Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985 39 Afmæli í dag: Benedikt Jónsson húsasmiður 80 ára Benedikt Jónsson fæddist í Súðavík við Isafjarðaidjúp 11. apríl 1905. Faðir hans, Jón Helgason, var smiður á hús og skip og átti heima í Súðavík. Hann dó þegar Benedikt var á öðru ári. Telur Benedikt að mikið vinnuálag og bágborin vinnuaðstaða hafi lfklega orðið honum að aldurtila, þegr hann vann úti við bátasmíðar. Benedikt ólst upp með móður sinni ógiftri á ýmsum bæjum í Álftafirði. Hjá syni sínum átti hún athvarf síðar þegar aldur færðist yfir og dó hún á Sólvangi 1958, en þá átti Benedikt heima í Hafnarfirði. Á uppvaxtarárum sínum vann hann við sveitabúskap og átti lengi heima á bæ í Álftafirði sem heitir Seljaland. Einnig var hann mikið á sjó við Djúp. Þegar hann var 19 ára fór hann að vinna við bátasmíðar. En þegar meistari hans veiktist og féll frá, fór hann aftur að vinna ýmis störf bæði á landi og sjó. Þegar hann er 24 ára (1929) fær hann vinnu við húsasmíðar hjá Guðmundi Þorleifssyni húsa- smíðameistara, en flytur til Siglu- fjarðar 1931 og hélt áfram húsa- smíði hjá Jóni Jóhannssyni húsa- smíðameistara og lauk þar sveinsprófi 1936. Benedikt stofnaði heimili á Siglufirði með Jónu Ásmundsdótt- ur, sem var Eyfirðingur að ætt, fædd á Árskógsströnd 1917. Á Siglufirði eignuðust þau eina dóttur, Ásmundu, sem nú er látin, fædd 1938. Þau hjónin fluttu síðar á Ár- skógsströnd, þar sem Benedikt byggði nýbýlið Viðarholt. Þar eignuðust þau aðra dóttur, Guð- rúnu, fædda 1946. Á þessu tímabili vann Benedikt við skipasmíðar á Akureyri. Til Dalvíkur flytja þau 1943 og eiga þar heima til 1950. Þar vann Benedikt bæði við húsa- og skipa- smfðar, smíðaði þar meðal annars upp á eindæmi 13 opna súðbyrð- inga. Þaðan flytja þau í Kópavog og eru þar í eitt ár. Þar fæddist þeim þriðja dóttirin, Snjólaug Áðal- heiður, ’53. Síðan flytja þau til Keflavíkur og þar vann Benedikt við skipasmíðar í Dráttarbraut Keflavíkur. Til Hafnarfjarðar fluttu þau 1955 og hóf þá Benedikt smíðar í Bátalóni hf. þar sem hann vann i 20 ár, eða fram til sjötugs, 1975, en heilsa og sjón voru farin að valda honum miklum erfiðleikum eftir langan og erfiðan vinnudag, því hann er með allra duglegustu og afkastamestu mönnum sem ég hef kynnst, að öðrum ólöstuðum. Benedikt átti tvö hálfsystkini, Benjamín og Jóhönnu, sem faðir hans, Jón, átti með konu sinni sem lést nokkrum árum áður en hann fór að búa með Guðrúnu móður Benedikts. Hálfsystkini hans eru bæði dáin. Ásmunda dóttir Benedikts sem dó fyrir nokkrum árum eignaðist fjögur börn. Guðrún er gift Guðjóni Jó- hannssyni pípulagningameistara og eiga þau 4 börn. Snjólaug Aðalheiður er gift NÝ HÁR- SNYRTISTOFA OPNUÐ hefur verið ný hársnyrtistofa að Laugavegi 92. Boðið er þar upp i almenna hársnyrtiþjónustu fyrir dömur og herra. Á miðvikudögum verður 20% afsláttur veittur fotluðum og ellilffeyr- isþegum. Virka daga verður þeim viðskiptavinum sem koma reglulega innan sex vikna veittur 10% afsláttur. Figendur Evrópu hf. eru Frið- björg Kristmundsdóttir hárskera- meistari og hárgreiðslumeistar- arnir Stella Hauksdóttir, Selma Jónsdóttir, Hrefna Smith og Fé- lag hárgreiðslu- og hárskera- sveina. Guðna Björnssyni bifvélavirkja og eiga þau 3 börn. Benedikt var afkastamikill og á til óvenjumikla hugkvæmni sem auðveldaði honum þau verk er hann vann við. Þessir eiginleikar hans komu sér mjög vel, og er mér sérstak- lega minnistætt þegar hann var að reisa