, heldur einungis sett aldurstak- mark þar á. Ánnað var hreinlega ekki hægt að gera. Það er hins vegar óskaplega erfitt að draga mörkin á meðan lögin eru jafn óljós og nú er, en ég er sannfærður um að þessi miðill er það áhrifa- mikill að þörf er á að grisja mark- aðinn. Hvort við í eftirlitinu erum rétta fólkið til þess má síðan alltaf deila um,“ sagði Níels Árni Lund, forstöðumaður kvikmyndaeftirlits ríkisins, að lokum. Kettirnir eru engin óargadýr ÍBÚI, sem býr í húsi í nágrenni við hitaveitustokkinn við Réttarholts- veg, séra Andrés ólafsson, hefur komið að máli við Morgunblaðið og kvað hann frétt blaðsins um villikettina í hitaveitustokknum mjög orðum aukna. Hann kvað fólkið í nágrenninu gefa köttun- um, sem væru mjög gæfir og hændir að fólki og alrangt væri að tala um þá sem einhver óargadýr. Andrés kvað barnabörn sín ung iðulega fara og gefa köttunum, sem gerðu þeim ekki mein. Hann kvað krakkana í hverfinu ekki mönnum sinnandi vegna þess að nú ætti að drepa vini þeirra, kett- ina, en í fyrradag var meindýra- eyðir að störfum við hitaveitu- stokkinn. A r . MÓTORDRIFNAR uenbet rafsuðuvélar. TIL AFGREIÐSLU Gon/Set 5/170 CK 170 AMP DC 90 V kveikispenna Gen/Set 3/200 CK 200 AMP DC 65 V kvelkltpenna Félag ráðgjafarverkfræðinga harmar ummæli iðnaðarráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.