með okkur bræðrum, mér og Ólafi, sumarbústað á Hall- steinsnesi. Minnst af efninu var pantað til byggingarinnar heldur var byggingarefnið úr ýmsum mismunandi húsakofum sem rifn- ir voru niður eftir að hætt var þar búskap og þurfti þvi mikla hug- kvæmni til þess að raða þessu efni heppilea saman. Þetta verk tókst Benedikt að mínum dómi með miklum ágætum og ótrúlega fljótt. Þótt Benedikt sé uppalinn sem fátækur daladrengur og f sjópláss- um vestur við tsafjarðardjúp, er samt ástæða til að ætla að hann hafi ýmislegt séð fyrir sér á upp- vaxtarárunum. ísafjarðarkaup- staður var nefnilega á síðari hluta síöustu aldar og fyrstu áratugum af þessari, einhver mesti menn- ingar- og athafnabær á öllu land- inu og ég efast ekki um að þar hefur Benedikt kynnst ýmsu eftir- tektarverðu á uppvaxtarárunum og hefur það auðveldað honum síðar að takast á við ýmiskonar verkefni. Benedikt dvaldi á Siglufirði á þeim árum sem Siglufjörður var hvað mestur auðsældar- og upp- gangsbær á öllu landinu. Þannig tel ég að Benedikt hafi kynnst ýmsum hliðum íslensks þjóðlífs og hefur búið að þeirri reynslu. Benedikt Jónsson var oft glað- vær og gamansamur starfsmaður, sem hafði jákvæð og góð áhrif á vinnustað. Það kom margoft fyrir, þegar samstarfsmenn hans voru í fúlu skapi út af einhverju, að Benedikt kom með svo fyndnar og sposkar hugmyndir í sambandi við það sem var að svekkja menn að allir fóru að skellihlæja, og þá gekk starfið betur. Þessir eigin- leikar vona ég að fylgi Benedikt um alla eilífð. Mér er efst í huga þakklæti til Benedikts fyrir þau mörgu verk er hann vann í Bátalóni hf. þau 20 ár sem hann starfaði þar, og fyrir samstarfið og ágæta mannkosti kann ég honum kærar þakkir. Dætrum hans, barnabörnum og öllum hans nánustu óska ég til hamingju með afmælið. Þórbergur Ólafsson Tölvunámskeið APPLE lle/llc Námskeiö í notkun hinna öflugu og vinsælu töiva frá APPLE. Efni: • Uppbygging APPLE lle/llc. • Tenging tölvunnar viö önnur tæki. • Stýrikerfi APPLE-tölva. • APPLE WORKS-fjölnotakerfiö. • Tölvunet, .modem“ og gagnabankar. • APPLE II til leikja, skemmtunar og fræöslu. Námskeiöiö veitir góöa æfingu í notkun APPLE-tölva og APPLE-hugbúnaöar. Leiöbeinendur: Dr. Kristján Ingvarsson verk- fræöingur, Karl Bender verkfræðingur, Hall- dór Kristjánsson verkfræóingur. Tími: 15. Dr. Kristján Ingvarsson verkfræðingur. 19. apríl kl. 17—20. Karl Marcus Bender Halldór Krlstjánsson verkfræðingur. verkfræöingur. Tölvunámskeiö fyrir fullorðna Fjölbreytt og vandaö byrjendanámskeió fyrir þá sem ekki hafa átt þess kost aó læra um tölvur í skóla. Dagskrá: • Undirstööuatriöi viö notkun tölva. • Forritunarmáliö BASIC. • Æfingar í BASIC. • Ritvinnsla meö tölvu. • Gagnasafnskerfi. • Töflureiknar. • Tölvunotkun í atvinnulífinu. Tími: 16., 18., 23. og 24. apríl kl. 20—23. Yngvi Pótursson menntaskólakennarí. Innritun í símum 687590 og 686790. TÖLVUFRÆPSLAN Ármúla 36, Reykjavflr. HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI Sérhæfó þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. r :” RADIAL gtimpildælur^ = HEÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI 24260 LAGL'R-SERPANTANIR-ÞJÓNUSTA ESAB Rafsuóutæki vír og fylgihlutir Nánast allttil rafsuðu. Forysta ESAB ertrygging fyrirgæðum og góðri þjónustu. Allartækni- upplýsingar eru tyrirliggjandi ísöludeild. = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2. SlMI24260 ESAB Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.